|
|
:: föstudagur, október 31, 2003 ::
Hæææææææ
Ég er í vinnunni og klukkan er eitthvað sex eitthvað og þahh ehh gaman!
Ég var búinn að skrifa feitan texta áðan um jólin og allskonar og opnaði mig alveg hrikalega fyrir ykkur. En svo eyðilagði blogger þetta og á ég honum þakkir skilið fyrir. Allt hvarf bara. Gaman aðessu.
Hvernig líst ykkur á þessa rímu:
Slow is good in the regard
But not if you are a retard
:: G-Sus 06:23 [+] ::
...
:: fimmtudagur, október 30, 2003 ::
Þessi veröld sem við lifum í er kaldhæðið helvíti.
Var að lesa um gaur í Fréttablaðinu sem dró að sér 1 milljarð króna frá bankanum sem hann vann hjá.
Maðurinn heitir Kim David Faithfull
:: G-Sus 15:55 [+] ::
...
halló
Ég er hérna í vinnunni og klukkan er fimm að morgni og sólin ekki enn komin upp. OG ÞAH EHH GAMAN!!! Þegar þið lesið þetta þá verð ég ekkert lengur í vinnunni. Annaðhvort verð ég sofandi eða bara vaknaður eftir að hafa verið sofandi eftir næturvaktina þar sem ég skrifaði þessa færslu. Já svona er heimur tækninnar merkilegur!
Hver man ekki eftir Knút (Hilmi Snæ) og hinum gaurnum (Sigurjóni Kjartanssyni) þegar þeir voru að taka upp myndbandsbúta og furða sig á tækninni... Ef það er ekki klassík dauðans þá veit ég ekki hvað.
„Hvaaaaaaar eeeer Knúúútur???
Þarna er Knútur!
Knútur fór aldrei í bíó þar sem klukkan er bara þrjú og engin mynd í gangi. Hann þóttist bara fara inn í bíóið“
Eða eitthvað álíka... Funny shit!!!
Jæja, pósturinn svarar sér ekki sjálfur. Butter me up Scotty!!!
:: G-Sus 05:11 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 29, 2003 ::
Eitthvað sem maður heyrir James Bond ekki segja:
I´m only shaken, not so disturbed
Djöfulli er langt síðan ég hef séð Bleika pardusinn. Það voru ekkert smá steiktar teiknimyndir. Bleiki pardusinn var alltaf eins og hann væri í vímu. Geðveikt steikt stöff.
Mér fannst ég heyra bleika-pardus-lagið áðan í einhverjum heddfónum en svo var þetta ekkert það lag. Bara minnti mig á það. Sneaky lag. Muniði eftir því? Það var einhvern veginn svona:
Dun-uh, dun-uh
Dun-uh, dun-uh, dun-uh, dun-uh, dun-uuuuuuuuuuhuuuuuuuhuhhhuhhhuuuuu
Dun-uh
Svo er ég á næturvakt svo ekki taka mark á neinu sem ég segi frekar en fyrri daginn.
:: G-Sus 02:10 [+] ::
...
:: þriðjudagur, október 28, 2003 ::
Djísús men
Það styttist allsvakalega í 10.000asta gestinn. Það er magnað.
Sá sem hittir á þá svakalegu tölu fær vegleg verðlaun ef sá hinn sami sendir mér póst sem sönnun.
Og 10 þús nást fyrir ársafmæli bloggsins! HÚRRA! HÚRRA! HÚRRA!
:: G-Sus 12:51 [+] ::
...
:: mánudagur, október 27, 2003 ::
Það er smá munur á að vera verr launaður eða að vera verð-launaður.
...og þar hafiði það
Þetta var bloggfærsla dagsins í dag og svo einnig þessi meðfylgjandi linkur á besta lag Outkast fyrr og síðar:
Southernplayalistic
Alltaf gaman að mennta lýðinn...
:: G-Sus 16:37 [+] ::
...
:: sunnudagur, október 26, 2003 ::
Jóóó
Þá er æfingahelgin að baki. Algjör snilld. Meistari Ole klikkar ekki. Sérstaklega gaman að þrýstipunktaæfingunni í gær. JUDO CHOP! ofan á axlirnar er svolítið óþægilegt daginn eftir...
Úr því ég er kominn út í þessa sálma þá er alveg mögnuð fræði þessi þrýstipunktafræði . Ég held það sé ekki hægt að segja að þetta sé bara „sveiattann! bull og vitleysa!“ þar sem þetta hefur hjálpað mörgu fólkinu. Burtséð frá því, a billion and one Asians can´t be wrong!
Þessa punkta má bæði nota til lækninga og til illverka. Skemmtilegt nokk þar sem þessi austurlensku fræði ganga öll út á andstæður.
Í gær fórum við yfir nokkra punkta á handleggnum sem valda skemmtilegum sársauka. Það var gaman. Svo tókum við einn á öxlinni og einn inní hnésbótinni. Og það var líka gaman. Ég er tíu ára. Það er gaman.
Áðan í sjóvvarpinu var einhver þáttur um gengi (fleirtala krakkar mínir, fleirtala) í Breiðholtinu og ryskingar þeirra í millum og nennti ég ekki að horfa á þann þátt. Ég sá svona 3 min af honum og hitti á part þar sem var viðtal við austurlenska konu (JUDO CHOP!) og ekki kunni hún ísslesskuna greyið. Ekki skiljum við heldur hennar tungumál svo brugðið var á það ráð að talsetja konuna. Og þá kemur hlutinn sem mér finnst svo magnaður... Það var ekki talsett á íslensku. Allavega ekki íslensku eins og ég heyri dags daglega heldur var íslenskumælandi útlendingur látinn lesa einhvern texta svo maður heyrði örugglega að þetta væri nú útlendingur sem væri verið að talsetja yfir. !!!. Seinasta setning voru þrjú upphrópunarmerki. Í fyrsta sinn í rituðu íslensku máli hefur setning einungis innihaldið upphrópunarmerki. Það geri ég í tilefni af því hversu ógeðslega, ógeðslega, ógeðslega, ÓÓÓÓÓGEÐSLEGA asnalegt mér finnst þetta. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég heyri þetta en í fyrsta sinn sem ég heyri þetta á íslensku. Maður sér (eða heyrir (fokkiðykkur)) þetta stundum í 60 mínútum. Skap mitt hefur sjaldan talist stabílt og þegar ég verð vitni að svona algjörlega óskiljanlegum asnaskap þá langar mig til að brjóta eitthvað. Eða skrifa um þetta á blogginu mínu kannski. Ég veit ekki hvað skal segja nema bara djöfulsinsfávitarogerkifíflhoppiðuppírassgatiðáykkurhommarnirykkar sem stóðuð að þessum asnalega þætti.
Kveð á ljúfum nótum í kvöld
Bless
:: G-Sus 22:15 [+] ::
...
:: fimmtudagur, október 23, 2003 ::
Snilldaræfing alveg. Sjitt hvað þetta býður þreytunni heim...
Æfing í fyrramálið 6-7
Annað kvöld 21:00-22:30
Og svo æfing á laugardagsmorgun klukkan hálf níu. Önnur æfing seinni partinn og svo tvær á sunnudaginn.
Svefn af skornum skammti næstu 4 daga.
But this is what we love to do.... ikke?
Sjáumst síðar
:: G-Sus 22:22 [+] ::
...
Því er ekki að neita að undanfarið hefur verið mikil Taekwondo þreyta í mér.. Margt sem bjátar á og allskonar bara.
En núna í kvöld, eftir klukkutíma eða svo, byrjar fyrsta æfing í æfingahelgi hjá meistara Ole Havmøller. Og verður það að teljast gleðiefni mikið. Sá maður er danskur og hefur maður kynnst honum ágætlega í gegnum tíðina, bæði í Noregi og svo kom hann líka hingað fyrir svona 5 árum.
Ég held ég geri honum best skil þannig að líkja honum við svona gamlan aldraðan Asíubúa sem hefur hugleitt í tugi ára og er geðveikt spakur um lífið og tilveruna.
Nema hvað að hann er um fertugt, grannur, hvítur og 2,14 á hæð. Ekki alveg gömlu steríótýpunni fyrir að fara þar.
Ég ætlaði að láta alveg fáránlega flotta mynd af honum hér en ég fann hana ekki á netinu :-(
Sorry gráni
:: G-Sus 18:59 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 22, 2003 ::
Ef ég hitti e-n tíma Siggu Beinteins þá ætla ég að segja við hana eftirfarandi:
„Nei! Blessuð Sigga - mínus b!“
og þá er ég að gera mér vonir um að hún fari að grenja.
:: G-Sus 14:58 [+] ::
...
:: þriðjudagur, október 21, 2003 ::
Það er mynd af mér, Daða og Atla á felix.is frá því um helgina
JEI!!!
Eða ekki...
:: G-Sus 18:51 [+] ::
...
Já dæææææææm.... Ég er að fíla Skytturnar frá Akureyri nokkuð feitt. Mér hefur alltaf fundist þeir allt í lagi en svo heyrði ég lag með þeim sem heitir Ég mínus ég og núna ætla ég að gerast svo kræfur að næla mér í þennan disk þeirra á einn hátt eða annan og meta þá betur.
Ég hlusta oft á Kronik í vinnunni á gamla þætti og þar dett ég oft niður á alveg drulluflott lög sem einhvern veginn fóru bara framhjá mér á sínum tíma. Þar á meðal einmitt þetta lag.
Skytturnar skera sig svolítið úr þar sem þeir sampla lítið en notast frekar við hljóðfæri og það kemur alveg mjög flott út hjá þeim köllunum.
Aðal rapparinn, held ég, í bandinu heitir Offbeat (mjöööög töff MC nafn) og þetta hefur hann meðal annars að segja í þessu blessaða lagi sem ég held áfram að tönnlast á:
...Því að ef að lífið væri leikur þá væri ég sekur fyrir leikleysu
sekur fyrir heimsku, sekur fyrir leti, sekur fyrir það að vera fastur í mínu eigin neti
ég á fulla skóhillu af heimskupörum og það líður aldrei langt
þangað til ég er á þeim buxunum að gera eitthvað rangt...
Mér finnst þetta eitthvað svo merkilegur texti... Veit að það eru fáir sem deila þeirri skoðun með mér en mér er alveg vel sama um það auðvitað.
Sjálfseyðingarhvöt og skapa eitthvað fallegt... Helst óumflýjanlega í hendur.
Mig langaði bara að deila þessu með ykkur. Reyna að sýna ykkur fram á að Akureyringar eru líka fólk.
Rappið þeirra rennur ljúflega niður líkt og áfengur drykkur en drykkurinn gæti allt eins verið mjólk.
Og munið... það er algjört skamm skamm að dæma fólk fyrirfram...
:: G-Sus 00:11 [+] ::
...
:: sunnudagur, október 19, 2003 ::
„Mmm mmm mmm mmm, mmm mmm mmm mmm...“
Munið þið eftir þessu lagi? Fyndið að ég heyrði þetta lag fyrir svona eiginlega akkúrat sólarhring síðan heima hjá Atla og svo var ég að fá það á heilann núna. Tók bara 24 tíma. Fínt lag.
Og fyrir ykkur sem ekki gátuð asnast til að fatta hvaða lag þetta er þá er þetta með hljómsveitinni Crash Test Dummies og var vinsælt fyrir svona 6 árum síðan.
Takk og bæ
:: G-Sus 23:31 [+] ::
...
:: laugardagur, október 18, 2003 ::
Frí frá EVE í dag svo ég vann hjá brósa í staðinn í hellulögnunum. Þeir eru að búa til hraðahindranir og ég vann í dag við hraðahindrun fyrir framan Nóatún í Nóatúni, þarna við minnsta hringtorg á landinu. Það var alveg misgaman sko. Alveg drulluþreyttur núna.
Fór svo í gærkvöldi á Kill Bill með Dauðanum. Djöfull er það alveg ógeeeeeðslega góð mynd. Það er ekkert lítið. Maður situr slefandi allan tímann yfr því hvað kemur eiginlega næst og svo var alveg bara tilhlökkun að koma inn úr hlé og halda áfram að horfa. Illa gert að láta mann bíða eftir seinni helmingnum sem kemur víst í febrúar. Ráðlegg öllum að sjá þessa mynd. Getur verið að ég sé að fíla hana alveg sérstaklega þar sem þetta fjallar eiginlega á óbeinan hátt um samúræja og þess háttar hegðun. Og alveg ógeeeeðslega (aftur) flott að hafa japönsku svona mikið talaða í myndinni.
Ég var svona svolítið dúbíus þegar ég sá að RZA höndlaði tónlistina í myndinni en svo er tónlistin bara algjör snilld líka. Smá 80´s fílingur í henni.
Eigið góðan dag
:: G-Sus 16:24 [+] ::
...
:: föstudagur, október 17, 2003 ::
Djísús fokking kræst...
Þvílíkt svekkelsi. Þvílík vonbrigði.
Kvöldið í gær á Gauk á Stöng byrjaði ágætlega. Þessi Killa Kela gaur hreinlega heillaði alla upp úr skónum. Maður gleymdi sér alveg við að horfa á hann gefa þessi fáránlega flottu hljóð frá sér. Maður leit í kringum sig og maður sá fólk með neðri kjálkann í klofinu. Ótrúlegur gaur. Hann bjargaði alveg kvöldinu því "LOTUG" voru hræðilegir. Það eru gæsalappir um nafnið því þetta eru barasta ekkert gaurarnir sem ég hef verið að hlusta á. Ég hafði aldrei heyrt um að 2 af þremur hefðu hætt og 2 nýjir komið í staðinn. Eini original LOTUG meðlimurinn var DJ-inn, Lord Jazz. Enda var hann sá eini með viti af þeim. Hinir tveir voru eiginlega eins og svartir jólasveinar. Annar þeirra var eins og ofvaxið barn með hreyfingar 12-13 ára krakka sem veit ekki hvernig hann á að láta. Það var bara fyndið. Líka rosalega leiðinlegt þegar menn reyna að freestyle-a og segja ekkert nema motherfucker, suck a/my dick, fuck og kill. Gríðarlega ómálefnanlegt rapp og alveg mest lélegt. Þannig freestyle-aði ofvaxna barnið. En djísús FOKKING kræst hvað ég var svekktur. Enda fór ég eftir hálftíma af þeirra setti eða svo. Tóku ekkert lag sem var gott því ef það var undirspilið sem var úr góðu lagi með Da Real LOTUG þá notuðu þeir eigin texta en ekki þá texta sem maður þekkti (og kunni eitthvað af) úr upprunalegu lögunum.
AAAAAAAAAAAAARRRRRRRRRRRRRRRRRRGGGGGGGGGGGGGGGGGGgg!!!!!!!!!!!!
Já ég var svo ógeeeeeeeðslega svekktur að ég vildi helst gráta mig í svefn. En í staðinn sofnaði ég bara án þess að gráta.
Svo er ég að reyna að taka mig á hvað varðar pirring og æsing.
Sorry for the inconvenience this may have caused you.
:: G-Sus 11:25 [+] ::
...
:: fimmtudagur, október 16, 2003 ::
Ég var að fatta að það borgar sig að heita Borgar Sigurðsson.
:: G-Sus 12:53 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 15, 2003 ::
Ég kíkti í heimsókn til Erlings og Sigrúnar á Sólvallagötuna í gærkvöld. Var að borða á Café/Kaffi/Whatever Viktor/Victor/Whatever með pabba og bróður og ákvað eftir það að tjekka á Linganum. Þvílík snilldaríbúð sem fólkið hefur fest kaup á! Það er ekki laust við að maður sé stoltur af krökkunum þó það sé asnalegt að segja það. Versta við þetta er að íbúðin getur ekki verið lengra frá Breiðholtinu held ég. Tekur alveg 20 min að keyra.
Svo verðið þið að muna eftir tryggingunum Erling og Sigrún! Það er aldrei of varlega farið og munið að tryggja ófædd börn ykkar um leið. Það er öruggast.
Tomorrow is da day! Staðfest að ég, Eiki og Arnþór ætlum að fara á Gaukinn. Brynjar er heitur (að ekki sé talað um flottur) fyrir að fara en er ekki alveg viss. Daði er algjört spurningamerki þegar kemur að svona málum og leyfum við honum að vera það áfram.
Þá er bara að fjölmenna gott fólk!
- Stjórnin
Er ekki annars bara stemning fyrir svefni!
JÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚ!!!!!!
OK,
Góða nótt.
:: G-Sus 23:23 [+] ::
...
:: þriðjudagur, október 14, 2003 ::
Er móðir mín Yoda úr Star Wars?
Þegar ég kom heim úr vinnunni þá beið mín miði. Mamma var farinn í vinnuna og hafði skrifað mér þennan miða. Hún skilur oft eftir svona miða ef hún fer eitthvað til lengri tíma. Þið kannist örugglega öll við svona miða. Nema hvað að þessi sérstaki miði komi miklu róti á huga minn. Á miðanum stóð eitthvað blahblahblah en neðst á miðanum stóð greinilega:
Kók, þú mátt kaupa
Og þetta varð til þess að ég fór að velta því fyrir mér hvort það gæti mögulega, MÖGULEGA verið... að mamma mín .....mamma MÍN..... sé Yoda úr Star Wars.
Þegar ég gaf þessu betur gaum þá fór ég að spá í þeirri óumflýjanlegu staðreynd að ég hef aldrei séð mömmu og Yoda á sama stað á sama tíma. Það auðvitað gefur þessari grunsemd minni byr undir báða vængi og slæ ég því hér nærri föstu að þetta sé ein og sama manneskjan.
Takk fyrir
:: G-Sus 18:09 [+] ::
...
:: mánudagur, október 13, 2003 ::
Erling bara fluttur úr Breiðholtinu og orðinn FLOTTUR á Sólvallagötunni! Frilla hans, hún Sigrún, auðvitað líka. Djöfulli er langt að fara til þín, Lingi. Ekki lengur 100 skref...
Til hamingju með nýja heimilið bæði tvö.
Svo er ekki laust við að litla smástelpan sé að brjótast um inní mér. Ég er búinn að halda henni lengi í skefjum en ég finn að hún vill komast út...
ÓMÆGOD!ÓMÆGOD!ÓMÆÆÆÆÆÆGOOOOOOD!
Helvítis dýrið slapp út....
En það er í góðu tilefni samt! Lords of the underground á fimmtudaginn! Ég hugsa að maður mæti og veri flottur um svona 10 leytið. Þetta byrjar klukkan 8 en klukkan tíu byrja Forgotten Lores og hálf ellefu eru O.N.E. Það gæti verið fínt að tjekka aðeins á þeim. Svo klukkan 11 byrjar Killa Kela og á miðnætti LOTUG.
Þetta verður bomban folks! Mætið eða verið jafnarma þríhyrningar.
Svo reynir maður að staulast á æfingu á eftir. Veikindi síðustu tveggja vikna eru ekki enn farinn úr mér!
78 kíló alveg að verða að veruleika og er ég núna að reyna að ákveða mig hvort ég ætti að stoppa þar eða fara upp í 80... 80 er flott tala.
FLOTTUR
:: G-Sus 16:18 [+] ::
...
:: sunnudagur, október 12, 2003 ::
Ég er búinn að fatta reglu/mynstur. Ég fór að taka eftir "kenningunni" fyrir svona 3-4 dögum síðan en núna held ég að kenningin sé barasta orðin regla. Þannig er það að fyrir svona viku síðan þá fór ég að taka inn hóstamixtúru áður en ég fór að sofa og er búinn að gera það á hverju kvöldi síðan í þeim tilgangi að hemja aðeins hóstann í mér svo aðrir í byggingunni geti nú sofið. Aukaverkunin er hinsvegar reglan sem ég er nú búinn að komast að.
Reglan hljóðar þannig:
Gerum ráð fyrir að ég (því ekki get ég pófað þetta á öðrum) taki inn hóstamixtúru áður en haldið er til rekkju. Þá
fáum við:
Hóstamixtúra + svefn = Hættulega skemmtilegir algjörir rugl draumar sem maður vill helst ekki vakna af.
Þetta er alveg magnað. Ég er meira að segja að spá í að halda áfram að taka inn þessa mixtúru þó svo ég sé ekki hóstandi lengur. Þetta er það magnað. Spurning hvort það sé eitthvað eiturefni í þessu sem orsakar þetta...
Prófið þetta. I DARE YOU!
Og þið fótboltafrík, reynið nú að gera mér til geðs og svara þessari spurningu sem ég setti fram hér fyrir neðan um fótboltavellina.
:: G-Sus 13:19 [+] ::
...
:: laugardagur, október 11, 2003 ::
Já, þá er það úti. Leiðinlegt að markið skyldi vera dæmt af. Ekki mikið meira hægt að segja um þennan leik.
En að því sögðu, hvað er málið með stærð fótboltavalla? Nú veit ég að einhverjir meiri fótboltaunnendur en ég eru að lesa þessa síðu og bið ég þá um að útskýra þetta fyrir mér í eitt skipti fyrir öll. Nú virkaði þessi völlur stærri en Laugardalsvöllurinn til dæmis. Er það bara af því myndavélin er lengra frá? Er þetta bara einhver sjónhverfing or sumphin eða eru fótboltavellir misstórir?
Og svo er Helgi Sigurðsson eins og Ben Affleck. ... eða er Ben Affleck eins og Helgi Sigurðsson?
:: G-Sus 17:03 [+] ::
...
"Ég heiti Lovísa Pétursdóttir og ég er 32 ára gömul kennslukona" - Benedikt Erlingsson
....classic
:: G-Sus 14:14 [+] ::
...
:: föstudagur, október 10, 2003 ::
Mér var boðið að taka þátt í Djúpu Lauginni í kvöld. Neeeeeiiiii! Ekki þannig þátttaka heldur að sýna Taekwondo í þættinum ásamt fleirum. Svar mitt var mjög skýrt: Nei. Atli hefði verið stoltur... Maður bara lætur ekki sjá sig í þessum þætti. Þetta er bara spurning um prinsipp. Og svo er þetta eins og að birtast í Séð og Heyrt. Það má ekki.
Landsleikur á morgun. Það verður örugglega nokkuð magnað. Arnþór er búinn að lofa að hoppa í ótiltekinn tíma ef Ísland vinnur. Vitum ekki alveg hvaðan það kemur.
Hoppa sagðist hann myndu gera ef land Ísa myndi sigurorð bera af frændum vorum Germönum. Háfleyg orð fljúga hér í hvívetna til þess eins að lyfta dagbókarfærslum sem þessari á ívið hærra stig. Vonandi líkar ykkur þessi rómaði stíll en ef svo er eigi þá mun ég verða frá að hverfa með uppátækið.
Góðar stundir lesendur góðir. Farnist ykkur vel í dag sem aðra daga.
:: G-Sus 18:17 [+] ::
...
:: fimmtudagur, október 09, 2003 ::
Djöfull er ég misskilinn, sbr. myndina hér að neðan. Föttuðu þetta örugglega ekkert allir. Ég vildi bara ekki ýkja liminn neitt rosalega. Frekar bara hafa þetta eðlilegt og kósý. Ég verð nú að segja að ég náði sjálfum mér bara alveg ágætlega. Hausnum þ.e.a.s.
Daði farinn til Spánar. Hefði ekki verið slæmt að stinga af þangað núna um þessar mundir. Fátt betra örugglega en að gleyma aðeins þessu haustveðri í 30 stiga hita og sól.
Það eru komnar átta íslenskar sjónvarpsstöðvar. Hvað er það? What´s up with that? Hvad er i vejen med det? Was ist oben mit das?
Jæja, ég er farinn að horfa á annaðhvort Malcolm in the middle eða Lethal Weapon 2.
Bleble
:: G-Sus 20:02 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 08, 2003 ::
Ég er með appelsínuhúð á rassinum?
YUP!!! YOU GUESSED IT!!! I AM...

!!!
:: G-Sus 19:53 [+] ::
...
Djöfull finnst mér vont að kyngja rakvélarblöðum. Ég hef aldrei í alvörunni kyngt rakvélarblöðum en ég get getið mér til um hvernig það er núna með þessa fínu hálsbólgu. Af hverju í fjandanum eru hálskirtlarnir ekki bara teknir úr öllum? Er það ekki annars vandamálið? Fyndið að maður kyngir í góðum fíling en svo bíður maður of lengi með að kyngja og þá verður verra að kyngja með hverri sekúndunni örugglega í vísifalli. Já, vísisfallið er magnaður hlutur. Ekki satt Erling?
Það er hægt að lesa meira um vísisfallið á www.visir.is
Það er gaman að segja vísisfall.
Snappa? Já, bráðum.
:: G-Sus 00:05 [+] ::
...
:: þriðjudagur, október 07, 2003 ::
Hvenær ætla ég að læra að taka ekki fokkings 10-una heim úr vinnunni... Helvítis strætóinn fer upp í Árbæ og svo fer hann öfugan Seljahring við 111-una. Það versta er að ég hef áður skrifað blogg um þetta og þetta er í svona 4 sinn sem ég klikka á þessu. Þvílíkur sökker! Eða bara fáviti.
Ég fór að spá, í þessu ógeðslega roki, á meðan ég labbaði frá stoppustöðinni í Jaðarseli, hvernig það væri eiginlega að fá svona bárujárnsplötu í sig. Einhver þakplata sem losnar í svona roki getur hæglega klippt fólk í sundur hugsa ég. Djöfulli væri það mögnuð sjón.
:: G-Sus 17:54 [+] ::
...
:: mánudagur, október 06, 2003 ::
Fór í gærkvöld og náði í mömmu út á flugvöll. Þar sá ég Óla Hregg vera að bíða eftir einhverjum. Bíða eftir einhverjum frá Amsterdam. Einhver tenging...?
Svo kom Þorsteinn Guðmundsson út um hurðina. Ég hélt hann myndi koma og kasta á mig kveðju kannski. En í staðinn lét hann bara eins og hann sæi mig ekki!
Mömmu var boðin ecstasy. Bara um miðjan dag út á götu. Sölumaðurinn ekki alveg að kunna að sirka út viðskiptavini. Ég skil samt ekki af hverju hún þáði það ekki. Það væri gaman að hafa eins og eitt stykki ofvirka mömmu sem leitar sér að slagsmálum og er með almenn læti og leiðindi. Tilbreyting.
Munið svo bara:
hvítur er enginn litur
svartur er allir litir
Þið eruð alveg ágætis grey, greyin mín.
:: G-Sus 16:51 [+] ::
...
:: sunnudagur, október 05, 2003 ::
Mamma var að hringja frá Schipol flugvelli og hún sagði að vinur minn til margra ára, hann Þorsteinn Guðmundsson, sæti þarna rétt hjá henni. Hún bauðst til að skila kveðju frá mér en ég afþakkaði. Hefði verið alveg hrikalega fyndið en hefði is the key word.
Enn og aftur lendi ég í því að geta ekki nálgast lag á netinu sem mig langar alveg óstjórnlega mikið til að eiga. Svona er að hafa one in a million tónlistarsmekk. Þetta er lag sem ég tók ekkert eftir fyrr en við svona 3 hlustun. Það er alveg efst í hausnum á mér núna þessa dagana.
Dutchmassive - Evaporate
Ég sá svo nokkrar sekúndur af Malcolm in the middle talsettum á íslensku. Það var ómögulegt að horfa lengur þar sem þetta var einn mesti viðbjóður í heimi. Þvílík mistök að apa eftir þessum súru löndum sem talsetja allt erlent.
I grab the mic and make MCs evaporate
All MCs let´s make one thing clear
The madness is on for the fuckers, you´ve been warned
Lethal rhymestyle consider it unbelievable
And that´s that...
:: G-Sus 19:17 [+] ::
...
:: laugardagur, október 04, 2003 ::
Var að sjá alveg geðveikt myndband á Popptíví. Við lagið Hey ya flutt af Andre 3000 sem er annar meðlimur tvíeykisins Oukast. Þeir gáfu út plötu núna fyrir stuttu sem heitir "Speakerboxxx/The Love Below". Þeir fara aldrei ótroðnar slóðir strákarnir okkar í Outkast og gefa plötuna út undir nafni Outkast en í raun eru þetta tvö sólóverkefni. Big Boi er með Speakerboxx og Andre 3000 með The Love Below. Aldrei séð þetta gert svona áður. Snillingar. Misskildir snillingar jafnvel.
Allavega þá er myndbandið algjör snilld og lagið alveg fínt líka. Andre er í öllum hlutverkum og sem söngvarinn er hann með slegið hár. Það er massan fyndið. Svertingjagaur með slegið hár passar ekki alveg einhvern veginn. En svo má líka taka tillit til þess að Andre er snar gaur. Hefur sést í gegnum tíðina.
Já, krakkar mínir. Þetta var skemmtilegt.
:: G-Sus 19:46 [+] ::
...
HÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ
:: G-Sus 18:56 [+] ::
...
:: fimmtudagur, október 02, 2003 ::
Skjár Tveir bara orðinn að veruleika. Jahá! Svo er það bara óruglað núna og náði ég einmitt Lethal Weapon áðan. Alveg örugglega 10 ár síðan ég sá þá mynd síðast.
Djöfull ætlaði ég að grenja úr hlátri yfir Atvinnumanninum. Þegar hann var að fara að gráta yfir því hvað sjómannsstarfið er viðurstyggilegt. Algjör klassík. Spurning samt að senda þessa sjómenn í Idol. Þeir voru að syngja betur en margir hafa gert. Britney Spears og sjómennska... Tvenna sem ég bjóst ekki við að myndi ganga upp.
Svo var líka eitthvað af þættinum tekinn upp í Hótel Loftleiðalauginni. Þar hefur maður nú verið margoft. Fór alveg milljón sinnum með pabba í denn. Jói sundlaugarvörður sást meira að segja í bakgrunninum. Magnidsjfklfied.
Mamma farinn til Amsterdam að reykja marijuana bara. Neeeeeiiiii. Hún er samt farinn til Amsterdam and I´m Home Alone! Ég verð að fara að búa til gildrur fyrir þjófa og öskra eins og fáviti þegar færi gefst til.
Læt hér aftur link yfir á myndirnar frá Danmörku. Ég fékk bara tvö komment sem vörðuðu myndirnar síðast og núna vil ég fá fleiri. Ef þið hafið neikvæð komment þá sleppiði að kommenta. Ég vil bara fá að vita hversu mikið eiginlega myndirnar rokka.
Svo er hér ein mynd sem ég var að bæta inn. Gleymdi henni síðast.
Af þessari mynd má sjá að í Grikklandi til forna voru hryðjuverkamenn í fullu fjöri. Þessi ungi maður heldur greinilega á handsprengju. Honum tókst ekki betur til en svo að hann sprengdi af sér hausinn, handlegginn og typpið. Sjáið bara sjálf.

:: G-Sus 22:19 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 01, 2003 ::
Djöfull hlakkar mig rosalega til að sjá The Last Samurai. Það stefnir í að vera alveg gríðarlega svöl mynd. It gives my the shivers down my spine!
Biðin tekur enda um miðjan desember sirka.
Svo kemur fyrri hluti Kill Bill eftir Quentin Tarantino um miðjan október. Þar fer maður með viti. Gerir bíómyndir án þess að hafa margra milljón dollara tæknibrellur til að afvegaleiða augað og gerir samt myndir sem halda manni alveg límdum við skerminn. Hann lét víst hafa það eftir sér í einhverju viðtali að honum fyndist lítið til koma til allrar þessarar excessive (finn ekki íslenska orðið) tölvugrafíkar. Sammála honum að mörgu leyti þar. Afturámóti hefði LOTR ekki verið gerð án tölva svo það er lítið hægt að fetta fingur út í hana þar á bæ. Daredevil er svo mynd sem er gott dæmi um leiðinlegar og tilgangslausar brellur og myndin sjálf er náttulega leiðinleg og tilgangslaus. Ég er enn að naga mig í handabökin yfir að hafa leigt þá ömurlegu mynd. Sökkar jafn mikið og hóra uppá velli sem sýgur belli...á Kana. Nei, þarna eru Rottweilerhundarnir aðeins að flækjast fyrir mér. Afsakið þetta.
Spurning dagsins: Er Danmörk borg? Eða ekki?
Another pointless blog at it´s end...
Well, see ya.
:: G-Sus 22:14 [+] ::
...
|