eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: mánudagur, maí 30, 2005 ::

Hvíldu í friði, Ágúst minn.

:: G-Sus 20:00 [+] ::
...
:: laugardagur, maí 28, 2005 ::
Jahá. Gærkvöldið fer í sögubækurnar. Komst að ýmsu um sjálfan mig sem ég þarf að vinna í og bæta. Starting tomorrow...

Svo var símanum mínum stolið. Fjandinn. Nýorðinn 4 ára gamall í minni eigu. Fékk hann gefins á tvítugsafmælinu mínu 2001, sem hittist einmitt á dimissio. Skemmtilegur morgunn það var. Þoli ekki að þurfa að kaupa nýjan síma en það gerist væntanlega eftir helgi.
Þið ÖLL sem eru að lesa þetta og eruð búin að hringa í mig í dag af áfergju þá er ég búinn að láta loka símanum. Fæ vonandi sama númer með nýjum síma og vonandi eru ekki öll númerin týnd sem voru í minninu.

Hvernig væri svo að minnka hlutfallið af hálfvitum í heiminum?

:: G-Sus 23:07 [+] ::
...
:: fimmtudagur, maí 26, 2005 ::
Já!!! SNOOP KEMUR Í SUMAR, STAÐFEST!!

Sjá HÉR

:: G-Sus 12:54 [+] ::
...
:: mánudagur, maí 23, 2005 ::
Fór í bíó um helgina á "Star Wars: Revenge of the Sith" með systkinum mínum. Ótrúlegt en satt, þá var myndin bara alveg þrusugóð, eins og fyrstu tvær voru mikið flöff. Þetta er náttulega myndin þar sem Anakin breytist í Darth Vader og það atriði er þess virði að fara að sjá myndina. Sendi alveg massívan bjánahroll niður eftir hryggnum á mér allavega og ég er ekkert sérstakt Star Wars fan.

Nú vil ég meina að ég sé nokkuð lunkinn við að spotta ömurlegar bíómyndir þó maður falli af og til í Hollywood gildruna. Ég sá treilarinn úr The Core á sínum tíma og ég sagði við sjálfan mig "Ég ætla aldrei að sjá þessa mynd". Það stendur enn og ég hef heyrt að hún sé mjög vond. Akkúrat núna dettur mér engin önnur mynd í hug en þetta hefur þó gert nokkrum sinnum og undentekningarlaust hefur komið á daginn að myndirnar voru alger örbjóður.
Á undan Star Wars var sýnt úr myndinni "Mr. and Mrs. Smith" með Brad Pitt og Angelinu Jolie. Þetta er ein af þessum myndum. Góð saga hjá mér en þið skiljið allavega hvað ég er að meina. Það þarf eflaust engan snilling til að sjá út hvaða myndir sökka og hverjar ekki en ég segi ykkur, þessi mynd mun sökka.
Hey, ekki gera lítið úr mér!

:: G-Sus 17:45 [+] ::
...
:: föstudagur, maí 20, 2005 ::
Já, þið þekkið mig bara svona vel.. Skemmtilegt.

Maður getur ekki annað en vorkennt þessari konu sem var meinað að ættleiða börn á þeim grundvelli að hún væri of feit. Gott að fá það í andlitið. Þetta er svipað og ef ég myndi reyna að ættleiða barn og mér væri synjað því ég er svartur.
Feitar manneskjur gera ekki góð foreldri, eins og dæmin sanna auðvitað, þannig hver gæti hugsanlega verið á móti þessari niðurstöðu?
Það væri kannski hægt að vera sammála þessu ef konan væri svona 250-300 kíló og lífslíkur þar með ekkert sérstakar en þessi kona var framan á DV í dag og ég segi ykkur, hún lítur ekki út fyrir að vera grammi þyngri en 100 kíló.
Þetta keis lítur út fyrir að vera óréttlátt mjög en hvað veit maður.. Kannski er ekki öll sagan sögð.

Áfram feita fólk!
xG-sus fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar.

:: G-Sus 13:32 [+] ::
...
:: þriðjudagur, maí 17, 2005 ::
Próf
Nú eru allir búnir í prófum...eða hvað? Aldeilis ekki. Ég bjó nefnilega til svona próf sem er svo vinsælt um þessar mundir og svo skemmtilegt. Hamist!
http://www.quizyourfriends.com/yourquiz.php?quizname=050517135602-651416

:: G-Sus 17:57 [+] ::
...
:: fimmtudagur, maí 12, 2005 ::
Það er til of mikið af tónlist í heiminum.. Ég hef verið að digga í hip hop hlutanum núna í u.þ.b. 10 ár og það er enn svo obboslefa margt sem ég hef ekki heyrt.
Gaman væri að vita hvað það eru til mörg lög í heiminum, sem hafa verið gefin út það er, og hversu mörg fæðast á hverjum degi. Þessar tölur grunar mig að séu frekar hrikalegar.

Styttist í Eurovision. Djöfull er ég feginn að vera að vinna á báðum kvöldunum. Þá getur maður kúplað sig frá þessu ógeði nema beljurnar í þjónustverinu verði með þetta blastandi. Heddfónarnir munu eflaust koma að góðum notum í því tilviki.
Vinnan er þess valdandi að ég missi af Skvassmóti í Veggsport svo kannski er þetta ekkert til að hrópa húrra fyrir svona betur skoðað.. Hefði verið gaman að horfa á allavega.

Arnþór var fyndinn um daginn og googlaði nöfnunum okkar í myndaleitinni þar. Niðurstöður voru vægast sagt kómískar. Hér eru nokkur dæmi úr leitinni "gústi":
http://www.socialwork.lsu.edu/dyeson/Romania/gusti.jpg
http://cridata.crinet.com/dairy/images/animals/212b112gusti.jpg
http://www.ghnet.pl/~klande/pictures/cmentarz_protestancki_na_grodzisku_-_bielsko_02_-_gusti.jpg (nokkuð sorglegt þetta)
http://digilander.libero.it/lorri/DD04.014b.jpg
http://www.sinigoj.com/img/film_gusti_big.jpg (my personal fav!)

Eníhú... Niður með Eurovision! Megi Eurovision stikna í helvíti.

:: G-Sus 23:39 [+] ::
...
:: mánudagur, maí 09, 2005 ::
Music evolution..

Hvað er eiginlega með Snoop? Maður heyrir ekkert og er farinn að örvænta! Láttu heyra í þér strákur, mar saknar þin.

Ekki frá því að sumarið/sólin sé farið að hafa sín áhrif. Léttari lund, samlyndi og allt það. Tókuði eftir lund og lyndi hjá mér? U verður að Y, krakkar. Þvílíkt hugmyndaflug.

Hvað ætli maður hafi eytt miklum pening um ævina? Hafiði pælt í þessu? Hversu mörgum millum heldurðu að þú hafir eytt lesandi góður? Hvar eru þær núna? Eru þær í formi hluta eða minninga? Allsvaaaaaðalega djúpt..
Önnur spurning tengd þessu, svona gróflega áætlað, hvað metiði innvolsið í herberginu ykkar á? Fólk sem á íbúðir má ekki svara.

:: G-Sus 23:28 [+] ::
...
:: laugardagur, maí 07, 2005 ::
Meikar ekki mikið meira sens ef við værum kennd við móður okkar í stað föður? Ég yrði þá Gústaf Halldór Ólafarson. Segi svona af því að það fer ekkert á milli mála hver móðirin er, á meðan faðernið er ekkert svo pottþétt alltaf. Man eftir að hafa lesið um það fyrir einhverju síðan að 1 af hverjum 10 börnum er rangfeðrað (hlutfallið var eitthvað álíka stórt allavega). Þið hafið eflaust pælt í þessu áður, ég er bara svo sló.

Beint framhald.. hressandi að fara í skírn bróðurdóttir minnar á morgun. Sérstaklega þar sem ég er á leið á næturvakt núna. Býst við sjálfsíkveikju þegar ég geng inní kirkjuna.

Bíó annað kvöld? Hitchhiker's Guide to the Galaxy?

:: G-Sus 21:37 [+] ::
...
:: föstudagur, maí 06, 2005 ::
Neibb, gat ekki beðið lengur. Búinn að ná í 1. þátt 4. seríu Family Guy. Þetta er hreinlega of fyndið. Þessi 1. þáttur svipaði soldið til eins South Park þáttar þar sem Mel Gibson var tekinn í gegn. Þessi þáttur fjallar semsagt um það að Peter kemst að því að M.G. er búinn að búa til nýja Passion of the Christ mynd og hann setur sér það markmið að eyðileggja eina eintakið af myndinni svo heimsbyggðin þurfi ekki að þjást meira.
Þessi Family Guy flashback atriði eru bomban. BOMBAN!

:: G-Sus 04:42 [+] ::
...
:: þriðjudagur, maí 03, 2005 ::
Bestu fréttir síðan ég fattaði að það er ekkert óeðlilegt við það að nota flísatöng til þess að pissa:
FAMILY GUY er byrjaður aftur!!!

Fyrsti þátturinn í 4. seríu var sýndur 1. maí í Bandaríkjum N-Ameríku. Ætli maður bíði ekki nokkra þætti og verði svo það óþolinmóður að maður opni DC++ og næli sér í þættina. Dæææm this is some funny stuff.

Allavega.. stuff it.

:: G-Sus 22:52 [+] ::
...
:: sunnudagur, maí 01, 2005 ::
Ég er ekki að meika 10-11 búðirnar. Asnalegast í heimi að vera spurður þegar maður kemur að kassanum og er að borga: "Fannstu allt sem þú leitaðir að?". Þessi verslun!
Stjórnendur eru í 90% tilvika fífl sem hafa ekki hugmynd um hvernig heimurinn virkar. Vissu það kannski einu sinni en misstu svo sjónar á því þegar þeir fengu sína eigin skrifstofu þar sem þeir útiloka sig frá almúganum og telja peningana sína.
Fyrir utan það að vera asnaleg spurning, kokkuð upp af einhverjum corporate fávitum, þá skapar þetta einkar óþægilegar aðstæður.

Djöfull hata ég asnalegt fólk.

:: G-Sus 18:25 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?