eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: föstudagur, febrúar 28, 2003 ::

Ég og systir mín erum ósammála um atriði í íslensku máli. Atriðið er hvort maður segi: „Ég skeini mig“ eða „Ég skeini mér“.
Hvort er rétt? Vitið þið það?

:: G-Sus 14:56 [+] ::
...
:: fimmtudagur, febrúar 27, 2003 ::
Mikið vona ég að Bush taki Saddam á orðinu og fari í kappræður við kauða. Ímyndið ykkur sjónvarpsáhorfið í heiminum ef að af þeim verður. Væri ekki sniðugt að hafa Ísland sem ræðupúlt í þeim kappræðum? Það gekk ágætlega að vinna úr kalda stríðinu hér á landi. Af hverju ekki að taka Persaflóastríðið með svipuðum stæl líka?

:: G-Sus 23:45 [+] ::
...
Ég var að koma af þessari TKD sýningu í MR...ehhh.... OKKAR SÝNING VAR MIKLU FLOTTARI þó ég segi sjálfur frá...
Það var ekki nema svona helmingur áhorfenda frá því í fyrra og það verður að segjast að þetta var alls ekki vel skipulögð sýning. Það sást nokkuð greinilega. Ég gerðist sekur um að flissa. Ekki stoltur af því en það gerðist óvart... Málið er að öskrin hjá svörtu beltunum voru alveg rosalega sérstök og það var svo fyndið að sjá fólkið í kring reyna að halda niðri í sér hlátrinum. Þá kemur það sér ekki vel ef e-r af sýnendum sá þetta vandræðalega augnablik hjá mér. Dem men! Besta við sýninguna var þegar einn strákurinn fékk spark í nefið og það fór að blæða. Það var gaman að sjá :)

Aiiight? Chill...

:: G-Sus 12:21 [+] ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 26, 2003 ::
Ég held það sé alveg staðfest að maður kíki á þessa Taekwondo sýningu í MR fyrramálið. Ég er of forvitinn til að gera það ekki. 90% viss að þetta eru fekkings Ármenningarnir...

Ehhhh.s?
Þetta Haloscan kerfi er algjört rusl!

:: G-Sus 22:51 [+] ::
...
Hlustendaverðlaun Helvítis eru í kvöld. Þau verða haldin í Borgarleikhúsinu. Skítapakk upp til hópa þetta fólk. Ég vil meina að til að vinna á þessari stöð og vera eilífðarhress þurfi maður að selja sál sína djöflinum. Svo var ég að skoða flokkana sem keppt er í.... „Hipp hopp ársins“? Hvað er það? Þessi setning er alveg fáránleg! Ég vona bara að FM-fólkið skemmti sér vel í kvöld í sínum draumaheimi óafvitandi að þau eru eins og vélmenni í augum okkar hinna sem þorum að standa andspænis raunveruleikanum og segja: „Bring it on!!!!!“

Já þannig er það nú allt saman...

Ég bætti við tengli á steiktan gaur sem heitir Kristinn. Ekki hef ég hugmynd um hvort hann sé kristinn svo ég nefni hann Heiðinn á meðan ég veit ekki betur. Nýr pistill hans heitir „Sökkar ass“ og þar telur hann upp allt sem sökkar ass. Tjekkið á því.
Svona að „gjalda tengil með tengli“ dæmi finnst mér alltaf jafnfyndið en óneitanlega einfaldar það manni blogg-rúntinn.

Lifið heil og munið að kjósa í könnuninni

:: G-Sus 17:33 [+] ::
...
Ég er nú bara það barnalegur að það tístir alltaf í mér þegar ég sé auglýsinguna fyrir Pússí kattamat.... Hvað um ykkur?

:: G-Sus 00:40 [+] ::
...
:: þriðjudagur, febrúar 25, 2003 ::







:: G-Sus 22:56 [+] ::
...
Þá er Daði kominn í prófíl á sportid.is. Það er gaman að sjá! Mjög fyndið hvernig strákurinn treður inn einkahúmor andskotans og þær 5 manneskjur sem skilja skemmta sér konunglega! Gaman að sjá Daði minn! Gaman að sjá!

:: G-Sus 17:56 [+] ::
...
Fer að sjá leikrit í kvöld með Steina. Ég veit ekki alveg hvað leikritið heitir en Menntaskólinn við Sund setur það upp. Sú sem er kærust Steina dansar í leikritinu og hann bað mig um að koma með sér því hann er svo hræddur við leikrit. Daði og Arnþór beila á þessu eins og við var að búast frá þeim enda skítbuxar miklir. Brynjari er ekki boðið því hann er svo leiðinlegur.

:: G-Sus 16:13 [+] ::
...
Hear Thee! Hear Thee!
Já gott fólk!!! Nú er tími fyrir ykkur sem eruð kristintrúar að gleðjast!!!
Jesús er til! Og það sem meira er... hann á heima á Íslandi og er 55 ára gamall!!!
Fullt nafn er Jesús Sigfús Hernández Potenciano.
Skv. Íslendingabók hinni síðari er ég ekki skyldur honum þar sem hann fluttist til landsins örugglega vegna ólgunnar í Ísrael. Það er samt gott að sjá að honum hefur verið tekið opnum örmum hér á landi þar sem hann hefur eignast afkvæmi í formi sonar. Hún María ól honum son. Mjög fyndið. Sá strákur er svo skyldur mér í 8. lið.
Og hananú!

:: G-Sus 01:42 [+] ::
...
:: mánudagur, febrúar 24, 2003 ::
Ég hef alveg gleymt í nokkra daga að úthúða þeim tveim mönnum á Íslandi sem fara mest í taugarnar á mér. Það eru þeir Siggi ógeð og Valli trunta. Þeir gerðust svo kræfir að kaupa Muzik 88.5 og eru nú búnir að breyta henni í enn aðra rokkstöðina! Hvað er málið með þessa gaura? Geta þeir bara ekki látið annað fólk í friði? Þetta er til þess að nú get ég ekki lengur hlustað á útvarpið með góðu móti þar sem mínar tónlistarstefnur eru hvergi í spilun. Djíses kræst!

Siggi and Valli sitting in a tree!
K-I-S-S-I-N-G!
First comes love, then comes marrage!
Then comes an unhealthy homosexual relationship you fucking homos!!!!

Jæja þá er að fara að koma sér í heraga gírinn. Barnaæfing bíður...

:: G-Sus 17:09 [+] ::
...
Ég held að Hrútarnir séu að fara að fella horn eða eitthvað álíka því fjölmennt var á About Schmidt í Regnboganum nú fyrr í kvöld. Steini hrútur, María hrútur, Buffhrútur og Slakihrútur (formerly known as Steiktihrútur) og ég skelltum okkur. Þetta er svona dramamynd með kómísku ívafi og er bara mjög góð. Jón Nikulásarson stóð sig með stakri prýði og felldi hann nokkrum sinnum tár í myndinni. Gott hjá honum. Sannir karlmenn gráta. Er það ekki? HA? Er það ekki?

Svo er víst íþróttavika að fara að hefjast í MR.. Heimildarmenn mínir úr MR hafa tilkynnt mér að það sé búið að auglýsa Taekwondo sýningu á næsta fimmtudag. Hmmm? Það hefur ekkert verið talað við okkur. Nema það hafi gleymst að segja okkur það. Einnig er möguleiki á að Ármenningar eða einhver fúlmenni hafi tekið frá okkur þessa sýningu. Við erum búinað vera með sýningu þarna undanfarin tvö ár. Það finnst mér magnað. Djöfull var mikið af fólki að horfa á í fyrra. Það var líka geeeikt gaman að sýna þá. Þetta kemur vonandi í ljós á morgun. Hálfpartinn vona ég að þetta séum ekki við því við erum ekki með neitt sýningarprógramm og þurfum því að skella saman einhverju en það skýrist á morgun.

OJJJJ!!!! Svo er ég með krakkaæfingu á morgun! Er einhver með góð barnauppeldis ráð?

Tvíkynhneigð.

:: G-Sus 01:46 [+] ::
...
:: sunnudagur, febrúar 23, 2003 ::
Familíuþorrablótið í gærkvöldi var nú skemmtilegra en ég ætlaði að það yrði. Mikið glens og gaman. Svo í gær fattaði ég hvaðan ég hef minn laka húmor... hann mun vera frá honum karli föður mínum. Þannig í gær var eins og ég væri að hlusta á sjálfan mig með eyrum t.d. Daða eða Brynjars. Guys, I know how you feel... Ég lofa að reyna að bæta mig...

Mikið af sniðugum sögum voru sagðar en ég má til með að deila einni þeirra með ykkur. Amerískur frændi minn, sem er nýfluttur til landsins, var þarna í gær. Hann heitir Eric og átti heima í Santa Monica í Kaliforníu áður. Þar á bæ eru margir skemmtistaðir og margar stjörnur sem stunda þessa staði. Eitt kvöldið stóð frændi minn fyrir utan einn næturklúbbinn og var á leiðinni heim og beið eftir því að e-r gaur næði í bílinn fyrir sig (eins og maður sér í kvikmyndum). Þá gengur maður upp að honum og tekur sér stöðu þétt uppvið hann. Eric ber kennsl á manninn og sér að þetta er Kiefer Sutherland. Hann reynir að láta þetta ekki á sig fá og horfir bara beint áfram. Auðvitað eins og gengur og gerist þá fylgja alltaf paparazziar stjörnunum og þetta kvöld var enginn undantekning. Flöss allt í kring um þá. Eric fann svo að gaurinn var farinn að halla höfðinu að sér og láta það hvíla svona á öxlinni. Honum var nú ekki alveg um sel og vissi ekki neitt hvað hann átti að gera með allar myndavélarnar í gangi í kringum sig. Svo allt í einu öskrar Kiefer Sutherland: HEY EVERYBODY!!! THIS IS MY GAY LOVER!!!!!

Þetta verður að teljast fyndin saga en til að fá the full effect þá er það eins og með margt annað... you had to be there...





Virkar svolítið gay þarna, ekki satt?

Tyson í gær. Sá úrslitin á mbl.is áðan mér til mikillar gremju. Djöfull er lakt að borga sig inn á svona bardaga!


:: G-Sus 12:19 [+] ::
...
:: laugardagur, febrúar 22, 2003 ::
Ég er svo kreisíj í dag að það er ekki lítið! Áðan ætlaði ég að fara og tjekka á svartbeltaprófi hjá Fjölnismönnum uppí íþróttahúsi Engjaskóla en þegar ég kom á staðinn runnu á mig tvær gínur. Þær réðust á mig og.... nei nei on with the story... Það var enginn bíll á bílastæðinu við Engjaskóla svo ég hugsaði með mér að prófið hlyti þá að hafa verið fært í Fjölnishúsið. Ég keyrði þangað og fór niður í TKD salinn. Þar voru krakkar í prófi og mér fannst það enn skrítnara svo það runnu á mig tveir menn sem hétu báðir Grímur. Þegar ég hafði stungið þá báða af þá talaði ég við einn Fjölnismanninn og á meðan ég var að forvitnast um þetta blessaða svartbeltispróf þá fattaði ég að ég var einum mánuði of snemma á ferðinni!!! Haldiði að ég sé nú! 22. mars hittist nebbilega líka á laugardag og það var það sem ruglaði mig. Af hverju er ég að segja frá þessu? Það veit ég nú ekki? Ég tek þetta allt til baka.

:: G-Sus 13:05 [+] ::
...
Ef það er til lakari þáttur en The Bachelor þá myndi það vera American Idol kjaftæðið. Þetta er titlað sem hæfileikakeppni og það er þá greinilega bara einn hæfileiki í Bandaríkjunum og það er að kunna að syngja. Allavega þá finnst mér það tímaeyðsla að horfa á þennan þátt og hann er 70 fokkings mínútur.

Þorrablót í kvöld með familíunni. Nenni ekki hálfur.

Er kominn í góðan gír með að niðurhlaða (eða nðurhala jafnvel) freestyle-um með Notorious B.I.G. Djöfull er gaurinn svalur.

Mest svalasta línan úr The Wickedest Freestyle:
Biggie Smalls is the wickedest, niggaz say I´m pussy, I dare you to stick your dick in this...

MEST TÖFF!!!

:: G-Sus 11:05 [+] ::
...
:: föstudagur, febrúar 21, 2003 ::
Það er komið nýtt orð. Ég hef tekið s-ið úr slakur til eigin nota og eftir stendur lakur. LAKUR!
Nú verð ég alltaf í essinu mínu.

:: G-Sus 12:39 [+] ::
...
:: fimmtudagur, febrúar 20, 2003 ::
Fyndið að ég var að blogga e-ð bull um varalestur fyrir stuttu og í kvöld áttaði ég mig á því að ég geri þetta hálfpartinn og ómeðvitað hingað til. Þetta augnavesen á mér varð til þess að ég má ekki nota linsur í mánuð meðan ég nota þessa augndropa. Þannig að á æfingu áðan varð ég að vera með gleraugu eins og e-r nörd! NÖRD! Svo eins og vant er þá er haldið í sturtu eftir æfingu. Ég náttulega ekki með gleraugun. (djöfull er þetta ljótt orð: gleraugu...) Allavega þá tilheyrir að allir tala hærra í sturtu vegna hávaðans í vatninu. Og þá kom það! Ég átti mjög erfitt með að skilja það sem sagt var í sturtunni því ég sá ekki varirnar á gaurunum þegar þeir töluðu! Alveg magnað ekki satt? Þannig að greinilega þá heyri ég betur ef ég er með linsur eða gleraugu hversu skrítið sem það kann að hljóma. Takk fyrir mig. Þið hafið verið alveg frábærir hlustendur! Takk! Takk!
Klapp! Klapp!

:: G-Sus 22:53 [+] ::
...
Hver sendir svona smáskilaboð:
In addition to extraordinary challenges, the past year brought us much to be grateful
í gegnum vit.is kl eitt að nóttu til.
Ég meinaða!
Djísús kræst maður.

:: G-Sus 16:52 [+] ::
...
Það er kominn nýr hrútur í leitirnar. Það er hann Lommehrútur. Í raun heitir hann Eiki og hann markaði spor sín á þessa síðu með kommenti við síðasta blogg. Hafið ælufötu við hliðina ef þið eruð ekki enn búin að lesa það.

Eiki, ekki skrifa svona aftur... or I will fuck you up! Boooiiiiii!!!

:: G-Sus 02:11 [+] ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 19, 2003 ::
Horfði á Kung Pow: Enter the Fist áðan. Stórskemmtileg mynd alveg. Ég hafði bara heyrt vonda hluti um myndina en mér fannst hún frábær. Maður hefur horft á of margar Kung Fu myndir og það var mjög gaman að sjá gert grín að þeim. Frábært að skíra vonda kallinn Master Pain. En svo vill hann láta kalla sig Betty! Döbbuðu raddirnar eru alveg stórkostlega fyndnar og kómískt mjög þegar ein persónan byrjar að raula með laginu sem er undir. Svo kemur hlé í myndinni! Frábær mynd.

Be cool, stay in school.

:: G-Sus 16:36 [+] ::
...
Var að horfa á Survivor: Amazon og ég finn mig knúinn til að blogga. Þetta er alltaf eins í hvert sinn. Samt horfir maður á þetta af og til eins og einhver kjáni. Fólkið mætir á staðinn, kveikir eld, reynir að búa til skjól og fer svo beint í það að baktala hvort annað. Ekki slæmt það.
Eftir að hafa horft á þáttinn vil ég meina að Tvíburaturnarnir hafi ekki hrunið heldur hafi þeir bara verið færðir til. Þeim var plantað framan á bandarískan leikfimikennara að nafni Heidi. Damn! Ðós þíngs ar hjúds!
Svo finnst mér ekki skynsamlegt að leyfa þessu fólki að ganga um með sveðjur. Þetta eru Bandaríkjamenn for crying out loud! Pottþétt e-r sem á eftir að skera af sér hendina eða e-ð...
Eina sem er öðruvísi frá fyrri keppnum er að það eru tsjellingar í öðrum hópnum og karlmenn í hinum hópnum. Tek þetta til baka. Úr því stelpustrákarnir töpuðu fyrir stelpunum þá eru TVEIR hópar af tsjellingum á sitt hvorum staðnum. Gæti verið að e-r vilji kommenta á þetta?
Svo er ein kellan heyrnarlaus. Ekki að það hjálpi yfirleitt en þá hjálpar það alls ekki í keppni sem þessari. Ojj hvað ég vorkenni henni. Hún kann samt að lesa af vörum. Ég vildi að ég gæti lesið af vörum. Þá væri ég alltaf að varalesa í góðum fíling. Kannski að labba niður Laugarveginn...að varalesa. Horfa á sjónvarpið með stillt á mute... að varalesa.

Að lesa af vörum: Manneskja sem les framan á hinar ýmsustu vörur.

Sem betur fer var gaurinn sem ég þoldi ekki strax frá byrjun rekinn burt. Einhverr cocky motherfucker.
Auðvitað held ég svo með Daniel því hann er gulur motherfucker. My asian brotha. Rizzpekt.
Ef þið sáuð ekki þennan þátt þá hvet ég ykkur til að kíkja á næsta, þó það væri ekki nema bara til þess að sjá Tha Twin Towers og heyrnarlausu konuna sem les af vörum.

Go nuts in the komments, pípol!!!

:: G-Sus 01:11 [+] ::
...
:: þriðjudagur, febrúar 18, 2003 ::
Þegar sagt er: Bring it on!, hvað er þá þetta it sem verið er að bringa?

Var hjá augnlækni í morgun. Ég er alveg búinn að fá nóg af þessum sviða sem ég fæ í augun þegar ég læt í mig linsurnar. Augnlæknirinn komst að því að sjónin á mér hefur versnað!!! Hvernig það er mögulegt veit ég ekki. Svo fékk ég einhverja mjög sterka augndropa sem ég þarf að muna eftir að láta í mig þrisvar á dag. Hversu ömurlegt er það? Það góða við þá er að þetta eru steradropar svo ég fæ örugglega geeikt mössuð augu!
neeeeeee

Til hamingju Daði með Reykjavíkurmeistaratitilinn. Þú hefur samúð mína Arnþór.

Slakur hnúfubakur

E.s.b. (híhíhíhí)
Ef þið viljið vita hvernig á að gera íslenska stafi á template-inu sendið mér þá póst og ég læt ykkur hafa þá óþvegna.

:: G-Sus 19:00 [+] ::
...
Hvaða ljóti maður er þetta!?!

:: G-Sus 12:07 [+] ::
...
:: mánudagur, febrúar 17, 2003 ::
Fyrirtæki bróður míns, B.T. Verktakar, er komið með heimasíðu. Síðan er öll glæsileg á að líta og ætla ég meira að segja að bæta henni inn í tenglana hér til hliðar. Ef svo ólíklega vill til að einhver sem þarf að helluleggja lítur óvart inn á þessa síðu þá hef ég gert minn hluta. Ef foreldrar ykkar eru að spá í hellulagnir, snjóbræðslur eða útlitsmótun lóða þá er ekki úr vegi að líta á síðuna og hafa gaman að! Tjekk it!

Ég er jafnvel að spá í að fara að raða þessum tenglum upp á nýtt í kvöld eftir æfingu. Allir í belg og biðu og læti.

Ekki er enn hægt að kommenta svo ég segi bara:
Síðastur til að kommenta er fúlegg!!!

:: G-Sus 16:34 [+] ::
...
:: sunnudagur, febrúar 16, 2003 ::
Fór í gær í fyrsta skipti á matsölustaðinn Austur Indía Félagið. Ég mun eiga eftir að fara þangað aftur pottþétt. Indverskur matur er þar á boðstólnum og þjó(h)na(ppa)rnir eru nærri allir indverskir svo maður verður að panta á ensku. Það er skrítið að panta á ensku á Íslandi. Mitt músíkeyra tók eftir því að bakgrunnstónlistin var ekki eins og við átti að búast. Ég greindi greinilega hip-hop takta og drum´n´base klóna. Ég og bróðir minn fengum svo að sjá diskana sem þeir voru að spila og þar mátti finna titla eins og: Buddha Beats, Buddha Bar II og III og Nirvana sounds (or sumphin´...). Alveg kostuleg tónlist. Remixuð af ekki verri mönnum en Roni Size t.d. Samt með svona indverskum hljóðfærum og stöffi blandað saman við. Mæli með þessum stað. Svo eru þjónarnir líka allir í geðveikt töff fötum. Svalur staður? Held það bara.

Myndir úr hinu árlega Hattapartýi Brynjars eru víst komnar á netið og komst ég að því í gærkvöldi. Smellið á smellnu myndina af mér, Bal og Arnþóri. Manni rámar í stafræna myndavél sem var á lofti allt kvöldið og voru teknar um 80MB af myndum. Á myndunum má m.a. sjá: fólk í góðum fíling, marga hrúta, M7 áskrifendur, leðurhomma, rúlluhomma og einn skítbuxa. Til að flækja ekki málin þá er ég sem sagt rúlluhomminn (takk Kristinn fyrir viðurnefnið) og Atli mun vera skítbuxinn eins og þið komist að hér og lítið á færsluna 2. febrúar.

Haloscan kommentakerfið er í ruglinu og því erfitt fyrir 3000asta gestinn að koma því á framfæri. Eins mikið og hann eða henni langar örugglega til að gera það...

:: G-Sus 18:03 [+] ::
...
Mikið assgoti er ég fúll yfir niðurstöðu Evróvisjón undankeppninnar. Mikið sökkar Birgitta ass. Svo er ég massa fúll yfir þessari símakosningu. Við vorum nokkrir hjá Brynjari að horfa á þetta og ég og Daði hringdum stanslaust í þessar 10 minútur en of mikið álag var á kerfinu svo ekki náðum við inn. Allir aðrir í herberginu náðu þó inn. Wack shit. Botnleðja rokkaði feitum hesti og mikið gaman að sjá strákana í ham. Trommarinn er geðveikur og svipar til Dýra í Prúðuleikurunum. Daði kom svo með þá hugmynd að úrslitin væru örugglega samsæri og var vel tekið undir það. Mín samsæriskenning er sú að allar litlar smástelpur hafi hringt sig saman og ákveðið að gefa Birgittu atkvæði sitt alveg sama hversu lélegt lagið væri. Eins og allir vita þá er Birgitta gyðja allra lítilla smástelpna.
Pælið í þessu: ef einhver annar en Birgitta hefði sungið þetta lag, hefði það unnið? No, sir.

Svo þegar ég kem heim þá segir mamma mér eins og ekkert sé sjálfsagðara að hún hafi kosið indíánastelpuna hana Birgittu. Ég sló mömmu auðvitað bara í gólfið og sparkaði í magann á henni meðan hún lá. Svo spurði ég hvort hún væri farin að skilja núna. Þá er bara næsta skref að finna bounty-hunter svo Botnleðja komist í staðinn.

:: G-Sus 01:38 [+] ::
...
:: laugardagur, febrúar 15, 2003 ::
Er ekki málið að kjósa Botnleðju í kvöld? Ég held það bara. Hversu gaman væri að sjá rokk á Júróvisjón? Svo myndu þeir kannski líka mæta í búningum á sjálfa keppnina. My mind is set.

Fólk bloggar lítið þessa dagana en mér er fokk sama og held ótrauður áfram út í eilífðina..

:: G-Sus 17:21 [+] ::
...
Nú lokins þegar ég er EKKI tilnefndur sem íþróttamaður ÍR frá TKD-deildinni þá er rosastór grein í Mogganum um þetta. What the fuck is up? Eru þetta persónuárásir gagnvart mér?

:: G-Sus 12:30 [+] ::
...
:: föstudagur, febrúar 14, 2003 ::
Þvílíkur vatnselgur er þetta sem hleypur hér um götur bæjarins. Be sure to check it out.

Ég og mamma fórum áðan og tókum til í geymslunni. Afmörkuð skemmtun það. Hinsvegar fann ég slatta af vinyl-plötum sem við hlustuðum á í barnæsku. Þar má finna gullmola eins og „Pétur og úlfurinn“, „Kardemommubærinn“ og „The Sound of Music“. Ég skellti Pétri og Úlfinum á fóninn og er búinn að hlusta á fyrri hliðina. Bessi Bjarnason slær í gegn. Það er mest gaman að hlusta á þetta. Ohhh... the good old days...
Svo fann ég líka lítið kúrekavesti sem ég var í þegar ég var tveggja ára. Það var skondið. Ég man eftir að hafa séð mig í þessu á gömlum myndum og gaman að sjá smægðina á því. Já gott fólk, ég er ekki hægt.

Svo er ný mús komin í hús.

Gestur #3000 fær vegleg verðlaun!

and I´m out like Tyson....

:: G-Sus 15:27 [+] ::
...
:: fimmtudagur, febrúar 13, 2003 ::
Ég hefði getað verið að fara til Lyngby (Kaupmannahöfn), Danmörku um miðjan mars... Svo fékk ég vinnu og þá var draumurinn úti. Ég hefði nú alveg verið sáttur við að fara þangað. Einu fótspor mín á danskri grundu voru þegar ég millilenti þar til að komast á æfingabúðirnar í Noregi sumarið 1999. Þá var ég einn by the way. Það var sérstakt...að ferðast einn þ.e.a.s. Það er svartbeltanámskeið frá fimmtudegi til sunnudags, þarna í Lyngby, um miðjan mars sem mig hefði langað á.
Ég held ég hafi bara heyrt góða hluti af Danmörku. Mig langar alveg rosalega að fara þangað og sjá sjálfur hvað allir eru að tala um. Ég verð sem sagt enn að bíða eftir tækifæri til að fara.. Noregur verður að duga í sumar í FIMMTA skipti. Það er fokkings oft. Samt er Noregur svakalega skemmtilegt land. Gaman að labba Karl Johans Gade á góðum degi. Frábært alveg. Magnetic jafnvel.

Vonandi eruð þið sæl.

:: G-Sus 23:08 [+] ::
...
úff... Það er svo langt síðan ég bloggaði síðast. Alveg bara síðan í fyrradag.

Djöfull er Helgi Áss Grétarsson magnaður gaur. Ekkert smá töff hvernig gaurinn var alveg einhverfur út í horni að muna skákirnar (as seen on TV). Hann tefldi 11 skákir en heimsmetið er víst 45 skákir. Það er alveg rosalegt men!

MR-Flensborg í dag. MR vinnur staðfest. Keppnin er víst háð í Vetrargarðinum í Smáralind. Þar sem árshátíð Framtíðarinnar er í dag þá voru víst hugmyndir um að flytja hátíðardagskránna, sem alltaf er í Háskólabíói, í Smárabíó. Sé þó ekki sal 1 vera góðan vettvang fyrir ræðuhöld... Anyhoo, who gives a flying ....

Ef þið hafið ekki séð myndina „The War of the Roses“ þá mana ég ykkur til að tjekka á henni. Hún er frá 1989 og ég hef þá líklega séð hana ca. 1990 eða 9 ára gamall. Hún hafði mikil áhrif á mig þá og svo sá ég hana aftur í gær og hafði mikið gaman að. Michael Douglas, Kathleen Turner og Danny DeVito leika aðalhlutverk. Hún fjallar um hjón sem eru madly in love fyrst um sinn en svo fer allt í háaloft þegar kellan biður um skilnað eftir 18 ára hjónaband. Mjög skemmtileg hvernig myndin þróast.
Eins og segir á coverinu:
Once in a lifetime comes a motion picture that makes you feel like falling in love all over again. This is not that movie.

:: G-Sus 12:43 [+] ::
...
:: þriðjudagur, febrúar 11, 2003 ::
„Amazing Grace, how sweet the sound,
That saved a wretch like me....
I once was lost but now am found,
Was blind, but now, I see.“

Amazing (G)Race er í kvöld.

Ég er alltaf að bíða eftir því að þau komi til Íslands. Ég held nebbilega að það muni gerast bráðlega. Ég á skyldfólk á Mývatni og fyrir ca. ári síðan talaði það um einhvern ratleik sem e-r útlendingar voru í og eins og því var lýst þá hljómaði þetta mjög líkt Amazing Race. Svo er mín ætt þekkt fyrir lygar og svik þannig ekki trúa því sem ég er að skrifa. Neinei allt heiðvirt fólk upp til hópa. Ég veit ekki hvernig málin standa þar sem ég missti af síðasta þætti. Ég er eins og Sviss og held ekki með neinum...

:: G-Sus 18:07 [+] ::
...
Þá eru tölur úr könnuninni komnar í hús og skiptust atkvæði sem hér segir:

26% sögðu „Já“ við því að ég bloggaði of mikið
6% fannst ég ekki blogga neitt sérstaklega mikið
66% sögðu ég bloggaði alveg temmilega mikið.

Þakka ég þeim sem kusu og þið hin sem ekki kusuð eruð algjörar kusur.

Krakkaæfing í gær. Það eina sem krakarnir gáfu mér var andleg vanlíðan. Æfingin er ekki nema 50 min en það er fjandanum erfiðara að hafa þau stillt þennan tíma. Rosalega hlýtur að vera erfitt að vera kennari í grunnskóla. Á æfingu get ég allavega látið þau gera armbeygjur ef þau eru ekki alveg að skilja... Mér finnst persónulega að það ætti að taka þannig kerfi upp í grunnskólum landsins. Það er núll agi á krökkum í dag (rosalega er maður fullorðinn..) og þau hafa bara gott af því að vera hegnt með nokkrum armbeygjum. Hvað finnst ykkur? Það er ekki erfitt að gera armbeygjur en það hljómar samt örugglega það scary í eyrum krakka að þeir myndu örugglega frekar hlýða en þurfa að taka nokkarar armhevinger. Einu sinni viðraði ég þessa hugmynd í vinahópnum og þá sagði Erling að ég væri bilaður að mig minnir. Ég sé bara ekkert rangt við þetta. Bendið mér endilega á það ef ykkur langar.

Svo á hann Daði „gamli“ Guðmundsson afmæli í dag! Til hamingju strákur! Þetta gastu!

See you später, chokoläter...

:: G-Sus 13:00 [+] ::
...
:: mánudagur, febrúar 10, 2003 ::
Kvikmyndagagnrýni sfatsúG

Fór í bíó í gær ásamt Daða og Arnþóri á „I Spy“. Loksins er Eddie Murpy í ekki svo slöku hlutverki og á góðar senur af og til. Það var mikið að maðurinn fékk e-ð sem talist getur bitastætt hlutverk. Myndin er svo sem allt í lagi en maður hefur nú séð þær ófáar betri.

Svo tók systir mín spólu í gær. Hún tók „The Sweetest Thing“. Ég sem hef ekkert að gera horfði svo á hana áðan. Ég hefði betur látið það ógert. Þema myndarinnar er typpi. Typpi og aftur typpi. I´m not shitting you people. Það má samt alveg hlæja af og til að myndinni. Þetta er þó svona „stelpur leigið hana, strákar ekki leigja hana“ mynd.

Svo var ég að fá símtal og ég verð víst með barnaæfingu í kvöld. 40 krakkar með njálg í rassinum hlaupandi út um allt hljómar hrikalega freistandi. Ætli maður verði ekki að hugsa: „En þetta er bara svo gefandi!“. Yeah, right.....

Fokk off.

:: G-Sus 14:57 [+] ::
...
:: sunnudagur, febrúar 09, 2003 ::
Þá er æfingahelginni lokið og klykkti henni út með þriggja tíma æfingu áðan. Eftir æfinguna fórum við svo nokkur á Kennarann sem við steiktan kjúkling er kenndur. Það var massann gott men! Maður verður e-n veginn að bæta fyrir þessi kíló sem maður missti um helgina. Ég hef annars lítið heyrt í ykkur um helgina. Hvernig hafið þið það?

Ég var að heyra nokkuð slakan brandara áðan og þar sem þeir eru svona „my thing“ þá læt ég hann fljóta hér með.

Lítill strákur kemur til pabba síns og segir:
„Pabbi, Pabbi! Ég var að horfa á klám áðan!“
„Hvað segirðu drengur! Það máttu ekki!“
„Jú jú þetta er í lagi. Þetta var nefnilega barnaklám!“

HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA o.s.frv...

Kannski er hann ekkert svo slakur... ég veit það ekki. Ég er allavega ekki dómbær á það.

Lokaorðin mín í þetta skiptið verða:
Shit, damn, motherfucker eins og lagið með D´Angelo.

:: G-Sus 15:37 [+] ::
...
:: laugardagur, febrúar 08, 2003 ::
Heilt og sælt veri fólkið.

Hvernig eruð þið í ´onum? Ekki bara slök? Gott að heyra.
Kom af æfingu núna kl. fimm. Fín æfing. Norski landsliðsmaðurinn Endre var með æfinguna. Meistari Michael tók hann með sér hingað til lands ásamt landsliðskonunni Christine. Þessi Endre gaur er jafngamall mér og snar og snöggur sem elding. Ég er ekki mikill ólympísk Taekwondo maður en það er gaman að sjá gaur á hans mælikvarða. Þetta er líka það eina sem hann gerir. Þetta er vinnan hans. Hluti æfingarinnar gekk út á það að sparka þéttingsfast (lesist: nærri því negla) í magann á hvort öðru. Það var gaman. Svo á morgun er æfing kl 11 í fyrramálið og þá ættum við ÍR-ingar að vera á heimavelli þar sem farið verður meira í hreina tækni. Áhugavert, ekki satt?

Þá er ég kominn með 5 æfingar á 3 dögum. Hefðu getað verið 6 en slök veikindi stoppuðu mig að fara á eina æfingu. SLAKUR!
Afsakið hvað ég er yndislega leiðinlegur mér bara dettur ekkert sniðugt í hug til að segja.

:: G-Sus 17:51 [+] ::
...
:: föstudagur, febrúar 07, 2003 ::







:: G-Sus 17:51 [+] ::
...
:: fimmtudagur, febrúar 06, 2003 ::
Nýr tengill hefur bæst við hér til vinstri á síðunni og er það EVE-ONLINE opinbera heimasíðan. Ástæðan er sú að ég fékk hringingu frá konu í dag sem tjáði mér að ég væri orðinn starfsmaður hjá EVE. Takk, takk. Ég byrja í byrjun mars og hlakka nokkuð til enda orðinn frekar þreyttur á að gera ekki neitt. Það leiðinlegasta við að gera ekki neitt alla daga er að fá aldrei frí....

:: G-Sus 19:59 [+] ::
...
Æfingin í morgun var alveg nákvæmlega eins og ég lýsti yfir í gær. Mjög góð. Það voru eitthvað í kringum 45 manns. Aftur æfing í kvöld frá 21:00 - 22:30 og svo æfing í fyrramálið 6:15. Það verður gaman að koma heim í kvöld, fara að sofa og fara svo á æfingu aftur. Það er ekki eins og maður hafi ekki gert þetta áður. Í gærkvöldi var ég að reikna saman hvað ég er búinn að vera í þessu dæmi lengi og það eru hvorki meira né minna en 8 ár.. Magnified.

Passiði svo að æla, prumpa, kúka og pissa ekki á ykkur.

:: G-Sus 14:43 [+] ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 05, 2003 ::
Ekki læt ég nú líða dag án þess að blogga... neeeeei það gengur sko ekki.

Þá er meistarinn kominn og það er æfing fyrramálið kl 06:15. Það er alltaf gaman á morgunæfingum og hefur maður farið á þær ófáar yfir ævina. Þær eru aldrei neinn killer enda er það ekkert hollt. Þær eru frekar hugsaðar til þess að fólki svitni kannski smá og vakni almennilega og teygi á og þess háttar stöff. Svo stefnir í gríðar fjölmenna æfingahelgi þar sem öllum öðrum félögum (Fjölnir, Ármann o.s.frv....) var boðið að vera með. Það hefur ekki verið gert í mörg ár svo það verður fróðlegt að sjá hvernig öllu fólkinu lyndir saman...

Semsagt tvær æfingar á morgun, tvær á föstudag, 2-3 á laugardag og 2-3 á sunnudag. Totally magnified! Ikke..?

Ég minni enn og aftur á að bókin er til sölu.

You are my sunshine, my only sunshine!
You make me happy when skies are gray!
You´ll never know dear, how much I love you!
Please don´t take my sunshine away!

Og nú eruð þið búinn að fá þetta lag á heilann og þá er takmarki mínu náð :)

:: G-Sus 22:51 [+] ::
...
:: þriðjudagur, febrúar 04, 2003 ::
Hatur mitt á ykkur er á undanhaldi enda ekki lengur ástæða til þess að vera í fýlu.

Ég var nebbilega á smá TKD tengdum fundi áðan og niðurstaða hans var öllum í hag. Fundarefnið var bókin sem ég gaf út ásamt félaga mínum núna síðastliðið haust. Bókin, sem er ætluð byrjendum í TKD, kostar einungis 1500 kr. og má nálgast hana hjá mér. Kaupið hana eða ég drep ykkur. Ég veit hvar þið eigið flest heima svo það verður ekki mikið mál.

Svo annað mál tengt mér úr því þetta er nú síðan mín.. Fyrir ekki löngu síðan sagði ég ykkur frá ljósmyndakeppni á ljosmyndari.is. Skemmtilegt að segja frá því að tvær af þessum þremur myndum sem ég sagði frá þá eru komnar í 26 mynda úrslit. Í byrjun voru þetta e-ð 400 myndir eða sumphin´... Mynd #1 er einmitt myndin af mér og honum Reyni! Alveg magnified! Svo er hin myndin #25. Kjósið og ég hætti við að drepa ykkur. Kaup kaups...

Word 2 yo motha´...

:: G-Sus 20:02 [+] ::
...
Mig dreymdi fáránlega í nótt eins og allar nætur. Í gær gat ég ekki sofnað og fór að horfa á sjónvarpið. Ég horfði á skásta kostinn sem var Ensku mörkin. Skemmtilega mikið af sjálfsmörkum og pungskotum og fleira skemmtilegu. Svo dreymdi mig draum. Mig dreymdi að ég væri markmaður og ekki bara markmaður heldur markmaður hjá Fylki. Bannað að hlæja. Ég veit meira að segja afhverju mig dreymdi þetta. Markmenn voru að sýna e-r snilldartilþrif í þættinum og þá fór ég e-ð að hugsa um Steina og hvort hann væri alveg hættur að æfa. Og þar er tengingin yfir í Fylki. Hvernig það breyttist yfir í að ég væri markmaður veit ég ekki. Þið verðið að spyrja Mr. Dreamweaver að því.

Ég hata ykkur samt ennþá og ekki halda að ég hati ÞIG ekki lesandi góður.

:: G-Sus 16:17 [+] ::
...
:: mánudagur, febrúar 03, 2003 ::
Þið eruð öll ömurlegir persónuleikar og ég hata ykkur öll.

:: G-Sus 23:21 [+] ::
...
Maður er bara enn nokkuð slakur veikindalega séð og er ég búinn að skipta við Übertraineren á æfingum svo ég þurfi ekki að fara í kvöld. Svo á fimmtudagsmorgunn byrjar æfingahelgin með meistaranum okkar honum Michael Jørgensen. Vonandi maður verði kominn í stand þá.

Skemmtileg pæling hjá einum Velvakandanum í dag. Þar er fjallað um orðið kryddsíld meðal annars. Á árámótum er alltaf þáttur sem ber þetta nafn og nafngiftin er útskýrð í þessari grein. Í dönsku er talað um kryds-ild þegar talað er um heitar umræður þar sem skotin eru látin dynja yfir menn og á ensku útleggst það cross-fire. Svo e-n veginn hafa dagskrárstjórar Stöðvar 2 misskilið þetta eða þá þeir séu að gera þetta viljandi með skírskotun í síld sem maður kaupir útí búð.

Já margt er skrítið í kýrhausnum. Ætli það orð sé líka e-r misskilningur....?

:: G-Sus 17:38 [+] ::
...
Vorum á alveg stórskemmtilegri mynd sem heitir "Catch Me if You Can". Titillinn er sko alls ekki grípandi en myndin er það. Það er alveg ótrúlegt að strákur um 17-18 ára hafi gert þetta sem kemur fram í myndinni. Satt er það samt því myndin er byggð á sannsögulegum atburðum sem gerðust fyrir einn mann. Það væri magnað að vera sá gaur... Ég hugsa að flesta, þá tala ég fyrir stráka, hafi dreymt um e-ð í líkingu við þetta eða geti fundið til einhverra tengsla við það sem þessi gaur komst upp með. Dagdraumar að rætast. Skemmtileg mynd og mæli ég með henni.

friður

:: G-Sus 02:37 [+] ::
...
:: sunnudagur, febrúar 02, 2003 ::
Ég var að lýsa því yfir rétt áðan við Brynjar að ég nennti ekki að blogga...

Í gær var mjög merkilegur dagur. Byrjum á dagsetningunni: 1. febrúar 2003 eða 01.02.03. Töff, ekki satt?

Klukkan tvö að íslenskum tíma í gær gerðist svo alveg hrikalegt slys í háloftunum fyrir ofan Texas í Bandaríkjunum. Geimferjan Colombia sprakk í loft upp með 7 manna áhöfn innanborðs en núna er meira talið, held ég, að geimferjan hafi rifnað í sundur. Hitahlífin á víst að hafa klikkað.

Upp koma spurningar í huga margra samsæriskenningamanna um að eitthvað gruggugt sé á seyði.... Ég tek það fram að ég er ekki einn þeirra en það sem ég hef lesið mér til er eftirfarandi:
Eins og flestir vita þá var einn Ísraeli um borð. Fyrsti geimfari Ísraelsmanna. Þá kemur strax samasem-merki í huga margra og slysið tengt við hryðjuverk. Ég held samt ekki...
Aðrir vilja meina að geimferjan hafi „sprungið“ fyrir ofan bæinn Palestine í Texas. Ísrael - Palestína.... e-r tenging? Ég held það sé erfitt að staðsetja geimferju sem er í 62(!!!) kílómetra hæð fyrir ofan e-t krummaskuð...
Svo að lokum vill fólk tengja dagsetningar saman, þ.e.a.s. 28. janúar 1986 fórst Challenger. Það merkir nærri því 17 ár upp á dag. Ég held þó að það sé tilviljun...
En hvað veit ég....

Þetta atvik hefur margar slæmar afleiðingar í för með sér og þá aðallega að fullklárun ISS (Alþjóðlega Geimstöðin) verður frestað um e-n tíma. Svo núna currently þá eru þrjár manneskjur í AG og þær hafa bara vistir fram í júní. Eftir Challenger slysið var hlé á bandarískum geimferðum í 3 ár. Vonandi sjá þeir sér þó fært að hjálpa fólkinu heim..

Gærdagnum lauk svo með árlegu Hattapartý Brynjars í gærkvöldi. Það var vel.

:: G-Sus 20:06 [+] ::
...
:: laugardagur, febrúar 01, 2003 ::
Hver fer með mér á leikritið Maðurinn sem hélt að konan hans væri hattur ?
Ef leikritið er jafn fyndið og titillinn þá held ég það sé schnilld!

:: G-Sus 15:14 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?