eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: þriðjudagur, mars 28, 2006 ::

[Blogger vill ekki birta færsluna mína í heild sinni svo ég deili henni niður í 2 hluta.]
Já, svei mér þá. Eftir að hafa lesið draugafréttina á mbl og hneykslað úr mér lungun yfir þessari vitleysu þá finnst mér kominn tími á dagbókarblogg. Ég heyri ekki í neinum, enginn heyrir í mér svo það er best að grípa til þessa svo fólk viti hvað ég hef fyrir stafni þessa dagana. Ég vil taka það fram að ég lifi svo merkilegu lífi að þið hreinlega ÞURFIÐ að vita þetta. Þetta er nauðsynleg vitneskja fyrir ykkur til að komast af.

Það sem hefur gerst:
Númer eitt er að ég keypti mér bíl. Ford Focus, 5 dyra, svartur. Auðvitað er hann svartur. Ágætis skref að kaupa sér bíl. Núna hugsa ég allt öðruvísi þegar ég er að keyra og ef það er mikill vindur úti og drasl að fjúka (eins og í dag og í gær), þá er ég með lífið í lúkunum. Ég hugsa semsagt eins og einhver algjör tussa sem þykir svaka vænt um veraldlegar eigur sínar. Kom mér mikið á óvart að ég skyldi hugsa svona, en fokk itt. Kannski er ég bara fáviti eftir allt saman. Búinn að vera nokkuð duglegur við æfingar að undanförnu, hvort það er TKD eða að lyfta uppí veggsport. Íslandsmótið í TKD var haldið seinustu helgi. Ég tók ekki þátt og sé eftir því núna. Way to go, Gústaf !!
Búinn að vera að vinna frekar mikið líka og þarf virkilega að skipuleggja vinnuna betur í næsta vaktaplani. Þegar maður þarf að keyra alla leið út á Granda þá er best að vinna ekki minna en 10 tíma vaktir svo maður fái eitthvað fyrir bensínpeninginn. Hagsýni Gústaf strikes again !!

:: G-Sus 18:27 [+] ::
...
Á döfinni:
Fer til Danmerkur á föstudagsmorguninn og kem aftur um hádegi á mánudag. Æfingahelgi sérstaklega fyrir fólk sem er að undirbúa sig fyrir dan beltagráður. Já, G-sus stefnir á 2. dan í sumar. Það er allavega planið núna, ég þarf að renna allsvakalega á rassinn til að hætta við. Svo eru það bara áframhaldandi æfingar og reggjúlar deilí stöff.
Laufey systir kemur svo til landsins yfir páskana í heimsókn þar sem hún kemur væntanlega ekkert heim í sumar. Það verður gaman að fá hana.
Afmæli eftir 30 daga. Tuttuguogfimm fokking ára. Þetta hlýtur að vera djók.

Man ekki eftir neinu sérstöku í viðbót. Vonandi að þið getið tekið eitthvað út úr þessum texta sem mun nýtast ykkur í framtíðinni.
Lifið eins heil og ykkur munar um.

:: G-Sus 18:26 [+] ::
...
:: mánudagur, mars 27, 2006 ::
hahahahahaha... AAAAAAAAhahahahaha
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1192716

AAAAAAAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA

:: G-Sus 10:41 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 24, 2006 ::
fókus... fóóókus... focus... Ford FOCUS !! Better yet... Ford Foc Us!

:: G-Sus 00:47 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 19, 2006 ::
Það fer rosalega í taugarnar á mér þegar það er talað um að einhver sé með svo og svo mikið "keppnisskap". Fínt að tala um keppnisskap þegar krakkar eiga í hlut, en það á ekki við hjá fullorðnu fólki. Ef þú ert fullorðinn og ert að keppa í einhverju, þá er það vegna þess að þú sjálfur tókst þá ákvörðun að æfa það sem þú ert að æfa og síðar meir keppa í því sama. Ég skrifa þessi orð því ég heyrði um helgina einn íþróttaþul segja að fótboltamaður í ensku úrvalsdeildinni væri með mikið keppnisskap. Fáránleg athugasemd. Auðvitað er maðurinn með keppnisskap, annars væri hann ekki inná vellinum. Verið að verðlauna einhvern skaphund með því að segja að hann hafi 'keppnisskap'? Mikið frekar að breyta þessu yfir í:
"Það er áberandi hvað þessi leikmaður er ekki eins yfirvegaður og allir hinir leikmennirnir á vellinum."
Það er mun nærri lagi.

Eftir þetta röfl þá er alveg rökrétt framhald að tala um rappmúsík... eða ekki. Allavega, tölum um rappmúsík.
Mér hefur þótt gaman að KRS-One lengi vel, en nú um helgina las ég grein um hann á wikipedia. Mjög áhugaverð grein og maðurinn hefur allt í einu stokkið upp um nokkur stig á 'áhugaverðaskalanum' mínum. Soldið töff bakgrunnur, gefið að þessi wiki grein fari með staðreyndir auðvitað.
Tjekkið á Criminal Minded plötunni með Boogie Down Productions (KRS one + Scott LaRock). Rapp af gamla skólanum eins og það gerðist best.
Annar gaur sem hefur vakið athygli mína og ýmissa annarra er hann MF DOOM. Að mínu mati einn sá áhugaverðasti í dag. Mikil forsaga hjá honum líka og töff hvernig ferill hans hefur þróast.

Hamist þið. Hamist þið endilega.

:: G-Sus 21:34 [+] ::
...
:: fimmtudagur, mars 16, 2006 ::
Sælar.

Herinn bara að fara. Bless bless. Eitthvað hef ég lítið fundið fyrir nærveru hans hérna á landinu og satt best að segja hefur mér bara verið alveg sama um veru hans hér. Ekki mikið gagn af honum hernaðarlega séð og kannski eins gott, en þessar björgunarþyrlur hafa allavega gert sitt gagn. Fólk getur verið að þusa endalaust um hvort herinn eigi að vera eða fara en ég tek annan pól í hæðina og er bara drullusama í staðinn. Enda er svaka töff að vera drullusama nú á dögum. Að vera drullusama er hið nýja diskó.

Tveir slakir hérna sem ykkar einlægur kokkaði upp einn góðan veðurdag.
Hvað heitir The Da Vinci Code á svartnesku?
Da Da Vinci Code

Hvað heitir The Da Vinci Code á tölvunördensku?
The Da Vinci Codec

Hvað heitir The Da Vinci Code á barnamáli?
Da da, da da. (úff, þessum var slengt inn bara núna rétt í þessu... ég ætti kannski bara að fara að sofa..)

Já, ætli það sé ekki best bara. Vinna í fyrramálið og svona.
Eins og gyðingarnir segja.. nei, ég meina, gárungarnir segja: Arbeit macht Frei!

:: G-Sus 23:17 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 12, 2006 ::
Æi, mér finnst eitthvað töff við að blogga á fartölvu uppi í rúmi með d&b / breakbeat í eyrunum. Það fer mér bara nokkuð vel að vera töff. Ég þarf að reyna að vera það svolítið oftar.

Það fer ekki lítið fyrir hugmyndaauðginni á þessu bloggi, ooonei!
Roses are read, violets are blue.
I'm a schizophrenic... and so am I.

:: G-Sus 23:42 [+] ::
...
:: þriðjudagur, mars 07, 2006 ::
Langt síðan ég hef verið svona upptekinn. Mér finnst það fínt. Stoppar mann í að gera margt annað sem er ekki til neins.

Það er líka eins og ég hafi verið að byrja í nýrri vinnu. Fluttir frá Símanum og komnir 'heim' til CCP út á Granda. Aðstaðan er allt önnur, við fáum 200 þús króna ferðatölvu hvert okkar og það er komið fram við okkur eins og fullorðið fólk, svona í grundvallaratriðum. Heimilisleg stemning og allt, jafnvel þó þetta sé núna orðið um 100 manna vinnustaður. Orðið sem kemur fyrst upp í hugann er hið ofnotaða 'Snilld'. Fyrirtækið er á hraðri uppleið, svo mikið er víst.

yfir í annað...

Watashi wa Nihongo o benkyo shimasu. (ég japönsku læri)

Já, ég hef verið að fikta við japönsku undanfarið, eða frá því í janúar, og stefnan er sett á Háskólann í haust. Þeir bjóða uppá eins árs nám í japönsku og ég vonast til að meika það. Ég býst allavega við því að ég meiki það, ekki eins og síðast þegar ég þraukaði 4.5 daga við Háskólann og fór heim í hádegishléinu á föstudeginum. Það var sérdeilis stutt stopp í heimspekinni. Mikið er ég feginn að ég fattaði að þetta var ekki fyrir mig á þeim tíma. Að daga uppi í einhverju sem þú hefur ekkert svo mikinn áhuga á er örugglega alveg hræðileg tilfinning. Ekki láta það gerast fyrir ykkur.
Allavega, japanska var það heillin og hver veit... kannski verður það bara Japan síðar meir.

Lýk þessu sjálfhverfa bloggi á töff texta frá Imani í Pharcyde:
„I got to kiss her ass, hold my tongue before I curse,
If you really want me, bitch... Take me for better or for worse.“

:: G-Sus 23:53 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 03, 2006 ::

Gaman að þessu hvernig þetta er hægt og sígandi að fjara út.

Einnig gaman að því að hafa unnið hjá Símanum niðrí Ármúla í 3 ár, nærri því upp á dag. Seinasti dagurinn í dag væntanlega sem við notuðumst við mötuneyti Símans þarna í Ármúlanum þar sem við erum að flytja til CCP, út á Granda. Það gerist mjög líklega á mánudaginn.
Ég semsagt fór í mötuneytið í hádeginu ásamt vinnufélögum og fékk mér að borða. Á þessum 3 árum hef ég aldrei hellt niðrá mig að ráði. Í dag, seinasta daginn, hellti ég hálfum súpudisk á klofið á mér. Það var gaman. Ef einhver vill fá súpu. Þá vitiði hvar hana er að finna.

Þá er spurningin stóra... hellti ég niðrá mig bara fyrir tilviljun eða var ég svo meðvitaður um að hafa aldrei klúðrað þessu að það loksins kom að því?
Heimspekin í sínu fínasta formi.

Hvernig skrái ég mig í Háskóla Íslands? Þarf ég að mæta á staðinn? Hvenær er frestur búinn til að sækja um fyrir haustönn?


:: G-Sus 23:36 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?