eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: föstudagur, apríl 30, 2004 ::

Þá er bara að skella sér á Afu Ra á Gauk á Stöng í kvöld. Á að mæta?

:: G-Sus 20:51 [+] ::
...
:: fimmtudagur, apríl 29, 2004 ::
Einn heima og ekkert að gera. Pizza og spóla er það sem er um að vera. Tók Love Actually og actually var hún allt í lagi. Ekta feelgood mynd en hafði lítið vægi. Hugh Grant er flottur gaur. Ef út í það er farið þá er hann klassískur flaur. Keira Knightley? Vá! Oh seiseisei, flottari samt með brúnt hár. Just from the top of my mind so be kind. Einn heima og leigja svona mynd... Segir margt og er algjör synd. Bú fokking hú.

"I´ll make it real good, like Dr. Feelgood."

Ég tók eftir því í dag þegar ég horfði á Futurama að ´good stuff´ lesið upphátt er ekkert svo ósvipað því ef útlendingur reynir að segja Gústaf. Svo núna hér eftir heiti ég Good stuff.

Righty-O, matees. Check yaself before you riggedy wreck yaself..

:: G-Sus 22:53 [+] ::
...
:: miðvikudagur, apríl 28, 2004 ::
Hólí krepp. Dagurinn í dag bara að lokum kominn. Ha! Hver hefði trúað þessu? Hefði ég heyrt einhvern segja það í morgun þá hefði ég neitað að trúa því. En nú verður það ekki umflúið. Deginum er lokið gott fólk. Farið heim. Það er ekkert að sjá hér.

Dagurinn í dag... Vinna 6 tíma. Heim. Futurama. Hjálpa Serði, bróður hans Eika, að bera parket og flísar upp á 2. hæð. Horfa á fyrri hálfleik í landsleik Íslendinga. Sameiginleg síðasta æfing vetrarins í TKD. Bandí í einn og hálfan klukkutíma. Snilld. Sund í Árbæjarlaug. Snilld. Borða á American Style. Snilld. Skrifa þetta blogg. Degi lýkur.

My all time favorite quote..
„Don´t judge a book by it´s cover,“....bitch.

:: G-Sus 23:52 [+] ::
...
:: þriðjudagur, apríl 27, 2004 ::
Ég þakka fyrir kveðjurnar í dag gott fólk.

:: G-Sus 23:20 [+] ::
...
Come rain... come shine...

Tók daginn snemma og fór í sund með Eika. Daði lét sjá sig í smá sund og einnig í smá stund. Í búningsklefanum eftir sundið varð Eiki heldur nærgöngull þar sem hann rassskellti mig. Ég var allsnakinn. Þetta var meira svona eins og fótboltarassskelling á aðra rasskinn. Ég var að spá í að fara aftur í sturtu en komst svo að því að vinir hafa leyfi til að rassskella hvorn annan þó þeir séu kviknaktir. Góð saga, huh?

Fer út að borða í kvöld á Hornið með margskyldu slekti mínu. Annars gerist ekkert annað markvert á degi þessum.
It´s been 23 years already? Holy shit.

:: G-Sus 13:38 [+] ::
...
:: mánudagur, apríl 26, 2004 ::
Á morgun verð ég einum degi eldri en ég er í dag. Í afmælisgjöf óska ég mér náttúruhamfara. Jarðskjálfti dugar vel. Ég veit ekki hvar þeir fást en ég treysti á ykkur samt.

It´s one of those days... Hoppið upp í rassgatið á ykkur og lifið svo heil.

:: G-Sus 18:44 [+] ::
...
:: sunnudagur, apríl 25, 2004 ::
„Flest fólk er hyski. Maður lifir bara fyrir undantekningarnar.“

Sannari orð hef ég ekki heyrt.

:: G-Sus 13:58 [+] ::
...
:: laugardagur, apríl 24, 2004 ::
2. sæti... Helvíti fúll bara andskotinn hafi það.

:: G-Sus 18:24 [+] ::
...
:: föstudagur, apríl 23, 2004 ::
Maður er alls ekki laus við stress, fjandinn hafi það. Um svona 14:00-14:30 á morgun ætti stressið að vera horfið samt og annaðhvort ánægja eða depurð tekin við.
Ég segi ykkur það, ef ég lendi ekki í 1. sæti þá verð ég alveg helvíti fúll. Takk.

Svo kom sumarið í gær. Og svo fór það í dag. Kemur vonandi aftur á morgun.

Annað í fréttum: Jason Biggs er mættur til landsins. Spurning um að bjóða honum í mat.

:: G-Sus 19:04 [+] ::
...
:: miðvikudagur, apríl 21, 2004 ::
Sjæse hvað mig langar í þessa plötu.

:: G-Sus 20:03 [+] ::
...
:: mánudagur, apríl 19, 2004 ::
Kill Bill vol 2 bara að verða að veruleika. Djöfulli var vol 1 fokking góð mynd og býst ég við að vol 2 verði fokking fokking góð mynd. Það er ekki hægt að búast við öðru.

Djöfull er ég með stór brjóst.

Annað í fréttum er að sumarið er á næsta leiti og hef ég fengið það staðfest að sumarið hefjist við Ofanleiti núna 22. apríl, stundvíslega á miðnætti. Má þá búast við hlýju veðri alveg þangað til veturinn snýr aftur. Ég er sumarbarn mikið og nýt mín best á sumrin. Má kannski færa að því sönnur að það sé vegna þess að ég er fæddur að sumri til, eða 27. apríl. Hef ég haft þann sið að halda þann dag hátíðlegan ár hvert og hef ég nú gert svo í hartnær 23 ár. Á sumrin geng ég oft með blóm í hárinu, valhoppa og syng með fuglunum. Þekkist ég á útiteknu andliti og risastórum rúnkvöðvum. Finnendur vinsamlegast skilið mér aftur til míns heima. Einhversstaðar í Seljahverfinu væri ágætt.
Með fyrirfram þökk,

Mr. Mafakka

:: G-Sus 23:28 [+] ::
...
Gott húmor fíaskó. Nærri því 1000 heimsóknir núna á 36 tímum. Who´s the culprit? Endilega gefðu þig fram.

Mikið djöfulli fer gluggaveður í taugarnar á mér.

:: G-Sus 11:07 [+] ::
...
:: sunnudagur, apríl 18, 2004 ::
Jæja... Hver af ykkur snillingunum linkaði á mig frá humor.is?

:: G-Sus 12:09 [+] ::
...
:: laugardagur, apríl 17, 2004 ::
Fór í dag í íþróttahúsið við Hagaskóla og horfði á Íslandsmótið í TKD, ÓlimpískuTKD það er. Næstu helgi verður svo Íslandsmótið í Poomse á sama stað og þá mun undirritaður taka þátt.

En allavega, ÍR-ingar sendu ekki nema 3 til leiks og fengum við 2 silfur og eitt gull. Nokkuð gott bara. Það sem stóð uppúr á þessu móti var að horfa á tvíburasystur berjast. Þær eru eineggja, örugglega jafnþungar og hreyfa sig alveg eins. Mest fyndið var svo að það var jafnt framanaf en svo alveg í blálokin tókst annarri að skora 2 stig og þetta fór 22-24 or sumphin. Skemmtilegast hefði verið að sjá jafntefli auðvitað.

Alveg kreeeeeeeeeiiiiiiiiisí! laugardagskvöld framundan. Ekki neitt að gerast og bara hittingur hjá Eika. Horfingur á fótbolta einhvern.
OMG! Ég lifi svo hratt!!! LOL!

:: G-Sus 19:01 [+] ::
...
:: föstudagur, apríl 16, 2004 ::
Er Sverrir Bergmann að fara að leika og syngja í Hárinu?

:: G-Sus 18:54 [+] ::
...
Mér var að detta eitt í hug. Alveg nokkuð vel pointless hugdetta en hugdetta engu að síður.
Hvernig væri að búa til nýtt lottókerfi þar sem þú velur eina tölu milli 1 og 500.000? Líkurnar á því að vinna 1. vinning í lottói hér á landi eru 1:501.942 svo þetta er nokkuð nærri lagi. Tölva myndi svo sjá um að velja eina tölu á þessu millibili og því sjónvarpað beint auðvitað.
2. vinningur væri svo miðaður við kannski +/- 2 tölur frá vinningstölunni o.s.frv. (miðað við líkur í núverandi lottói).
Vandamálið væri kannski að mun færri myndu kaupa sér lottómiða því í þessu lottói sést nokkuð skýrt hversu litlar líkur eru á að vinna. Einfalt að stemma stigu við því með því bara að telja fólki trú um annað.
WHO´S WITH ME?!!

:: G-Sus 11:14 [+] ::
...
:: miðvikudagur, apríl 14, 2004 ::
Hæ! Birgitta úr Írafár hérna! Neeeeeeh, G-sus úr Breiðholti hérna :) Ég vil bara minna ykkur á að vera ekki fávitar. Enginn kann gott að líða fávita.
Sé ykkur seeeeeeinna! :) :) :) :) :)

You add C to lock and then you know what time it is... Mafakka.

:: G-Sus 23:51 [+] ::
...
:: þriðjudagur, apríl 13, 2004 ::
Beint úr sjúkustu hugarfylgsnum mínum! Nýjasti jólasveinninn!






Veeeeeeeeeiiiiiii !!!!!


:: G-Sus 21:50 [+] ::
...
:: mánudagur, apríl 12, 2004 ::
Here, there and back again...

Wasssssup meh nigguz!!? Svarti fokking sauðurinn aka G-sus aka De la Göstó mættur igen. Ferskari en fersk jarðarber alveg. Copenhagen hress að vanda og frekar slakt bara að vera kominn heim í gamla normið. Hvernig sem fer, hvar og hvenær sem eeeeeeeer!!! Neinei óþarfi að bresta í söng yfir því. Enda ekkert til að bresta í söng yfir. Danmörk hefði mátt vera heitari þó. Ekki nema um svona 8-12 gráður en í sárabót var sólin á sínum stað fös, lau og sunnudag. Stemningin var fjölskyldustemning þar sem við 5 vorum saman komin og svo systir pabba, maðurinn hennar og 10 ára frændi minn. Engar búðir opnar nema á laugardeginum svo við nýttum tímann í skoðanir ýmiss konar og mikið rölt um bæinn. Fórum f. eks. á Bakken, í dýragarðinn (sá loksins gíraffa VÚHÚ!) í bátaskoðunarferð um Köben frá Nyhavn (siglt um síkin), í Frúarkirkjuna, í Marmarakirkjuna, horfðum á vaktaskipti við Amalienborg, létum okkur ekki vanta í Christianiu (puff, puff pass NEEEEEEHHHH bara djók) og svo bara blablabla. Jesus Mary and Joseph hvað við borðuðum mikið í ferðinni. Fórum náttulega út að borða þessi 4 kvöld eins og tilheyrir bara, en þess á milli... Djísús kreppzor in da hed. Gústi fatso? Nei, það verður seint held ég en ef ég myndi alltaf borða svona... mánuður og ég væri orðinn feitur. Það segir vinkona mín, fröken Vigt, allavega. Í heildina mjög skemmtileg ferð og gef ég henni 4 stjörnur af 5 mögulegum. Kannski koma myndir seinna ef ég nenni. Vantar alveg gríðarlega stafræna myndavél eða kvikmyndatökuvél og er ég að hugsa um að bæta úr því bráðum.

Bomban hann Bubbi Morthens og listmálarinn bróðir hans, Tolli, voru í flugvélinni með okkur. Bubbi bað að heilsa ykkur. Tolli sagði ekki neitt. Hann var líka tekinn í tollinum! H-A-H-A-H-A-H-A-H-A! Slakur Gústi! SLAKUR!.

Í flugvélinni á leiðinni heim var einhver spjallþáttur sýndur í sjónvarpinu og þar tók hann Davíð Bogi nokkur lög. Ég hef einhvern veginn aldrei spáð mikið í þeim gaur en nú hef ég ákveðið að hefja hlustun á honum. Ég get ekki sagt að ég ætli að "gefa honum séns" þar sem ég veit að maðurinn er snillingur en einhverra hluta vegna þá hef ég aldrei verið í eða komið mér í þá stöðu að hlusta á hvað hann hefur að segja. Hann tók Ziggy Stardust í þessum þætti and it just blew my mind. Davíð Bogi, your music is mine!!! MUAHAHAHAHAHA!!! SO WHERE WERE THE SPIDERS, BITCH!

C yo asses later, biddses.

:: G-Sus 19:43 [+] ::
...
:: fimmtudagur, apríl 08, 2004 ::
Jæja, þá segi ég internet nörda mállýskunni lokið, allavega í bili. Þetta er samt of gott til að gefa upp á bátinn svo kannski maður læði inn af og til eins og allavega einu lol-i hér og þar.

Vakna eftir 3 tíma. Er að skrifa núna því það var kveikt á tölvunni og ég var að koma inn. Fór með Erling og Sigrúnu á 50 First Dates. Myndin var nú bara nokkuð góð. Fullt af fyndnum atriðum og bröndurum. Sakar ekki að vera búinn að sjá allar Adam Sandler myndirnar því hann notast nokkuð við sömu leikarana og ef myndin er HappyMadison framleiðsla þá má pottþétt finna einhversstaðar tilvísun í aðra mynd úr þeirri smiðju. Eins og Happy Gilmore sem dæmi í þessari mynd.

Ég er farinn að sofa þessa 3 tíma. Ef ég sé ykkur ekki aftur þá segi ég bara eigið gott líf og farnist ykkur sem best.
Rakkið mig niður eins og þið getið meðan ég er úti. Eða byggið mig upp. Þið megið ráða.

Bless

:: G-Sus 01:22 [+] ::
...
:: miðvikudagur, apríl 07, 2004 ::
LOL ég er orðinn svo fokking massaður að ég á bara erfitt um vik!

:: G-Sus 15:47 [+] ::
...
:: þriðjudagur, apríl 06, 2004 ::
LOL ég var að líta í spegil!

:: G-Sus 15:37 [+] ::
...
:: mánudagur, apríl 05, 2004 ::
LOL what is a kitchen? When I´m hungry, I always go into the firehouse! LOL :)

Já, þetta var svei mér lunkinn brandari þarna uppi ^ lol. :)

Það styttist í páskana og það styttist í Sugababes lol. neinei, það styttist í útför mína lol. Til Danmerkur þ.e. fer á fimmtudaginn. Vonandi að það sé hægt að gera eitthvað í Danmörku um páskana og vonandi er eitthvað opið. Ég vil ekki vera bara eitthvað omg, ég er í Danmörku... þið skiljið LOL. :) :) :) Hver vill það! lol

Ég vona svo sannarlega að þið séuð líka á amfetamínsterum eins og ég LOL :)

:: G-Sus 19:44 [+] ::
...
:: sunnudagur, apríl 04, 2004 ::
Maður bara vaknaður sprækur fyrir allar aldir þrátt fyrir að hafa farið á Fe-Licks í gær. Það var nokkuð slakt bara en það fyndnasta var þegar Arnþór var sakaður um að vera ekki nógu gamall til að komast inn. Í dyrunum voru einhver 4-5 buff og fyrsta buffið sagði hreint og klárt nei, þetta er 84 búið að breyta í 81. Við bara alveg omg, stfu u so stupid mr. doorman. þetta sögðu allavega 3 dyraverðir og svo loks var einhver með viti og við bara lol. We 0wn u, u n00bs sögðum við, lol. Svo þegar inn var komið þá var bara staðurinn fullur af krakkhórum og það var bara ekkert gaman. Þannig haldið var eitthvað annað en svo varð þetta eitthvað annað að heimferð. ég og arnþór ætluðum á Nonna en það var allt innpakkað af fólki og við náttulega omg LOL svo við fórum heim í staðinn.

LOL það er svo gaman að skrifa eins og tölvunörd að ég ætla að halda því áfram ROFL.

STFU n00bs.

:: G-Sus 11:33 [+] ::
...
:: föstudagur, apríl 02, 2004 ::
Mig dreymdi alveg hrikalega í nótt og var rosalega feginn þegar ég hrökk loksins upp af þessum vonda draumi. Nógu lengi fékk draumurinn þó að ganga og ég áttaði mig ekki á því að þetta væri draumur, eins og gerist vanalega þegar mig dreymir svona illa. Það var semsagt verið að hertaka Íslandi „hryðjuverk style“. Ég var að keyra austur Sæbrautina og þá sé ég hvar flugvél (frá Flugleiðum by the way) springur í loft upp rétt fyrir ofan Reykjavík. Svo koma bátar af sjónum og gaurar á þeim ganga á land og allt í einu er allt í ljósum logum, öll hús í kring logandi og verið að varpa sprengjum í kring. Allt alveg kreisíj. Það óþæglegasta var að ég vissi einhvernveginn að markmið þeirra var að drepa alla sem þeir sáu og í stað þess að vakna frá þessu þá fór ég að hlaupa í skjól og leita að vopnum sjálfur. Djísús men. Þetta voru bara andleg átök.

Djöfull hlýtur það að vera slæmt að vera geðveikur og vita ekki muninn á draumi og veruleika.

Want a cookie?

:: G-Sus 19:30 [+] ::
...
:: fimmtudagur, apríl 01, 2004 ::
Jæja. Nú er dagur að kveldi kominn og tími á að segja satt. Það hafa eflaust margir gripið andann á lofti þegar þeir sáu síðuna í dag. Hugsanir eins og „FOKK! Hvað varð um 1. apríl? Svaf ég hann af mér?“ hafa ábyggilega þotið um huga ykkar. En örvæntið ekki gott fólk. Þetta var bara saklaust aprílgabb.

Ímyndið ykkur ef mannkynið hefði frá byrjun haft heila sem virkaði kannski svona 5% meira skilvirkari að meðaltali. Með öðrum orðum, maðurinn gæti hugsað og unnið hraðar. Hvernig væri umhorfs á jörðinni þá? Værum við betur sett eða verr?

:: G-Sus 22:47 [+] ::
...
Í dag er 2. apríl.

:: G-Sus 09:29 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?