eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: laugardagur, júlí 28, 2007 ::

Einu sinni hér á bloggi þessu þá sagði ég að ég myndi flytjast af landi brott ef skýstrókar mynduðust í einhverjum mæli. Þeir hafa nú ekki myndast í miklum mæli en einn myndaðist í gær og það kom í fréttunum áðan. Á að hafa myndast á Skeiðarársandi þessi og var the real thing, kom niður úr skýjunum semsagt.

Skemmtileg tilviljun það að ég skuli einmitt vera að flytja út núna í septembermánuði. Þessi andskoti myndast víst í Japan hinsvegar þannig allt tal um öskuna og eldinn er afþakkað.

:: G-Sus 19:39 [+] ::
...
Já, það er ekki allt fun and hip hop hjá honum G-sus.

Ég er búinn að vera með þetta lag á heilanum í allan dag. Njótið vel.

:: G-Sus 00:32 [+] ::
...
:: sunnudagur, júlí 22, 2007 ::


1700 kílómetrar að baki á aðeins þrem dögum, eða í rauninni bara rúmlega tveimur. Verður að teljast nokkuð gott. Ísland er nú alveg ágætlega fallegt land. Í góðu veðri allavega, þá lítur það alls ekki illa út.
Verðlag út á landi er mér að skapi. Á Reyðarfirði keypti ég hamborgara, franskar og kók á 587 krónur og svo bragðaref á 354 krónur. Eða verðin voru eitthvað í kringum þetta, skiptir ekki öllu máli. Þetta sáum við svo aftur á Árskógarströnd þannig það er greinilegt að landsbyggðin hefur fyrir löngu áttað sig á máltækinu góða: "Smápeningar eru líka peningar". Hérna í Reykjavík skiptir öllu að láta allt annaðhvort enda á hálfum tug eða heilum. Magnað dæmi. Eða allavega soldið magnað. Smá.

Ég, athugula mannveran sem ég er, tók eftir öðru sem á eftir að vekja mikinn áhuga hjá ykkur örugglega. Ég ráðlegg ykkur áður en þið lesið eftirfarandi línur að kannski poppa og fá ykkur gos svona til að koma ykkur í réttu stemninguna.
Tilbúin? OK, bjarnið aðeins með mér hérna.
Á Suðurnesjunum og svo hérna á stór-Reykjavíkursvæðinu þá á fólk heima 'Í' bænum sínum, á meðan fólk annarsstaðar á heima 'Á' honum. Smá slaka takk! Takk!! Undantekningarnar sem ég fann voru Vík í Mýrdal og svo eyjarnar í kringum Ísland. Gefið aaaðeins meiri slaka! TAKK!!
Getið þið fundið fleiri undantekningar, krakkar? Þið fáið sleikjó ef þið finnið eitthvað meira!
Við tókum eitthvað af myndum og hér eru nokkur dæmi

Fjöll eru alltaf skemmtileg.

Jökulsárlón var svellkalt í sólskininu. Það var skemmtilegt.

Landgræðslutilraun öðru megin, sandur hinumegin. Skemmtilegt að vanda.

Þetta fjall var hresst og mjög skemmtilegt.

Ofan á Kárahnjúkastíflu. Skemmtilegt? Svolítið.

Séð aftaná Káranhjúkastífluna. Það voru kínverjar sem pússluðu þessum steinum saman. Kínverjar eru skemmtilegir.

Já, hann er soldið sorglegur nasistinn úr Johnny Naz þáttunum sem ég hitti á Akureyri og ég var mikið að spá í hvort ég ætti að pósta þessari mynd. Hinsvegar, þegar þú ert nasisti þá ertu búinn að fyrirgera allri meðaumkun, só fökk itt.

Já,já myndirnar eru pínkulitlar og ég kann ekki bofs á þetta stöff.

Búið í bili.
Friður út.


:: G-Sus 19:17 [+] ::
...
:: mánudagur, júlí 16, 2007 ::


Húrra fyrir mér sem er á leiðinni til Kyoto!!
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1280412

:: G-Sus 15:36 [+] ::
...
:: föstudagur, júlí 13, 2007 ::
Sumarlag dauðans


I love it when you call me big poppa / Throw your hands in the ai-ah if you's a true playah

Þetta var það sem ég var að tala um. Nú er komið gott veður og allt svo miklu auðveldara. Það er þó erfiðara að komast til Japan en ég hélt.. Eitthvað brösugt það mál en hlýtur að reddast.

Og úr því ég er hérna þá ætlaði ég að fá að pirrast út í eitt..
Framan á Fréttablaðinu í dag stendur að við Íslendingar séum fyrstir til að fá nýjasta Harry Potter í hendurnar, þar sem bókin kemur í bókabúðir kl 23:01 þann 20. júlí. Hún kemur hinsvegar í bókabúðir á Englandi klukkan 00:01 að staðartíma þann 21.
Haltu um hestana þína! Bíddu aðeins hægur! Er ekki England einum tíma á undan okkur? Merkir það ekki að Íslendingar fá bókina í hendurnar á nákvæmlega sama tíma og Englendingar?
Svo sannarlega bitches. Skiptir ekki reeessget máli hvaða dagsetning er í gangi, atburðurinn á sér stað samtímis.

Tíma-Gsus kveður í bili, sem gæti orðið svolítið langt. Eruð kannski farin að taka eftir trendinu nú þegar.

:: G-Sus 18:40 [+] ::
...
:: sunnudagur, júlí 08, 2007 ::


Það vantar meira gott veður.

:: G-Sus 13:53 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?