|
|
:: sunnudagur, janúar 30, 2005 ::
Jæja, ætli það verði ekki einhver bið á að ég pósti morphuðum myndum af mér hérna. Mitt ljóta fés myndi bara hræða ykkur í burtu. Það hræðir mig allavega.
Enníhú, fór í skvass áðan. Bara að slá sjálfur. Það var gaur í salnum við hliðina á mér að gera alveg það sama og honum datt í hug að við gætum tekið nokkra leiki. Mjög kærkomið þar sem maður er alltaf að spila við Eika. Gaurinn tók fyrstu stigin í 1. lotu en svo komst ég yfir og vann lotuna. Vann líka næstu lotu og var svo 3-0 yfir þegar tíminn var búinn í 3. lotu. Komst að því að hann byrjaði á svipuðum tíma og ég í skvassi, sagðist hafa byrjað í ágúst. Ég og Eiki byrjuðum í september.
Ég held það sé ekki spurningin að maður verður að fara að keppa í þessum skít bara til að sjá hvar maður stendur. Eiki keppti núna um helgina... gekk ekkert of vel stráknum svo ég býst ekki við miklu sjálfur. En mar verður bara að prófa.
Djöfull finnst mér töff að monta sig á blogginu sínu.
SNOOP DAAAAWG!!!
:: G-Sus 16:31 [+] ::
...
:: miðvikudagur, janúar 26, 2005 ::
http://www.dcs.st-and.ac.uk/~morph/Transformer/index.html
Skemmtið ykkur vel. Finnið andlitsmynd af ykkur, eða vinum ykkar, á tölvutæku formi og hlæjið vel og lengi.
Gaman að sjá apaútkomuna í þessu morphi. Líka gaman að sjá sjálfan sig sem konu.
Ég mun setja upp myndir von bráðar þar sem ég tek sjálfan mig í gegn. Vantar bara nýlega andlitsmynd af mér.
:: G-Sus 23:50 [+] ::
...
:: þriðjudagur, janúar 25, 2005 ::
Bætti inn nýjum tengli. Hefði átt að vera löngu búinn að þessu, letin að drepa mig. Það er enginn annar en hann félagi minn Jóel aka Dr. Jóli aka Doktorinn aka Dr. Kvondó sem áskotnast þann vafasama heiður að vera sýnilegur hér á síðu þessari.
Eruði búin að heyra það nýjasta? Íþróttafélagið Fram bara að fara að stofna Taekwondo deild. Langaði bara að deila því með ykkur.
Mikið hriiiiiikalega held ég að það starf verði allt farsælt... ;) Þeir skilja sem vilja.
:: G-Sus 01:23 [+] ::
...
:: sunnudagur, janúar 23, 2005 ::
Helgin liðin. Sorg og gleði og allur tilfinningaskalinn þar á milli. Viðburðarík helgi.
Þessi eilífi snjór og dimma hefur sitt að segja líka, án efa. Svo varð ég mjög hræddur í gær. Skrítið það. Og samt ekki hræddur beinlínis því hræðslan var þess eðlis.
Gott samt að telja sálfræðinginn sinn vera í formi bloggs sem er opið fyrir augum allra er vilja sjá.
Kvót dagsins:
„I just, might just, find somebody. I just, might just, love somebody and I just, might just, feel somebody. I just, might, just kill somebody.“ - Slug
:: G-Sus 21:13 [+] ::
...
:: þriðjudagur, janúar 18, 2005 ::
Djöfull er ég gay...
Þá er það komið á hreint. Ég er að fara til Parísar í byrjun júlí (5-10. to be exact) að horfa á ballett... Frændi minn er með San Francisco ballettinn í París á þessum tíma og erum við að fara að kíkja á þann skít. Ég fer með múttu, Laufey og kærasta og svo systur pabba og familíunni hennar. Verðum átta í allt.
Ég var nú soldið tregur að ákveða að fara með en svo hugsaði ég að ég mun hvort eð er ekkert eiga neitt leið hjá París á næstunni svo það er alveg eins gott að nota tækifærið núna. Svo eru þarna söfn og drasl til að skoða.
... ekkert að því að vera gay samt.
:: G-Sus 19:47 [+] ::
...
:: sunnudagur, janúar 16, 2005 ::
Busted!
Eruði ekki að grínast!? Drengirnir í Busted bara hættir!
Lesið um aðskilnaðinn hér eins og hann birtist okkur á mbl.is.
Það sem mér finnst merkilegast við þessa frétt er að ég hef aldrei nokkurntíma heyrt um þessa hljómsveit. Mér gæti hreinlega ekki verið meira sama og það yrði mjög krefjandi ef einhver ætlaði að reyna að vera meira sama.
Ég sýni þér fullkominn skilning, Charlie Simpson. Ég skil vel að þú viljir hætta í þessari kúkahljómsveit (væntanlega kúkahljómsveit þar sem ég hef aldrei heyrt um hana). Ég mun fyrirgefa þér þetta, ekkert mál.
G-sus hatar kúkahljómsveitir.
:: G-Sus 21:32 [+] ::
...
:: föstudagur, janúar 14, 2005 ::
Butters (í bjarnarbúningi): „I´m a bad bear... I´m a very bad old bear...“
Pabbi Butters: „You´re a grounded ol' bear!“
Það munaði minnstu að ég hefði tekið ROFL á þetta atriði, svo ógnar fyndið var það. South Park rokkar. Eitthvað annað en þið þarna.
:: G-Sus 21:53 [+] ::
...
:: þriðjudagur, janúar 11, 2005 ::
Fyndinn þessi Amazing Race þáttur. Þegar fólkið var að bera fram íslensku nöfnin. Ég lái þeim auðvitað ekki, en þegar stjórnandinn sagði Breiðamerkursandur þá heyrðist bara Gorglegorglegrr. Og þá hló ég við tönn og hugsaði... Djöfull ertu heimskur, tíkin þín!
Tilviljun eður ei? Svarti gaurinn heitir Gus.
:: G-Sus 22:58 [+] ::
...
:: sunnudagur, janúar 09, 2005 ::
Oldboy
Var að koma úr bíó af myndinni Oldboy. Fór með bróður mínum, Jóni Gnarr og konunni hans. Allavega settust þau fyrir framan okkur.
Segi það strax: Ef þið sjáið einhverja eina mynd í bíó á þessu ári, þá mæli ég með þessari. Jafnvel þó það séu ekki búnir nema 9 dagar af árinu.
Þetta er eitthvert magnaðasta plott sem ég hef séð and with a twist you´d never expect!
Myndin er frá S-Kóreu en ekki láta ykkur detta það í hug að þetta sé bardagamynd, þó svo hún sé frá Asíu. Helvítis fordómafulla hyskið ykkar.
Sjáið hana eða ég dreg úr ykkur tennurnar með klaufhamri.
:: G-Sus 22:32 [+] ::
...
:: laugardagur, janúar 08, 2005 ::
Held það sé bráðum kominn tími á annað 'Groundhog Day' áhorf. Enda alveg í anda myndarinnar.
Allavega..
Gleðileg tár.
:: G-Sus 04:43 [+] ::
...
:: miðvikudagur, janúar 05, 2005 ::
Heyrði áðan í sjónvarpinu að eitthvað lið í enska boltanum "hefur átt slæmu gengi að fagna". Fagnar maður slæmu gengi?
A-hole.
Í Bandaríkjunum getur Tony verið kvenmannsnafn og sömuleiðis Sandy verið karlmannsnafn. Isn´t dat weird?
A-holes.
Ég er með alveg hrikalega pirrandi kæk(fyrir utan að vera með Tourette auðvitað). Ef ég er að lesa bók, alveg sama hvort mér leiðist hún eða ekki, þá lít ég alltaf aftast og tjékka á því hvað bókin er margar blaðsíður. Svona eins og ég geti ekki beðið eftir að klára hana. Þetta finnst mér sjálfum mjög skrítið og nú hef ég ekki hugmynd um hvort ég sé einn um þetta, finnst það ólíklegt samt. Við erum nærri því öll eins. Ég fór að spá af hverju þetta gæti stafað og sættist á tvær hugsanlegar niðurstöður. Ein er sú að þetta sé kækur frá því í grunnskóla þegar maður las leiðinlegar skólabækur og vildi vita hversu mikill hryllingur var eftir. Hin er ekki eins djúp, einfaldlega það að ég sé óþolinmóður dauðans og haldi athygli á við blómkál.
I am indeed an a-hole. Indeed.
Leitah, A-holesses.
...G-Minor
:: G-Sus 22:43 [+] ::
...
:: sunnudagur, janúar 02, 2005 ::
Já svei mér þá, 2005 dottið inn. Gleðilegt ár and all dat shi.
Djöfull langar mig að segja ykkur frá því að áramótin voru ömurleg en ég sleppi því. Gærkvöldið var líka ömurlegt (fyrir utan þegar ég rústaði New World spilinu). Helvítis ******* sem tók mynd af mér á Sólon. Hvað er fokking málið? Ha, Eiki? Frábært hvernig þú getur verið svona sniðugur alltaf.
Ef ég væri kennari þá, uppúr svona miðjum apríl-maí, myndi ég vorkenna nemendum mínum.
(Get it? I bet you don´t.)
:: G-Sus 20:05 [+] ::
...
|