|
|
:: þriðjudagur, desember 31, 2002 ::
DJÖFULLINN!!!!!!!!! Ég búinn að skrifa heljarinnar blogg en svo fer allt í fokk! ojæja.....
Ég var að spá hvort ekki væri stemning fyrir að kíkja upp á Esju einhvern næstu daga? 2. janúar kemur sterkur inn, þ.e.a.s. ef veður verður skikkanlegt Hmmm? Það verður enginn svikinn af Esjunni skal ég segja ykkur. Sendið mér póst ef þið hafið áhuga.
Könnuninni er þá bara lokið:
5 ætla aldeilis að fara í partý
1 veit ekki enn
2 ætla í kjallarann hjá Brynjari (ég og e-r annar...)
3 ætla á Kaffi Reykjavík
2 ætla að vera heima, leigja spólu og panta pizzu (leyfi mér þó að efa það...)
og einn ætlar að snerta sjálfan sig í kvöld.
Þá er bara spurningin: hverjir eru á bak við tölurnar?
Ég segi að lokum: Gleðilegt nýtt ár og skemmtið ykkur vel í kvöld
:: G-Sus 16:47 [+] ::
...
Þá er bíóferð lokið og ég veit að enginn nennir að lesa enn einn lofsönginn um Hringadróttinssögu svo ég læt mér eiginlega nægja að segja að hún er allsvaðalega góð.
Ef maður hefur lesið bækurnar þá fær maður svolítið öðruvísi sýn á þetta. Ég veit alltaf hvað gerist næst en í staðinn er ég alltaf að bíða og sjá hvort þetta sé e-ð eins og ég ímyndaði mér þetta. Bardaginn við Helmsdeep fer nokkuð nærri lagi... Það sem mér finnst svo merkilegast við svona RISA-myndir eru áhrifin sem þær hafa á mann. Ég stóð sjálfan mig að því að hafa kökk í hálsinum stundum þegar e-ð rosa merkilegt var að gerast eins og t.d. þegar álfarnir koma til Helmsdeep. Ég var semsagt með kökk í hálsinum en ekki kokk því það hefði bara verið hommó og subbulegt.
Djöfulli er álfurinn hann Orlando Bloom sætur! .....samt enginn Brad Pitt......
Ég er oft eins og álfur en samt er ég ekki svona sætur eins og hann.
Nei nei segi bara svona...
Er´ ekki allir að vinna! Eruði í kaffi!! Vinna strákar! Vinna!
Muna svo: Kjósa í könnun ef ekki þegar búin
See you on da flip side....
:: G-Sus 01:21 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 30, 2002 ::
Nú þegar það er ekki neitt að gerast í hinum margrómaða Taekwondo heimi þá líður manni illa vegna hreyfingarleysis og maður verður ofvirkur. Um daginn stökk ég upp á Esju en í dag lét ég mér nægja að skella mér í Skvass með Daða og svo var Arnie auðvitað á svæðinu. Skvass er alveg magnaður leikur. Það er ekki að spyrja að því en ég rúllaði auðvitað yfir Daða. Nei....nú lýg ég. Mér líkar nú ekki að vera að afsaka mig en.... ég fór síðast í Skvass í 8. bekk og fyrir alla stærðfræðihausana þarna úti gerir það 8 ára hlé!!! Daði er búinn að fara e-ð 3 sinnum á síðastliðnu ári svo... Allavega þá var gengi ekki sem best. Svo fylgdumst við aðeins með Arnie og það er bara rugl hvað gaurinn er góður. Þrefalt húrra fyrir Arnþóri! Húrra! Húrra!.....já....Húrra!
Arnie er líka heitið á þroskahefta gaurnum sem Leonardo DiCaprio lék í What´s Eating Gilbert Grape (ísl. Hvað er að éta Gilbert súraldin). Arnþór kemst ekki á netið og sér þetta því ekki en nafnið á nokkuð vel við hann.
Svo erum við félagarnir 3, í sögunni hér að ofan, að fara á LOTR II í Regnboganum á eftir. Það var allt uppselt í Smárabíó og það er uppselt á allar sýningar í lúxussal til 6. janúar! I´m from Holland! Isn´t dat weird?
Jú hev a verrí tójd boddý!
:: G-Sus 17:26 [+] ::
...
:: G-Sus 00:04 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 29, 2002 ::
Þórólfur Árnason verður næsti borgarstjóri Reykjavíkur. Til hamingju Dolli!!!
Fingurbjörg Sólbrún lætur víst af embætti 1. febrúar.
American Beauty
Frábær mynd. Ótrúlega sorgleg undiralda alla myndina. Sorglegur fyrrverandi her-kallinn í húsinu við hliðina. Hatar allt sem er hommó en er svo hommi sjálfur. Þetta var held ég núna í 3. eða 4. sinn sem ég sé myndina og alltaf er hún jafngóð.
Hver er að heimsækja þessa síðu frá Danmörku? Á teljaranum sé ég að ein endingin er .dk ...... Hmmmmmm?
:: G-Sus 22:22 [+] ::
...
Þá er sumarbústaðaferð lokið. Því miður, Atli, þá nenni ég ekki hálfur að skrifa um ferðina... Þetta var annars fínt en fólk var misvel stemmt. Svo legg ég nú til að menn hætti að segja: „gera Gústa! gera Gústa“! eins og einhverjir vanþroska einstaklingar......og breyti því yfir í að gera Dauða...... Takk. Sorry Daði.
Svo vill Helgi ekki lengur vera kallaður Skrímslið. Hann vill vera kallaður Helgi. Því verður erfitt að breyta.
:: G-Sus 18:34 [+] ::
...
:: laugardagur, desember 28, 2002 ::
Hvernig er hægt að klúðra endalaust sínum málum? Þetta er spurning sem sumir kannski vilja fá svar við og þá endilega komið til mín....ég er orðinn þaulvanur. Sérstaklega þagar tölvan sér um að hlaupa í skarðið og klúðra málum fyrir mig.
Ekki takk fyrir mig tölvudrusla.
:: G-Sus 14:34 [+] ::
...
Í jólagjöf vildi ég fá Íslenska samheitaorðabók og fékk ég hana. Þar má t.d. finna eftirfarandi:
Augafullur: á augnalokunum, blekaður, blekfullur, bliksfullur, blindaugafullur, blindfullur, blindur, blindöskufullur, byttaður, dauðadrukkinn, draugfullur, drullufullur, á eyrnasneplunum, á felgunni, foráttudrukkinn, á herðablöðunum, á hvolfi, kengfullur, kófdrukkinn, á kúpunni, lútfullur, moldfullur, ofurölvi, peðfullur, pöddublindur, pöddufullur, sauðdrukkinn, á skallanum, skítfullur, skjóðufullur, skruggufullur, stauraður, staurblindur, staurfullur, stjörnublindur, svaðblautur, svartblindur, svartfullur, svíndrukkinn, svínfullur, útúr, útúrdrukkinn, útúrfullur, víðáttudrukkinn, þreifandi fullur, öskufullur.
Í kvöld, t.d., þá má örugglega finna Skrímslið drullufullan eða víðáttudrukkinn. Svo fylgja aðrir í kjölfarið en bara minna drukknir...
Bless
Sjáumst síðar, fróari!!! (hmmmm....)
:: G-Sus 13:48 [+] ::
...
Þá er annar dagur liðinn og ca. mánuður í stríð.
Hér á að koma eitthvað geeeeeeikt fyndið!!!!
Og hérna líka!!!!
Hvað get ég haft í næstu könnun....? hmmmm?
Hérna á að vera eitthvað sorglegt....
Og svo hérna eitthvað skemmtilegt!
Eins og þið sjáið er ég tómur í kvöld. Þetta kemur fyrir af og til. Stundum lýsir þetta sér í lélegu orðavali með afbrigðum eða jafnvel í merkingarlausum setningum. Ég hér er gul lítil hæna já. Já hæna já. Sí vott æ mín?
Svo á morgun (í kvöld) verður farið í bústaðinn hans Arnþórs í Þjórsárdal. Það verður vonandi gaman. Það mættu alveg koma fleiri. Öllum boðið!!! Verst samt að það er enginn pottur... Oh well.
See ya later, masturbator!
:: G-Sus 00:51 [+] ::
...
:: föstudagur, desember 27, 2002 ::
La vita è bella
eða Lífið er yndislegt. Það mætti segja að þessi mynd sé yndisleg. Var að klára að horfa á hana og myndin er mikil snilld. Ótrúlega fyndinn gaur þessi Roberto Benigni.
Stella í framboði
er aftur á móti hræðileg mynd og ef hún væri mannvera ætti hún ekki skilið að lifa. 1000 kall farinn sem ég hefði getað kveikt í og skemmt mér betur við að sjá hann brenna.
Sjáumst síðar, krókódílar!
Later....
:: G-Sus 15:48 [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 26, 2002 ::
Árleg jóla-Esjuferð Svartasauðs
Upp og niður á tveimur og hálfum tíma.
Mér finnst ég nú nokkuð góður á því. Systir mín var alveg ólm að koma með mér upp á Esju því enginn svokallaðra vina minna vildi koma. Við ætluðum fyrst bara upp að snjóröndinni og þar sneri systir mín svo við en ég tók þá ákvörðun að halda áfram. Áfram hélt ég áfram og áfram þangað til ég komst ekki lengra og Laufey fór niður að bíl. Upp á toppi var fjögurra manna fjölskylda nokkuð vel búin í gönguskóm og með stafi og dót. Ég var í sléttbotna hvítum venjulegum útiskóm og þau höfðu nú orð á því og sögðu að ég hefði farið upp einhverja bratta hlið á klettabeltinu. Ég er náttulega algjör hetja eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir. Það var nú líka þannig að ég hafði engann annan kost en að halda áfram upp. Hefði ég farið að klöngrast niður sömu leið hefði getað farið illa. Sums staðar leið mér eins og í þetta eina skipti sem ég fór með Henning í Klifurhúsið. Þetta var svona boulder klifur. Gaman gaman. Svo aftur að þessari fjölskyldu... fjölskyldan úr Hafnarfirði og konan var rosalega móðurleg og spurði mig hvort ég vildi ekki vera með þeim í samfloti niður. Ég játti því kostaboði og ferðin niður hófst. Það voru alveg ótrúlega falleg litbrigðin þarna uppi. Maður var svona nokkurn veginn í línu við skýin og svo heiður himinn fyrir ofan okkur. Konan spurði mig hvort ég væri í Háskólanum því henni fannst hún hafa séð mig á göngunum. Hmmmm....tvífari í Háskólanum. Kannski Fokkfeis? Svo sagðist hún vera að kenna dönsku við Háskólann. Skemmtilegt. Svo skildi ég við þau og tók niðurferðina á fartinum. Skokkaði niður og rann nokkrum sinnum á rassinn og kominn niður rétt fyrir fimm. Þá var orðið nokkuð rökkvað svo við hefðum ekki mátt vera mikið seinna í því. Einstaklega skemmtilegt allt saman og kom mér á óvart hversu margir voru að á fjallinu.
Það sem ég græddi á þessu er að nú finnst mér ég vera örlítið meira lifandi en þegar ég vaknaði í morgun...
:: G-Sus 18:33 [+] ::
...
Könnunin hefur sungið sitt síðasta og alls voru 11 atkvæði talin.
Helstu úrslit voru eftirfarandi:
3 segja mér að troða könnuninni á e-n afvikinn stað....
4 segja að ég sé jólasveinninn
1 kaus Sigga og Valla sem jólasveina(!!!)
Úrslitin eru því ljós og samkvæmt almannarómi er ég jólasveinninn og er það bara mjög vel. Ég er náttulega algjör jólasveinn og neita ég því ekki. Svo má líka lesa út úr þessu að fólk er almennt óánægt með þessar kannanir. Hmmm......
Ég lét mæðgurnar taka upp fyrir mig Bridget Jones´s Diary og Lífið er yndislegt. Ég var að horfa BJ´sD áðan og er hún bara nokkuð skemmtileg. Ég hef aldrei séð hana áður því ég hélt að þetta væri bara einhver tsjellingamynd (hehehe(oooooojjj!)) en hún vara bara hin ágætasta. Mjög fyndið líka að ég tók eftir því að vinkona hennar í myndinni, sem á að hanga eitthvað óeðlilega mikið á klósettum, er einmitt klósettdraugurinn í nýjustu Harry Potter myndinnï! Alveg merkilegt! eða kannski ekki.....
Svo er hann Nþóri búinn að redda gamalkunnum bústað í Þjórsárdalnum. Þar var hafst við fyrstu helgina í júlí nú í sumar. Ef við finnum engann annan bústað þá förum við örugglega þangað á laugardaginn og gistum eina nótt. Bústaðurinn er nokkuð stór og pláss fyrir þó nokkra, meira að segja svefnloft og stöff. Gæti orðið gaman.
Annar í jólum..... hvað gerir maður á annan í jólum? Það er svo til ekkert hægt að gera... Einhverjar hugmyndir? Mér var að detta í hug að labba upp á Esju! Hvernig væri það! Þá er bara að fara að hringja nokkur símtöl....
Later...
:: G-Sus 13:36 [+] ::
...
:: miðvikudagur, desember 25, 2002 ::
Það er ekki á hverju degi sem maður fær jólakort með mynd af sjálfum sér á!
:: G-Sus 17:04 [+] ::
...
Damn! Það er eins og ég eigi mér ekkert líf.... Það er enginn að blogga nema ég....
Aðfangadagur bara liðinn enn einu sinni. 21 búinn ? to go... Mig langar helst að hrauna yfir jólin hér en ég hugsa að það eigi ekki við. Það er aðeins eitt sem mig langar að koma á framfæri... við gefum hvort öðru gjafir 24. desember því þá á eitthvað barn að hafa fæðst í jötu út í rassgati! Alveg fáránleg þörf fyrir fólk að þurf aða skýla sé bak við „fæðingu frelsarans“ nú til dags, það eru vel margir búnir að skrá sig úr Þjóðkirkjunni og aðrir trúa ekki á guð en fylgja bara með straumnum. Þetta er alveg rosalega mannlegt, viðurkenni ég alveg, að gefa svona gjafir og dót og reyna að lyfta sér upp í svartasta skammdeginu en það mætti fara að breyta formerkjunum á þessu að mínu mati. Það er bara nokkuð erfitt.... Svo má líka spyrja þá trúuðu: Ætli það sé þínum guði þóknanlegt allur peningurinn, stressið og óhamingjan (hjá sumum) sem fólk leggur í hátíðarnar? Ef það væri til guð þá held ég hann væri búinn að ljóstra eldingu niður í alla fyrir löngu síðan....
Jæja þetta ílengdist aðeins hjá mér..sorry.
Það breytir því þó ekki að ég vona að allir hafi átt góð jól með sínum nánustu og átt góðar stundir.
Ég gaf systur minni Plebbabókina eftir Jón Gnarr (hún er Jón Gnarr fanatic..) og er það ekki merkilegur pappír skal ég segja ykkur!! Ég las hana í gær á 5 minútum. Það eru 3 setningar á blaðsíðu og 70 bls. í bókinni. Nokkuð slakt. En þó má nú hlægja að sumu....:
Þú ert plebbi ef... þér finnst Simmi á Popp-Tíví fyndinn náungi.
Þú ert plebbi ef... þú ert ekki dergur en átt Buffalo skó.
Þú ert plebbi ef... þér finnst Svíþjóð áhugavert og skemmtilegt land.(!!!!!)
Þú ert plebbi ef... þú getur hlustað á auglýsingarnar á Effemm.
Þú ert plebbi ef... þú ert hræddur við svertingja.
Þú ert plebbi ef... þú heldur að það sé einhver munur á stjórnmálaflokkum.
Þú ert plebbi ef... þér finnst ekkert að því að stinga tungunni á þéruppí fólk þegar þú hittir það í fyrsta skipti.
Þú ert plebbi ef... þú ert stoltur af Björk Guðmundsdóttur. (Ha? Brynjar?)
Þú ert plebbi ef... þú hefur keppt í líkamsrækt.
Þú ert plebbi ef... þér finnst ekkert að því að hafa samfarir við fólk sem þú þekkir ekki.
Þú ert plebbi ef... þú kallar svertingja „niggara“.
Já fulllöng upptalning kannski...?
Könnunin bíður enn fyrir neðan ef þú, lesandi góður, hefur ekki enn kosið. Frábært að einhver valdi loks Sigga og Valla jólasveina!!
Svo alveg að lokum (lengsta blogg í heimi).... þá eru uppi hugmyndir um bústaðarferð næstu helgi. Það gæti orðið nokkuð gaman held ég bara. Kommentið endilega á það..
B-L-O-G-G
Bæta Leiðindi Og Gera Grín
Blogg = Leiðindabætir
:: G-Sus 15:13 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 24, 2002 ::
Hvað er betra en að horfa á Walt Disney teiknimynd á aðfangadag... Systir mín gróf upp úr safninu sínu Beauty and the Beast og horfðum við á hana. Svo þegar hún var búin þá skiptum við yfir á Ríkissjónvarpið og hvað var þar í sýningu nema Fríða og dýrið!!! Merklegt!!! Þetta er hugljúft ævintýri þar sem falleg stúlka kaupir einn og fær annan frían... Hún kaupir skrímsli og fær prins í kaupbæti. Það er vel. Íslenska útgáfan er nú samt ekki að gera sig eins og ég er vitni að akkúrat núna...
Þá er ekkert annað að gera en segja: Gleðileg jól og ég þakka fyrir samfylgdina á árinu og munið að stilla fersk inn eftir jól á útvarp Svartasauðs á FM 95.hér
Takk og (hátíð í) bæ
:: G-Sus 15:13 [+] ::
...
Það vilja 3 af 6 koma þeim skilaboðum áleiðis að ég eigi að troða þessari nýju könnun minni upp í r-gatið á mér. Endilega kjósið að vild, könnunin bíður hér einhversstaðar fyrir neðan.
Gengið var um bæinn áðan og hitt þar fyrir margt misskemmtilegt fólk, m.a. Agla sauð en hann alveg hreint ljómaði af óþokka og ég held hann hafi náð að lauma einhverju af honum yfir á mig... Óþokkinn hann Egill alltaf hreint. Ég, Daði og Arnþór fórum í celeb leik en hann gengur út á það hver sér flesta fræga einstaklinga. Ég sá fáa. Daði sá marga. Arnþór sá líka marga. Svo sáu ég og Arnþór Andreu Gylfadóttur. Ekki Daði. haha....ha. Svo var leikurinn orðinn leiðinlegur því Daði var að vinna og þá breyttum við honum í að hver myndi sjá mesta celeb-ið. Daði sá mesta celeb kvöldsins og labbaði celeb-ið tvisvar framhjá mér án þess ég tæki eftir því. Það var ekki gaman. Á leiðinni að bílnum, sem var á einhverju drulluforarplani, þá hafði einmitt einhver stelpuskjáta fest bílinn sinn í leðjunni. Við erum auðvitað ekki þekktir fyrir annað en að hjálpa fólki í klípu og redduðum við þessu eins og að drekka vatn. Skórnir okkar drukku nefnilega mikið og drullugt vatn. Það var heldur ekki gaman. Daði var heppinn því hann var í brúnum skóm. Arnþór var ekki heppinn því hann var í hvítum skóm. Ég var misheppinn því ég var í bláum skóm. Gaman að knöppum frásagnarstíl. Já.
----- Takk --------
E.s.
Djö.... er maður nú fjári virkur bloggari.... Spurning um að hægja aðeins á þessu...
:: G-Sus 00:05 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 23, 2002 ::
Það er svoooo margt sem ég vil koma frá mér núna eftir dag af eilífri bæjarferð en ég læt mér þó nægja að fara yfir nokkra hluti...
Fyrir það fyrsta þá vil ég þakka fyrir þessar nokkur hundruð kveðjur sem maður hefur fengið í dag í gegnum Rás 1. Ég er jú hluti af landsmönnum öllum. Nokkuð skemmtilegur siður þessar jólakveðjur á Þorláksmessu.
Ég gerði mér ferð í Hafnarfjörð áðan og fór í Fjörðinn til að komast í Herra Hafnarfjörð. Þeir taka þar Viðskiptanetið og ég á nebbilega slatta pening þar inni svo best að eyða honum einhvern veginn. Þetta var mín fyrsta ferð í Fjörðinn og aldrei að vita nema maður líti aftur inn bara til að sjá afgreiðslumanninn í Herra Hafnarfirði. Íturvaxinn kall með snilldarklippingu og já.....hann e-n veginn passar ekki alveg inn í fatabúðar-sölumanns ímyndina.
Svo kom mamma gamla geit með snilldarsetningu áðan! Hún kemur mér sífellt á óvart eftir að hafa þekkt kellu í rúmlega 21 ár! Ég keypti mér svarta peysu í Herra Gaflarafirði og ég sýndi mömmu hana þegar ég kom heim. Þá sagði hún: „Já, þú kaupir enn svart......á kantinum.“ Ekki djók. Þetta sagði konan. Ég auðvitað dó úr hlátri og er það auðvitað vel....
Svo síðasta sem ég nenni að skrifa um það eru samskipti BNA og Íraks. Í mínum barnalega hugsunarhætti þá vissi ég ekki að hægt væri að dagsetja stríðsbyrjun... Það er nebbilega búið að skipuleggja að stríðið hefjist í lok janúar-byrjun febrúar. Gott að Bush ákvað að taka sér frí yfir jólin í tilefni hátíðanna... Það fer óendanlega mikið í taugarnar á mér hvað þetta lítur allt asnalega út.
Saddam segir: „Koddu Bush og skoðaðu allt hjá mér og tjekkaðu á því hvort ég sé að fela eitthvað.“
Þá segir Bush: „Nei kallinn. Ég þarf það ekki. Ég veit fyrir víst að þú hefur allskonar drápstól undir höndum.“
(Þá segir Saddam: „Nei... ég er með svitalyktareyði undir höndum.“)
Þetta er bara rugl. Bush vill drepa Saddam en eina sem Saddam vill gera er að vera geðveikur í friði. Tja allavega nokkurn veginn í friði. Hann náttulega er að nauðga þegnum sínum en samt engum öðrum. Það getur svo vel verið að Bush og co. hafi rétt fyrir sér en saklaus uns sekt er sönnuð stendur einhversstaðar. Svo er eitt varðandi þetta mál sem hefur verið mér hugleikið. Það er nefnilega að tungumálin spila svo gríðarlega mikið hlutverk í þessu máli, held ég. Við skiljum Bush gríðar vel (og er það misvel) en ekki erum við svo heppin að skilja írösku. Ef maður skildi bæði tungumál eins vel þá gæti maður kannski tekið sjálfstæðari ákvarðanir um hvað manni finnst í þessu máli. Ég vona að þið skiljið hvað ég er að fara.... orðin flæða ekki eins vel og vildi. Þó svo að einhver teljist svo að lokum sigurvegari stríðsins þá verður að hafa í huga að enginn vinnur í stríði...
Ætli ég kíki svo ekki niður í bæ á eftir og skoði fólkið og voni að það sé ekki að skoða mig...
Friður á jörðu og góðvild meðal manna.
:: G-Sus 19:16 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 22, 2002 ::
:: G-Sus 23:46 [+] ::
...
Já allt frekar leiðinlegt um þessar mundir.... Það er kominn einhver köttur í mig held ég. Og hvað er þá betra en að búa til könnun!!!!!
Síðustu könnun lauk með samtals 28 atkvæðum og voru ég og Atli jafnir með 9 atkvæði hvor. Ég dæmi þessa könnun ógilda.
:: G-Sus 23:37 [+] ::
...
Já!!! Maður bara búinn að stækka stafina!!! Fyrir fólk eins og mig sem sér illa þá var hitt ekki hentugt svo maður deyr ekki ráðalaus. Mér fannst hin útgáfan líka renna svo saman í eitt og erfitt að lesa hana...
Njótið vel og nokkuð lengi...
:: G-Sus 21:40 [+] ::
...
Vá maður...Ég sá fallegustu stelpu í öllum heiminum í Kringlunni áðan. Gaman að segja frá því.
Allavega þá fór ég á röltið um Kringluna með systur minni og var það vel. Mér leið illa yfir allri mannmergðinni þarna. Ég veit ekki hvað er málið en í svona fjölda þar sem allir labba soldið hratt til þess að taka fram úr næsta manni(!!) þá langar mig helst að öskra: „LABBIÐI HÆGAR ÞARNA..... FÓLKIÐ YKKAR! JÁ!! ÉG SAGÐI FÓLKIÐ YKKAR!!!“ En ég geri það samt ekki. Ég væri líka svo lengi að öskra þetta.
Maður hitti svo Brynjar, sem er að vinna í Skífunni um þessi jól líkt og þau síðustu, og bullaði eitthvað í honum. Jón Gnarr var í Skífunni líka með konunni sinni. Ég er væntanlega plebbi núna að hans mati. Svo var Hera kellingin að gaula eitthvað fyrir framan Skífuna. Ég borga hverjum þeim sem lógar Heru 1000 kall. Einhver tilbúinn til þess? Neinei maður á kannski ekki að grínast með svona. Brynjar sagði mér frá því að hann hefði beðið hana um eiginhandaráritun fyrir Skrímslið. Það er vel.
:: G-Sus 17:21 [+] ::
...
Ég missti mig áðan eða kannski réttara sagt klofnaði eins og Daði gerir með jöfnu millibili. Það var nebbilega skrallað í gær og ekki færðist yfir mann svefn fyrr en um 5 leytið í nótt. Svo er maður bara í góðum gír sofandi en svo um hádegi þá byrjar píanóglamur dauðans að hljóma um íbúðina!! Ég fór svo loksins fram eftir að hafa reynt að ignora þetta og svo tók ég kast á systur mína sem sat við píanóið. Það var gaman. Ef ég væri stelpa þá hefði ég slegið hana utanundir...
Já það var nú nokkuð gaman í gær. Maður hitti svo til alla vini og kunningja og var bara í góðum gír. Ég var í broddgaltar gervinu mínu en aðrir kölluðu það mad scientist gervið.
Ég, Daði, Tumi og Kúlan!!! (sem er alls ekki lengur kúlulaga) ætluðum í partý á Kárastíg. Þar voru Atli og Eggert með J-Lo í bílnum og við ætluðum sko að sýna þeim að við gætum líka bakkað upp á kantinn! Í dyrunum mætti okkur svo lítil mörgæs sem bannaði okkur að koma inn og sagði við yrðum bara að vera úti. Allir voru sammála um ósanngirni þessarar mörgæsar en þó fórum við, því seinþreyttir erum við til vandræða. Mörgæsin hét Þórunn og er hún umsvifalaust sett efst á svarta listann. Púú á Þórunni! Púú á Þórunni!
Við villtumst inn á Grand Rokk og þar var Megas að spila á efri hæðinni. Svaðalega er maðurinn skrítinn. Tumi sweet-talker reddaði okkur tveimur upp án þess að borga en svo voru allir hinir stoppaðir. Á efri hæðinni hitti maður svo Stebba og frú. Einn vitleysingur var með í för hluta kvöldsins í gær en hann nefnist Dabbi og tók hann einn heljarinnar vitleysing á kvöldið. Oftar en einu sinni reyndi hann að valda líkamlegum áverkum á félögum sínum en Daði kom með snilldarlausn sem ég held að geti virkað á hvaða vitleysing sem er. Lausnin er þessi:
Tekið er þéttingsfast með báðum höndum utan um vitleysinginn (grípa í upphandleggi t.d.) og svo sagt: „Aukakast! Tvær mínútur!“
Svo er þetta endurtekið eftir þörfum.
Aukakast! Tvær mínútur!
Aukakast! Tvær mínútur!
:: G-Sus 14:49 [+] ::
...
:: föstudagur, desember 20, 2002 ::
Þokkaleeega slakur héééér! Slakur á kantinum með bílinn fullan af tónlist!
OK.OK. Þetta er í seinasta sinn sem ég skrifa þessi orð hér slakur á kantinum!!!!!!!!!!!!! AHH smá feilspor hér slakur á kantinum!!!!!! ÆÆÆÆ aftur....
Rottweiler spilaði í lok Gnarrenburg. Það er drengur í bandinu sem heitir Þorsteinn. Hann fer mikið í taugarnar á mér. Hann hreyfir sig alltaf með og reynir alltaf að vera kúl. Kannski er hann kúl...ég veit það ekki... Málið er að ég hef aldrei séð hann rappa e-ð að ráði. Hann „syngur“ viðlögin með hinum og kannski síðasta orð í setningu. Það er hans framlag til XXXR. Hmmmm...? Ef maður er í rappgrúppu, á maður þá ekki að rappa?
Já það hefur verið hátíð í bæ á þessum Kölduleikjar tónleikum. Ég hefði nú bara viljað sjá strákana í Kaldaleik en mér finnst að Askan hefði mátt missa sín. Hei!!! Hver er að koma inn um dyrnar hérna hjá mér!!! Hver annar en Chris Martin!
Ég: „Sæll! Gaman að sjá þig! Hvað segirru gott? Floooott. Gott að heyra.“
CM: „Hey yo man. MC, how you been?
Ég: „Aiiight, aiiight. I heard you dropped some heavy shit in the concert last night?“
CM: „Yeah I hear you n****a.“
Ég: „Now into some all other hymns... I was wondering, C-man..... Are you related to that Martin guy? You know...the Dux Scholae in Emm-arr last year?„
CM: „No!! But I wish!! I heard that Martin has a very sexy Scottish friend called Coalstraight Tummy... is that true?„
Ég: „Hmmm....yes.... But what about the amazingly good actor Kris Kristofferson? Any relations?“
CM: „Nope. Sorry Blacksheep...“
Ég: „It´s all good! All good homeboy! But I noticed that your initials are CM. Is it because of the famous computer game Championship Manager?“
CM: „Hell yeah booooy! I really have to go now but I´ll come to visit you later. I love Iceland you know.“
Ég: „Yeah I know. You said it like a million times.“
CM: „No really.. I just love it so much. And I love you man...“
Ég: „No, no!!! Now you have walked to far, Chris!“
Chris: „Come here sexy loverboy! I´m gonna show you what´s in my place if you know what I mean!“
Ég: „NOOOOOOOOOO!“
:: G-Sus 22:41 [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 19, 2002 ::
Eftir 19 atkvæði í könnuninni þá er Atli efstur með 6 stig og ég kem annar með 5 stig. Það sem kemur þó mest á óvart er að Valli sport er með 3 atkvæði og Siggi Hlö ekki neitt. EKKI NEITT!!!! Er eitthvað að!? Ég veit bara fyrir víst að ég er pottþétt skemmtinegri en þessir tveir sauðir til samans.... úpps fyrirgefið skemmtilegri átti þetta víst að vera hjá mér. Ég tek þó ekki upp hanskann fyrir Atla. He can fight his own battles (ísl. hann dós bardagi eigið bardagar).
Svo bíður maður bara misspenntur eftir að lesa lýsingar Atla o.fl. frá Coldplay tónleikunum. Býst maður sterklega við orðum eins og: „ég vorkenni þeim sem ekki fóru!“ og þar fram eftir götunum og misfellunum.
Takk í bili: ----- takk -----
:: G-Sus 21:57 [+] ::
...
:: miðvikudagur, desember 18, 2002 ::
Ég og Dauði ætluðum að vera sniðugir og kaupa miða á Coldplay á 2 fyrir 1 tilboði. Það gekk ekki sem best og stefnir allt í að við komumst ekki. Svo eiginlega hlýtur að vera orðið uppselt núna hvort eð er...
Þessi könnun mín að gera misgóða hluti. Það er kannski ekkert sniðugt að gera svona kannanir eins og þessa. Maður veit ekki.... Ég hafði þó tvo mjög augljósa kosti sem allir hefðu getað merkt við til að særa engann... nefnilega fæðingarhálfvitana Sigga Hlö og Valla sport. Þeir eru held ég bara án efa einn leiðinlegasti dúett sem fyrirfinnst á landinu.
Ekkert annað að gerast. Allt bara heldur dræmt.
Friður sé með yður.
:: G-Sus 23:33 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 17, 2002 ::
:: G-Sus 21:17 [+] ::
...
Í dag fékk ég send eftirfarandi skilaboð á vit.is:
Sendandi: Gustaf jolastrakur ????????
Hver sendi þetta?
:: G-Sus 21:14 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 16, 2002 ::
Vinna til fokkings rúmlega 8!!!
Ekki frábært. En ég tók mér þó tíma til að þreyta próf í dag eða jafnvel 3 próf í dag. Ég sótti um þjónustufulltrúastarf við leikinn EVE: the second genesis sem er íslenskur leikur og á pottþétt eftir að slá í gegn útí heimi ef allt gengur að óskum. Öllum umsækjendum var sendur tölvupóstur um að þeir ættu að þreyta próf fyrir þessa stöðu. Ég mætti því niður í Landssímahús 14:30 í dag og tók próf í ensku, grunnþekkingu í tölvuleikjum og svo þekkingu á vélbúnaði og interneti. DAMN!! Þetta var nebbilega slatti erfitt sko. Enskan var þó svolítið lík prófunum í MR en samt svolítið erfiðari en ég ætti nú að fá ágætt fyrir þann hluta. Grunnþekking á tölvuleikjum kom mér illa á óvart. Ég beið spenntur eftir að vita um hvað væri spurt og svo var bara spurt að heimskulegum spurningum sem koma því ekkert við að vera þjónustufulltrúi. Dæmi: Í hvaða leikjum er keppt á Skjálfta? Hvern spilar maður í Battlefield 1942? Djöfuls rugl!!! Ég held þó að ég hafi vitað bæði en sem betur fer voru krossaspurningar meirihluti prófsins. Þekking á neti og vélbúnaði fór svo alveg með þetta... Shit! Damn! That´s wack!
Ég taldi milli 50-60 manns á staðnum svo nú er bara að krossleggja fingur og vona að maður fái símtal í janúar.
Tjillaðu á jólapakkanum...
:: G-Sus 21:03 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 15, 2002 ::
Ég var að horfa á Sjálfstætt fólk og „fólkið“ var Hrafn Gunnlaugsson í þetta sinnið. Þetta eru fínir þættir eins og hann Jón Ársæll getur nú komið með pínlegar spurningar. Ég hef aldrei haft neina skoðun á Hrafni en nú er ég á þeirri skoðun að þetta er örugglega fínn kall. Hann talaði mikið af viti og lokaorðin í þættinum voru helv.. mögnuð. Ég er mikið sammála því sem hann sagði og síðasta setningin segir margt:
„Mín fílósófía er nú sú að.... það var ekki guð sem skapaði manninn... heldur var það maðurinn sem skapaði guð..“
Töff lokaorð, ha?
:: G-Sus 21:25 [+] ::
...
Daði bauð mér og Atla til sína að horfa á Popppunkt í gærkvöldi. Eftir það fórum við og leigðum mynd sem heitir „Leslie Nielsen´s Stupid Little Golf Video“. Skemmst er frá því að segja að Daði sofnaði auðvitað yfir þessari hressandi mynd og ég og Atli píndum okkur til að klára hana. Það var nokkrum sinnum hægt að kreista fram hlátur en annars vildi ég frekar taka slátur en horfa á þessa mynd nokkurn tíma aftur...
Merkilegt!
Á síðu 2 í Mogganum í dag er stór grein um „Jólasveinar ganga um gólf“ lagið og breytingarnar sem það lag hefur orðið fyrir gegnum tíðina. Það er með ólíkindum skemmtilegt og mjög slakt á kantinum me J-Lo í bílnum!
Þokkkkkaleeeeega!
:: G-Sus 12:27 [+] ::
...
:: laugardagur, desember 14, 2002 ::
Ég gleymdi alveg að segja frá sniðugri sögu í gær. Það var nefnilega þannig að einn strákur, Eyvi, sem var að æfa hjá okkur æfði handbolta með Taekwondo-inu. Svo einu sinni gekk liðinu hans ekki sem best og þjálfarinn tók svona pepp talk/æsing í búningsklefanum í hálfleik og þegar hann hafði lokið sér af sátu allir hljóðir nema Eyvi. Hann sagði alveg óvart hátt og snjallt: „Já Kyosanim!“
Sagan er búin núna.
Fyndið, ekki satt?
Eitt sem er ekki fyndið.. það er Spaugstofan. Ég er extra pirraður á þessum gaurum. Pathetic gaurar sem taka eitt grín í hverjum þætti og svo riðlast þeir á því út þáttinn. Hópnauðganir í stórum stíl segi ég nú bara og mér finnst að löggan ætti að handtaka þá.
Takk og bless.
:: G-Sus 21:01 [+] ::
...
:: föstudagur, desember 13, 2002 ::
Giljagaur kom í nótt. Ekkert í skónum. Ekki sáttur.
Stúfur kemur í nótt. Stúfar koma örugglega mörgum sinnum á nóttu. HOHOHO vooooða fyndið...
Síðustu Fjölnisæfingarnar voru í kvöld. Nemendurnir gáfu mér í kveðjuskyni húfu, bol og legghlífar. Því miður get ég ekki notað neitt af þessu en ég tek nú viljann fyrir verkið. Þetta er nefnilega merkt Fjölni og ekki vel séð að ÍR-ingur gangi þannig til fara... Ég get samt örugglega fundið not fyrir legghlífarnar.
Það er svolítið skemmtilegt hvað þau eru vel siðuð upp Grafarvogi. Ef ég gef einhverja skipun þá heyrist: „Já Kyosanim!“ út um allan sal. Það útleggst á íslensku: „Já kennari!“ Ég segi ekki að það sé ekki svona niðri í ÍR en Fjölnismenn eru bara alltof duglegir að segja þetta og gera þetta eiginlega merkingarlaust með því. Það er svolítið fyndið að flestir sem ég hef hitt og æfa Taekwondo hafa einhvern tíma sagt óvart við nafnakall í skóla: „Já Kyosanim“... þar á meðal ég.
Á umræðuvef Framtíðarinnar (sem ég hef ekki notað heillengi) þá breytti ég upplýsingunum um sjálfan mig í einhverju flippi (meðan ég var að skrifa TKD bókina). Það var hægt að setja inn hvaða embætti maður gegndi og auðvitað setti ég inn Kyosanim! ...og svo breytti ég nafninu aðeins líka. Eins og má sjá hér.
Á morgun er æfing 08:40-10:00 og svo beint að vinna upp í Grafarholti. Slakur á kantinum með J-Lo í bílnum. Þokkaleeeeeeega!
Friður út...
:: G-Sus 22:56 [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 12, 2002 ::
Góðir landsmenn nær og fjær
Fyrsti jólasveinninn kom í nótt. Það var hann Stekkjastaur. Afhverju fær maður ekki lengur í skóinn? Svindl.
Fróðleikur um Breiðholtið
Það má finna mikinn fróðleik um Breiðholtið í nýjasta tölublaði Breiðholtsblaðsins sem kom út í dag. Þar er birt gamalt viðtal við konu sem axjúllý bjó á bænum Breiðholti. Ég fór e-ð að tala við mömmu um þetta og hún fræddi mig enn frekar um my part of town með því að útskýra nafngiftina Seljahverfi. Það var víst þannig að þegar fólk gætti sauða og áa þá var talað um að gengið væri til selja. Sel var semsagt eitthvað hlaðið hússkrifli sem hýsti fjárhirðina. Síðan kom einhver kona með matinn til fólksins og þar kemur víst nafnið matselja. Helv.. gaman að því! Það má víst finna einhverjar tóftir ennþá til merkis um þessi sel.
Merkilegt þetta Breiðholt mitt. Innan um skotárásir, barsmíðar, morð og rán þá má hér finna þess merki að einu sinni hafi verið hér ívið friðsælla og kyrrð og ró ríkt yfir öllu nema kannski staka jarm hér og þar...
Þess má svo að lokum geta að ég er ekki í þessu tölublaði.
Ég er með þennan Ebbe Sand á heilanum. Ég þoli það ekki. Það er nefnilega þannig að einhvern tíma heyrði ég þetta nafn og mundi það síðan eftir það. Svo núna í vinnunni þá þurfum við oft að moka sand eða ná sand eða sanda eitthvað og þá kemur mér alltaf þetta nafn í hug.. DAMN YOU TWISTED MIND!! DAMN YOU TO HELL!!
Lokaorð
Ég gleymi alltaf að óska góðs gengis svo nú segi ég við lesendur þessarar síðu: Gangi ykkur yfirgengilega vel í prófunum!
Og ég er úti eins og casper...
:: G-Sus 21:10 [+] ::
...
AAAAA SJIIIIIIIII!!!!!!!!
Já það var sko jólahlaðborð. Meira að segja á Kornhlöðuloftinu. Steikt nafn já hér. Svo var farið til forstjórans og tjillað á góðri íslensku. Mæting í vinnu ca. 10:30 í fyrramálið! Óhemju mikil gleði með það. Ef andskotinn er þreyttur þá er ég núna þreyttari en hann = ég er þreyttari en andskotinn. Ég ætla að sofa alveg þangað til ég vakna.
Systir den svenska, Drífa, er byrjuð að blogga. Hún fer mikinn á sænsku í sínu bloggi og vona ég að Atli taki það til fyrirmyndar. Í þau ár sem ég hef þekkt Atlann hefur hann aldrei talað sænsku..
Nú verður ekki aftur snúið.. ég vona að hún viti það. Hún tengdi á mig og hvað geri ég? Jú, ég tengi á hana líka. Óli P.
AAAAA SJIIIIIIIII!!!!!!!!!!
:: G-Sus 00:44 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 10, 2002 ::
Nú getur þú, lesandi góður, fært músina fyrir ofan tengil hér til hliðar og þá kemur einhver vel valinn texti í ljós. Þetta fann ég út með því að fikta sjálfur og skoða síður hjá öðrum.
I´M WATCHING YOU...
og ég er úti...
:: G-Sus 23:45 [+] ::
...
:: G-Sus 20:55 [+] ::
...
Ég og Arnþór ætlum að hittast í Árbæjarlauginni kl 21:30 og ef þið lesið þetta í tæka tíð þá endilega skellið ykkur með. Daði kemur kannski en Brynjar er á Nick Helli.
Egill tekur sé aldrei pásu frá því að vera leiðinlegur og er með leiðindi í kommentunum. Jájájá ég nenni voða lítið að vera að spá í útlitinu á þessari síðu. Síðan er í gangi og ég get skrifað... þarf eitthvað meira? Þessi teljaratrunta má vera hvar sem er fyrir mér. Ég tók þó þá ákvörðun að láta ekki Haloscan auglýsingu inn á síðuna.
Egill! Var ég ekki búinn að biðja þig um að vera úti!
Á morgun fer ég að pína Grafarvogsbúa og eftir það dríf ég mig í betri fötin (skárri fötin) og fer á jólahlaðborð á Lækjarbrekku í boði B.T. Verktaka! Gaman gaman. Gaman saman.
Ég er farinn að verja óhemju miklum tíma Grafarvogi. Í rauninni þoli ég ekki þennan stað. Eitthvað hverfi sem á engan rétt á sér alltíeinu sprottið upp eins og illgresi í útjaðri borgarinnar. Þetta er óhemju stórt kvikindi þetta hverfi atarna.. Atarna er vanmetið orð líkt og orðið dusilmenni. Allavega.. þá var ég að vinna við Engjaskóla sem aðstoðarverkstjóri í einn og hálfan mánuð í sumar, mörg mót og viðburðir í Taekwondo eru haldin í íþróttahúsi Engjaskóla og svo er ég búinn að vinna þarna núna í svona hálfan mánuð á mismunandi stöðum. Þetta er ekki hægt! ÉG er ekki hægt! This whole court is out of order!
Þvert á minn vilja þá liggja mínar leiðir flestallar upp í Grafarvog.
And I´m out...
:: G-Sus 20:33 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 09, 2002 ::
Fokk, sjitt og moðerfokker!
Sinadráttur er sársauki. Nú rétt í þessu var að ljúka sinadrætti í aftanverðum lærvöðva og var það misgott. Takk fyrir mig, ég fann mig knúinn til að segja þessa raunasögu.
:: G-Sus 22:24 [+] ::
...
Ég hef fengið óvenju margar heimsóknir nú í dag. Teljarinn tjáði mér það að óvenju margir hafa komið inn frá tripod.com en það er vegna þess að Egill asnaprik bloggaði mig! Trúiði því? Ég var bloggaður! Djöfullinn... Svo vil ég koma því á framfæri að hversu mikið sem ég vildi hafa uppgötvað þetta með hól-stól þá var einhver sem sagði mér frá þessu svo þetta er ekki frá mér komið.. Sorry.
Ég var að kenna í kvöld í þrjá tíma samfleitt. Það var lýjandi. Fjölnismenn eru bestu grey. JÁ KYOSANIM!!!
Svo er þetta template gríðarvinsælt hjá öllum nýjum bloggurum...... ;) blikk blikk ef einhver er ekki að skilja
:: G-Sus 21:35 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 08, 2002 ::
I waited ´till I saw the sun
I don´t know why I didn´t come
I left you by the house of fun
I don´t know why I didn´t come...
söng Norah Jones svo fallega fyrir mig í kvöld..
Ég horfði á tónleikana (fo´real) með henni Norah Jones áðan. Lögin voru alltílagi að mínu mati en besta lagið var auðvitað smellurinn Don´t know why. Þess má geta að Norah Jones er quite the hottie! Úúúúú dökkhærð!
Á morgun þarf ég að hætta fyrr í vinnunni því ég verð gestaþjálfari hjá Fjölni og fyrri æfingin byrjar kl 17:30 - 19:00 og er það framhaldsflokkur fullorðinna. Svo tekur við meistaraflokkur og er ég með þau til 20:30. Þannig verður þetta á morgun, miðvikudag og föstudag. Skemmtilegt, ekki satt?
:: G-Sus 22:53 [+] ::
...
Ég var að líta í spegil og ég er að hugsa um að gerast karlfyrirsæta.
Neeeeee bara djók..
Jólasveinar ganga um gólf
er ekki gott lag en fyrir utan það virðist mikils misskilnings gæta varðandi textann við lagið. Allir syngja hátt og snjallt: „Upp á stóóóól steendur mín kaaannaaa!!“ og una vel við sitt. Þegar betur er að gáð á þessi lína ekkert skylt við það sem á eftir kemur þ.e.: „níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna“. Hmmmmmm...? Vitrir menn sem hafa nennt að pæla í þessu komust að því að textinn hafi verið upprunalega: „Upp á hól stend ég og kanna!!“ sem á mun betur við. Það var því bara einhver hópur heyrnardaufra fávita sem breytti þessu. Njótið vel!!!
Fokkfeis, DJ Fokkfeis
Fólkið hefur talað. Samkvæmt almúganum ætti ég að heita DJ Fokkfeis. Sá sem kaus DJ Ghetto fær sko prik í kladdann hjá mér! Þeir sem kusu DJ Poomse voru kannski ekki alveg að vita hvað þeir voru að kjósa..eða hvað? Á kóresku þýðir poomse sérstakar hreyfingar (no. spesialle handlinger) og jú... ég er einmitt með sérstakar hreyfingar.. Njótið betur!
:: G-Sus 18:56 [+] ::
...
Það er drullað yfir Atlann á heimasíðu hans og er það engin önnur en systir kjötsins sem hefur fengið nóg af honum og lætur hann hafa það óþvegið. Þegar ein beljan mígur..... Þessi orð systurinnar nefnilega opnuðu flóðgátt og núna hefur verið lýst yfir opinni skothríð á Atla. Gaman að því eins og svo mörgu öðru sem hægt er að hafa gaman að. Eins og t.d. rakettum og tölvuleikjum.
(Fyrir þann sem gjarn er á að misskilja hluti skal tekið fram að ég er ekki að meina að systir þess sænska sé belja)
Svo var ég að spá í öðru... Ég veit mætavel að þegar talað er um dag í daglegu tali þá er verið að meina í raun alla 24 tímana sem hann inniheldur. Samt sem áður... Einnig er talað um dag og kvöld. Dagur = birta, kvöld =myrkur. Ef kvöldin væru aðgreind frá dögunum (og þá ekki talað um mánudagskvöld heldur sleppt dags) þá myndu kvöldin líta svona út:
Sunnukvöld
Mánakvöld
Þriðjakvöld
Miðvikukvöld
Fimmtakvöld
Föstukvöld
Laugarkvöld
Þetta finnst mér nokkuð skemmtileg útkoma því mánudagskvöldið, t.d., kemur skemmtilega út. Finnst ykkur ekki?
:: G-Sus 00:43 [+] ::
...
:: laugardagur, desember 07, 2002 ::
Til hamingju Arnþór kallinn!!!
Til að sýna hve mjúkur maður ég get nú verið þá ætla ég ekki að láta tónleikana með Norah Jones fram hjá mér fara. Þeir verða sýndir annað kvöld á Stöð 2. Hver kannast ekki við lagið fallega Don´t know why og ég ætla mér að gráta við það lag á morgun... Nei nei segi bara svona. Kannski kjökra ég eitthvað.
:: G-Sus 18:30 [+] ::
...
Þar sem tveir geðsjúkir menn koma saman..... þar er brjálað stuð.
Þá er að fara að skella sér í vinnuna núna á eftir.
Munið svo að kjósa í könnuninni. Þetta veltur allt á ykkur kjósendur góðir!
:: G-Sus 11:32 [+] ::
...
:: föstudagur, desember 06, 2002 ::
:: G-Sus 19:44 [+] ::
...
Ég var að spá í að stofna meðferðarheimili sem á að kallast Ysta-Nöf
Svo í framhjáhlaupi minni ég alla hip hop hausana á Chronic sem byrjar á Radio-X núna kl 20:00. Þar fara þeir Rampage og Fingerprint á kostum í hlutverkum sínum sem...tja... Rampage og Fingerprint býst ég við.
Með „...alla hip hop hausana...“ á ég auðvitað við alla þá vini mína sem hlusta á þessa gæðatónlist. Það er þá kannski Arnie sem fellur inn í þennan hóp. Hvað varð um orðatiltækið sækjast sér um líkir...
:: G-Sus 19:31 [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 05, 2002 ::
Það er alltaf hægt að vera bjartsýnn varðandi veðrið.. Eins og til dæmis núna er grenjandi rigning og búið að vera í einhverja 12 tíma eða svo en alltaf getur maður sagt: „Ja, ef þetta væri nú snjókoma...“
Ég lýsi enn og aftur megnri óánægju með hvarfi kommentanna en þetta er líka svona hjá Kentuckyfried-ram og það gleður mig :)
:: G-Sus 15:29 [+] ::
...
Hvað varð um fokkings kommentin!? Þau eru bara horfin og ég hef ekki snert við neinu! Bull og vileysa er´etta alltaf hreint...
:: G-Sus 15:20 [+] ::
...
Veðrið er að leika okkur grátt þennan daginn... Ég fór í vinnuna í morgun og núna erum við farnir að vinna upp í Grafarholti við hús sem er í götu er nefnist Ólafsgeisli. Við unnum í klukkustund við illan leik en vindurinn var það mikill að maður réð ekki við sig og fauk hvert sem vindurinn vildi. Ég er rúmlega 70 kíló (100 þegar ég er þreyttur..) og þegar maður stendur ekki í fæturnar þá hugsar maður hvort það sé nokkuð sniðugt að vera úti. Ég spái alltaf í því í svona vondu veðri að það er alveg möguleiki á því að það komi bárujárnsplata og skelli á manni að ég tali nú ekki um ef hún komi lárétt á mann... þá væri maður „half the man I used to be..“ eins og Jamiroquai söng forðum... Semsagt eftir klukkutíð þá sagði bróðir minn að það væri bara best að pakka saman. Djöfulli var ég sáttur við það. Núna er ég að nördast heima og veit ekki hvað ég á af mér að gera...
:: G-Sus 13:51 [+] ::
...
Hvað er þátíðin af úir og grúir? Er það úði og grúði?
:: G-Sus 13:38 [+] ::
...
:: miðvikudagur, desember 04, 2002 ::
Ég pissaði í bussurnar! af kátínu þegar ég sá myndirnar af mér og Arnþóri á South Park formi en þær má sjá hér hjá Stebba Gee. Gaman er að sjá Arnþór svona glaðan og mig svona sorgmæddan. Ég giska á að hjartað á bolnum mínum komi af Luvstaf nafninu en ég hló mest held ég þegar systir mín sagði: „Hei! þetta er líkt þér...“
Ég elska alveg þessa gadda á úlnliðnum! Töff maður! Kannski ætti maður að fá sér svona... og grifflur í stíl...?
Við nánari athugun þá er ég ekki svo ólíkur rapparanum J-Live sem ég sá leika á Gauknum nú á dögunum...
:: G-Sus 23:23 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 03, 2002 ::
Nýr íslenskur rappari lofar góðu. Hann heitir Tiny og lagið sem hann „droppar“ heitir „Straight Execution“. Það heyrist á ca. 4. tíma fresti á muzik.is. Fyrst veit maður ekki alveg hvort þetta er stelpa en hei! gaurinn kallar sig Tiny svo ég giska á að hann sé ekkert svaka gamall. Það sem mér finnst svona merkilegt við hann er að hann rímar á engilsaxnensku og gerir mjög vel. Ég hélt fyrst að ég væri að hlusta á útlenskt lag en svo kveikti ég á gömlu perunni... Fyrst var það ferskur andvari að fá að heyra rapp á íslensku en núna er það komið aftur í að heyra Íslending rappa á ensku að mér finnst.
Það er eitt sem ég þoli ekki um jólaleytið en það eru öll gyðingaljósin okkar sem við köllum aðventuljós. Ef við héldum Hanukkah þá væri þetta í góðu. Svo í þá gömlu góðu þegar maður var ungi þá sá maður bara eitt aðventuljós í hverju húsi. Núna eru þau því miður vanalega fleiri en eitt og fleiri en tvö... Ég sagði móður minni frá því að mér fyndist það ekki sniðugt að hún væri með tvö gyðingaljós í stofunni og hún sagði að ég myndi þá bara ekki hafa þetta svona þegar ég myndi eignast heimili. Skætingur alltaf hreint... Neinjetnie. Það er alveg öruggt að þegar ég flyt að heiman (sem ég sé ekki gerast..) þá ætla ég ekki að vera einhver helv... gyðingur!
Það er aðeins einn maður sem ég þekki sem heldur örugglega Hanukkah með aðventuljósið sitt við höndina en það er einmitt gyðingurinn hann Atliis Semitis
Svo segi ég bara eins og hann Sesar gamli Afrikanus: „Geeeeeeeerðu þaað sjááááálfuur“
Ég nenni ekki þessu bulli og er farinn að sofa...
:: G-Sus 22:43 [+] ::
...
Það var beltapróf barna í gær...Ég var að dæma ásamt yfirþjálfaranum. 31 krakki í prófi. Hreinasta helvítí. Eitthvað sem allir verða að ganga i gegnum a.m.k. einu sinni áður en þeir deyja.
:: G-Sus 19:03 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 02, 2002 ::
Ég get ekki verið annað en sáttur við útkomu nýjustu könnunarinnar en flestir eru á sama máli og ég. Eins og alltaf. Og ef einhver er ekki sammála mér þá segi ég bara fokk jú moðerfokker eins og ég segi svo gjarnan. Úúúúú! Dökkhærð!
:: G-Sus 22:03 [+] ::
...
Agli kallinn vill að ég tali meira um hann og limaburð hans. Agli er sauður með fádæma lélegan limaburð.
Svo vil ég ekki hafa svona tal: „...til ævarandi skammar og háðungar!“ á minni síðu!!!
:: G-Sus 21:59 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 01, 2002 ::
Comments smomments...
:: G-Sus 23:54 [+] ::
...
Ég bið þá sem voru búnir að kjósa í könnuninni að kjósa aftur því ég breytti henni örlítið þ.e.a.s. ég bætti við view takkanum. Ég biðst forláts..
:: G-Sus 21:43 [+] ::
...
:: G-Sus 16:51 [+] ::
...
EINN!!! TVEIR!!! OG ELDAST!!!
:: G-Sus 16:49 [+] ::
...
James Bond: Die Another Day
er ekki góð ræma. Var að koma af henni með Arn-E og ég verð að segja að mér leiddist meira en ég gladdist. Enginn vildi fara með okkur í bíó og um stund stóð til að eyða kvöldinu með Atlanum í Partýhöllinni. Ekkert varð af því honum örugglega til mikillar gleði enda sagði hann okkur í hvívetna að fokka okkur... Myndin var semsagt ekki góð en samt er hægt að finna e-ð gott við hana eins og til dæmis einnar línu brandararnir hans Bond sem eru ómissandi og svo rákum við félagarnir augun í það hvað hann Bond kallinn er alveg ótrúlega fjölhæfur!!! Í þessari mynd: fer Bond á brimbretti og líkar vel, ekur hann listavel (að venju), kann hann að fljúga þyrlu, lemur 007 mann og annan með bardagatækni sem samanstendur oftast af einu höggi (JUDO CHOP!!!) og svo ekki sé minnst á að hann gæti komist í breska landsliðið í Ólympískum skylmingum. Alveg hreint magnaður gaur hann Bond. Svo fannst mér frekar lítið sýnt af Íslandi. Það á heill hellingur af myndinni að gerast á Íslandi en málið er að maður veit ekki hvað er hér og hvað er í stúdíói... Eina merkilega er þetta bílaatriði, sem er mjög flott, en annars er þetta mest gert í tölvu. Blabla bleble.
:: G-Sus 02:20 [+] ::
...
|