eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: fimmtudagur, september 29, 2005 ::

Hvernig má þetta vera? Hvar grafa þeir upp þessi 700 þúsund manns?
„We Are The Champions“ besta lag í heimi

Merkilegt nokk þá þoli ég ekki We are the Champions. Ef We are the Champions væri persóna þá myndi ég slá hana utanundir. Hver kýs svo "Toxic" í annað sætið? Er fólk mongó? Ef Britney Spears væri persóna, þá myndi ég slá hana utanundir.
Eina lagið þarna sem ætti möguleika á minn topp 10 lista væri Imagine. Ekki það að það sé eitthvað hægt að búa til svona lista með góðu móti. Of erfitt að velja og hafna.


Æ hvað ég vildi að það væru fleiri eins og ég... Þá væri heimurinn betri.. fyrir mig.

:: G-Sus 19:40 [+] ::
...
:: sunnudagur, september 25, 2005 ::
Fór í sund áðan. Handklæðinu mínu var rænt. Get náð í það gegn lausnargjaldi. Helvítis fólk sem man ekki hvert það lét handklæðið sitt og tekur bara það sem er hendi næst. Ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist. Meira í svona 4. skipti for kræíng át lád.
Þarf að láta hanna sérsaumað handklæði fyrir mig, eitthvað sem enginn annar vill láta sjá sig með. Gullhúðað handklæði með glimmer og stöffi. Aðallega stöffi.
Zat would doez ze tricks.

Nefnið fyrir mig tölu frá 1-100. Anonymous komment líka ef þið viljið.

:: G-Sus 22:40 [+] ::
...
:: föstudagur, september 23, 2005 ::
Já, fallegur dagur í dag.
Sólin skín. Það snjóaði áðan. Esjan er hvít ofan í rætur.

Mikið er ég að vona að ég vinni þessa Mastercard ferð til Grikklands. Strauja kortið eins og vitlaus maður þessa dagana svo ég eigi einhvern fjarlægan séns. Kuldi og ég eigum ekki vel saman. Ég myndi gefa annan handlegginn fyrir þessa ferð. Eða kannski ekki handlegginn, ég myndi allavega klippa á mér neglurnar.

Stay black.

:: G-Sus 15:26 [+] ::
...
:: miðvikudagur, september 21, 2005 ::
Þið vitið hvernig það er í tísku núna að hafa svona fjárfestingahópa. Margir hverjir eru þeir eitthvað blablabla Group, eins og Baugur Group, FL Group, Portus Group o.s.frv.
Mér datt í hug að næst gætu þeir kannski notað "Posse" eða "Clan" sem endingu.
Með þessari breytingu gætu Insane Clown Posse og Wu Tang Clan farið að taka þátt í þessum fjárfestingum og útboðum.

Góð hugmynd?

:: G-Sus 19:05 [+] ::
...
:: sunnudagur, september 18, 2005 ::
Þoli ekki þessa vælukjóa sem syngja vælulög og svo eru myndböndin þeirra þannig að þeir eru einhversstaðar í rigningu og helst vilja þeir vera berir að ofan. Búfokkinghú.
Gott dæmi um þetta drasl er hann James Blunt og lagið hans "You're Beautiful". Hrikalegt lag alveg. Textinn er einhvernveginn svona, allt helvítis lagið:
"You're Beautiful - You're Beautiful - You're Beautiful - It's true". Já hann James Blunt er bara helvíti blunt og segir greinilega það sem hann meinar.
James-I-want-to-stab-you-in-the-face-with-a-Blunt-instrument.

Takk fyrir.

:: G-Sus 17:53 [+] ::
...
:: föstudagur, september 16, 2005 ::
Nýjasta nýtt! Mongó sem spilar á bongó.


:: G-Sus 06:47 [+] ::
...
:: mánudagur, september 12, 2005 ::
Þið vitið hugtakið: "Maður lærir alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi"? Já, mér finnst það nú ekki alveg rétt. Ég hef til dæmis lifað marga daga þar sem ég læri barasta alls ekki neitt. Ég held meira að segja að sumir dagar hjá mér fari einungis í það að gleyma hlutum sem ég hef lært.
Manni lærist ekki neitt nýtt á hverjum degi nema maður beri sig eftir því.

Það sem ég lærði í dag, eftir að hafa horft á enn einn þáttinn úr COSMOS seríunni, er að orðið Google (sbr. leitarvélin handhæga) er upprunnið úr orðinu googol. Orðið googol er nafn yfir 10 í hundraðasta veldi. Kemur frá bandarískum stærðfræðingi sem spurði 9 ára frænda sinn hvort hann ætti eitthvað orð yfir rosalega stóra tölu. Frá googol kemur svo googolplex en það er 10 í googol-asta veldi (10 í 10 veldi sem er svo í 100-asta veldi).
Höfuðstöðvar Google heita einmitt Googleplex.

Skemmtileg pæling hjá þeim Google mönnum. Svei mér þá, já já.

:: G-Sus 23:12 [+] ::
...
AHA! Ég fann það! Ég er semsagt ekki klikk!! Þvílíkur léttir. Svo fann ég lagið á stað sem ég hélt ég hefði ekki verið á í gær einusinni. Eitthvað skammhlaup.
SKAMM HLAUP! SKAMM!

Lagið heitir Colossal Insight fyrir áhugasama.

:: G-Sus 01:12 [+] ::
...
Ef einhver veit hvað varð af Roots Manuva laginu sem ég var að hlusta á á sama tíma í gærkvöldi, þá má hinn sami/sama láta mig vita. Ég finn það ekki aftur ;'(
Var það ekki örugglega Roots Manuva?? Var mig að dreyma þetta? Þetta er fokkd opp sjitt í gangi hérna.

:: G-Sus 01:02 [+] ::
...
:: sunnudagur, september 11, 2005 ::
Ekki það að ykkur sé ekki alveg nákvæmlega sama, en þá eru Smif n Wessun að gefa út nýja plötu núna bara eftir nokkra daga. Það er kannski þess vegna sem þeir eru að koma? Eitthvað að kynna.. eitthvað.

Daaayum hvað ég vildi að The Pharcyde kæmi hingað. Ég myndi örugglega pissa á mig af spenningi.

:: G-Sus 13:34 [+] ::
...
:: fimmtudagur, september 08, 2005 ::
Smif n Wessun - Black Moon - Heltah Skeltah

Ef þið kveikið á akkúrat engu þegar þið lesið titil þessa bloggs, þá er ég hér til að mennta ykkur.
Þeir félagar Smif n Wessun, Buckshot úr Black Moon og Sean Price (Ruck) úr Heltah Skeltah verða að spila á Íslandi 7. október næstkomandi. Þessu má enginn missa af.
Allir þessir gaurar og grúppurnar þeirra (ásamt O.G.C.(Originoo Gunn Clappaz)) eru meðlimir af stærri grúppu sem kallar sig Boot Camp Clik.

Allavega, stemningin verður eflaust helvíti mögnuð þar sem þessir gaurar voru allir upp á sitt besta 'in the golden years of hip hop'. Kemst ekki öðruvísi að orði. Gáfu allir út plötur á bilinu 1993-1996 og þessar plötur eru núna klassík í heimi hip hop-sins.
Black Moon gáfu út "Enta da Stage" árið 1993 og eru nærri öll lögin á þeirri plötu góð. Þau sem mesta standa uppúr eru 'I got cha opin' og 'Who Got Da Props?'.

Smif N Wessun gáfu út "Dah Shinin" 1995 og þar er án efa besta lagið 'Bucktown'. Annað gott er 'Stand Strong' sem notar sama sampl og Quarashi notaði í einu af sínum lögum sem ég man ekki hvað heitir. Nema hvað, Kvaðrassi gerði sitt lag 6-7 árum seinna. Þriðja lagið sem vekur athygli er 'Let's get it on'.

Heltah SKeltah eru finnst mér ekki alveg í sama flokki og hinar tvær grúppurnar en eiga samt smelli engu að síður. Mjög "dimmur" hljómur í þeim, en töff samt. Nota Portishead sem sampl í einu laginu á fyrstu plötunni sinni "Nocturnal". Kemur ágætlega út. Annars er það 'Leflaur Leflah Eshkoshka' sem nær mestu athygli fjöldans býst ég við.

Svo niðurstaðan er þessi: Ef þið viljið athuga hvort þessi tónleikar 7. október séu eitthvað fyrir ykkur, þá er að ná í þessi 6 lög sem ég nefndi hérna á undan. Ef þið komist að því að þið eruð farin að slá hausnum í takt við lagið, þá eigið þið heima á þessum tónleikum.
Sé ykkur þá! Jáááááááámmm!

:: G-Sus 16:57 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 06, 2005 ::
Sé ekkert annað í stöðunni...

Nú hefst keppnin: Hver á síðasta kommentið?!!!

:: G-Sus 09:57 [+] ::
...
:: sunnudagur, september 04, 2005 ::
Sunnudagshugvekja dagsins er um tilverurétt.

Allir vita að suðurströnd Bandaríkjanna er í klessu. Fólk reynir að lifa af með því að stela sér til matar. Ég finn ekkert að því. Það er mjög eðlilegt. Hins vegar eru það glæpagengin á staðnum sem vekja mann til umhugsunar. Þeir rupla og ræna, þá ekki endilega sér til matar. Þeir nauðga og drepa fólk á meðan enginn getur björg sér veitt og nýta sér ástandið til fullnustu. Tíminn sem fólk kemst ekki af nema allir hafi svipaðan þankagang og þeir kjósa að taka allt annan pól í hæðina.
Þá er það spurning, eiga þessir menn sama tilverurétt og við hin? Það finnst mér svo sannarlega ekki.

Dauðarefsing for the win.
Ég vildi ég væri einvaldur einhversstaðar. Þetta er svo einfalt.

:: G-Sus 11:50 [+] ::
...
:: fimmtudagur, september 01, 2005 ::
Þá er það stóra spurningin fyrir veturinn...
Er það Taekwondo (svona nokkurnveginn) 10. árið í röð? Skvassið er svona aðeins meira og meira að ná tökum á mér, eða ég á því.
Taekwondo? Skvass?
Skvass? Taekwondo?
Þess má geta að ég er mættur aftur alveg eldsprækur á forsíðu taekwondo.is
It's just that time of the year..

Tvær myndir frá Benidorm. Báðar af mér auðvitað. Látið ykkur dreyma að ég sé að fara að pósta myndum frá einhverjum öðrum en mér hérna á *mínu* bloggi. Finnst þessar myndir skemmtilegar vegna þess að á annarri myndinni er Eiki að dást að mér á meðan einhver er að káfa á mér og svo á hinni er Atli að dást að mér.. eða kannski ekki. Held við séum báðir að horfa á hið stórkostlega cover band, The Music Factory.
Dást að baki nema sér bróður Eiki
Two Bitches

Ef einhver er í rapphlustunarstuði núna, þá er ég með tvær uppástungur fyrir ykkur til að downloada dánlóda niðurhala whateverthefokk.
'Up North Trip' með Mobb Deep af plötunni Infamous (10 ára gömul)
'Trife Life' af sömu plötu.
'Breakadawn (Foncett UK Remix)' með De La Soul. Verður að vera þetta tiltekna rímix.
Af hverju þessi lög? Því ég er með þau í eyrunum núna í þessu bloggi. Tjill stemning.

Svo er hérna að lokum uppáhaldsmynd allra. Skilaboðin eru ótvíræð.

:: G-Sus 00:25 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?