|
|
:: miðvikudagur, desember 31, 2003 ::
Hvaða læti eru þetta fyrir utan? Háir hvellir og skær ljós? Hvurslags eiginlega!
:: G-Sus 23:40 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 30, 2003 ::
A scrub is a guy that thinks he´s fly,
and is also known as a buster
TLC
Skrúbbur er strákur sem heldur hann sé fluga,
og er einnig þekktur sem böster.
GHG
Nú eru sumir að velta fyrir sér hver sé eiginlega maður ársins. Maður ársins er auðvitað ég. Ástæður? Ástæður smástæður.
Annars er minn aumi heili ekki að átta sig á því að nýtt ár sé að koma og hann kveikir ekki á því að á morgun er áramótaskaupið og rakettuuppskotningur. Eða jú, kannski er hann alveg að átta sig á því en finnst þetta bara ekki neitt merkilegra en hver annar dagur. Held það sé frekar málið. Ég hef ákveðið að koma ekki nálægt flugeldum þetta árið þar sem það tók mig 22 ár að átta mig á því hversu mikil sóun þetta er. Ef þið kaupið flugelda fyrir meira en 5000 kell þá er skotleyfi á ykkur, þið vitið það alveg?
Hvað er annars að norpa? Framan á sunnudagsmogganum stendur að tugir þúsunda hafi norpað úti í vetrarkuldanum. Aldrei hef ég heyrt þetta orð áður.
Akkúrat núna er verið að kjósa íþróttamann ársins svo ég kveð að sinni. Verð að tjekka á því jó.
Meira blogg á morgun krakkar. Æfing + vinna til 4 svo ég verð hress þá. Jó.
:: G-Sus 21:11 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 29, 2003 ::
Grafarvogur - Sökkívogur?
Þessi dagur á engan sinn líka. Nema kannski í einhverjum öðrum hliðstæðum heimi, sbr. nýlegt blogg. Þetta er eiginlega dagur hinna miklu EF.
- EF ég hefði látið skynsemina ráða þá hefði ég sleppt því að fara upp í Grafarvog vegna veðurs.
- EF ég hefði sleppt því þá hefði ég ekki setið fastur í Grafarvogi í 4 tíma.
- EF ég hefði bara lagt í annað stæði.
- EF nagladekkin væru undir bílnum en ekki í aftursætinu (ætluðum að skipta í dag).
- EF ég hefði sleppt því að taka sundbuxurnar upp úr töskunni minni fyrir 2 dögum síðan þá hefði ég ekki þurft að fá lánaða sundSKÝLU þegar ég drap tímann í Grafarvogslauginni.
- EF ég hefði haft sundbuxurnar mínar þá hefði ég ekki litið út eins og pervert.
- EF ég hefði sleppt því að fara í sund þá hefði enginn hommi reynt við mig.
Ég get örugglega talið upp fleiri ef en þar sem það er orðið frekar þreytt þá stoppa ég hér. To sum it up:
Var fastur í Grafarvogi frá hálf tólf (eftir æfingu) til þrjú. Vissi ekkert hvað myndi verða um mig svo ég fór bara í sund til að gera eitthvað. Þar fékk ég þessa yndislegu sundskýlu til að skýla mínu allra heilagasta. Hún var blá. Hún var ekki flott. Hún var pervertískt. Mér leið eins og Ben Stiller í Meet the Parents. Svo hafði ég laugina út af fyrir mig í einhverjar 20 mínútur eða þangað til hressi sólbrúni miðaldra homminn mætti í laugina. Ekki kannski miðaldra, svona um 40 or sumphin. Djöfull var hann hress. Talaði og talaði og ég reyndi bara að svara með eins atkvæðis orðum. Gaurinn var samt í alveg sömu sporum og ég. Fastur í Grafarvogi. Það er ekki pottþétt að hann hafi verið gei en það eru u.þ.b. 99.9% líkur á því.
Sönnun: Hann var með tvo síma með sér í laugina vafða í plastpoka. Hann talaði um að deginum hefði verið reddað hefði sólbaðsstofan nú verið opin. Þegar ég ákvað að fara upp úr þá beið hann í svona 3-4 mínútur og fór svo líka uppúr. Þegar ég var í sturtu þá settist hann í sæti þar sem hann hafði góða yfirsýn yfir þurrksvæðið. Dæææm hvað það er gei. Sönnun yfirstaðin.
Hinkrið augnablik... ég ætla að fara í sturtu og brenna fötin mín eins og í Ace Ventura eftir að hafa rifjað þetta upp....
OK, mættur aftur. Hvar var ég? Já, ég þurrkaði mér í tvær sekúndur og fór beinustu leið að fötunum mínum. Diddsaði svo gaurinn og loksins kom pabbi og náði í mig.
Shiiii. Þetta er búinn að vera svo funky dagur að það er ekkert lítið. Fólk allsstaðar fast og bílar eins og hráviði út um allan bæ. Þegar maður sér bíla vera pikkfasta á leið niður brekku þá er þetta ekkert djók. Ég vaknaði í morgun og hafði daginn skipulagðan. Hann fór ekki eins og ég planaði og það er alveg óstjórnlega óþægileg tilfinning að hafa ekki stjórn á hlutunum. Krepp hvað ég vona að það haldi ekki áfram að snjóa í nótt.
Lexía dagsins: Ef allt annað bregst þá get ég gerst hommi án vandkvæða.
:: G-Sus 21:20 [+] ::
...
This is the end...
Var að klára að horfa á seinni helming Apocalypse Now, Redux. Glaðvaknaði um miðja nótt og ákvað að halda áfram þar sem frá var horfið í kvöld (takið eftir hvenær þetta er ritað). Myndin er 195 mínútur hvorki meira né minna. Þessi mynd er ólýsanleg í rauninni. Þetta er ein af þeim myndum sem maður verður að sjá. Snertir alla á einhvern hátt.
Byrjunaratriðið er eitt það besta sem sést hefur í bíómynd. Það er allavega mín skoðun. Skot af skógarjaðri, allt hljótt nema byrjunin á The End (beginning of the end??? úúúú töff) með The Doors hljómar undir. Eftir því sem lagið magnast þá er skógurinn bombaður með napalm. Einstakt atriði.
Ég var búinn að gleyma að Laurence Fishburne og Harrison Ford léku í þessari mynd. Laurence Fishburne er 18 ára stráklingur þegar þessi mynd var gerð og ég var ekkert að átti mig á því fyrst að þetta væri hann. Fyndið að ímynda hann sér svo sem Morpheus í Matrix.
Marlon Brando líka alltaf flottur gaur.
Svo tók ég eftir einu mögnuðu. Það virðist vera að Brad Pitt hafi horft svolítið á þessa mynd áður en hann lék í 12 Monkeys. Taktarnir hans í þeirri mynd eru nánast algjörlega eins og Dennis Hopper höndlar hlutverk sitt í Apocalypse Now. Er það ekki alveg elektrískt krakkar? HA?
I love the smell of Napalm in the morning.
:: G-Sus 05:27 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 28, 2003 ::
Jó. Fór í bæinn í gærkvöldi. Heldur snubbóttur og frekar ógeðfelldinn var endirinn á annars ágætu kvöldi. Héldum svo til Eika og pöntuðum pizzu. Labbaði heim um 6 í morgun og það var skítakuldi dauðans. Örugglega 10 stiga frost or sumphin.
Æfingabúðir hefjast á morgun og standa í 3 daga. Meistari frá Suður-Kóreu kemur í heimsókn. Fjölnismenn halda þessar æfingabúðir svo maður þarf að verja enn meiri tíma þarna uppí Grafarvogi sem er frekar fúlt. Æfing klukkan 10 og svo aftur klukkan 17. Vinna í millitíðinni. Jó.
Gamlárskvöld smamlárskvöld segi ég nú bara.
:: G-Sus 20:00 [+] ::
...
:: laugardagur, desember 27, 2003 ::
Hæ rímar fullkomlega við bæ
:: G-Sus 17:20 [+] ::
...
:: föstudagur, desember 26, 2003 ::
Þessi jól hafa verið svolítið útúr norminu. Þar sem mamma var að vinna í gærkvöld (aðfangadag) þá borðuðum við systkinin hjá pabba í Vesturbænum. Við biðum því með gjafaoppning þar til í kvöld, jóladag. Það var algjör snilld. Svo var hamborgarhryggur í gær og kalkúnn í dag. Shiiii hvað þetta er góður matur men. Smábarnið í mér hefur aðeins yfir einu að kvarta og það eru gjafirnar sem ég fékk í tilefni fæðingar þekktustu sögupersónu í heimi. Ég hef aldrei skilið af hverju ÉG fæ gjafir í tilefni afmælis einhvers annars. Ég þori að veðja að ég fæ ekki gjafir þegar systir mín á afmæli núna í byrjun janúar og það finnst mér vera svindl.
En aftur að gjöfunum... Þær voru ekki nógu sniðugar. Móðir mín og bróðir gerðu þau drastísku mistök að kaupa á mig föt. Málið er að það er næstum ógerningur fyrir e-n annan að kaupa á mig föt. Bróður mínum tókst það að vísu í þetta skiptið en mamma skaut nokkuð hátt yfir markið. En maður er víst ekki krakki lengur svo það þýðir ekki að svekkja sig á þessu.
Já, búin að vera frekar óvenjuleg jól þetta árið en samt hefði ég ekki viljað eyða þeim á neinn annan hátt.
Mér varð hugsað til næstu jóla og hversu skemmtileg þau gætu verið það sem lamb bætist í hópinn á árinu. Gústa frænda er farið að hlakka til.
:-)
:: G-Sus 03:10 [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 25, 2003 ::
Ég er bara nokkuð impressed með Símann núna. Þeir hugsuðu út í það að það væru engar búðir opnar og það var því búið að kaupa alveg nóg matarkyns fyrir okkur. Ég er allavega að fíla þessa viðleitni.
Og ég get ekki að því gert, þar sem ég sit hér í vinnunni og borða mandarínur og machintosh, að vera í örlitlu jólaskapi... That´s a first....
Það er búið að snjóa nokkuð mikið og gaman að sjá alveg hreint, hvítt teppi liggja yfir öllu úti. Jólasnjór dauðans, svona púðursnjór. Það er einmitt að snjóa núna í augnablikinu og það virðist vera logn úti. Mjög fallegt.
Annars óska ég ykkur bara gleðilegra jóla (á réttum degi meira að segja, meira en aðrir) og vonandi hafið þið það sem best yfir jólin jafnt sem aðra daga.
Þar sem ég sendi aldrei jólakort þá megið þið líta á þessa kveðju mín sem vott af þannig rusli.
Ég vona af þið hafið svo ekki ælt á ykkur eftir að hafa lesið þetta væmna blogg.
:: G-Sus 05:23 [+] ::
...
:: miðvikudagur, desember 24, 2003 ::
Að pakka inn gjöfum er ekki my thing.
Enda er það líka bara fyrir löggur og kellingar.
Gústi Jóla
:: G-Sus 16:38 [+] ::
...
Til hamingju vitringar! Þið eruð á réttri leið! Fylgjið bara grjóthnullungnum Venusi, hann veit sko hvar frelsara er að finna!
Upphrópunarmerki!
:: G-Sus 03:45 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 23, 2003 ::
Djöfull er ég slakur gaur... Fór ekki að sofa fyrr en 11 í morgun eftir æfingu og vaknaði svo klukkan 17. Fór nánast beint niður í Kringlu í ruglið. Það verða sko bókajól í ár. Reddingar eru ekki góðar. Núna er mamma að naga í mér að setja einhverja jólaseríu á tréð. Daaajöfullinn. Er á leiðinni eftir smá stund til Daða og svo höldum við niður í bæ og hittum þar nokkra sleikta menn sem munu verða samferða okkur á rölti um bæinn. Ég er bara farinn. Ble.
:: G-Sus 20:05 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 22, 2003 ::
DROOOOOP....
Ætlunin var að að nota daginn í dag til að rumpa því af sem þarf að kaupa fyrir þetta drasl sem jólin eru. Jóla-ég alltaf. Svo þurfti ég líka að reyna að snúa deginum við. Bæði þessi atriði voru ekki að ganga eftir. Það er því ruglið á morgun!!!
Ég fór semsagt einn áðan og reyndi að finna jólagjafir. Fór m.a. í Kringluna og mælti mér þar mót við Daða. Meðan ég beið eftir Dauðanum þá hitti ég hann Bensa kallinn og talaði við hann heillengi. Gaman að sjá hnakkann aftur. Grease í jólafríi eins og er en það er alveg spurning að skella sér á þetta rusl svo maður sjái strákinn í ham. Svo fyrir einskæra (ó?)heppni þá hittum við Eika. Mjög skondið. Röltum því 3 um Kringluna og töluðum við B-Love sem er að vinna í Skífunni yfir jólin. Enduðum svo á KFC í Skeifunni eftir að hafa beilað á Stjörnutorginu.
Ég var eitthvað að tala um grein í Lifandi Vísindum í gær og verð ég að segja, eftir að hafa lesið greinina, að þetta er alveg brjáluð pæling.
Hér kemur smá klausa úr greininni og er ég búinn að skipta út sumum orðum svo þau falli betur að. Greinin heitir Okkar alheimur er aðeins einn af mörgum
„Einmitt núna er tvífari þinn að lesa Einræður Svartasauðs - og einmitt þessa færslu. Ekki í þessum heimi, heldur öðrum samsíða alheimi sem okkur er ófært að sjá. Þetta segir viðurkenndur geimfræðingur. Og ekki nóg með það. Saman mynda þessir heimar svonefnda fjölheima sem geta verið til á mörgum mismunandi stigum.“
Ef þessi klausa kveikir ekki í manni þá veit ég ekki hvað. Þetta er alveg mind-boggling sjitt og ekki skánar það þegar maður les greinina. Hvet ykkur eindregið að næla ykkur í eintak af þessu blaði. Ég segi ekki að maður hafi ekki spáð í svipuðu áður en þegar maður sér þetta svona svart á hvítu þá allt í einu finnst manni í smá stund eins og ekkert skipti máli. U know what I mean? Auðvitað þarf þetta ekki að vera rétt en hvað vitum við... Lesið greinina og myndið ykkur ykkar eigin skoðun jó.
Svo eins og ég sagði þá gekk ekkert sérstaklega að snúa deginum við. Næturvakt á eftir frá miðnætti til átta og svo æfing klukkan níu uppí Grafarvogi. Shiiiii, that shi is wack!
Góða nótt lömbin mín.
Pís át.
:: G-Sus 21:30 [+] ::
...
Gúllinn, fyrstur með bloggið
Ég var að koma heim af LOTR III. Mögnuð mynd auðvitað en ég held að extended útgáfan muni verða alveg rosaleg. Þessi útgáfa er e-ð rúmlega 3 tímar en samt gerði hún ekki öllu nógu góð skil. Ótrúlegt. Þá er bara að þrauka í 11 mánuði eftir special olympics útgáfunni. Eða jafnvel special edition útgáfunni. Fyndið samt að gefa út LOTR aftur og þá bara með mongólítum í öllum hlutverkum. Útkoman yrði örugglega..... tja.... sérstök? Ég er að hugsa um að setja mig í samband við einhverja framleiðendur um leið og ég er búinn að blogga svo þið stelið ekki þessari hugmynd.
Ég er strax búinn að gera uppdrátt að handriti. Hér er smá dæmi:
Frodo gengur upp að Aragorn...
"Aragorn já. Ég er Mongo Baggins, MMMJÁÁÁÁ!"
"Sæll vertu master Mongo ííááááííííí! Hvar er vondi kallinn já? híiiioooo!!!
Ég er ekki kominn lengra en þetta lofar góðu held ég.
Mig dreymdi ekkert smá funky drauma í dag. Ég vaknaði í morgun og fór fram úr og þannig en svo fór ég aftur upp í rúm og sofnaði. Mig dreymdi að mig væri að dreyma og gæti ekki vaknað af draumnum. Það sem er enn meira funky er að inní þessum draum var mig að dreyma að mig væri að dreyma! Þetta voru mjög óþægilegir draumar og loksins þegar ég náði að vakna af "ramma" draumnum þá var ég enn fastur inní upprunalega draumnum og var að reyna að vakna. Sem betur fer hringdi vekjaraklukkan og mér var bjargað. Já, þetta var svei mér mikið rugl.
Í fyrramálið klukkan 9 fer ég á æfingu og svo er stefnan sett á Grafarvogslaugina sem er þarna 10 metrum frá.
Svo á ég eftir að lesa forsíðugreinina í nýjasta Lifandi Vísindi blaðinu en sú grein hljómar alveg einkar skemmtilega. Mögnuð pæling. Þarf að kynna mér þetta aðeins og svo mun ég blogga um þetta á morgun. Afar bloggvænt efni.
Þangað til þá...
Ble
:: G-Sus 00:46 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 21, 2003 ::
Í gær fórum ég, mamma og Laufey niður í Birkihlíð til að velja jólatré í boði brósa. Þar voru tveir strákar að selja jólatrén og eru það tveir gaurar sem ég þekki ágætlega frá því þegar ég var að vinna í hellulögnunum. Ég hugsaði á leiðinni út hversu mikið ég nennti ekki að standa í svona sölu en hugsaði samt til þess að ég gæti búist við því að vinna við þetta á næstu jólum. Daaajöfullinn. Bróðir minn var að hringja áðan og var að biðja mig um að koma og vinna úti á Landakoti á eftir. Það er víst e-ð rídikkjúluslega mikið að gera og í gær seldust e-ð á 5. hundrað tré í heildina. Shiiiii hvað ég er ekki að nenna þessu. En ég vinn ekki nema í rúma 3 tíma, svo er það LOTR í Smárabíó. Það verður örugglega hressandi.
Fór aðeins í bæinn í gærkvöldi. Stoppaði ekki neitt lengi þar sem það var um 10 stiga frost og ég var funky þreyttur. Kom heim um 3 í nótt.
Ekki spyrja mig afhverju en mér finnst lagið It´s my life með No Doubt vera gott lag. Gamalt lag auðvitað en það er bara eitthvað við þeirra útgáfu.
Ég kveð að sinni. Vinni vinni vinni...
:: G-Sus 11:47 [+] ::
...
:: laugardagur, desember 20, 2003 ::
Ég bara veit ekki hvað á að segja ykkur... Greinilegt að enginn nema Brynjar og Arnþór er að gera neitt sérstakt um jólin.
Fór á Kapital í kvöld að samfagna með (ey)Jólfi kunningja mínum úr grunnskóla sem var að útskrifast úr FB. Tók aðeins lengri tíma en aðrir en hann kláraði samt strákurinn. Flott hjá honum. Staldraði við í einn og hálfan tíma og lét svo gott heita. Vinna klukkan korter yfir 7 í fyrramálið. Hressandi mjög gríðar. Daði, Eiki og Brynjar 3 hressir fýrar. Þetta rímaði nokkurnveginn, ekki satt? Óviljaverk og mun ekki koma fyrir aftur.
Lifið í pörtum.
:: G-Sus 00:04 [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 18, 2003 ::
Hvað ætlið þið skólafólk að gera í jólafríinu? Eruð þið að vinna eða hvað? Ef ekki, á þá að gera e-ð sérstakt?
:: G-Sus 17:32 [+] ::
...
:: miðvikudagur, desember 17, 2003 ::
Ég var að spá...
Ætli það að ropa sé eitthvað skylt danska orðinu råbe, eða hrópa???
Hver veit? Ekki ég.
:: G-Sus 16:15 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 16, 2003 ::
Ég var að klára að horfa á Survivor síðan í gær. Tók það upp því ég er forfallinn Survivor aðdáandi, ég játa það. Hann Jon var alveg magnaður gaur. Eins mikil naðra og hann var þá var hann að spila þennan leik eins og á að gera það. Djöfull var hún Lill heimsk að taka Söndru með sér í úrslitin. Algjör belja líka, ég var að eipsjitta á vælinu í henni. Hefði hún tekið Jon þá hefði hún fengið milljónina því hann var búinn að svíkja svo marga sem sátu eftir í sárum og hefðu ekki kosið hann. Algjört fífl þessi Lill. Dææææææm!
Svo vil ég minna ykkur á að ef þið ætlið að kaupa lifandi jólatré þá endilega kaupið af Jólatráasölunni Landakoti. Þeir eru með sölustaði við Landakot, Smáratorg, IKEA, Birkihlíð og svo einum stað í viðbót sem ég man ekki. Viss upphæð fer til styrktar krabbameinssjúkra barna og er það alveg feikinóg ástæða til að versla við þetta fyrirtæki. Önnur góð ástæða er að bróðir minn er annar eigandi fyrirtækisins. Þriðja góða ástæðan er sú að ég er bróðir bróðir míns. Ekki versla hjá Bónusdurgunum þar sem þeir selja tré á tvöþúsundkall og græða ekkert á því. Eru bara að gera sig breiða og reyna að kæfa samkeppnina. Svo gefa þeir ekki til neinna líknarmála.... dem bitches.
Jó jó jó
Kveður G-Lo
:: G-Sus 22:09 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 15, 2003 ::
My home is your home, welcome to the terrordome.
PE
Frá töffaraskap Public Enemy yfir í asnaskap Íslendinga...
Ég var nebbilega að lesa bloggið mitt frá því í desember í fyrra. Ótrúlega var ég sniðugur strákur þá. Sniðugleikinn virðist hafa horfið einn góðan veðurdag á þessu ári. En allavega, þá var ég að blogga um aðventuljós og hversu mikið kjaaaaaaftæði það rusl er. Ég kvóta sjálfan mig frá því í fyrra:
"Það er eitt sem ég þoli ekki um jólaleytið en það eru öll gyðingaljósin okkar sem við köllum aðventuljós. Ef við héldum Hanukkah þá væri þetta í góðu. Svo í þá gömlu góðu þegar maður var ungi þá sá maður bara eitt aðventuljós í hverju húsi. Núna eru þau því miður vanalega fleiri en eitt og fleiri en tvö... Ég sagði móður minni frá því að mér fyndist það ekki sniðugt að hún væri með tvö gyðingaljós í stofunni og hún sagði að ég myndi þá bara ekki hafa þetta svona þegar ég myndi eignast heimili. Skætingur alltaf hreint... Neinjetnie. Það er alveg öruggt að þegar ég flyt að heiman (sem ég sé ekki gerast..) þá ætla ég ekki að vera einhver helv... gyðingur!
Það er aðeins einn maður sem ég þekki sem heldur örugglega Hanukkah með aðventuljósið sitt við höndina en það er einmitt gyðingurinn hann Atliis Semitis"
Þegar aðventan núna hófst þá var ég rosalega glaður þegar ég misskildi mömmu og hélt hún væri að segja að við myndum ekki hafa nein aðventuljós þetta árið. Semsagt misskilningur af minni hálfu þar sem hún var að tala um að hún myndi bara hafa eitt ljós í staðinn fyrir þrjú.
Já og svo er systir komin heim. Mjög fyndið að núna er hún eins og túristi í eigin landi. Núna getur hún fengið kvittun ef hún verslar fyrir eihverja ákveðna upphæð og fengið vaskinn endurgreiddan. Ég held það sé nokkuð ljóst að hún Laufey sér um jólagjafakaupin í ár.
G-Lo signing out...
:: G-Sus 23:21 [+] ::
...
Mánudagur bara mættur! Hver hefði nokkurntímann trúa.... Neeeeeeeiiiiiii ekki meira.
Laufey siss að koma heim á eftir. Verður fram í byrjun janúar og flýr þá land aftur. Gaman að sjá hana igen.
Fólk á fullu í prófum. Ekki ég. Ég er einmitt í fríi í dag og er það nokkuð ljúft. Ég er eins og litlu krakkarnir, finna mér eitthvað til að dunda. Hef plötuspilarana og tölvuna til að halda mér félagsskap. Og ekki slæmur félagsskapur það!
Er að niðurhlaða alveg elektrískri mynd, Apocalypse Now (Redux). Hún mætir hress í tölvuna mína í kvöld.
Jæja, ég nenni ekki að skrifa meira um ekki neitt.
Síðar fólk,
G-Lo
:: G-Sus 12:27 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 14, 2003 ::
Sunnudagur að kveldi kominn. Hver hefði trúað þessu!!?
:: G-Sus 20:37 [+] ::
...
Núna segja menn að það sé búið að handtaka Saddam.
Og í gær dó Keikó...
Einhver tenging?
:: G-Sus 11:16 [+] ::
...
:: laugardagur, desember 13, 2003 ::
Ding Dong The Keiko is Dead!!!
Og svo annað í fréttum er það að hann afi minn er orðinn fjörgamall alveg þar sem hann varð 92 ára í dag. Skemmtilega byrjun á kennitölu líka: 131211.
Hittingur hjá Tuor á eftir þar sem Steini verður auðvitað hrókur alls fagnaðar og segir sögur frá Danaveldi af sinni alkunnu snilld.
L8er fokkers.
:: G-Sus 19:20 [+] ::
...
:: föstudagur, desember 12, 2003 ::
Hæ, ég heiti Camthalion Telemnar.
Þann 21. þessa mánaðar mun ég fara á LOTR III. Ég mun fara með vinum mínum þeim Celebrimbor Telemnar, Mahtan Telemnar, Rúmil Telemnar, Elrond Telrúnya, Tuor Telemnar og Maedhros Elanessë.
Telemnar kemur skemmtilega oft upp sem eftirnafn (væntanlega tengt -son eitthvað).
Vil ég þakka Enelya Míriel fyrir að benda mér á þetta skemmtilega forrit.
Hvað heitið þið á álfamáli? (íslenskir stafir ekki hressir)
:: G-Sus 23:22 [+] ::
...
Djöfull er ég ekki að meika Idol. Það er svo vont. Hvað eru þessar smástelpur að missa sig í salnum? Ætli þeim sé borgað fyrir þetta? Kannski er svo ðí Bandaríks-skilti sem í staðinn fyrir að sýna ´Applause´ sýnir það ´Öskrið eins og smástelpur´..... fávitar. Við erum á fokkings Íslandi og þó svo 250 milljón manna þjóð geti gert þetta ágætlega þá þurfum við ekki að rembast eins og friðaða rjúpan við staurinn og herma eftir þessu hrikalega rusli. Núna er ég að missa mig eins og smástelpa einmitt. Andskotinn, þetta er búið að smita mig.
Æi fokkið ykkur.
:: G-Sus 21:40 [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 11, 2003 ::
Ég pantaði mér plötur á netinu fyrir nokkru og var að fá þær sendar í dag. Ég pantaði mér m.a. fyrstu plötu Pharcyde, Bizarre Ride II, og er það svolítið funky skítur. Ég átti diskinn en svo var honum stolið þegar það var brotist inn í bílinn okkar. Alltaf leiðinlegt þegar einum af manns bestu diskum er stolið. Svo ég ákvað að endurnýja með því að kaupa mér vinylinn. Ekki nóg með að innihaldið sé funky as hell þá eru plöturnar (2) ekki síðri. Önnur er gul og hin er blá og svo eru þær svo til gegnsæar. Ótrúlega töff shiiiii.
Eitthvað er ég fáránlega þreyttur, eins og einhver stelpa, þannig það er Ali G og svo Óli Lokbrá.
Síðar gott fólk, síðar.
:: G-Sus 22:05 [+] ::
...
Jójójó
Núna virka bara 2 takkar af 16 á símanum mínum. Hvað skal gjöra? Það er eins og hinir 14 takkarnir séu frosnir. Svo er nærri því ómögulegt að opna þennan fjanda, þessa 3210 týpu. Ég vil helst ekki þurfa að fara að skipta um síma þar sem þessi á sér langa sögu. Fékk hann á 20 ára afmælisdaginn, sem hittist einmitt á dimissio í MR á þeim tíma, frá strágunum sko. Djöfull var það magnaður dagur.
Ég vil því ekki þurfa að kveðja símann minn en hann hefur samt verið að láta illa af og til. Ég er að hugsa um að flengja hann og sjá hvort eitthvað lagist.
Ok, búinn að flengja símann og ekkert breyttist. Dajöbbullinn.
:: G-Sus 12:13 [+] ::
...
:: miðvikudagur, desember 10, 2003 ::
Jójójó
Blogging straight from da outskirts of Smoke City.
Hress að vanda. Æfing kallar. Kveð að sinni.
:: G-Sus 20:10 [+] ::
...
Ég var að sjá Groundhog Day í svona 5. sinn í kvöld. Þessi mynd er alveg stórkostleg. Fæ aldrei leið á henni. Ég held ég gangi það langt að segja að hún sé uppáhaldsmyndin mín? Spurningarmerki þar sem uppáhalds-eitthvað er alltaf asnalegt en ég get ekki lýst áhrifum hennar á annan hátt.
Fyndið að mig rámar í að ég hafi einhverntíma á þessu bloggári mínu minnst á þetta áður. Það bara gæti ekki verið meira í anda myndarinnar.
Pís át, jó.
:: G-Sus 00:05 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 09, 2003 ::
Fyndið að orðið knúsa er notað í mjög sakleysislegri og sætri merkingu á íslensku.
Á norsku hinsvegar þýðir knuse að brjóta eða eyðileggja. Það var því hálfvandræðalegt í svartbeltaprófinu mínu þegar ég átti að knuse þakhellur...
Ég auðvitað tók þær í fang mér og knúsaði en svo tók ég eftir því að allir horfðu geðveikt skringilega á mig. Eins og ég, eins og ÉG væri eitthvað skrítinn. Er þetta minn eða þinn þáttur, Sindri!
Mér líst eiginlega betur á norsku útgáfuna verð ég að segja.
Þannig ef þið heyrið mig einhvern tíma segja við ykkur „Komdu hérna! Ég ætla sko að knúsa þig rækilega!“, þá er ykkur hollast að hlaupa eins og fætur toga.
Gússi Knús kveður
:: G-Sus 13:37 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 08, 2003 ::
Hólí fokking sjitt hvað ég get rokið upp í skapinu...
Það er hérna gaur í vinnunni, alveg beisikk gaur venjulega, en nú var hann með frekar hátt stillta tónlist á hausnum. Þetta var ekkert venjuleg tónlist heldur svona happy Euro-techno drulla og ég gerði undantekningu á reglunni minni um að drulla yfir aðra tónlistarstíla. Þetta var að gera mig brjálaðan og ég fór eitthvað að tala um hversu mikið drasl þetta væri. Þá VOGAÐI (já) gaurinn sér að segja eitthvað álíka heimskulegt eins og: „Segir hver! Þú sem hlustar bara á eitthvað rapp krapp.“ Svo fór ég að tala um hvort væri nú vitrænna, rapp eða þessi sýra sem hann var að hlusta á. Þá kemur BOMBA! Smack in my face! þegar hann fer að tala um gangster rapp og gullkeðjur og ho´s og hversu vitrænt það er!!! ARRRRRRRRRRG! Ég sá rautt og eina sem komst að í hausnum á mér var hvernig ég gæti látið þetta líta út sem slys. Nei kannski ekki alveg en ef ég væri ekki með temprað skap að hluta þá hefði ég bara látið vaða held ég. Um leið og einhver segir svona vanhugsað sjitt um annan tónlistarstíl þá langar mig til að lemja viðkomandi til að sjá hvort það geti komið hamstrinum aftur í gang sem knýr heilann í þessu rusli. DAAAAAAJÖBBULLINN!
Gaman líka að komast að því að þessi hugsun sem afhugamenn um rapp hafa, er alltaf sú sama. Rapp = Gangsterrapp. Djöfulsins fíbbl.
Jæja þá er ég búinn að blása.
:: G-Sus 10:11 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 07, 2003 ::
Já þessi könnun mátti þola miklar vinsældir á þeim stutta tíma sem hún lifði. 10 atkvæði bárust og hafa því örugglega allir sem skoða þessa síðu greitt atkvæði sitt.
Niðurstöðurnar voru um margt merkilegar þar sem engum fannst þetta vera slök könnun, enda var ekki boðið upp á þann möguleika.
Þvílík fásinna það hefði verið...
„Er þetta minn eða þinn þáttur, Sindri!“ og „Svolítið eins og munnmök“, báru sigur úr býtum með 3 atkvæði hvort.
Næsta könnun kemur von bráðar en það er aldrei að vita hvað framtíðin ber í klofi sér. Er skaut ekki annars klof? Nei, kannski ekki... þá héti þetta nú varla skautbúningur. Þannig það er aldrei að vita hvað framtíðin lemur í skauti sér.
Svo á hann Arnþór, aka Steiktihrútur aka Slaur#1 aka Steikti fiskur, ammali í dag. Ritsjórn Einræðna Svartasauðs óskar stráknum til hamingju með þennan merka áfanga. Eftirfarandi er tekið úr opinberu heillaóskaskeyti sem ritsjóri smíðaði við mikinn fögnuð allra viðstaddra:
Það er ekki lengra síðan en í gær sem ég sá Arnþór síðast. Mér finnst eins og það hafi gerst í gær... Hann var kátur strákurinn og ánægjan og fullvissan um að hann væri að komast í fullorðinna manna tölu skeindist úr barnslegu andliti hans. Hann má líka vera stoltur af þessu afreki sínu. Það eru ekki margir úr Árbænum sem lifa 7670 daga [já prófið að hrekja þessa tölu aumingjarnir ykkar (ekki innifalið í upprunalegu útgáfunni)]. Vonandi á strákurinn góðan dag í dag í faðmi fjölskyldu sinnar og aldrei að vita nema gaurinn lifi til 23 ára aldurs. Tíminn mun leiða það í ljós hjá Súpersól.
:: G-Sus 12:07 [+] ::
...
:: föstudagur, desember 05, 2003 ::
Afsakið að skuli trufla þessa mikilvægu könnun (ég kann ekki að láta hana svona fancy til hliðar) en ég verð að koma eftirfarandi að:
Þetta er of fyndið
:: G-Sus 17:35 [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 04, 2003 ::
:: G-Sus 22:02 [+] ::
...
:: miðvikudagur, desember 03, 2003 ::
HAHAHAHAHAHAHAHA
Ég ætla sko ekki að gefa neinar jólagjafir í ár! Heldur mun ég bara gefa DRJÓLAgjafir! Þið munuð sko öll fá smokka frá mér!
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
Gott á ykkur
:: G-Sus 23:03 [+] ::
...
Fór í bíó í gær að sjá alveg stórgóða mynd. Situr greipt í huga manns núna daginn eftir. Sá myndina City of God (Cidade de Deus).
Fyrir þá sem ekki vita og ekki lesa blöðin þá er þetta nafnið á einu alræmdasta úthverfi í heimi, í Rio de Janeiro. Þar drepa menn menn, menn drepa börn, börn drepa menn og börn drepa börn. Ótrúlega áhrifarík mynd og líka sérstaklega þegar maður hugsar um að þetta er örugglega verra núna. Myndin á að gerast á 8. áratugnum.
Þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.
:: G-Sus 15:36 [+] ::
...
Er það ekki alveg yndislegt þegar það er nótt og það er dimmt, svo kemur dagur og það birtir ekki, og svo kemur kvöld og það dimmir.
Maður getur ekki annað en glaðst yfir svona yndislegum degi.
:: G-Sus 13:51 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 02, 2003 ::
Fyrstu mennirnir, brabra fyrir löngu, sem tóku sig til og fóru að rölta um jörðina, hafa örugglega verið djöfulli áttavilltir endrum og sinnum.
:: G-Sus 19:06 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 01, 2003 ::
Önnur (UNNU!) algjörlega punktalaus pæling... orð sem ég var að pæla í... Það er orðið einhleypur eða einhleyp.
Af hverju? Töff orð, en er samt bara eins orðs saga um manneskju sem finnst gaman að hlaupa ein. Algjört bull. Ég hef nú þó ekkert betra orð fyrir þetta á glöðum höndum, því miður. Ef þið finnið eitthvað látið mig vita.
ER-ÉG-AÐ-NÁ-TIL-YKKAR!!!
:: G-Sus 23:04 [+] ::
...
Jó. Djöfull finnst mér þægilegt að vera með svona stutt hár. Það var nú kannski ekki alveg útlitsbætandi að gera þetta en hú kers. Þetta er alveg drulluþægilegt. Maður þarf ekki að vera að vesenast í neinu hári áður en maður fer eitthvað. Snilld segi ég og hvet alla til að prófa snoð, jafnt stelpur sem stráka. Jó.
Nokkrir tímar eftir af síðustu næturvaktinni í bili. Ekkert nema gott mál. Loksins þegar maður er búinn að snúa sólarhringnum við og líkaminn búinn að sætta sig við það, þá þarf maður að breyta aftur. Getur ekki verið gott.
Svo fór ég að hugsa eitthvað steikt í dag eins og svo oft áður. Ég var að spá í afhverju fornöfn heita fornöfn?? Fáránleg pæling, en samt. Nafnið lýsir svo engann veginn því sem það á við um.
Lýsing sem ég fann á netinu: "Fornöfn standa í stað nafnorða eða lýsingarorða. Þau breytast eftir kynjum og tölum. Þau beygjast í föllum og bæta ekki við sig greini né stigbreytast"
En af hverju þá fornöfn? þetta kemur sure as hell ekki á undan neinu nafni. Af hverju ekki frekar: Nafnorða/lýsingarorðaígildi?
Langt nafn en gæti hjálpað aumum grunnskólasálum að læra þessa erfiðu málfræði okkar.
Ef þið vitið e-ð um fornöfn endilega kommentið á þetta. Ég er fróðleiksfús um allskonar pointless hluti.
:: G-Sus 05:35 [+] ::
...
|