eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: fimmtudagur, desember 30, 2004 ::

Áramótaþrautin þyngri!

Hjálpið punktinum að komast yfir I-ið. Til þessa þarftu fatatúss og nóg af hyggjuviti. Gangi þér vel!



Smáa letrið: Jesús tekur ekki ábyrgð á notkun tölvuskjáa samhliða tússpennum. Engin verðlaun verða veitt fyrir lausn á þraut þessari nema auðvitað verðlaunin að vita að þú hefur sigrast á þrautinni þyngri.

:: G-Sus 23:03 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 27, 2004 ::
Búin að hringja í 907-2020? Ekki? Eftir hverju ertu að bíða? Gefðu jólagjöf til heimsins og styrktu uppbyggingarstarf í Asíu.

Gerið þetta, ellegar mun ég lemja ykkur gott fólk.

:: G-Sus 17:50 [+] ::
...
Fann gott lag á X-inu í kvöld. Jólalag í nýjum búning. Margir hafa sungið þetta lag og þar á meðal Frank Sinatra og Bing Crosby. Í þetta skiptið er það Coldplay og lagið er "Have Yourself A Merry Little Christmas". Tjekkið á því ef þið getið. Stemningin þarf að vera myrkur og snjór, alveg vital að það sé stemningin.

Hata það hvað maður verður væminn um þetta leyti árs.

:: G-Sus 02:12 [+] ::
...
:: föstudagur, desember 24, 2004 ::
Já, sæl aftur. Var að koma heim úr bænum. OMG! LOL! Það var svo kalt!

En í alvöru talað, þá man ég ekki eftir eins kulda í Reykjavík. Mér hefur allavega aldrei orðið eins kalt og í dag á því að vera úti í rétt smástund. Magnað alveg.

Svo bara jólin að skella á okkur. Það er annað sem er magnað. Dagurinn sem maður beið eftir í ofvæni in da ol' days er bara orðinn eins og hver annar dagur. Ég man þegar ég gat ekki sofið lengur en til svona 8-9 á aðfangadagsmorgunn og fór þá að horfa á barnaefnið til hádegis. Það eru örugglega svona... tja... 3 ár síðan. Svo var sjónvarpið svo skemmtilegt að hafa enga dagskrá frá sirka hádegi fram á kvöld. Þessar klukkustundir voru sem heil eilífð. En það var í gamla daga. Nú til dags vakna ég snemma, horfi á klám til hádegis og kóka svo í þessar klukkustundir þangað til jólunum er "hringt inn". MUN SKEMMTILEGRA!!!

Til merkis um breytta tíma þá er ég að vinna á aðfangadag frá 16-20. Missi semsagt af borðhaldinu hér heima en mér er nokk sama um það. Svo er mér líka vel sama um þessa pakka. Helst vildi ég að jólunum yrði aflýst þangað til ég segi að það megi halda þau aftur. Sem myndi þá vera einhverntíma eftir minn dag. Hafa bara gott frí þarna þessa daga í staðinn og ekki vera að troða kristnum hefðum (er í raun heiðin hefð en whut the hell) uppá fólk sem trúir á eitthvað allt annað. Eða fólk sem trúir bara á ekki neitt nema sjálfan sig.

Djöfull eru fæðingarblettir steiktir.

:: G-Sus 01:27 [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 23, 2004 ::
OMG! Það er svo kalt úti! LOL!

:: G-Sus 13:43 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 19, 2004 ::
Nuj Nuj Nuj! Hafiði heyrt annað uns!? Truljónir á truljónir ofan!
Sjá HÉR

Djöfull hata ég uppstúf. Algjört viðbjóður.
Svo er uppstúfur ekkert svo slæmur þegar ég...... FRÓA MÉR! Ó MÆ GOD! I said it!!!
Upp, stúfur! Upp!

Ekki mikið frá að segja eins og þið takið eftir.

Jeg savner Denmark.

:: G-Sus 18:06 [+] ::
...
:: miðvikudagur, desember 15, 2004 ::
Þetta HÉR kom nú ekki mikið á óvart.

En þetta HÉR kom aftur á móti á óvart. Ég hafði enga trú á því að íslensk stjórnvöld myndu gera eitthvað sem stóra bróður líkaði ekki við. Nema þá að þetta sé svona klöguskjóðudæmi. Davíð vill kannski fá Fiskinn hingað til lands og svo framselja honum stóra bróður. Gaman að sjá hvernig þetta endar.

:: G-Sus 19:39 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 14, 2004 ::
Hey! Guess the fuck what! Ég er með massa skallablett aftan á hnakkanum! Whoopdeethefuckadillydoooooo!!!!

:: G-Sus 22:22 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 13, 2004 ::
Hej!

Sjúbbí. Ekkert sérstaklega skemmtilegt að vera kominn heim. Djöfull hefði ég verið til í að vera lengur. Danmörk er alveg einstaklega heillandi eitthvað, allavega Kaupmannahöfn. Ekki er ég að nenna að skrifa einhverja ferðasögu, held henni bara fyrir sjálfan mig, en ég þakka Erling og Sigrúnu (og Brynhildi auðvitað) kærlega fyrir samvistirnar.
Ferlega langar mig að heimsækja ykkur aftur einhverntíma í vor... Og þá verð ég búinn að tjekka á dagskránni á Vega ;)

Smá listi samt yfir hvað mér finnst gott og slæmt við Danmörku.
Gott: Metro-ið og lestirnar, bara samgöngukerfið yfir höfuð, miðbærinn, úrvalið af ÖLLU, ódýrir skyndibitar.
Slæmt: Dankort virðist vera eina kreditkortið sem posarnir fíla og það skemmti mér ekki, meirihluti tjellinga gengur í nokkurskonar stígvélum og með buxurnar ofaní (þetta fór hrikalega í taugarnar á mér og Daða og er í raun efni í heilt blogg útaf fyrir sig ásamt myndskreytingum).

Ekkert voðalega mikið slæmt að segja um Danmörku semsagt. Bara snilldin ein.
Enda þetta á sama hátt og ég byrjaði, Danish style:

Hej, hej

:: G-Sus 21:01 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 07, 2004 ::
Þá er það bara Danmörk. Þessi síða kemur því til með að liggja niðri í jafnvel viku eða svo. Notið nú tímann og skrifið eitthvað ljótt um mig í kommentin. Nú er tækifærið sem þið hafið öll beðið eftir.

Vonandi krassar ekki flugvélin.
Bless bless

:: G-Sus 22:19 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 06, 2004 ::
I laughed and I laughed and I laughed!!... then I left.... and turned to the right.

Já, ensk tunga er svei mér margbrotinn.

Styttist í brottför til Danmerkur. Hlakka til. Var í fríi í dag og á að vera í fríi á morgun en ætli ég reyni ekki að taka nokkra tíma í aukavinnu í staðinn. Það er svo fáááránlega mikið að gera að maður getur nælt sér í aukavinnu þessa dagana. MARGborgar sig.

Reynið svo að gera eitthvað uppbyggilegt til tilbreytingar. Þetta ástand er orðið alveg óbærilegt.

:: G-Sus 23:30 [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 02, 2004 ::
Ég ætlaði að blogga um þetta í gærkvöldi en fann mér eitthvað annað að gera þá. So here goes..

Kristján Jóhannsson er fífl. Nú hefur hann verið í tveim sjónvarpsviðtölum nýverið og hef ég séð annað þeirra. Hef heyrt mikið af hinu. Viðtalið í gær sá ég og þessi "ástsælasti söngvari þjóðarinnar" er meira eins og "ástsælasti bastarður þjóðarinnar". Þegar hann var hjá Gísla Marteini þá gerði hann víst lítið annað en að glápa á brjóstin á Birgittu Haukdal og svo þegar hún sýndi dúkkuna af sér þá kvað við í honum eitthvað á þá leið að það væri verst að hún væri ekki í fullri stærð. Já, Kristján, þú hefðir nú getað runkað þér vel yfir dúkku af Birgittu í fullri stærð! Ha! En þú verður að láta þessa útgáfu duga.
Þetta sauðnaut tekur svo einhvern massa pening fyrir að syngja á styrktartónleikum fyrir krabbameinssjúk börn og snýr bara út úr þegar hann er spurður hvers vegna hann sé að fá svona vel borgað fyrir þetta "sjálfboðaliðastarf". Hann sagði þetta væri bara fyrir kostnaði. Kostnaður upp á 700 þúsund kall? Í hvað fór þetta hjá honum? Flug til Íslands kannski svona 100 þúsund í heildina, svo 600 þúsund í dúkkur af Birgittu Haukdal væntanlega.
Í viðtalinu í gær fór hann svo að gera grín að konu-spyrilnum sem ég veit ekki hvað heitir. "Sjáið hvað hún er rauð á bringunni!", sagði mongóinn og hló yfirlætislega yfir því hversu henni gat hitnað í hamsi yfir fávitaskapnum í honum. Ég held að hann sé haldinn dulbúinni kvenfyrirlitningu.
Fyrir utan allt þetta þá þoli ég ekki talandann í honum.

Þá vitiði það. Mér finnst Kay Jay vera tussa.

UPDATE af öðru bloggi: Ég þarf ekki að fytja að heiman. Mamma sagðist vera sammála mér í þessu með gyðingaljósin og því höfum við ekkert þannig í ár og vonandi ekki næstu ár. Húrra fyrir mömmu!

:: G-Sus 22:02 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?