eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: mánudagur, mars 31, 2003 ::

Ég linkaði yfir á „leiðinlegasta blogg í heimi“ hér í blogginu á undan en það er algjör þversögn því það er ekkert hægt að finna leiðinlegt við þetta blogg.

DÆMI:
Operating a light switch
I entered the living room and pressed the light switch, thus turning the light on so that I could see what I was doing. A while later I left the room and pressed the light switch again. The light turned itself off.“

Tapping my foot
I heard some music on the radio. It had quite a beat to it, so I started tapping my foot in time with the music. When the tune came to a finish I stopped.“

Þetta er það súrt að það er sprenghlægilegt!

Ég frétti af síðu á netinu. Ég athugaði hana og við nánari athugun kom í ljós að síðan innihélt leiðinlegasta blogg í heimi. Ég las nokkur blogg og þegar ég nennti ekki að lesa meira þá hætti ég. Ég smellti svo á kommentin og sá að Ungverjinn hafði kommentað. Svo nennti ég ekki að skoða kommentin meira og hætti því líka. Ég fór síðan af síðunni yfir á aðra síðu.

Have I got it too!?!

:: G-Sus 13:59 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 30, 2003 ::
Skemmtilegasta blogg í heimi!!! Alveg ógeðslega fyndið!

http://www.wibsite.com/wiblog/dull/

:: G-Sus 16:13 [+] ::
...
:: laugardagur, mars 29, 2003 ::
Djísús men! Var að horfa á frænda minn Stefán Jakobsson syngja í söngvakeppni framhaldsskólanna. What´s up with that? Amma mín heitin og amma hans voru systur. Djöfulsins poppara útlit á gaurnum, slagar alveg upp í Sverri Bergmann. Svei mér þá ef hann vinnur ekki. Og svo bað mamma mig um að gefa honum 10 stig í símakosningunni...
Damn! I don´t usually support poppers...

:: G-Sus 21:58 [+] ::
...
Skotar bara svona skoskari en Íslendingar í dag! Ekki sá ég leikinn en þó voru mörk tilkynnt í vinnunni svo maður vissi hvað var að gerast.

Svo eitt alveg magnað! Í vinnunni kom gaur með 3 djöggl(?) bolta og kann hann vel að djöggla. Ég greip auðvitað í boltana og maður kann þetta enn! Það er örugglega eitt og hálft ár síðan maður var e-ð að fikta í þessu af viti. Fyndið að það virðast vera 1-2 juggler-ar á hverjum vinnustað. Ég lærði þetta hjá gaur í málningardeild BYKO og kannski lærir einhver annar þetta núna í deildinni hjá okkur! HA!!! Hvað segiði við því!?!
Örugglega ekki neitt ef ég þekki ykkur rétt....pakk...

:: G-Sus 21:05 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 28, 2003 ::
Slakleikinn er í all time high um þessar mundir...
Nú eru Daði og Arnþór á leiðinni til mín að horfa á upptöku af Gettu Betur og Friends og e-ð stöff. Ekki veit ég af hverju ég er að fá þá hingað... þeir eru svo ógeðslega leiðinlegir gaurar. Jæja... maður kýs víst ekki allt yfir sig.... Svo er helgin hjá mér búin núna þó svo hún sé rétt að byrja. Byrja að vinna í fyrramálið kl 8 og er til 20 og svo er sama rútína á sunnudag.

Where have all the fans gone?
Aðdáendur mínir til sjávar og sveita, kotungar sem sveitungar, háir og lágir hafa lítið fyrir því að heimsækja Svartasauð. Teljarinn sýnir aðeins helming þess sem áður var.... BÚHÚÚHÚÚHÚÚÚÚ!!!!!

:: G-Sus 21:48 [+] ::
...
:: fimmtudagur, mars 27, 2003 ::
Nú þegar maður er kominn með ADSL þá hreinlega eibar maður í downloadinu. Það er svakalegt men. Alveg svakalegt.... Ég er kominn með nokkra Futurama þætti og örfáa Simpson þætti. Og auðvitað notar maður DC++ í þetta allt saman. Maður er með svo takmarkað magn af downloadi, ekki nema 500 MB :( Það sem fer samt feitt í taugarnar á mér er minn sérstæði tónlistarsmekkur sem fáir deila með mér... Ég finn eiginlega engin lög sem mig langar í hjá öðrum notendum á DC++ en þó nokkrir eru að taka mína rappmútsík til sín. Vonandi sér fólk ljósið og fer að share-a meira híphóp :)

Ef e-r annar er að nota Direct Connect þá endilega segið mér nickið ykkar. Mitt er fokkdat. Aiiight?

:: G-Sus 22:49 [+] ::
...
Ég lenti í alveg fáránlegu áðan. Ég þurfti að skrifa leikfimi vottorð fyrir gaur í Taekwondo sem fæddur er ´79. Ég að skrifa leikfimi vottorð! Mér leið eins og ég væri 30 ára... ekki 21 árs. Ég lít nú bara enn á sjálfan mig sem litlu smástelpuna sem ólst upp í gettóinu....

Excel to yo´ motha!

:: G-Sus 13:33 [+] ::
...
:: miðvikudagur, mars 26, 2003 ::
Hversu slakir eru eiginlega Bandaríkjamenn og Bretar!?! Þeir eru alltaf að drepa hvorn annan! What´s up with that! Írakar örugglega hlæja sig máttlausa útaf þessu og leyfa Bandamönnum að sjá bæði um vörn og sókn.

Bandarískur frændi minn er að berjast í stríðinu. Afi minn og afi hans voru bræður. Ég hef séð hann tvisvar sinnum og fyrir ca. 10 árum, þegar hann var hér á landi, fór hann með okkur fjölskyldunni í sveitina. Hann fékk að keyra traktor og hann var alltaf með einhverja frasa úr Wayne´s World. Mjög hress gaur. Hann lærði svo í gengum bandaríska herinn og þess vegna var hann herkvaddur núna. Gengur um fullvopnaður í einhverri eyðimörk örugglega. Og jafngamall mér... Funny how live is. Ég get ekki ímyndað mér mig og vini mína í þessum aðstæðum.

Ekki gráta... Þetta verður alltílæ...

:: G-Sus 15:49 [+] ::
...
:: þriðjudagur, mars 25, 2003 ::

Tjekkið á þessum gaur! Þetta er gaurinn sem var alltaf að hlaupa upp klettaveggi án línu! Hann hét víst Dan Osman og mig minnir að hann hafi dáið þegar hann stökk fram af brú í teygjustökksstíl en ekki með teygju bundna við fæturna á sér.... Hann var með n.k. kaðal... Þetta minnir mig allavega en minnið mitt er ekki gott því ég er orðinn svo gamall.
Gaurinn er að „flagga“ á klettavegg óbundinn!!!!!!!!




:: G-Sus 19:37 [+] ::
...
„Málningarrúlla, málningarpensill... Tveir litlir málningarpenslar... Þetta heitir reykskynjari...“
Íslenskukennsla ríkissjónvarpsins slær öll met! Eins gott að útlendingarnir (e. the outlanders) séu að horfa á þetta. Þetta pakk þarf að fara að læra íslensku! Fordómar? Neeeeeeei... Hordómar. Prrrrrrrrruuuuuump! HAHAHAHAHAHA!

:: G-Sus 17:00 [+] ::
...
:: mánudagur, mars 24, 2003 ::
„Það ætti að jarða þig með rassinn upp og nota hann sem hjólastand!“
Þetta er svona gott comeback svar ef ykkur dettur ekkert annað í hug til að segja.

:: G-Sus 23:46 [+] ::
...
Hvaða dönsku dildóar eru eiginlega að brenna fánann okkar!?! Maður fyllist bara ósjálfrátt reiði út í þetta fólk. Að brenna þjóðfána finnst mér svolítið mikið mál. Það er náttulega bara old news að sjá þann bandaríska brenndan.... en þann íslenska??? What´s up with that???

Svo var Óskar vinur minn í heimsókn í nótt og fram undir morgun. Ég tók hann upp og horfði á hann áðan. Ég passaði mig á því að komast ekki að því hver hefði verið besta myndin og svo þegar ég var búinn að horfa tæpa 3 tíma á þetta þá gerðist NÁKVÆMLEGA það sama og í fyrra... Ég í sófanum að spóla yfir auglýsingar og fréttir byrja kl 12:20 í útvarpinu. Mamma að hlusta á fréttirnar. You figure it out...

Skemmtileg ræða hjá Bowling for Columbine gaurnum! Frábært hjá honum. Svo líka gaman að heyra Adrian Brody tjá sig. Lengsta ræða sem haldin hefur verið örugglega hjá verðlaunahafa. Hljómsveitin náði ekki einu sinni að hrekja hann í burtu. Svo var Steve Martin að gera góða hluti í högglínunum. Keep it up Marty boy!

Atli og Chelsea Clinton? Einhver tenging?

:: G-Sus 12:59 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 23, 2003 ::
Hææææææææææææææææææææææææææææææææææ!!!

Ég heiti Gústaf og ég er smástelpa. Ég er með tíkarspena og geng í bleikum kjólum. Áhugamál mín eru hestar, börn og Stundin okkar.
Takk fyrir.

:: G-Sus 22:35 [+] ::
...
Fokk men. 4 og hálfur tími eftir.... Ég er búinn að hlusta á 3 Chronic þætti! Gott að hafa þá á netinu. Það er alveg að bjarga geðheilsu minni.

:: G-Sus 15:35 [+] ::
...
Ohh sji!!! 8 tímar þangað til maður byrjar á 12 tíma vakt. Hvernig ætli það verði... Ég verð örugglega búinn að fá meira en nóg af tölvum annað kvöld. Annars var held ég eitthvað skrall í gangi hjá öðrum hrútum í kvöld. Maður treystir á fréttahaukinn hann Daða til að pósta samviskusamlega um það á morgun.

bæ for ná...

:: G-Sus 00:18 [+] ::
...
:: laugardagur, mars 22, 2003 ::
Ég var að horfa á sjónvarpið og þá var sagt að nafnið Saddam þýði „he who rebells“ en það er einmitt það sama og íslenska karlmannsnafnið Sverrir þýðir.

Sverrir Hussein?

:: G-Sus 18:27 [+] ::
...
JÁ! EINMITT!

:: G-Sus 12:20 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 21, 2003 ::
Ég var að sjá alveg hrikalega leiðinlega mynd sem heitir „Murder by Numbers“. Þvílíkt sökk. Maður heldur kannski, af titlinum að dæma, að myndin fjalli um morðingja sem drepi eftir númerum, eins og í biðröð í banka t.d., en neeeeeeeeeeiiiiii.... aldeilis ekki. Það eru tvö morð framin og ekki eftir neinum helvítis númerum. Sökk? Já.

Svo er ég kominn með nýtt email heima en það er nú gustafh@simnet.is
Recognize...

:: G-Sus 16:57 [+] ::
...
Ha! 4050 innlit! Hvað ætli það séu mörg útlit!?! ADSL. Ég bara svona flottur! Ég bara með ADSL og svona ógeðslega fyndinn!

Það er mér persónulega að þakka að Daysleeper spilaði á Gauknum í kvöld. Ég er með ADSL. Ég bað kallinn um að minnast á mig sérstaklega á tónleikunum og þakka mér fyrir að hafa skipt við sig um vaktir. Ég bara með ADSL. Hann ætlaði að íhuga það. ADSL.

Ég minntist hér á undan af og til á ADSL en það er vegna þess að ég er svo stoltur af þessari fínu tengingu minni. Þá vantar bara nýja tölvu :) Blikkblikk if you know what I mean hehe Doctor Green. Hehehoho blikkblikk og útaf. Loklok og læs og allt í stáli. Gráir fyrir járnum. ADSL. Bleeeeeh!

Bless. Dreymi ykkur vel og ADSL.

:: G-Sus 01:27 [+] ::
...
:: fimmtudagur, mars 20, 2003 ::
Djöfull eru Southpark fyndir þættir. Ég sá hann í gær á Popptíví og gaman gaman því ég hafði ekki séð þennan þátt áður. Virkaði mjög nýlegur því hann fjallaði um gaurinn sem borðaði massann Subway og sagðist hafa notað neðanjarðarlestirnar sem megrunaraðferð með góðum árangri. Fokk jú segi ég bara.

Það verða að líða 22,3 ár frá sorglegum atburði þangað til það má hlæja að honum skv. SP. Þess vegna var AIDS tekið í rassgatið í þættinum í gær. Mjög fyndið.

:: G-Sus 14:12 [+] ::
...
Ha? Hvað segirðu?

:: G-Sus 13:40 [+] ::
...
:: miðvikudagur, mars 19, 2003 ::
Ég viss´etta!!! Auðvitað er eitthvað fökk öpp eð þessa ADSL tengingu. Það geta engin tölvumál bara gengið smurt fyrir sig. Þetta er einhver alheimsregla held ég.

Hlaup á eftir, svo æfing, svo stríð. Nóg að gerast í kvöld. Stay tuned!

:: G-Sus 19:23 [+] ::
...
Ó men! Sex og hálfur tími þangað til ég mæti til vinnu aftur! Var að vinna í kvöld til 23:30. Rosalega er erfitt að sitja á rassgatinu og horfa á tölvuskjá. No really, það er geeeikt erfitt. Hlakka rosalega til að vinna 12 tíma vaktir... Úff...

Jæja þá er að tjekka hvort það er búið að virkja ADSL-ið hjá okkur.
Aiiight! Noooooooiiiiiiid!

:: G-Sus 00:47 [+] ::
...
:: þriðjudagur, mars 18, 2003 ::
Nú fyrr í kvöld á æfingu þá var Íraksmálið rætt eitthvað eins og vanalega í búningsklefum. Fyrir nokkru síðan var ég svona „nei, ekki stríð“ type of gaur en í kvöld áttaði ég mig á því að viðhorf mitt hafði breyst. Ég er meira fylgjandi því en ég var og svo var ræðan hans Bush að klárast núna. Vel skrifuð ræða fannst mér. Sniðugur leikur að ávarpa írösku þjóðina. Það er vitað mál að Saddam er náttulega algjört fífl sem byggir gígantískar hallir fyrir peninga landsmanna sinna og drepur þá hægri vinstri ef honum líkar þeir ekki. Auðvitað snerti Bush á því og sagði m.a.: „...no more torture chambers, no more rape rooms...“ MJÖG sniðugt. Þetta gæti hafa snert strengi í hjörtum Íraka og svo líka talið um mataraðstoð og lyfjagjafir. Djöfull fer það í taugarnar á mér þegar hann talar um kjarnorku og segir nukelar (núkelar) í stað nuclear (njúklíar). What´s up with that? Hefur hann ekki lesið enska orðabók? Well...
Hann gefur Saddam 48 klst. til að koma sér burt. Held að Saddam fari lítið. Ef maður ætti heima í Baghdad, myndi maður þá ekki drulla sér í burtu eins og akkúrat NÚNA? Damn, that shit is wack.
Saddam hefur núna 2 sólarhringa til að vera fyrri til og ráðast á Bandaríkin. Ætli hann reyni að gera eitthvað drastískt til að koma höggi á þá....

Svo einn slakur í endann:
Vitið þið hvað er vinsælasta lagið á diskótekum í Írak núna?
Jú! Lagið B.O.B. með Outkast eða Bombs Over Baghdad!
Ekki fyndið? Neh.

Takk samt.

:: G-Sus 01:50 [+] ::
...
:: mánudagur, mars 17, 2003 ::
Fórum nokkrir á alveg geðveika mynd í gærkvöldi, The Pianist. Rosalega raunveruleg mynd og maður getur vel ímyndað sér að lífið í ghetto-unum hafi verið nákvæmlega svona. Gó tjekk itt át. Jú vónt rígrett itt...

Ég er að skipta um tengingu um þessar mundir. ADSL 512 að koma í hús. Það á bara eftir að virkja línuna og það á að gerast innan tveggja daga. JÚHÚ!!!!!

Svo er lokaúrskurður í stríðsmálum due today. Eða kl 15:00 að íslenskum tíma. Það er einmitt núna. Best að hlusta á fréttir kl 16 og tjekka á mbl.is.

Pís át....

:: G-Sus 15:06 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 16, 2003 ::
Þá er þetta blessaða beltapróf búið. Tók ekki nema u.þ.b. 4 tíma í þetta sinn.

32 tóku próf og einn féll. Sá strákur (um 14 ára) féll eiginlega bókstaflega því þegar hann átti að taka sér sæti þá riðaði hann eitthvað og snerist í kringum sjálfan sig, geðveikt skrítið. Snögg viðbrögð Óla Björns (yfirþjálfarans) urðu til þess að hann féll ekki í gólfið því hann stökk upp og greip hann áður en hann datt. Ég sat bara og tók ekki eftir neinu. I have the speed and agility of a tiger! Það var semsagt að líða yfir strákinn en mamma stráksins var á svæðinu og kunni á þetta. Svo fór hann að hágráta. Ekki gaman. En kallinn fær að reyna aftur eftir mánuð. Vonandi nær hann þá. Jájá. Hananú.

Slakt gærkvöld hjá Daða. Sorry men, en ég stakk bara af og fór heim. Við horfðum þó á Muay Thai og free fight bardagana og svo líka á „Don´t try this at home“ heimildarmyndina. Djöfulli er Steve-O steiktur! Samt fjölhæfur andskoti...

„...´cause I can´t take it no more, this whole industry is POPPED!“

:: G-Sus 16:31 [+] ::
...
:: laugardagur, mars 15, 2003 ::
Í gær var starfsmannafundur kl 14 og svo kl 15 var farið í keilu í Keiluhöllina. Öll deildin fór og svo bauð síminn í pizzur og áfengi eða gos. Ég tók nú gosið því svo var ég að vinna til kl 2 í nótt. Sumir aftur á móti völdu bjórinn en voru samt að fara að vinna. Boy hvað þeir sáu eftir því. Ég held hann Svessi kallinn hafi drukkið 10 kaffibolla no joke. Svo er það víst þannig að maður getur tekið leigubíl á kostnað fyrirtækisins í og úr vinnu ef strætóar eru hættir að ganga. Ég var sá eini sem var á leiðinni upp í Breiðholt svo ég var bara með einkabílstjóra. Nokkuð nett. Svo er allt að koma til held ég í vinnunni. Maður er að læra inn á þetta hægt og bítandi. It´s gonna be the bomb yo!

Hva? E-ð hjá Dauðanum í kvöld?
Dæma í beltaprófi á morgun... Byrjar 12 á hádegi... Mæta um hálf... Slakur í kvöld?

„So if you see, what I see, you probably feel the same as me, cause I can´t take it no more, take it no more, cause I can´t take it no more, this whole industry is POPPED!!!“ Uppáhaldslagið um þessar mundir.....

:: G-Sus 11:48 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 14, 2003 ::
Þið eruð svo mikið hyski að það er ótrúlegt!!!

Þið kommentið ekki neitt þó svo ég biðji um hjálp ykkar! Ég spurði fyrir tveim bloggum síðan hvort einhver vissi hvernig reglan væri með all, hálf, jafn og lang. Veit það enginn? Ég trúi því nú ekki.

Jæja...20 min í útstimplun...

:: G-Sus 01:42 [+] ::
...
:: fimmtudagur, mars 13, 2003 ::
Í vinnunni var einn gaur að skoða eina fáránlega fyndna síðu sem heitir engrish.com. Eins og árvökulir lesendur tóku eftir, þá skrifaði ég stuttan pistil um málhelti Asíubúa fyrir ekki löngu síðan. Á þessari tilteknu síðu er gert grín að stafa- og orðarugli þeirra þegar þeir þýða hluti yfir á enskt mál. Það er alveg wicked fyndið að renna í gegnum þessa síðu og ætla ég að gefa ykkur smá nasaþef af djókinu.
Svo eru alltaf komment undir myndunum sem gera grín að þeim...




Upstairs to your left.....




I sure hope not!




:: G-Sus 00:38 [+] ::
...
:: miðvikudagur, mars 12, 2003 ::
Ágætis dagur í vinnunni í dag. Fórum nebbilega í fyrirlestur kl. 15 hjá CCP (Crowd Control Productions) sem er fyrirtækið sem býr til EVE. Það er staðsett á Klapparstígnum í grænu húsi. Það er alveg magnað flott hvernig húsið er innréttað. Tæknin svolítið í hávegum höfð og svona. Og svo er lítið hljóðver í kjallaranum þar sem hljóðin í leiknum eru búin til. CCP var stofnað 1997 af tveimur mönnum. Einn fyrirlesarinn var einmitt annar þeirra. Örugglega ekki meira en svona 30 ára gamall. Það fyndna er að þessir gaurar eru þeir sömu og bjuggu til Hættuspil. Hagnaðurinn af spilinu var svo notaður til að fjármagna þessa EVE hugmynd. Það er magnað. Að þetta sé allt íslenskt dæmi finnst mér alltaf jafnótrúlegt.

Hvernig er aftur reglan um all, hálf, jafn, lang? Ég man aldrei hvort það var eitt orð eða tvö.

:: G-Sus 18:28 [+] ::
...
:: þriðjudagur, mars 11, 2003 ::
Sælinú

Ég held að ógeðisdrykkurinn í 70 mínútum í kvöld hafi nú bara slegið öll met. Hann samanstóð af fiskasæði, lifur og sítrónusafa.

Svo horfði ég á Kapphlaupið ótrúlega áðan. Styttist í milljón dollarana. Homminn Ken rauk upp í áliti hjá mér því hann vildi ekki svindla á Flo og Zach. Svo er það greyið hann Zach... Flo er algjör tík sem er að slá sér upp með öðrum Tom Cruise klónanum fyrir framan nefið á Zach! Ef það er ekki klofningur þá veit ég ekki hvað það er... Þetta er bara eins og sápuópera. Samt skemmtilegt á sinn brenglaða hátt. Ég hefði haldið með John Vito og Jill hefðu þau haldið áfram en allir hinir eru bara skítapakk.

Survivor endursýnt á eftir... Held það bara!

Allir að kaupa EVE þegar hann kemur út 6. maí!!!!

:: G-Sus 23:06 [+] ::
...
:: mánudagur, mars 10, 2003 ::
„Nei. Ég fer ekki. Ég fer ekki í fangelsi.“ - Sódóma Reykjavík

Ég og Arnþór sáum snilldarmynd í gærkvöldi í Smárabíói, Punch-Drunk Love. Bíóferðin byrjaði ekki vel þar sem enginn vildi fara með okkur og svo þegar við gengum inn í Smáralind þá var varla líft fyrir einhverri fiskilykt. Mér fannst þetta vera megn hákarlslykt. Eníhúúú... Þá er þetta alveg einstaklega skemmtilega furðuleg mynd. Adam Sandler í öðruvísi hlutverki en vanalega. Þetta var engan veginn einhver Hollívúdd mynd. Það var frekar eins og maður væri að horfa á eitthvað frá Evrópu. Með betri myndum sem ég hef séð lengi. And roosterhú.

*Skemmtilegur brandari hér*
*Allir hlæja*
*Klappklapp*

:: G-Sus 19:54 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 09, 2003 ::
Þá er bara að vakna snemma í fyrramálið (á eftir) og fara að dæma á Vormóti Fjölnis. Gríðarskemmtilegt það. Ég mun dæma í Poomse eins og ég hef gert einu sinni áður. Þetta ætti að taka fljótt af þó þetta sé miður skemmtilegt djobb.

Vorum annars hjá Daða að horfa á boxið. Djöfull var Hjalti úrsus glataður! Hann tönnlaðist á nokkrum hlutum alla bardagana! „Þetta var sko BOMBA!!!“, „Já, hann er sko með stórt hjarta!“, „Þetta er að verða að götuslagsmálum!“ Hversu ömurleg var þessi lýsing eiginlega!!! Svo nenni ég ekki að skrifa um boxið sjálft. Það var bara eins og það var. Mjög fúlt að fá ekki að sjá Muay Thai bardagann eða free fight dótið....

Ég er ekki mikill bílakall. Þegar ég kem nálægt bílasamtölum þá forða ég mér alltaf í burtu. Ég veit ekki skít um bíla og finnst það ekki alveg nógu kúl þar sem það virðist vera svona strákalógó að geta slegið um sig með bílakunnáttu. Allavega þá sendi bróðir minn okkur eftirfarandi mynd í pósti og á ég til með að deila henni með ykkur. Þetta er mynd af concept bíl frá Cadillac og nefnist hann sixteen. Þetta er alveg óhemju flottur bíll og er hann 1000 hestöfl!!! Textinn sem bróðir minn lét fylgja með myndinni var:
„Ef satan ætti bíl þá myndi hann líta einhvern veginn svona út...“
Ég tek undir þessi orð.




:: G-Sus 01:40 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 07, 2003 ::
Gott að vera kominn í frí. Ég var bara nærri búinn að gleyma því hvernig tilfinningin er...

Ef ég þekki mig rétt þá verður þetta lök helgi og ekki hægt að finna neitt lekkert við hana. Just chillllllllll......

Ég notaði lekkert í gær þegar ég var að kenna. Ég var að sýna e-ð á honum Darra (þið þekkið öll hann Darra er það ekki?) og hann datt alveg eins og átti að gera. Þá sagði ég hann hafa dottið lekkert. Eftir æfingu kom hún Þóra Kjarval (þið þekkið öll hana Þóru er það ekki?) og spurði hvort hún hefði heyrt e-ð vitlaust eða hvort ég hefði notað orðið lekkert. Ég sagðist auðvitað vera töff fýr sem hefði mjög lekkert orðaval. Or sumphin´. Frábær saga hjá þér Gústi. Klapp klapp. Búið núna.

Disco?

:: G-Sus 23:54 [+] ::
...
:: fimmtudagur, mars 06, 2003 ::
Ég trúi ekki minni óheppni!!! Í vinnunni þá situr ógeðslega leiðinleg, holgóma stelpa við hliðina á mér og ég er alveg að fara að snappa á henni ef hún heldur áfram að vera svona fokkings skrítin. OK kannski óþarfi að segja hún sé holgóma...ég veit... Það mætti nú samt segja að ég sé byrjaður í ferlinu að snappa á því stundum spyr hún svo ógeðslega leiðinlegra óþarfa spurninga að ég þykist bara ekki heyra í henni. Gott hjá mér :)
Fyrsta daginn varð ég að skipta um tölvu og þá var hún ekki mætt. Af hverju ég varð svo óheppinn að velja akkúrat tölvuna við hliðina á henni veit ég ekki...

Ég var að skoða á netinu og fann þá hvað Blog þýðir... Ég verð að játa að ég vissi það ekki. Fyrir ykkur sem eruð í mínum sporum þá er það stytting á weB LOG. Og hananú.

:: G-Sus 22:43 [+] ::
...
Ég trúi ekki minni óheppni!!! Í vinnunni þá situr ógeðslega leiðinleg, holgóma stelpa við hliðina á mér og ég er alveg að fara að snappa á henni ef hún heldur áfram að vera svona fokkings skrítin. OK kannski óþarfi að segja hún sé holgóma...ég veit... Það mætti nú samt segja að ég sé byrjaður í ferlinu að snappa á því stundum spyr hún svo ógeðslega leiðinlegra óþarfa spurninga að ég þykist bara ekki heyra í henni. Gott hjá mér :)
Fyrsta daginn varð ég að skipta um tölvu og þá var hún ekki mætt. Af hverju ég varð svo óheppinn að velja akkúrat tölvuna við hliðina á henni veit ég ekki...

Ég var að skoða á netinu og fann þá hvað Blog þýðir... Ég verð að játa að ég vissi það ekki. Fyrir ykkur sem eruð í mínum sporum þá er það stytting á weB LOG. Og hananú.

:: G-Sus 22:39 [+] ::
...
:: miðvikudagur, mars 05, 2003 ::
Ég gleymdi að minnast á svolítið áðan. Ég mundi bara eftir því núna þegar ég var í sturtu. Þegar ég var að stimpla mig út áðan þá gekk ég á móti gömlum góðkunningja mínum. Gamli hrúturinn sem er húsvörður MR og gengur undir nafninu Hannes (Hrútur) blasti barasta ljóslifandi við mér! Það finnst mér magnaður skítur. Og það sem meira er þá var virkilega eins og hann væri að húsvarðast, með passa og allt. Fær gaurinn aldrei nóg? Húsvörður í MR as a day job og svo á kvöldin hjá Símanum. Ætli hann sé að vinna á fleiri stöðum strákurinn? Hann var meira að segja í rauð-fjólubláa-eitthvað rennda jakkanum sínum. Misskilinn snillingur...

Hej hej
Þeir fiska sem róa. Ó já.
Hej hej

:: G-Sus 21:47 [+] ::
...
Ég gleymdi að minnast á svolítið áðan. Ég mundi bara eftir því núna þegar ég var í sturtu. Þegar ég var að stimpla mig út áðan þá gekk ég á móti gömlum góðkunningja mínum. Gamli hrúturinn sem er húsvörður MR og gengur undir nafninu Hannes (Hrútur) blasti barasta ljóslifandi við mér! Það finnst mér magnaður skítur. Og það sem meira er þá var virkilega eins og hann væri að húsvarðast, með passa og allt. Fær gaurinn aldrei nóg? Húsvörður í MR as a day job og svo á kvöldin hjá Símanum. Ætli hann sé að vinna á fleiri stöðum strákurinn? Hann var meira að segja í rauð-fjólubláa-eitthvað rennda jakkanum sínum. Misskilinn snillingur...

Hej hej
Þeir fiska sem róa. Ó já.
Hej hej

:: G-Sus 21:45 [+] ::
...
Hellllllo Elaine! Hellllllo! La-la-la! la-la-la....

Ég var búinn að skrifa massann blogg í gærkvöldi en svo datt ég út af netinu og núna man ég ekki hvað ég skrifaði!

Var að vinna frá 10-18 í dag og þannig verður það víst í nokkra daga í viðbót. Þessi vinna er nokkuð fín. Sé þó fram á að þetta verði ekki alveg „the sweet life“ eins og ég hélt það myndi kannski vera. Þegar leikurinn er kominn út þá er möguleiki á nokkrum tugum þúsunda spilara í einu svo e-ð ættum við starfsmenn að geta fundið okkur að gera.

Leikurinn er ALLS EKKI lakur og alveg ótrúlegt hvað hann er flottur. Ég má nú ekki segja neitt um hann. Það er víst e-ð svona thing. Leikurinn kemur svo út 6. maí. It´s gonna be the BOMB yo!

Þegar maður byrjar á nýjum vinnustað þá er það alltaf geðveikt steikt að kynnast öllu fólkinu sem mun vinna með manni. Ég er svo mannfælinn að ég vildi helst sleppa öllu því ferli. Maður þarf að átta sig á svo mörgum persónuleikum og þannig stöff. Men!!! Ég nenni því ekki!!!

Búið.

:: G-Sus 19:36 [+] ::
...
:: þriðjudagur, mars 04, 2003 ::
Djöfull er þetta glatað! Ég get ekki lengur editað bloggið mitt svo það verður alltaf að heppnast í fyrsta! Ömmulegt skilurru! Eru fleiri að lenda í þessu?

Daði sýnir sinn innri mann (alveg eins og Daði nema bara minni) þegar hann leitast nú við að finna lakasta brandara sem ég hef frá mér látið. Mér finnst Daði ekki vera lekker gaur. Eggert er samt lekker fýr því hann notar orðið lekker eins og ég. You go girl!

Ég horfði á Smallville áðan þar sem Clark Kent tekur á hinum ýmsustu vandamálum. Hann var geðveikt tilfinningalega opinn því hann var með hring með rauðum steini og hann breyttist svo mikið persónuleika séð (ef þið skiljið þetta ekki þá er mér alveg nokk sama). Hann notaði m.a. röntgensjónina sína til að horfa á rassinn á Lönu og annarri stelpu! Mömmu og systur finnst leikarinn sem leikur Supersperm nei ég meina Superman svo lekker gaur. Mér finnst Lana aftur á móti geeeeikt lekker stúlka. ÚÚÚÚ dökkhærð!

Kveð í bili frá Breiðholti.
SO STEP UP IF YOU WANNA GET HEARD!

:: G-Sus 00:14 [+] ::
...
:: mánudagur, mars 03, 2003 ::
Mér finnst vera nokkuð töff dagsetning í dag: 03.03.03

Gleðilegan bolludag allir saman!!!

Stuttur vinnudagur hjá mér í dag, fyrsta daginn. Ca. klukkustund eða svo. Ég mætti niður í Ármúla og þar var tekið ágætlega á móti okkur 10 sem vorum að byrja í dag. Svo fórum við niður í Landsímahúsið hjá Austurvelli þar sem við fórum í myndatöku. Það er víst voðalega mikilvægt að allir hafi starfsmannapassa því allar hurðir eru þannig opnaðar hjá Símanum. Og þar með var vinnudagurinn búinn. Næstu tvo daga vinn ég frá 15:00 - 23:00 og svo á fimmtudag og föstudag vinn ég frá 09:00 - 17:00. Nokuð nett bara. Til þess að toppa snilldina þá hringdi ég í mömmu til að athuga hvar hún væri og þá var hún bara rétt hjá eða á Baldursgötunni! Ótrúleg heppni þar á ferð!
Ég fékk ágætis magn af lesefni um leikinn sem ég þarf að kynna mér fyrir morgundaginn og þá er bara að fara í það mál...en fyrst bollur!!!
Það munur litlu að það standi þarna böllur....

:: G-Sus 15:02 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 02, 2003 ::
Ég lenti í mjög skondnu atviki í gærkvöldi. Ég var úti að borða á Casagrande með mínum nánustu og þessi staður er greinilega svona the „in“ place því fólkið á Popptívi kom á eftir okkur og settist á borðið ská bak við okkur. Eins og það væri ekki nóg þá kom Valli sport stuttu seinna. Ef ég væri örlítið herskárri einstaklingur þá hefði ég troðið kerti upp í rassinn á honum. En ég lét það vera. Allavega þá var Popptíví liðið í góðum fíling og skemmti sér greinilega ágætlega. Aðalfólkið í þeim hópi voru Sveppi, Simmi, Auddi Blö og Birgitta Haukdal. Svo kom snilldin... Ég var að tala við kærustu bróður míns og sneri mér frá celeb borðinu. Svo er pikkað í öxlina á mér og ég lít við og er það ekki Auddi Blö sem er mættur á svæðið. Hann sagði að það hefði komið upp ágreiningur á borðinu þeirra og hann bað mig um að vera hlutlausan dómara. Ég sagði nú bara jújú og gekk með honum til hinna celebanna. Málið var að fá úr því skorið hvor væri leiðinlegri á fylleríi: Simmi eða Sveppi. Þeir héldu því sem sagt báðir fram að hinn væri leiðinlegri. Eftir smá þref dæmdi ég Sveppa leiðinlegri og þeir voru nokkuð sáttir við það. Svo spurði einhver i hópnum upp úr þurru hvernig mér fyndist Birgitta Haukdal með Pepsi listann. Ég gaf henni bara gott kredit þó mér fyndist þessi listi arfaslakur. Hún var mjög sátt við það og lét ánægju sína í ljós með því að gefa mér fæv. HA!!! Ég smellti fimmu á Birgittu Haukdal, kynþokka ársins að mati margra! Þið megið öfunda mig núna strákar.

:: G-Sus 12:39 [+] ::
...
:: laugardagur, mars 01, 2003 ::
Maður rekst á ýmislegt á ferð sinni um netið og þegar ég var að skoða dót í tengslum við EVE þá rakst ég á þetta.
Þetta er netútgáfa af aðaldagblaði Indlands og fyrirsögnin er á þessa leið:
„The small-made, big-eared elves of folklore...Do you know where they live? In Hafnarfjordur!“

Eins og vanalega hlæja Reykvíkingar að fólki sem á heima í Hafnarfirði en nú hefur heimurinn slegist í hópinn :)

:: G-Sus 17:46 [+] ::
...
Það er rosalega skrítinn mánudagur næsta mánudag. Þá verður alþjóðlegi samfaradagurinn haldinn hátíðlegur. Fólk labbar um í góðum fíling, flengir hvort annað og hefur svo samfarir eins oft og flengingarnar voru margar. Skrítin hefð. Er ekki annars örugglega bølledagurinn næsta mánudag?

:: G-Sus 11:02 [+] ::
...
Snatch að klárast bara! Pittinn alltaf flottur! Annars tók maður bara heimalninginn á þetta í kvöld eins og svo oft áður. Hrútarnir fara í bæinn en da Black ghetto sheep stays at home... Daði og Atli voru í vísindaferð í kvöld og Atlinn örugglega hress ef ég þekki hann rétt. Ég gerði mikið grín (hélt ég) áðan. Ég kallaði vísindaferð vísundaferð! Híhíhíhí! Þá sagði Daði mér að þetta grín hefði oft verið gert áður. Þá varð ég leiður. Aðallega bitur samt. Nýtt orð sem ég er að reyna að starta: lekker! Samanber lækker í dönsku. Djöfull ertu lekker!

Lekker!
Later...

:: G-Sus 01:51 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?