|
|
:: þriðjudagur, nóvember 28, 2006 ::
Howdy.
Mér lærist það með hverri vikunni sem líður að japanska er ívið flóknari en fólk hafði verið uppi að láta. Kannski er það bara af því að ég er svo mikill japönsku núbbi ennþá. Það er mjög gaman samt þegar maður getur sett hluti í samhengi sem maður hefur svo oft heyrt áður. Tek 'Ippon' sem dæmi. Maður heyrir oft í júdó að einhver vinnur á ipponi. Ippon þýðir ekkert annað en 'Eitt stig'. Merkilegt nokk, þá þarf bara eitt stig til að vinna í júdó... wow, deep. Það eru nokkur brögð í júdó sem þú getur skorað eitt stig með og önnur skora bara hálft. Tveir dagar eftir af skólanum og svo er það vinna og próf. Seinasta próf 21. des. Ég hef ekki farið í jólapróf í 5 ár... shiiii. Munnlegt japönskupróf, hljómar áhugavert, ikke??
Ég er að reyna að gera það upp við mig hvort ég eigi að horfa á myndina 'Children of Men' sem ég er með inná tölvunni. Hljóðið er svo svakalega slæmt að ég held ég bíði jafnvel fram í endann desember eða þangað til hún kemur í bíó. Helvíti áhugavert plott í henni.
Easy, peasy, lemonsqueezy.
:: G-Sus 16:50 [+] ::
...
:: miðvikudagur, nóvember 22, 2006 ::
Ég er kominn í eitthvað rokk stuð þessa daganna. Það mætti segja að ég væri að rokka. Það koma svona tímabil á hverju ári, svona einhverjir dagar sem ég kúpla mig frá rappinu og taktinum sem endurtekur sig í sífellu. Einnig þekkt sem hiphop tónlist. Núna tók ég mig til og dánlódaði held ég öllum albúmum með Alice in Chains. Og með dánlódaði meina ég auðvitað keypti löglega og með keypti löglega meina ég auðvitað ekki tilkynna mig til löggunnar!! Helvíti mikið af klassískum lögum með þessari hljómsveit. Því miður dó aðaltöffarinn (söngvarinn) úr ofnotkun eiturlyfja árið 2002 svo það verður ekki búið til meira efni með þeim félögum. Ég kemst að því betur og betur að rokk og hiphop músík eru ekkert ósvipuð að uppbyggingu. Rokk er líka endurtekning alveg eins og hiphop. Þetta gildir ekki um öll lög þar sem ekki öll rokk lög eru eins og ekki eru öll hiphop lög eins heldur. Það sem gerist í báðum tilvikum er að endurtekningin heldur áfram fram að viðlagi og þá er lagið brotið upp. Í rokki koma nýir hljómar inn en í rappi kemur mjög oft melódískur texti í stað 'rappaðs'. Já, alveg hreint magnað stöff. Annars eru Heaven Beside You og Junkhead að rokka þessa dagana.
Svo sá ég James Bond um helgina. Ég hafði engar væntingar og langaði ekkert sérstaklega að sjá hana. Vinnan bauð í bíó svo maður dreif sig auðvitað. Það verður að segjast að þetta er bara drullugóð mynd. Þessar Bond myndir sem maður hefur séð undanfarin ár hafa alveg farið gegnum annað augað og svo hefur maður grátið þeim með hinu. Eða eitthvað. Allavega ekki minnisstæðar myndir. Þessi er einhvernveginn öðruvísi. Daniel Craig sem Bond er svaka fínt. Hann smellpassar í hlutverkið. Harðjaxl dauðans.
Ég mæli með því að ef þið festið ykkur í snjónum, líkt og ég gerði á sunnudaginn, þá festið þið ykkur nálægt húsnæði björgunarsveitar. Í gær sat ég pikkfastur en fyrir skemmtilega tilviljun þá var Björgunarsveitin Ársæll í húsinu á móti, svona 50 metra frá mér. Eftir svona 20 sekúndur komu tveir menn gangandi til mín. Þeir hafa verið að bíða útí glugga eftir að einhver festi sig, þar sem annar mannanna sagði að ég væri svona tuttugasti bíllinn sem festist á þessum stað í gærmorgunn. Mæli með þessu. Hentugt mjög.
Hurru... annað var það ekki.
:: G-Sus 12:05 [+] ::
...
:: sunnudagur, nóvember 12, 2006 ::
Takið þetta próf fyrir mig og skrifið niðurstöðurnar í kommentin: http://www.jakemandell.com/tonedeaf/
Tekur 6 mínútur eða svo.
:: G-Sus 19:45 [+] ::
...
:: föstudagur, nóvember 10, 2006 ::
Ég verð að minnast á þetta. Heimsækið Hnakkus og skoðið nýjustu færsluna hans. Linkur hér til vinstri. EKKI GLEYMA AÐ SKOÐA KOMMENTIN! Fokk hvað fólk er rotið.
Og ekki gleyma að lesa færsluna hérna fyrir neðan heldur. Ef þið gleymið því, þá eruð þið rasistar. ;-)
:: G-Sus 13:46 [+] ::
...
:: fimmtudagur, nóvember 09, 2006 ::
Heido.
Það kemur mér sífellt á óvart hvað fólk getur verið með þankagang sem er svo ólíkur mínum. Ég veit ekki af hverju þetta kemur mér alltaf á óvart og er alltaf jafnnýtt fyrir mér. Nýjasta dæmið er sumt af þessu fólki sem er með mér í bekk. Ég er búinn að vera með því í bekk núna í 10 vikur og eftir fyrstu vikuna kunni ég nöfnin á öllum. Þetta er eitthvað sem mér finnst svo beisik að lenda ekki í því að vera á tali við bekkjarfélaga og vita ekki hvað viðkomandi heitir. Þessvegna tekur maður nokkrar mínútur í fyrstu vikunni og lætur heilann vinna. Ekkert svakalega strembið að tengja 20+ nöfn við 20+ andlit. Í dag komst ég hinsvegar að því að það er fólk þarna sem vissi ekki hvað ég hét. Kannski er það bara ég, ég veit það ekki. Maður fárra orða og allt það. Ég ímynda mér þó að ég hafi ekki verið sá eini sem þau vissu ekki deili á. Skondið nokk þá er þetta fólk með því klárara í bekknum. Það hlýtur að lifa bara í sínum eigin heimi dags daglega og er ekkert að spá í umhverfinu í kringum sig. Hversu ljúft væri að geta það eiginlega? Eins og að vera á eiturlyfjum en samt ekki. It's like having the cake... and eating it too!
Burtséð frá því, þá finnst mér ég vera svo svaka sniðugur þessa dagana. Vonandi eftir svona mánuð get ég montað mig af þessum hæfileika sem ég er að reyna að temja mér en mun ekki nýtast mér neitt. Það er alveg nóg að gera svona dags daglega svo ég veit ekki hversu sniðugur ég get eiginlega verið næsta mánuðinn en ég mun reyna. Allt fyrir bragging rights. Bis speter.
:: G-Sus 22:38 [+] ::
...
:: föstudagur, nóvember 03, 2006 ::
Það hafa örugglega allir spáð í þessu áður, en bjarnið aðeins með mér fólk þar sem ég er svo tregur frá náttúrunnar hendi. (Sáuð þið þetta! 'Bjarnið aðeins með mér'!! hohoho ég er svo sniðugur)
Nú á dögum þá er frekar erfitt að standa uppúr og skera sig frá fjöldanum. Ég er að reyna að finna ástæður fyrir því og það er margt sem kemur upp í hugann, en ég veit ekki hvort það eru góð og gild rök. Mikið af fólki sem er að gera nákvæmlega það sama kemur strax upp í hugann allavega. Skyld pæling er eftirfarandi, er hægt að vera á undan sinni samtíð á okkar tímum? Leonardo da Vinci er maður sem var langt á undan sinni samtíð. Það er hreinlega eins og hann hafi verið með ofurmannlegan heila miðað við þá heila sem voru starfandi fyrir 500 árum síðan. En það var þá og menn með forvitnina að vopni (auk þess að vera drulluklárir) gátu komist nokkuð langt á því. Í dag geturðu verið góður málari og krassað framandi hluti niður á blað en enginn tekur eftir þér nema þínir nánustu og kannski fólkið í hvítu sloppunum ef þú gengur aðeins of langt í framtíðarspánum. Þeir sem flett hafa sögubókum hafa rekið augun í ýmiss mannanöfn og hafa þurft að læra þessi nöfn vegna þess að mennirnir bak við þau teljast merkilegri en aðrir með tilliti til veraldarsögunnar. Hafa ekki allir lesið þá bók? (nojnojnoj !Sáuð þið þennan! Tilvísun í Viltu vinna miljón fyrir nokkrum árum síðan!! ég er svo...) Þessir menn afrekuðu eitthvað meira en flestir samtímamenn þeirra og þessvegna enda þeir uppi sem nöfn í sögubókum nokkrum öldum eða tugum alda seinna. Ég er ekki að tala um menn eins og páfann sem er í embætti sem fer sjálfkrafa í sögubækurnar. Og með menn á ég auðvitað við konur líka, ekki reyna að vera anal.
Spurning dagsins er: Hvaða maður sem er uppi núna munu komandi kynslóðir rekast á í sögubókum framtíðarinnar?
:: G-Sus 15:16 [+] ::
...
|