|
|
:: mánudagur, júní 30, 2003 ::
Þá er tölvan í rugli. Hlakka til að losna við kvikindið. Wednesday is tha day!
Frí í dag. Snilld. Fór með Arnþóri í sund í Laugardalslaugina. Júlíus Jónasson í góðum fíling í sundi. Gott veður. Frábært. Stuttur í spuna? Já.
Það kom upp pæling að það væri fyndið að alltaf þegar svertingi birtist á leið sinni út í laug, þá myndu allir fara að púa og benda honum á að halda sig í liggipottinum. Það væri fyndið en örugglega ekki skemmtilegt fyrir svertingjann.
Daði kominn með snilldarklippingu. ÁFRAM STRÁKUR! Svo er hann að fara að keppa með Fram á morgun á móti Haukum. Haukar eru lið úr Hafnarfirði og Framarar eiga eftir að nýta sér það með því að lama bráð sína með beinskeyttum og bráðfyndnum Hafnfirðingabröndurum. Þá missa Haukar allt sjálfsálit og byrja að reyna að skora í sitt eigið mark. Þetta gerist örugglega ekki en það væri samt fyndið ef þetta myndi gerast.
Forward vs. Da Hawks
Forward 4 - Da Hawks 1
Svona verður staðan í leiknum og Daði skorar meira að segja mark með skalla og þá fara allir að horfa á hausinn á honum og hlæja og benda á hann. Meira að segja dómarinn gerir hlé á leiknum bara svo allir leikmenn geti líka fengið að benda á hann og hlæja. .... Þetta gerist örugglega ekki en það væri samt fyndið ef þetta myndi gerast.
Bloggið í dag einkennist af miklum ólíkindum (hafið þið séð ólí-kindur, krakkar?) en mér fannst það bara einhvern veginn við hæfi að koma einhverju af þessu rugli, sem ég hef að geyma, frá mér.
Afsakið óþægindin sem þið hafið mögulega (eða hafið nú þegar) orðið fyrir af lesningu þessari.
:: G-Sus 18:58 [+] ::
...
:: laugardagur, júní 28, 2003 ::
Ef þið viljið fá íslensku stafina aftur þá er bara að fara í Settings-->Formatting og breyta svo yfir í íslensku. Ég var búinn að tjekka á því en fann það ekki í gær þar sem ég var svo óþolinmóður og beið ekki eftir því að síðan myndi hlaðast upp. Ekki halda því að ég sé alheimskur. Ég hef afsökun.
Núna um helgina verð á 12 tíma vöktum, frá 11:30 - 23:30, en svo er þessi kvöldvaktatörn búinn. Ég er líka alveg búinn að fá upp í görn af þessu.
Ekki fór vel fyrir grey fótboltamanninum sem dó á vellinum. Daði sagði mér frá þessu og ég spurði hann þá hvort hann hefði ekki bara fengið hjartaáfall. Þá var það ekkert vitað en á mbl.is þá var útskýringin sú að hann hefði gleypt í sér tunguna. Eruði ekki að grínast? Hversu vitlaus þarf maður að vera til að skrifa svona á netið? Það var ekki einu sinni talað um að neitt hafi ollið þessu, hann hafi bara hreinlega gleypt í sér tunguna. Er það hægt bara svona í góðum fíling að gleypa á sér tunguna? Í fréttunum áðan var sagt að hann hefði fengið hjartaáfall svo yours truly kom þá með rétta greiningu virðist vera.
Já svei mér þá, ég rek í rogastans. Ég held að það sé kominn tími á eins og eina könnun.
:: G-Sus 00:40 [+] ::
...
:: fimmtudagur, júní 26, 2003 ::
Blogger bara kominn me? nytt look! Alltaf somu garungarnir hja Blogger, oja sei sei! Svo kludra their islensku st?funum haldidi ad se nu!
Eg for i gaer a sidustu 30 min FH-Fram. Eg horfdi a fyrri halfleik a Syn og ur thvi Dadi var svo SYNilegur (hihihi) tha akvad ég ad skella mér. Fram var eitt null yfir thegar ég for. A leidinni ur Breidholti yfir i Hafnarfjord tokst FH ingum ad skora. UM LEID og ég steig utur bilnum i Kaplakrika tha skorudu FH ingar aftur. Eg aetladi ad fara heim ad grata. En ég gerdi thad tho ekki og hitti Tuma og Lockheed Martin (hihihi aftur) sem toku mig ad sér. Fram vann ad lokum 2-3 og er thad magnad. Thad sem mér fannst lika magnad eru thessir mognudu svokolludu "studningsmenn" FH. Thegar Fram jafnadi tha foru margir theirra. Eins og leikurinn vaeri bara buinn! thvilik endemis fifl! Allavega, tha for thetta mikid i mig. Eg er nebbilega svo skrytinn.
Svo thegar ég var a leidinni nidur troppurnar ur stukunni tha var klappad a bakid a mér. Virkilegt klapp, ekkert svona ´rekast utani´ klapp. Eg leit vid og mér bra svolitid en ég vona ad enginn hafi séd thad thar sem thad var algjorlega oviljandi. Fyrir aftan mig stod nefnlega mesti mongoliti sem ég hef séd. Svona nokkud fullordinn kvenkyns mongoli. Og hun sagdi: "AFREM FREM!" Eg tok nu bara undir med henni til ad gera gott ur hlutunum. En mér bra svona utaf einu sérstoku atridi... Andlitid a konunni sneri ad mér en augun engan veginn. Hér ma sja daemi um adstaedur fra mér séd:

Ekki fara ad uthuda mér fyrir ad gera grin ad mongolitum. Svona var thetta bara og ég skrifa bara um thad sem gerist fyrir mig. Allir sem minnast e-d a ad ég sé vondur or sumphin fa hnifsstungu i bakid. Nuff said.
:: G-Sus 14:59 [+] ::
...
:: miðvikudagur, júní 25, 2003 ::
Ahhh!!! Loksins kom einn frídagur inn á milli. Og hvað er betra á frídegi en að fjárfesta í eins og einu stykki tölvu. Var að kaupa mér magnified tölvu alveg. Svo ætlar tölvugúrú í vinnunni að setja hana saman fyrir mig.
Helstu atriði eru eftirfarandi:
- Intel Pentium 4 2,8 Ghz
- 1024 MB vinnsluminni
- 120 GB harður diskur
- GeForce4 4800 skjákort
Svo á þetta pottþétt eftir að vera eitthvað vesen eins og það er alltaf með tölvur. You just gotta love ´em!
Svo sá ég í blaðinu að FH-Fram er í kvöld. Spurning um að kíkja á kallinn?
:: G-Sus 14:36 [+] ::
...
:: þriðjudagur, júní 24, 2003 ::
Fallegt af Haloscan að taka niður kommentin. Þetta hefur bara aldrei gerst áður.. Maður getur víst ekki kvartað fyrst þetta er ókeypis og þannig.
Úr því ég hef lítið sem ekkert að segja þá bætti ég Tuma inn í tenglana mína. Hann er smell leiðinlegur strákurinn en maður bara vonar að Martin skrifi kannski eitthvað við og við hjá honum til þess að síðan haldi reppinu.
Nei, nei Tumi ég segi bara svona. Hversu mikið var ég að grínast!? heh....
Hér er svo mynd af Tuma við heimili sitt. Hann er nýfarinn á fætur og er á leiðinni í kirkju. Þá kemur ógurlegt vatnsgreitt risaskrímsli í hlýrabol og ætlar að eyðileggja húsið hans. Þá fer Tumi að gráta og það vaxa á hann lítil brjóst. Óhugnaðinn má sjá á meðfylgjandi mynd:

Ég er með svo þroskaðan húmor að það er alveg crazy.
Síðasti póstur eitthvað ekki alveg að gera sig. Þið verðið að fyrirgefa mér það.
:: G-Sus 01:08 [+] ::
...
Fallegt af Haloscan að taka niður kommentin. Þetta hefur bara aldrei gerst áður.. Maður getur víst ekki kvartað fyrst þetta er ókeypis og þannig.
Úr því ég hef lítið sem ekkert að segja þá bætti ég Tuma inn í tenglana mína. Hann er smell leiðinlegur strákurinn en maður bara vonar að Martin skrifi kannski eitthvað við og við hjá honum til þess að síðan haldi reppinu.
Nei, nei Tumi ég segi bara svona. Hversu mikið var ég að grínast!? heh....
Hér er svo mynd af Tuma við heimili sitt. Hann er nýfarinn á fætur og er á leiðinni í kirkju. Þá kemur ógurlegt vatnsgreitt risaskrímsli í hlýrabol og ætlar að eyðileggja húsið hans. Þá fer Tumi að gráta og það vaxa á hann lítil brjóst. Óhugnaðinn má sjá á meðfylgjandi mynd:

Jájá ég er með rosalega óþroskaðan húmor. So sue me! :-þ
:: G-Sus 01:00 [+] ::
...
:: mánudagur, júní 23, 2003 ::
Smá öppdeit hér.
Ég var að lesa Ógurlega heilalausar pælingar sem Batman.is linkaði á og þetta er svo fyndið að ég er að fara yfir um. Djöfulli er ég með skrítinn húmor. Nokkur kvót:
- When you die, if you get a choice between going to regular heaven or pie heaven, choose pie heaven. It might be a trick, but if it's not, mmmmmmm, boy.
- If you ever catch on fire, try to avoid looking in a mirror, because I bet that will really throw you into a panic.
- I believe in making the world safe for our children, but not our children's children, because I don't think children should be having sex. (hérna ætlaði ég að míga á mig)
- If you're in a war, instead of throwing a hand grenade at the enemy, throw one of those small pumpkins. Maybe it'll make everyone think how stupid war is, and while they are thinking, you can throw a real grenade at them.
- I wouldn't be surprised if someday some fishermen caught a big shark and cut it open, and there inside was a whole person. Then they cut the person open, and in him is a little baby shark. And in the baby shark there isn't a person, because it would be too small. But there's a little doll or something, like a Johnny Combat little toy guy---something like that.
Ég vill vera svona og búa til svona sniðugar hugsanir... búhúhú :' -(
:: G-Sus 02:08 [+] ::
...
Undirtektirnar eru alveg hreint gríðarlegar... And the crowd goes wild!!!!
Ég sá Bensa dans aka Bensa lók vera eitthvað að Grísast í morgun þegar Gísli Marteinn var endurtekinn. Það var mjög fyndið í ljósi þess að hann leikur nördinn í Grease. Bensi þá, ekki Gísli Marteinn. Ansi hreint slakt leikaraúrval fyrir utan Bensann. Jónsi? Kommon! Slakasti gaur á norðurhveli jarðar. Hvað er hann að gera þarna? Og svo náttulega beljan hún Birgitta "égtapaðijúróvisjon" Haukdal. Á hvaða markhóp er eiginlega verið að stíla með þessari uppsetningu? FM hnakka og FM gellur, pottþétt. Það eru samt góðar líkur á að maður fari til þess eins að sjá Bensa í fíling. Haaa? Einhverjar undirtektir?
:: G-Sus 00:11 [+] ::
...
:: sunnudagur, júní 22, 2003 ::
Mér finnst ég vera nakinn, en samt í sokkum. Það er kannski af því ég er á sprellanum. Neinei segi bara svona... Það er vegna þess að í síðasta bloggi linkaði ég yfir á alveg yndisleg lög og ef fólk getur lesið persónuleika út úr lögum þá eru þetta lögin sem skilgreina mig ásamt þessu lagi hér: She said
...nú er ég kominn úr sokkunum...
En nóg um það... Hrrrrmmmpppff (Bragi íslenskukennari)
Það er opnugrein um EVE í sunnudagsmogganum. Mjög góð grein, loksins. Hvet ykkur til að lesa hana. Það er meira að segja óbeint minnst á mig í henni. Eins óbeint og óbeint getur verið meira að segja, segja að meira. Hefurðu meira að segja?
Þannig er mál með vexti að það eru nokkrir óprúttnir playerar sem eru alveg á mörkunum með að nýta sér galla í leiknum og exploita. En það er einmitt bannað. Þeir voru semsagt að drepa byrjendur og það er alveg harðbannað. Þannig að vaktin sem ég var á fór inn í leikinn á risa skipum og með fullt af vopnum og drasli. Það var búið til eitthvað geðveikt roleplay í kringum þetta og sagt að "The Empire decided to send in The Four" með tilvísun í the four horsemen of the Apocalypse. En við vorum 7. Mjög fyndið (híjahíjahíja *nördahlátur*). Svo gerðist eiginlega ekkert markvert nema einn þessara playera var drepinn og svo ekkert annað. Aftur á móti frétti allur EVE heimurinn af þessu á 2 tímum eða e-ð álíka klikkað. It was fun while it lasted. Anyways.. þá er minnst á þetta í þessari grein. Og þar hafiði það.
Svo fara „active" notendur alveg að nálgast 25 þús. Nokkuð gott... Crazy alveg.
Nú byrja ég bara að rambla en það minnir mig á NAMBLA. Vitið þið hvað NAMBLA er krakkar? Ég sá þetta fyrst í South Park þætti og hélt að þetta væri bara grín í boði Matt Stone og Tray Parker. En svo sá ég þetta á Batman.is eða einversstaðar og mig langaði til að æla. NAMBLA þýðir einmitt: North American Man-Boy Love Association. Á skalanum 1-10, hversu sjúkt er þetta? Karlar sem finna ekkert að því að „elska" 11 ára drengi. Það fer um mann gæsahúð, men!!!
Sick fucks...
Ég er eiginlega orðinn áskrifandi að þessu næturbloggi. Klukkan er alltaf um 1 þegar ég blogga. Þessi kvöldvaktatörn er algjört sökk.
:: G-Sus 00:53 [+] ::
...
:: laugardagur, júní 21, 2003 ::
Þá er bara kominn nýr Weebl þáttur. Hann er jafnvel fyndnari en wee-lo þátturinn... mjög erfitt að gera upp á milli þeirra. SNILLDIN EIN!!! samt sem áður. Greinilegt að wee-lo þátturinn hefur slegið í gegn enda halda þeir sama þemanu gangandi.
Check it!
Úr því ég fattaði þetta Sandbox mp3 realplayer thingy í síðasta bloggi þá læt ég bara aftur vaða með nokkrum snilldarlögum að mér finnst. Bara svo þið lesendur getið gægst betur inn í persónuleika minn og sálgreint mig á ykkar margrómaða hátt.
Besta hiphop hljómsveit sem hefur verið til: PHARCYDE gjöriði svo vel:
Drop (Snilldarlag, brjálaður taktur og svo er myndbandið tekið afturábak en samt nokkurskonar áfram þar sem þeir gera allt afturábak til að byrja með)
Otha fish (Fjallar um að það eru fleiri fiskar í sjónum. Magnað lag og rosalega flott syngjandi rapp hjá Slimkid Tre. Basic chill lag)
Runnin (Á topp 10 listanum mínum pottþétt)
Passing me by (Eitt af mínum uppáhaldslögum allra tíma. "She keeps on passing me by"... Þarf að segja meira um lagið?)
:: G-Sus 01:09 [+] ::
...
:: föstudagur, júní 20, 2003 ::
Hversu skemmtilegt var þetta!?
Ég var að koma af Gauk á Stöng og stemningin í húsinu var alveg ótrúleg. Þetta er eitthvað sem maður verður að upplifa til að geta skilið hvað þetta er sérstakt. Eins og þeir sem fóru á Jeru the Damaja ættu að skilja. Mér tókst að fá Eika með mér svo ég var ekki einn, sem var mjög gott. En mikið djöfulli þoli ég ekki íslenska "breikara". Ég læt "breikara" í gæsalappir því þeir eru allir svo ömurlega lélegir að maður gæti sparkað í þá. Þeim meira að segja tókst að skemmileggja aðeins fyrir mér. Þeir bjuggu til einhvern silly hring einmitt þar sem ég og Eiki stóðum og allir í 5 metra radíus urðu veskú að færa sig. Þá var svona bara einhver hiphop tónlist í gangi. Svo byrjaði Mr. Dibbs að sýna færni sína á da one´n´two´s og maður var fastur í einhverjum hring og gat ekki horft upp á svið. Einn léttur klofningur þar. Maður gat bara hlustað á færni gaursins og hún var mikil skal ég segja ykkur. Einhver gæti sagt að ég væri afbrýðisamur út í þessa breikara en trust me, that ain´t so. Ef þeir gætu eitthvað, þá gæti ég mögulega verið afbrýðisamur. En showið hjá Slug, Blueprint og Mr. Dibbs var semsagt frábært og ég vona að næst þegar það verður svona djamm aftur á Gauki á Stöng að þá komi einhverjir lesendur þessa bloggs með mér. Ég er ekki að grínast: Þið getið fílað stemninguna þó þið fílið ekki hiphop. Og stemningin er ólýsanleg. ´Nuff said.
Þið getið tjekkað á myndum af þeim félögum hér.
:: G-Sus 02:02 [+] ::
...
:: fimmtudagur, júní 19, 2003 ::
Ekki enn búinn að fá svar frá Subway... Ég bara skil þetta ekki :-þ
Diskaútgáfa:
- Ég var að tala við Svessa áðan og fyrir alla hardcore Daysleeper aðdáendur þarna úti (*hóst* Daði *hóst*) þá er plata væntanleg í september.
- Svo er að koma út nú plata með Gangstarr núna eftir nokkra daga og heitir hún "The Ownerz". Búinn að hlusta á nokkur lög og er þau alltílagi svosem. Það fer kannski svo að maður kaupir sér loks geisladisk eftir 4 ára hlé... Jafnvel bara.
- Svo var gamli kallinn hann KRS-One að gefa út disk! Haldiði að það sé! Obbosí, gefa út disk, gefa út disk. Gripurinn heitir "Kristyles"
- Í tilefni endurkomu A Tribe Called Quest þá var gefin út diskur nú í vikunni með öllum helstu lögum þeirra og nefnist hann "Hits, Rarities & Remixes". Þeir eru að fara í stúdíó núna og það eru bara bestu fréttir sem ég hef heyrt lengi úr hiphop heiminum. (Það eina sem væri betra væri ef Pharcyde myndi taka Fatlip aftur og að hann myndi vilja starfa með þeim. Damn, hvað Pharcyde er (var) góð hljómsveit. Algjörir snillingar).
Á morgun (fimmtudag) er svo magnað hiphop djamm á Gauk á Stöng. Atmosphere (bara Slug þó) leikur þar fyrir dansi ásamt Blueprint og Mr. Dibbs. Slug úr Atmosphere er alveg rosalega feitur rappari (feitur eins og í phat). Vonandi fer ég ekki einn á þetta eins og vanalega þar sem flestir sem ég þekki skilja ekki hiplensku. Ég reyni að draga e-n með mér.. so beware! Betarokk ætlar að mæta, það er staðfest á Huga, so bring a knife :-)
Ef þið tjekkið á Sandbox plötuvefnum þá getið þið hlustað á nokkur lög með Atmos. (Travel er sérstaklega magnað)
Eða bara hér (þessi fídus er algjör snilld og lyftir bloggi mínu á hærra plan!):
Woman with the tattoed hands
Travel
Modern´s man hustle
Onemosphere
God loves ugly
:: G-Sus 00:47 [+] ::
...
:: miðvikudagur, júní 18, 2003 ::
Já, enginn var bærinn í dag :-(
Klukkan var orðin of margt þegar bílandi maðurinn Steini lagði af stað svo ég nennti ekki að gera neitt. Ég nenni ekki einu sinni núna að tjekka á fólki... Það er örugglega hvort eð er enginn að hlusta á þessar kúka hljómsveitir í grenjandi rigningu.
Við fórum tveir úr vinnunni á Subway í Skeifunni í kvöld. Ég bað um bræðing og fékk barasta einn versta bræðing sem sögur fara af. Mér fannst það bara mjög fyndið og ákvað að tjekka á því hvort Subway hefði svona support deild eins og við erum að vinna í. Ég tjekkaði á léninu subway.is og þar gat ég komið skoðunum mínum á famfæri! Frábært tækifæri fyrir grín! Ég skrifaði undir nafninu Dagbjartur og ég þurfti líka að skrá símanúmer og netfang. Ég sendi þeim eftirfarandi:
"Ég keypti mér bræðing niðrí Skeifu og nú er ég með skeifu :-( Stelpan notaði greinilega ekki standard form í að útbúa bátinn minn. Paprikan stóð útúr bátnum þvers og kruss og majónesið var í einni línu meðfram annarri hlið bátsins. (Annaðhvort vinstra megin eða hægra megin það fer eiginlega eftir því hvernig maður horfir á bátinn.) Það var greinilega ekki þessi "majó í v til að dreifa því" fílingur í stelpunni. Þetta var núna kl rúmlega 19, 17 júní. Með von um betri bát næst, Dabbi.
P.s. Getiði fært characterinn minn. Hann er fastur."
Þetta p.s. er svona EVE grín. Býst ekki við því að support deild Subway á Íslandi skilji það!
Vonandi fæ ég einhver svör frá þeim. Ég læt ykkur vita hvernig fer.
:: G-Sus 00:04 [+] ::
...
:: mánudagur, júní 16, 2003 ::
Einhver til í að koma með mér í bæinn á morgun? Helst um svona eitt leytið kannski tvö leytið. Ég er nebbilega að fara að vinna kl 15:30 svo það er kannski ekki alveg þessi vanalegi 17. júní tími sem kemur til greina hjá mér. Meira svona barna-tíminn. Chao bella.
:: G-Sus 22:46 [+] ::
...
I feel pretty, ohh so pretty...
Fór í skírn í morgun. Í Langholtskirkju. Lítil frænka mín skírð og svona. Alexia Roshini heitir stúlkan. Mamma hennar er frá Sri Lanka. Frændi minn og hún eiga strák fyrir en fjölskyldan býr í Texas. Mamman er semsagt nokkuð dökk á hörund og krakkarnir eru nokkuð litaðir af því (múahahaha!). Mjög fyndið að vera blóðskyldur svona dökku hörundi. Bara gaman, ekki misskilja mig.
Kirkjan (messan) var ömurlega leiðinleg.
Bull frá upphafi og til enda. How´s that for starters? Mér leið eins og í Matrix eða so to speak. Fólk var að raula sálma allir í kór og svo fór það upp eins og allir sannir trúaðir og fengu sér brauð og vín (u-huh). Allir litlu drónarnir syngja sálma, biðja bænir og trúa á sinn guð í friði. En samt ekki svo mikið í friði, er það? Ég gat ekki keypt mér að borða á annan í hvítasunnu því löggan lokaði 10-11 í Lágmúla. Sem betur fór var Quizno´s opið. Maður verður nett fúll þegar það er reynt að stemma stigu við yfirgangi kirkjunnar og það er stöðvað af lögreglu. Allavega... Presturinn í messunni ramblaði (e. ramble: tala bara eitthvað tilgangslaust út í eitt) í stólræðunni um einhvern prest í Danmörku og hvað hann var nú skrítinn að afneita guði og svo bullaði hann eitthvað meira í sirka korter. Ekkert smá óþægilegt að sitja undir þessu. Hann talaði svo um að hönd guðs hefði snert höfuð Alexiu þegar hann skírði hana (ath: ég sá enga yfirnátturulega hönd, bara hönd prestsins). Þegar hann minntist á þetta þá fór ég að spá í því hversu kúl það væri ef prestar hefðu svona einhverja sérstaka hæfileika... Guðfræðin í Háskólanum yrði þá svolítið í líkingu við Hogwarts skólann í Harry Potter bókunum. Prestarnir lærðu allskonar mótsvör við því þegar fólk sofnaði eða þegar fólk er kannski ekki alveg að trúa þessum nautakúk. Einhver sofnar og presturinn bendir á hann og skýtur í hann... eldingu! eða... Einhver ekki alveg að gleypa við þessu kannski, þá hreyfir presturinn hendina eins og Jedi-riddari og öll kertaljósin slokkna og svo kveikir hann á þeim aftur með öfugri Jedi hreyfingu! Og svo að lokum... E-r mætir ekki í kirkju þá verður his ass busted! Presturinn birtir myndir af þeim sem ekki mæta (þegar þeir eru að fróa sér) á svona skyggnu tjaldi við altarið. Auðvitað notar presturinn augun á sér til að varpa skyggnunum upp annars væri þetta ekkert voða merkilegt.
Og þá myndu allir alltaf mæta við messu :-)
Guð... ef þú ert að lesa þetta: Gefðu prestum yfirnáttúrulega hæfileika og þá munu allir í heiminum trúa á þig. Ég skal meira að segja ekki taka neitt fyrir að benda þér á þetta. Líttu bara á þetta sem greiða.. *wink wink*
Svo að lokum... Í kvöld horfði ég á þátt um MR. Merkilega var að hann var eiginlega um stúlku sem svarar nafninu Anna Þórdís (aka. Kondí bílinn). Þátturinn byrjaði vel en var svo nokkuð slakur bara. Fjallaði um 3. bekk vel í byrjun en svo allt í einu var komið í 6. bekk og skólinn búinn. Jæja... trip down memory lane í 45 mínútur eða svo... Það var í góðu lagi.
:: G-Sus 00:42 [+] ::
...
:: sunnudagur, júní 15, 2003 ::
Sho´Nuff!!!
Fór í sveitina í dag (lördag). Sveitin okkar er ekki langt frá Hellu. Ég aðvara ykkur ferðalanga sem eigið kannski leið um Suðurland í nánustu framtíð: Flugur í nærsveitum Sunnanlands eru komnar með nýja gerð af sogskálum. Ég endurtek: ..komnar með nýja gerð af sogskálum.
Þetta var aleg crazy frameftir degi. Ef fluga flaug á mann, þá festist hún við mann. Alveg pottþétt. Voru í hárinu og allsstaðar. Mjög fyndið að sjá þetta á Laufey(ju?) þar sem hún er með svo ljóst hár. Frekar nasty samt. Eða: naaaazty shiiii!!! eins og hómíar orða það.
Svo er skírn í fyrramálið. Engin eldskírn, bara svona venjuleg skírn með vatni og þannig.
Massastuð alveg að vakna á eftir. Hlakka geeeeeeeeðveikt til alveg. Algjör gelgja alveg. Kaldhæðni, jafnvel?
:: G-Sus 01:01 [+] ::
...
:: föstudagur, júní 13, 2003 ::
Halló hééééér
Undanfarna daga hef ég staðið í ströngu við að „finna“ sjálfan mig. Þess vegna lýsti ég eftir mér hér í blogginu fyrir neðan. Ég vil meina að það hafi verið skipt á börnum einhverntíma þegar mamma og pabbi voru ekki að horfa. Allavega virðist allt hafa verið „downhill" frá því þessi mynd var tekin. That´s fo´ sho´.
Þessvegna núna er ég bæði að reyna að finna sjálfan mig í þeim skilningi að ég finni réttu kynforeldra mína og svo líka í þeim samkynhneigða skilningi að finna sig tilfinningalega.
Hæææ, gaman að sjá þig! Hvað segirðu gott? Flotttt! Gott að heyra!
:: G-Sus 12:42 [+] ::
...
:: fimmtudagur, júní 12, 2003 ::
Hvað varð eiginlega um þennan gaur???

Ef þið sjáið hann, talið við mig.
:: G-Sus 12:30 [+] ::
...
:: miðvikudagur, júní 11, 2003 ::
Þið eigið eftir að halda mig alveg kreisíj eftir þetta blogg hugsa ég. Well...
Here goes...
Ég lá uppí rúmi áðan og var að reyna að fara að sofa. Ég var að lesa bók eftir mikinn mann og hann beindi orðum sínum að dauðanum í smá stund (þar sem hann greindist með "ólæknandi" sjúkdóm en læknaðist svo af honum) og það varð til þess að heilafrumurnar í mér fóru á villt spinn. Ég hætti að lesa bókina, mér varð svo mikið um og ætlaði frekar bara að fara að sofa...
Það gekk ekki vel... Ég hef held ég ekki fundið fyrir eins miklum kvíða fyrir dauðanum og áðan alveg frá því ég var lítill. Auðvitað gat ég svo ekki sofnað þar sem ég var að spá í þessu hugarefni og líka vegna þess að ég er plain andvaka þessa stundina. Einnig tók ég mér góðan tíma í að spá hvort ég ætti að ganga svo langt að blogga um þetta en svo ákvað ég bara að slá til. Þið fattið af hverju ef þið lesið lengra.
Að deyja er alveg fokkd opp. Simple as that. Sama hvað manni finnst núna á unga aldri þá á maður eftir að standa frammi fyrir því að deyja. Það er óumflýjanlegt. Það er ógeðslegt.
Hvernig deyr maður svo? Mun það verða fyrir fimmtugsaldur af orsökum einhvers sjúkdóms eða mun maður lifa þar til maður fær plain and simple hjartastopp eða kannski endar þetta bara í bílslysi? Þó veit ég alveg hvernig ég myndi vilja deyja. Svolítið langt síðan maður pældi í því. En ef maður bara vissi fyrir víst... Maður gæti þá ákveðið nákvæmlega hvað maður vildi gera við líf sitt. Þá kæmu skilaboð: Þú hefur þennan tíma til að gera sem best úr lífi þínu. Ready, set, GO!
En þannig er þetta víst ekki. Einhverntíma slokknar á okkur. Hversu creepy er það. Mest "creepy" er held ég að deyja ungur úr e-m sjúkdóm. Manni líður beinlínis illa ef maður hugsar um bæði sjúkling og fjölskyldu á síðustu stundunum. Að ímynda sér að sjá sína nánustu, með augum sjúklingsins, í síðasta sinn er eiginlega alveg óhugsandi. (Nákvæmlega það að hugsa um þessar aðstæður ollu þessu kvíðakasti mínu..). Ég gæti skrifað endalaust um þetta efni en ætli ég fari ekki bráðum að stoppa. Bear with me for a little longer...
Hvað er svo eftir dauðann? Ekkert, segi ég. Þegar þú deyrð þá deyrðu og ekki meira um það. Ég trúi ekki á líf eftir dauðann (geri það því miður enn innst inni en veröldin og raunveruleikinn segir mér annað) og heldur ekki á himnaríki og helvíti. Í mínum huga merkir þetta að eftir svona sirka 140 ár þegar barnabörnin eru dáin þá er maður ekkert annað en örlítil minning í hugum örfárra einstaklinga (nema maður verði frægur að endemum eða verði harðstjóri yfir Íslandi.. mjög ólíklegt). Þá kemur skemmtileg pæling: Af hverju í ósköpunum er maður að mikla tilgangslausa og ómerkilega hluti fyrir sér þegar lífið getur skyndilega endað? Og af hverju er maður hræddur við að taka áhættur? Eins og það skipti einhverju máli hvort maður mismæli sig við ræðuhöld eða jafnvel í þannig tilviki þegar viðreynsla(?) endar ekki eins og planað var. Þetta er afturámóti kannski meira pæling um persónulega veikleika hvers og eins en engu að síður eru allskonar hlutir sem ættu ekki einu sinni að vera þess verðir að hugsa um.
Jæja, nú nenni ég ekki meira... Er alveg örugglega samt að gleyma einhverju mikilvægu sem ég vildi minnast á...
Ekki veit ég hvort þið upplifið þetta líka en á nóttunni þá hugsa ég oft "öðruvísi" en ég geri á daginn. Þannig að núna er spurningin að þegar morgnar hvort maður hugsi: Holy fokk! Hvaða steypu varstu að skrifa í nótt drengur!
Ég meira að segja hallast á það :-)
En whut the heck? Eins og ég sagði nokkurnveginn: Who gives a flying...
:: G-Sus 03:08 [+] ::
...
:: þriðjudagur, júní 10, 2003 ::
Crazy beautiful alveg....
Stundum fær maður orð á heilann og orðið núna er: Crazy, eða kreisíj á íslensku. Ég er búinn að vera með þetta núna í nokkra daga.
Svo er spurning hvenær maður hættir eiginlega að nota orðið: Nákvæmlega! áður þekkt sem akkúrat eða jafnvel accurate á engilsaasfsnafm,na.
(Í lok síðustu setningar nennti ég ekki að ljúka við orðið þar sem það er svo ljótt.)
Af hverju læturðu svona, Blogger? Af hverju, spyr ég bara? Af hverju sýnirðu ekki réttan tíma á blogginu. Alltaf +1 tími eða e-ð álíka kreisíj bull sama hvað maður reynir að fiffa þig til. Reyndu nú að þroskast aðeins. Ég bara bið þig.
I´ll end this with: fuck you and have a nice day.
Kreisíj?
Nákvæmlega!
:: G-Sus 00:11 [+] ::
...
:: mánudagur, júní 09, 2003 ::
Það verður að teljast alveg hrikalega furðulegt að fá eldingu í húsið sitt en verða þess ekki var. Eins og þessi sjötugi Hvergerðingur.
Örugglega bara eitthvað að horfa á sjónvarpið inní stofu... Obbosí! Hvað er nú þetta?? Elding inní eldhúsi og svona... Best að horfa bara á sjónvarpið...
:: G-Sus 00:42 [+] ::
...
:: laugardagur, júní 07, 2003 ::
Þar sem ég er núna að nördast í vinnunni frá 11:30 - 23:30 í dag og á morgun þá hef ég ekkert mikla lyst á að blogga neitt af viti.
Í staðinn ætla ég að bjóða ykkur að senda mér tölvupóst, ef þið hafið einhverja sálfræðikvilla kannski, og ég skal reyna að leysa úr þeim ef ég hef tíma.
Just your friendly neighborhood spiderman...
:: G-Sus 17:00 [+] ::
...
:: föstudagur, júní 06, 2003 ::
Ég held ég sé hættur við að gera grínið með mullet-ið í sumar.... veit það samt ekki. Hárið er ekki alveg að gera sig að aftan. Ég er nú samt ekki búinn að afskrifa þetta. Að gerast eins og eitt hvítt rusl í eitt sumar er ekkert alvarlegt held ég. Maður þarf þó að huga að ýmsum aukahlutum sem gerir útlit ruslsins að því sem það er.
Dæmi:
- Hlýrabolur með sósublettum á (góður á blíðviðrisdögum ef maður spókar sig niðrí bæ kannski... en eitt rölt um hverfið myndi samt rokka mest)
- Derhúfa (eins Kanaleg og hugsast getur. Dingding! Og það var rétt! Með Yankees logo-i framaná!)
- Yfirvaraskegg (ómissandi, má vera í ýmsum afbrigðum)
Nú bið ég þig, lesandi frábær, að benda á fleiri hluti í kringum „hvítt rusl“ staðalímyndina.
Svo auðvitað mun ég taka tímabundið upp nafnið Billy Bob ef ég læt verða af þessu.
Takk.
:: G-Sus 14:31 [+] ::
...
:: fimmtudagur, júní 05, 2003 ::
Hei-do
Djöfulli er trailerinn úr Anger Management fyndinn. Þar sem Adam Sandler er í flugvélinni og flugfreyjan segir honum að halda ró sinni. Fyndnar aðstæður.
Svo kemur bráðum myndin Bruce Almighty með Mariah Carey. Nei! Bara djók! Jim Carrey var það víst. Það er örugglega ávísun á skemmtun.
Veit hreinlega ekki af hverju ég er að blogga... ég er að fara í boð núna til frænda míns hans Helga Tómassonar en hann er nú á ný staddur hér á landi. Fyndið að eiga "posh" frænda.
:: G-Sus 19:37 [+] ::
...
Sælinú!
Ég held að nýjasti Pie þátturinn sé sá fyndnasti til þessa. Tjekkið á honum hér.
J-Lo er afbökuð mjög í þessum þætti og það er alveg óóógeðslega fyndið. Check it or wreck it ya´ll!
Þetta vikufrí hefur breyst í ekkert svo mikið frí. Búinn að mæta þrisvar í aukavinnu. Alveg nóg að gera um þessar mundir. Allt á kani. Ya´ll.
Gat þó reddað fríi um verslunarmannahelgina og það er spurning hvað strákarnir (sko) plana að gera þá helgi? Ya´ll?
Já! Ekki má ég gleyma að segja ykkur frá því nördalegasta sem ég veit um!!!
Undirbúið ykkur...
Tilbúin...? O.K.
Það er EVE brúðkaup í vændum
*cue laughter*
Í alvörunni. Það er fólk sem ætlar að giftast inni í leiknum. Ekki spyrja mig hvernig þetta fer fram en þetta er víst þekkt fyrirbæri í svona netleikjum. Þetta hefur verið gert margoft í Ultima Online að sögn fróðra manna.
Damn that shiii is wack! Ya´ll!
:: G-Sus 00:10 [+] ::
...
:: þriðjudagur, júní 03, 2003 ::
Ég er svo mikill gemlingur að ég veit ekki hvort áframhaldandi skóli sé málið. Nokkrir dagar í Háskóla Íslands kenndu mér að ég myndi finna til minni óþæginda ef ég væri skotinn í bakið. Kannski verður maður bara að þrauka yfir einhvern ákveðinn "leiðinda þröskuld". Ég allavega nenni því ekki strax. Eníhú....
Maður sér mikið talað um fjarnám og kosti þess og þægindi en ég trúi ekki á það. Maður finnur sér ALLTAF e-ð annað að gera en læra sérstaklega þegar það er ekkert aðhald nema frá manni sjálfum. Þannig að.... ég var að spá í taka allt annan pól í hæðina... Ég ætla sko að stunda fjárnám.
Það er eitthvað sem ekki allir geta gert. Það hjálpar ef maður heitir Árni Þór eða Kristján Ra. Svo er bara að lúkka vel (þarf að vinna í því, ég veit) og koma sér inn hjá einhverju stóru fyrirtæki sem tekur ekki eftir því þótt 200 millur hverfi ogermeðhagnaðuppátvomilljarðakróna. Þá er eftirleikurinn auðveldur. Auðvitað er ég ekki að tala um Símann því það væri bara of augljóst þar sem ég er hér búinn að útvarpa áætlunum mínum. Kannski bara Norðurljós or sumphin...
Either you are with me! Or against me!
:: G-Sus 14:20 [+] ::
...
:: mánudagur, júní 02, 2003 ::
Nú er komið að seinni hlutanum af tveimur um heim tölvunördsins. Ég vil taka það fram að ég sjálfur er ekki tölvunörd en vildi þó glaður vera einn.
Tölvunördar: seinni hluti af tveimur
Það vita það ekki margir að tölvunördar eiga sér sitt eigið tungumál. Einhverjum datt í hug að það væri sniðugt að aðlaga tölustafi að bókstöfum.
Þið hafið örugglega séð þetta á netinu einhversstaðar einhverntíma en ekki áttað ykkur á því hvað þið voruð að horfa á. Mikið notað í undirskriftir og þá aðallega undirskriftir tölvuleikjanörda.
Fyrirbærið nefnist leetspeak.
Dæmi:
A = 4
E = 3
S = 5
I og L = 1
T = 7
13375p34k = Leetspeak
Ég r0kk4 = ég rokka
Á5a 5ér á = Ása sér á
4r1 á 6í1 = Ari á bíl
Og með þessum orðum lýk ég umfjöllun minni um þennan sérkennilega þjóðflokk.
Takk fyrir.
:: G-Sus 22:39 [+] ::
...
:: sunnudagur, júní 01, 2003 ::
Ég var að horfa á tvö myndbönd á Popptíví og ég hef þetta að segja um þau:
Hversu slakur rappari er 50 Cent?
og
Hversu magnaður trymbill er Lars Ulrich!?!
„We gonna party like it´s your birthday“
AAAAAHAHAHAHA! Þvílíkt slakur gaur! Algjör nörri.
:: G-Sus 17:01 [+] ::
...
Ég var að lesa betur í gegnum það sem þessi Maddox gaur (sá sem drullar yfir allt og alla) skrifar á síðunni sinni og ég áttaði mig á því að þessi gaur rokkar meira en allir aðrir í heiminum.
Ég las í gegnum þessa grein hans og ég fékk illt í magann af hlátri. Skoðið næstu síðu líka á þessum link um sama efni:
http://maddox.xmission.com/irule.html
:: G-Sus 01:24 [+] ::
...
|