|
|
:: laugardagur, nóvember 29, 2003 ::
Það getur á tíðum verið erfitt að spotta asnakjálka úr fjöldanum. Og þá sérstaklega ef þið eruð á túr.
Því hef ég ákveðið að benda ykkur á einn augljósan asnakjálka svo þið fáið sirka hugmynd um hvað skal forðast og hvað ekki.

Vonandi kom þetta ykkur að gagni.
:: G-Sus 17:36 [+] ::
...
Nú kalla ég sjálfan mig Gústa Kiwi þar sem það lýsir best hausnum á mér.
Sumir kalla mig kannski fífl, aðrir kalla mig jafnvel hugrakkan og enn aðrir kalla mig kannski ömmu sína.
Hvað sem því líður þá er ég með um 5 millimetra löng hár á hausnum. Það finnst mér skemmtilegt.
Hvað finnst ykkur skemmtilegt eða leiðinlegt? Að hanga með vinum kannski? Horfa á vídjó? Hoppa upp í rassgatið á ykkur?
Endilega deilið því með pabba ykkar, Gústa Kiwi. Hann er ávallt tilbúinn til að hlusta. Opnið ykkur endilega. Ekki opna ykkur samt eins og skurðlæknar opna fólk. Frekar svona eins og þegar sálfræðingar opna fólk. Þá verður gaman hér ááááááá: Einræðum Svartasauðs.
Ég er að fokking ljúga að ykkur. Mér gæti ekki verið meira drullusama um hvernig ykkur líður og hvað ykkur finnst gaman eða hvað ykkur finnst spennandi.
To each his own moðerfokkers. To each his own.
Afsakið þetta slipp hjá mér. Þetta var óvart. Alveg óvart.
:: G-Sus 00:30 [+] ::
...
:: föstudagur, nóvember 28, 2003 ::
Blogger er í ruglinu þessa stundina. Ég er búinn að reyna að komast inn á eina bloggsíðu hér í bæ og fæ alltaf mimunandi villuboð í hvert sinn. Í eitt skiptið birtist bara allt annað blogg en það sem átti að birtast. Það var einhver enskuskrifandi hommi (í alvörunni) að tala um typpi á karlmönnum og hvað hann hefði "hann" stífann alltaf hreint. Alveg ótrúlegt blogg. Og svo var hann að reyna að "snúa" öðrum karlmönnum. What the fökk is up with that? Því miður náði ég ekki url-inu því það stóð url-ið á síðunni sem ég ætlaði að skoða í address línunni.
En allavega, það var gaman að skyggnast inn í undraverðan heim hommans í smá stund.
:: G-Sus 16:10 [+] ::
...
:: fimmtudagur, nóvember 27, 2003 ::
Bruce Lee kallinn hefði verið 63 ára í dag. Náttúrlegast (án stera þ.e.) massaðasti maður í heimi. Stærstu náttúrulegstu "vængir" sem sést hafa held ég bara voru á þessum manni. Í tilefni dagsins eru hér myndir af kappanum í stuði.

:: G-Sus 22:23 [+] ::
...
Ég græt alltaf af hlátri þegar ég sé eftirfarandi video. Lítill api sem stingur puttanum upp í rassinn á sér og þefar svo af puttanum. Þarf að segja meira. Ég hef ekki séð þetta lengi og það var linkað á þetta frá batman.is
Þetta var meira að segja sýnt í myndinni Jay and Silent Bob Strike Back.
Maður getur alveg heyrt apann segja: "Ónei! Ekki aftur!" þegar hann fórnar höndum. Þetta er argasta djöfulsins snilld eins og Eggert gæti orðað það.
Tjekk itt át jó.
:: G-Sus 14:31 [+] ::
...
Ég hef ekki séð Amazing Race alveg magnað lengi en svo núna hitti ég óvart á þáttinn og þá eru þau einmitt í Suður-Kóreu. Þau eru meira að segja brjóta eitthvað spýtudrasl í Taekwondo æfingasal. Já, þetta er svei mér magnað.
:: G-Sus 00:41 [+] ::
...
:: miðvikudagur, nóvember 26, 2003 ::
Þá er ég búinn að breyta tenglunum örlítið. Ég ætlaði meira að segja að taka út austurrísku tkd síðuna en viti menn, þeir eru enn með mig á forsíðunni. Þá náttulega leyfi ég þeim að hanga uppi.
Ef þið viljið sjá fleiri breytingar þá endilega látið mig vita og ég tek þær til athugunar.
Stjórnin
:: G-Sus 19:34 [+] ::
...
Lag: Gamli Nói
Bloggi Bloggi Bloggi Bloggi Bloggi Bloggi Blogg.
Bloggi Bloggi Blooooggi, Bloggi Bloggi Blooooggi
Bloggi Bloggi Bloggi Bloggi Bloggi Bloggi Blooooogg
Ef þið sunguð Gamla Nóa með þessu og tjekkuðuð á því hvort þetta passaði ekki örugglega þá eruð þið snillingar og elska ég ykkur og óska ykkur alls hins besta.
Ljóð eru asnaleg og ekki falleg. Eins og fljóð geta nú samt verið falleg. Þannig ég er hættur þessu ljóðarugly. Já, ljóðarugly, því ljóð eru ljót og eru verkfæri djöfulsins.
:: G-Sus 04:42 [+] ::
...
:: þriðjudagur, nóvember 25, 2003 ::
Bloggi bloggi blogg.
Bloggi bloggi bloggi bloggi, bloggi bloggi blogg.
Bloggi bloggi blogg.
Ég er að gefa ykkur forsmekk að ljóðinu sem mun birtist á morgun. Lítið á þetta sem svona röff skedsj...
:: G-Sus 20:06 [+] ::
...
Djöfull langar mig óstjórnlega í sund í kvöld. Ekki í hvað laug sem er þó, heldur Laugardalslaugina. Það er eitthvað andrúmsloft þar á kvöldin, þegar dimmt er, sem er ekki annarsstaðar. Kannski er það lýsingin. Og svo náttulega skapar snjórinn vissa stemningu útaf fyrir sig. Vonandi að einhver nenni með mér.
Mánuður í jólin. Djöfullinn.
:: G-Sus 15:12 [+] ::
...
:: mánudagur, nóvember 24, 2003 ::
Ég er hársbreidd frá því að snoða mig.
Orðaleikur? Leikur að orðum, verðlaunum og hinum ýmsustu viðurkenningum? Jahá.
:: G-Sus 23:03 [+] ::
...
Afrakstur: Það að raka sig
2 mánuðir í Finnland...
Tilbúinn? Nei.
:: G-Sus 15:24 [+] ::
...
:: sunnudagur, nóvember 23, 2003 ::
Ain´t life just dandy....
Fór á Felix í gær. Fer ekki þangað í bráð. Fékk of stóran skammt í gær. Skítapleis.
Ég þoli þetta ekki. Maður reynir að gleyma ákveðinni manneskju eins mikið og maður getur en svo rekst maður alltaf á þessa sömu manneskju fyrir tilviljun aftur og aftur. Þar af leiðandi poppar hún beint upp í huga manns aftur og eina sem það gerir er að valda manni þvílíku hugarangri að maður verður beinlínis niðurdreginn í nokkra daga.
Ég ætla að gera mig að þessum þvílíka píslarvætti og ég held að ágæt lýsing á þessu sé sagan um hann Tantalus í grísku goðafræðinni. Hann reytti guðina til reiði og var hent niður i Tartaros. Þar var hann píndur með því að þjást úr hungri. Hann stóð svo í vatni upp að hálsi og yfir hann slúttu ávaxtatré. Þegar hann beygði sig niður til að fá sér að drekka þá lækkaði vatnið og þegar hann teygði sig upp í ávextina þá lyftust greinarnar upp. Þannig aldrei fékk hann það sem hann vildi þó það væri alveg rétt við hliðina á honum. Þetta kallast að vera tantalíseraður ef maður sér eitthvað, langar í það en fær ekki með neinu móti og því er veifað fyrir framan mann more or less.
Þeir skilja sem vilja og hinir mega bara misskilja þetta að vild.
Eigið góða daga.
:: G-Sus 13:48 [+] ::
...
:: laugardagur, nóvember 22, 2003 ::
Djöfull var Arnie flottur í gær í skvassinu! DAAAAAAAAAJÖBBULLINN!
Kíkti upp í Veggsport eftir æfingu og ekki ófríðara andlit en á henni Kolbrúnu (fyrrv. ungfrú island.is) tók á móti mér í anddyrinu. Dææææææææææm. Þær gerast ekki mikið fallegri held ég. Ótrúlega sérstakt andlit.
En jafnvel hún gat ekki truflað athygli mína sem beindist að rosahnakkanum N-Þóra sem var að vinna Raj, landsliðsþjálfarann í Tennis. Þessi Raj gaur blés varla úr nös eftir 4 lotur. Alveg svakalegt úthald sem gaurinn virðist hafa. Ég fór svo heim en sneri aftur stuttu síðar og þá var Daði með í för. Við ætluðum að horfa á Kim "Feita" Magnus kömma yfir Arnþór en svo náði Arnþór að standa í kauða og vann meira að segja lotu af gamla kallinum. Ég væri nú alveg til í að æfa þessa íþrótt eftir þetta áhorf í gær. Mig vantar víst að finna mér eitthvað annað að gera bráðlega. Bara ef bandí væri æft einhversstaðar. Sá leikur er snilld!
Annars er maður bara ofurhress í vinnunni. Loksins lítið að gera og því ekki bara að blogga! Maður er náttulega slaur numero uno.
:: G-Sus 14:15 [+] ::
...
:: föstudagur, nóvember 21, 2003 ::
Til að hafa smá samhengi í færslunum mínum þá er ég núna búinn að hlusta á OutKast diskinn minn nokkrum sinnum. Snilld. The Love Below er talsvert betri helmingur plötunnar þó. Ótrúlegar pælingar í gangi hjá gaurnum. Eins og ég skrifaði fyrir nokkrum færslum síðan þá setti ég lagið ´Spread´ í 1. sæti yfir næsta single og ég stend enn við það.
Núna klukkan sjö er það æfing uppí Grafarvogi svo á leiðinni heim kíkir maður við í Veggsport á slaurinn hann Arnþór. Hann er svo mikið celeb í skvassheiminum, heldur mót hægri vinstri strákurinn.
Spurning hvort það sé hittingur á eftir. Ég er ekki að meika þetta Idol rugl og ef það verður Idol hittingur þá mæti ég... með vin minn C4.
Nýjasta tískuorð hrútanna er slaur. Ég á engann þátt í sköpun þessa orðs enda bara leikmaður í dularfullum heimi hrútanna. Nú er það ykkar að giska á hvað það þýðir. Engin verðlaun í boði!
Síðar gott fólk, síðar.
:: G-Sus 18:16 [+] ::
...
:: fimmtudagur, nóvember 20, 2003 ::
Jó
Þá er ég búinn að kaupa mér "Speakerboxxx/The Love Below". Vonandi stenst hann væntingar. Er með 1. lag speakerboxxx í eyrunum akkúrat núna. Some mad shiii going on.
Ég var staddur í ankannalegum hugleiðingum í dag og er ekki alveg viss um hvort það sé rétt af mér að vera að skrifa um það hér. En hei, here goes like always.
Ég var uppá spítala að heimsækja afa minn. Hann verður 92 ára gamall núna í desember. Alveg skýr í hausnum og hefur stundum gert grín að öllu "gamla" fólkinu sem er í kringum hann þó svo hann sé elstur á staðnum or sumphin. Jæja, allavega... Í dag hittum við einmitt á kaffitímann á deildinni og vorum því frammi í setustofu með afa. Hólí fokking krepp hvað mér leið illa. Fólkið flest með svona alveg blank andlit og blank störu út í loftið. Margir í hjólastólum. Jess. Örugglega svakastuð bara að bíða eftir því að fá að deyja. Mér datt þá einmitt í hug atriði úr Fóstbræðrum (þeir kunna á grínið strákarnir) þar sem fjölskylda fer með afann út í bíltúr. Bíltúrinn endar svo út í móa þar sem á að skjóta grunlausan og elliæran afann. Snilldaratriði. En þetta er samt ekkert grín. Þetta er mun mannúðlegra heldur en að þurfa að engjast um fastur í sínum eigin líkama, örugglega taking the trip down memory lane hvern einasta dag. Hugsandi um gömlu dagana þegar maður var hress, gat staðið í lappirnar og hafði stjórn á þvagblöðrunni. Kannski er það óþarfi að einhver fjölskyldumeðlimur sjái um að enda þetta ef maður hefur tök á því sjálfur. OK, nú er ég hættur að geta tjáð mig um þetta og ég veit að ef ég held áfram þá býður það misskilningnum heim.
Eitt að lokum... Ég ætla aldrei að enda svona, sama hvað.
:: G-Sus 19:14 [+] ::
...
:: miðvikudagur, nóvember 19, 2003 ::
Og þá er miðvikudagur runninn upp enn eina ferðina...
Ef ég væri rappari
Ef ég væri rappari þá myndi ég heita Sugar Style
en ekki Bob, eins og misþroska gaurinn úr 8 Mile
Þá myndi ég halda fangamarkinu SS
stíga á svið, hrútspunga, hákarl og vera hress
Hressleikinn skiptir, að ég held, höfuðmáli
og að hafa harðan skráp, helst úr stáli
Veit ekki alveg hvaða stíl ég myndi kjósa mér...
Jeru, Guru, NaS, Q-Tip eða.... Cher???
Nei, ætli ég myndi ekki reyna að vera ég sjálfur
Þið vitið hvað kemur næst, ég myndi þá vera eins og álfur
Komast að sem gestarappari hjá Quarashi, FL og O.N.E.
Við hliðina á Steina, Byrki og Opee
Kæta fjöldann með mínum hnyttnu rímum og hárfínu skotum
Ríma og ríma þar til súrefnið komið væri að þrotum
Rappið myndi renna ljúflega niður líkt og ávaxtadrykkur
Æi, fokkið ykkur
Ég er plötusnúður
Takk fyrir mig
Síðar
:: G-Sus 00:41 [+] ::
...
:: þriðjudagur, nóvember 18, 2003 ::
Það er held ég ekki úr vegi að kaupa sér OutKast plötuna nýju. Ekki búinn að kaupa mér disk í nokkur ár. Ég held maður verði að gefa heildarmyndinni(disknum) séns eftir að hafa hlustað á nokkur lög af báðum diskum. Ég heimsótti www.outkast.com og þar á forsíðunni geta lesendur átt sinn þátt í vali á næstu smáskífum af plötunum. Ég valdi ´Church´ í 1. sæti hjá Big Boi og ´Spread´ í 1. sæti á Andre (´Prototype´ í 2. erfitt að velja á milli).
Töff gaurar, það verður ekki tekið af þeim.
:: G-Sus 20:13 [+] ::
...
Jó
Og þar hafiði það.
Svo í kvöld eftir miðnætti mun ljóða/rímnadagur vera haldinn hátíðlegur í 3. sinn. Aldrei að vita nema maður uppfæri síðuna þá, so stay tuned!
:: G-Sus 16:20 [+] ::
...
:: mánudagur, nóvember 17, 2003 ::
Fyndið þegar maður segir eitthvað orð og spáir ekkert í því hvað orðið í raun þýðir. Orðið hefur aldrei öðlast neina merkingu hjá manni heldur er þetta bara orð sem maður lærði og þegar maður hugsar um orðið þá tengir maður það við eitthvað fyrirbæri.
Gott dæmi er aerobic eða eróbik á íslensku. Þá koma upp í hugann stelpur eða konur að sprikla við tónlist og oftar en ekki koma 80´s legghlífar við sögu. Skemmtilegt nokk þá þýðir að ef eitthvað er aerobic þá er það loftháð. Á ensku bæta þeir s-i við svo úr verður aerobics en við á Íslandi höfum ekki gert það og getum því í staðinn talað um að stunda loftháð.
"Já, ég er að fara í loftháðan tíma á eftir. Þú verður bara að redda þér einhverju að borða." er svona staðlað dæmi um móður sem segir afkvæmi sínu að hún sé að stunda loftháð.
Ég get líka alveg stundað loftháð hér fyrir framan tölvuna. Djöfull er loftið asnalegt! Það er bara..... asnalegt! Sjáiði, þarna var ég að hæðast að loftinu. Þetta getið þið líka gert með smá æfingu.
Þar sem ég er ekki fylgjandi eróbikki og finnst það yfirmáta asnalegt þá ætla ég að vona að þeir sem stundi aerobic sjái ljósið og stundi anaerobic í staðinn. Það væri gaman.
Vonandi eigið þið góðan dag og gangi ykkur vel í því sem þið ákveðið að taka ykkur fyrir hendur.
Takk fyrir áhorfið.
:: G-Sus 14:28 [+] ::
...
:: sunnudagur, nóvember 16, 2003 ::
Kvót tekið af mbl.is:
Kathleen Blanco aðstoðarríkisstjóri verður fyrst kvenna til að gegna starfi ríkisstjóra Louisiana en hún sigraði indíánann Bobby Jindal í kosningunum sem fram fóru í gær.
Hvað er í gangi? Þetta er eins og að segja: Glorfes Bester sigraði svertingjann Yoyoniggaman Johnson í kosningum sem fram fóru í gær. Þvílíkt rugl.
Í gærkvöld fór ég út að borða á Tapasbarinn. Mjög töff staður. Tilefnið var auðvitað afmæli móður minnar. Eftir það fór ég í allsvakalegasta "partí" nokkurntíma á Grandaveginum. Systir Arnie lánaði stráknum húsið sitt og bað strákurinn okkur helst að takmarka andardrátt meðan við dvöldum þar. Rólegheitin voru því allsráðandi enda ekki annað hægt með Portishead á fóninum. Svo var stefnan sett á Grand Rokk þar sem útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Jan Mayen voru haldnir. Djöfull var ég að fíla það í botn. Það voru tvær hljómsveitir á undan, Tristan og Lokbrá heita þær held ég örugglega. Djöfulsins rokk! Mjög töff skítur sko. Stemningin var gríðarleg og Jan Mayen sló í gegn. Þar sem ég þekki þrjá af fjórum meðlimum sveitarinnar þá er maður nú ekki hlutlaus en þetta var alveg drulluflott.
SHUT UP! SHUT UP! SHUT DOWN!
Eftir Grand Rokk var það bara bullið. Hressleikinn hjá mér var kominn í hring svo ég var nú bara nokkuð ónýtur. Ég vaknaði líka hálf sjö í gærmorgun svo ég hef örlitla afsökun. Heiða var ze driver kvöldsins og kann ég henni miklar þakkir fyrir að hafa skutlað mér fyrst heim. TAKK!
Er það Elf í kvöld? Mig grunar að hún gæti verið algjört rugl en á góðan hátt. Það gaf tengivagninn allavega til kynna. HAHAHAHAHA!!! TENGIVAGNINN! GET IT?!
:: G-Sus 15:34 [+] ::
...
:: laugardagur, nóvember 15, 2003 ::
Móðir mín á afmæli í dag. Sá sem ekki óskar mér til hamingju með móður mína mun deyja.
:: G-Sus 11:47 [+] ::
...
:: föstudagur, nóvember 14, 2003 ::
Hrútarnir heim!
Já, góðu gríni er gott að nauðga. Velkomnir til baka strákar.
:: G-Sus 13:40 [+] ::
...
:: fimmtudagur, nóvember 13, 2003 ::
Jó
Ég hef akkúrat ekki neitt að segja, hvorki af viti né óviti.
Jú kannski eitt þegar ég hugsa nánar út í það..
Ég er að lesa alveg magnaða bók þessa dagana. Heitir Full House eftir Stephen Jay Gould (R.I.P.). Bróðir minn gáfumaðurinn, sjálfmenntaði líf- og stjörnufræðingurinn lánaði mér bókina. Þetta er alveg mögnuð lesning og eftir því sem ég les meira í bókinni (og meira kemur í ljós) þá getur maður einungis spurt sig: Til hvers er þetta? Til hvers er þetta allt saman?
Ég hafði alveg spurt mig að því áður auðvitað eins og hvert mannsbarn örugglega en ég meina fokk men... ég er ekki frá því að ég sjái suma hluti í nýju ljósi.
Eins og vanalega þá skilijð þið mig örugglega ekki og ef sú er raunin þá getiði sogið typpi.... eins og vanalega einmitt.
:: G-Sus 23:02 [+] ::
...
!!!
Bless strákar. Við verðum í bandi.
:: G-Sus 13:26 [+] ::
...
:: miðvikudagur, nóvember 12, 2003 ::
Ég lofaði ykkur ljóði og hér kemur ljóð. Ljóðið heitir Hægt og hratt:
Hratt fer
flugvélin,
tígrisdýrið.
Hægt fer
snigillinn,
skjaldbakan.
ALLTOF HRATT líður
tíminn,
lífið.
Þetta ljóð er líka sótt í 14 ára huga minn þar sem ég á enn eftir að nenna að búa til einhver ljóð nú á mínum efri árum. Af þessu ljóði má greinilega sjá hve gríðarlega lífsreyndur ég var sem unglingur. I got the whole life figured out alveg. Nú er ég búinn að nota þessi tvö ljóð sem ég fann eftir unglinginn mig svo í næstu viku verður jafnvel alveg sjóðheitt ljóð á boðstólnum.
Allavega þá var þetta ljóð dagsins í dag og ég vona að þið hafið haft gaman að og ef ekki þá getiði sogið typpi.
:: G-Sus 15:56 [+] ::
...
:: þriðjudagur, nóvember 11, 2003 ::
Bara að minna á ljóðadaginn á morgun.
Þið hélduð kannski að ég myndi gleyma því en svo gott er það nú ekki.
:: G-Sus 19:44 [+] ::
...
Ég fékk alveg sillí hugmynd í nótt þegar ég fór að sofa. Það var eitthvað fitness mót um helgina í Smáralind og svo rakst ég á skemmtilegan frægan frasa í bók sem ég er að lesa. Þessu tvennu blandað saman gaf af sér nafn á fitnessmóti. Í staðinn fyrir að kalla þetta bara Íslandsmótið í fitness eða Fitnessmót Íslands eða hvað þetta heitir þá væri það frekar:
"Survival of the fittest" - í Smáralindinni um helgina!
Er það ekki svolítið meira töff nafn? Er kannski búið að gera þetta áður? Er ég kannski bara einhver biter?
:: G-Sus 09:31 [+] ::
...
:: mánudagur, nóvember 10, 2003 ::
Ég er sammála öllu hér og eitt af því marga sem ég spáði í á meðan á myndinni stóð var einmitt hversu ógeðslega sökkí samtölin voru. Svo var ég einmitt að klofna þegar hann var hjá véfréttinni. Af hverju andskotanum var hann að fara þangað í fyrsta lagi ef hann vissi hvort eð er allt sjálfur??? Djöfulsins fáviti.
:: G-Sus 21:27 [+] ::
...
Mér finnst hún Heiða heldur brött í nafnagiftunum á tenglunum sínum... Ekki alveg sáttur við Frau Gudmundsson þar.
Breyttu þessu kelling!
there, I´ve said it....
:: G-Sus 18:22 [+] ::
...
Jæja, þá þarf einhver að keyra yfir hausinn á mér.
damn
:: G-Sus 09:11 [+] ::
...
:: sunnudagur, nóvember 09, 2003 ::
Fótboltaúrslitaspámaðurinn Gúúúúúúúúúúústaf! (sungið eins og prestur að tóna)
Í gærkvöldi spurði ungur maður mig hvernig leikur Man U. og Liverpool myndi fara. Ég sagði við þennan unga mann: „2-1 fyrir Manchester“. Svo tippaði ég á kolranga markaskorara en það skiptir ekki höfuðmáli. Ég er bara töffari og þar við situr.
Ætla að tjekka á Matrix 3 í kvöld með Bryssa, Bryssu og Bassa. Eða kannski Brynjari, Bryndísi og Baldri. Ég þyrfti helst að heita B-eitthvað svo samræmið væri algert. En alltaf þarf ég að eyðileggja allt... Sorry men. Hef heyrt bæði góða og slæma hluti um þessa mynd. Veit því ekki neitt við hverju á að búast en ef hún er jafn ömurleg og mér fannst 2 vera þá læt ég keyra yfir hausinn á mér. Það er hæfileg refsing fyrir að vera sökker og láta plata sig í bíó alltafhreint.
Og þá kemur stóra spurningin... Er alltafhreint í einu orði eða tveimur??? Ha? Svariði mér. Afhverju eruði ekki að svara mér? Halló? ER EINHVER ÞARNA!?
Alwaysclean, you can´t beat the feeling
:: G-Sus 19:33 [+] ::
...
:: laugardagur, nóvember 08, 2003 ::
Jahá... The madness has begun ladies and gents!!!
Ég skrapp frá smá stund úr vinnunni núna rétt áðan og kíkti aðeins í Kringluna til að ganga minna erinda þar (whateeeeeever...). Það var varla hægt að finna stæði og allt morandi af fólki. Svo var allt skreytt jóló jóló og allt eins kreisí og hægt er!!!
Já, jólin eru á leiðinni.
:: G-Sus 16:12 [+] ::
...
:: föstudagur, nóvember 07, 2003 ::
Já, mér fannst vera tími til kominn að koma með eitthvað rugl í myndum og hér er afraksturinn.
SJÓRÆNINGI gjöriði svo vel:

Ekki mitt besta moment en moment þó.
:: G-Sus 14:52 [+] ::
...
:: fimmtudagur, nóvember 06, 2003 ::
Shorty let me tell you ´bout my only vice
It has to do with lots of lovin and it ain't nuthin nice
Electric Relaxation með A Tribe Called Quest kemur sterklega til greina sem eitt af mínum 5 uppáhaldslögum allra tíma. Það er gríðarlega erfitt að velja uppáhalds-eitthvað en þetta lag væri pottþétt þar á meðal. Heyrði það fyrst fyrir svona 7 árum or sumphin og ekki enn fengið leið á því. That says alot...
Takk fyrir mig.
:: G-Sus 14:19 [+] ::
...
Jah, ég veit ekki sko...
:: G-Sus 13:55 [+] ::
...
:: miðvikudagur, nóvember 05, 2003 ::
Já, þá er komið að því. Fyrsta ljóðið sem ég skelli hér fram er samið af sjálfum mér þegar ég var í 9. AÖ í Ölduselsskóla.
Á vorin er náttúran öll að breytast
Ætli hún sé ekki farin að þreytast
að gera þetta ár eftir ár
Á sumrin verður náttúran öll græn
Þá á maður til að fara með bæn
um að það verði margir sólskinsdagar
Á haustin upplitast náttúran öll
Hún gerir allt tilbúið fyrir mjöll
mjöllina sem á eftir að þekja jörðina
Á veturna er náttúran öll hvít
Snjórinn er kominn, með engann skít
nema á götunum eftir útblástur bílanna.
Án náttúrunnar væri veröldin tilbreytingarlaus.
Já... Þetta ljóð er 13 línur. Fyrstu 12 línurnar eru alveg að meika það en svo kemur 13 línan og gerir miður góða hluti. Það virðist vera að 14 ára hugur minn hafi verið laus við að hugsa um það sem kallast orsakasamhengi. Nema þá að þetta hafi verið húmor hjá mér... Ég leyfi mér þó að efast um sjálfan mig þar.
....classic engu að síður.
Það er mín einlæga ósk að eftir lestur þessa ljóðs séuð þið örlítið glaðari en þið voruð áður en þið hófuð lesturinn.
:: G-Sus 14:32 [+] ::
...
:: þriðjudagur, nóvember 04, 2003 ::
Jó
Ég var að horfa á Family Guy þátt. Þetta er alveg einstaklega fyndinn skítur. Þátturinn hét Death is a Bitch og fjallaði um að dauðinn sneri á sér ökklann og gat ekki haldið áfram að drepa fólk. Peter Griffin varð því að fylla í hans skarð og hann átti að drepa allt castið í Dawson´s Creek. Er til e-ð fyndnara? Já, ef Hitler væri á lífi þá væri hann með spallþátt eins og Jay Leno líkt og kom fram í þessum þætti. Hitler alltaf hress að biðja Christian Slater að sýna á sér rassinn. Dæææææm hvað þetta er fyndinn kúkur.
Svo verð ég að biðja ykkur lesendur góðir um að pissa ekki í ykkur af spenningi yfir því sem ég er að fara að koma frá mér núna...
DADADARAM!!
Miðvikudagar verða hér eftir ljóðadagar á þessu bloggi. Lítið á það sem mína tilraun til að koma til móts við lesendur sem búa yfir mikilli andagift og vilja lesa eitthvað sem að auðgar andann. Á morgun mun ég skella fram ljóði sem ég samdi í 9. eða 10. bekk. Geðveikt hommalegt en ljóð engu að síður. Nú þarf ég bara að finna ljóðið en ég tel mig vita hvar það er niðurkomið. Minn grunnskóli tók sér auka tíma í að vera alveg ofur gay og þurftum við alltaf að vera að gefa út einhverjar ljóðabækur í sífellu. Kannski að maður láti einhverja aðra gullmola fylgja með. Já, ég segi gullmola því þetta er auðvitað argasta snilld.
Bíðið spennt.... MJÖG spennt.
:: G-Sus 22:23 [+] ::
...
Þetta hér er alveg þess virði að skoða það.
:: G-Sus 13:33 [+] ::
...
:: mánudagur, nóvember 03, 2003 ::
Jóóó
Fór í Kino í gær á Scary Movie 3. Ekki með brósa samt, heldur með brotha og sistah from da hood. Fór með Daða og Heiðu. Það var alveg hægt að hlæja helling að þessari mynd. Það hjálpaði náttulega að hafa svefngalsann með í för eins og Daði sagði. Rétt hjá honum.
Þessi mynd kom mér aðeins til að hugsa samt... Ég mun ekki geta komið þeirri hugsun frá mér (eins og ég komst að við illan leik í gær) en beisikklí þá veit ég ekki hvað mér á að finnast um áhrif hip-hop(s) á allt og alla nú til dags. Eins og í þessari mynd þá er allt fullt af frægum röppurum (stór hluti Wu-Tang, Redman, Fat Joe o.fl.) sem ekkert allir eru að fatta hverjir eru og finnst þetta því ekkert eins fyndið eins og t.d. mér sem veit hverjir þetta eru. Erfið fæðing? Já, ég veit.
Einhvern veginn tekst mér að láta það fara í taugarnar á mér hvað mörgu fólki finnst bara kúl að hlusta á hip hop (hip & kúl kannski?) en kunna ekki að meta allt í kringum þetta. Æi fokkiði ykkur ég næ þessu ekki. Best að sleppa því bara.
Og í þessum skrifuðu orðum þá var fyrsta plötupöntun mín í hálft ár eða svo að koma í hús! ómægodómægodómægod!!! Best að fara að leika sér. Aiiiiight.
:: G-Sus 16:25 [+] ::
...
:: sunnudagur, nóvember 02, 2003 ::
Ég var að hlusta á brot af nýju lagi með Busta Rhymes. Hann er allavega skráður sem primary flytjandi og kemur með vers en Snoop virðist eiga lagið og lag með Snoop á erfitt með að klikka. Gaurinn er bara of svalur!
Þetta lag er að gera of góða hluti og heitir That´s What this Dick will do. Sé þetta fyrir mér á Hrúta/sauða djammi.
Ef þið hafið tök á, endilega tjekkið á þessu lagi. Viðlagið er mjög grípandi THAT'S WHAT THIS DICK WILL DOOOOOOOO.
Innflutningspartíið hjá Erling og Sigrúnu tókst bara mjög vel fannst mér. Hellingur af fólki og góðar veitingar sem þau hjú báru á borð. Ég varð svo að fara að vinna á miðnætti og ég missti því örugglega af mestu drykkjulátunum.
Vonandi mun rugguhesturinn veita ykkur hlýju um ókomna tíð.
Takk fyrir mig!
Er á leiðinni á Scary Movie 3 með Baldri bróður og kvindu hans, henni Katrínu. Vonandi getur maður haft gaman að þessari vitleysu.
THAT'S WHAT THIS DICK WILL DOOOOOOOOOOOOOOOOOO
:: G-Sus 18:43 [+] ::
...
:: laugardagur, nóvember 01, 2003 ::
Hæ! Gaman að sjá þig! Hvað segirðu gott? Flott! Gott að heyra
Svona verður pakkinn í kvöld væntanlega. Svona er þetta alltaf þegar mannamót eru. Fóstbræður sögðu þetta best.
Svo er þetta nú hálfdapurlegt hér. Ég fór að sofa í morgun í myrkri og svo þegar ég vaknaði rúmlega fimm þá var byrjað að dimma. Þetta náttulega fer alveg með mann. Eða eins og ég segi ávallt:
Myrkur, ó myrkur, stilltu þér í hóf. Ljós, ljós sýndu mér þitt litróf.
Djöfull er ég ljóðrænn.
:: G-Sus 19:11 [+] ::
...
|