|
|
:: mánudagur, október 31, 2005 ::
Gaman að sjá að það helst ekki í hendur að vera skemmtilegur og fyndinn leikari og að vera skemmtilegur og fyndinn í alvörunni. Er að horfa á 4. seríuna um Seinfeld og kumpána hans. Eitt aukaefnið á disknum er svona 'inside looks' þar sem leikararnir tala um einn og einn þátt í einu. Alveg merkilegt hvað Jason Alexander (George) og Michael Richards (Kramer) eru leiðinlegir gaurar. Svona gaurar sem reykja pípu og segja af og til "Hmm.. yes. Quite". Herra Richards t.d. verður frekar fúll þegar einhver klúðrar töku með því að flissa eða hafa gaman að þessu á einhvern hátt. Allt í góðu samt þegar hann klúðrar því. Þá er það bara fyndið. Manni langar ekkert að horfa á viðtölin við Jason Alexander. Hann er bara ÞAÐ leiðinlegur. Ætli manni verði ekki að lærast einhvern tímann að sjónvarp og raunveruleiki er ekki það sama.
Meðan ég er á þessum nótum..
Horfir einhver á "Örninn"? Þetta er fínir þættir en eins og með svo margt annað, þá finn ég eitthvað til að pirra mig út í. Hérna er pirringnum öllum beint að honum Hallgrími og hans uppruna, þ.e. hálf íslenskur. Leikarinn talar ekki íslensku og það er vandræðalegt að heyra hann æla út úr sér orðunum sem einhver kenndi honum að segja nokkrum mínútum áður en atriðið var tekið upp. Svo talar hann stundum dönsku og stundum íslensku við hana Jóhönnu systur sína. Við erum að tala um í sama atriðinu! Hvaða fávita fannst það vera góð hugmynd? Persónan á svo líka að tala þýsku reiprennandi og eitthvað í rússnensku. Er þetta ekki eins þar þá? Ætli hann tali eitthvað í þýsku? Líklegra en íslensku væntanlega vegna legu landanna og allt það.
This makes me a saaaaad panda.
:: G-Sus 12:44 [+] ::
...
:: laugardagur, október 29, 2005 ::
Mikið svakalega er forseti Írans hress gaur! Það má alveg setja spurningamerki við hvort það hafi verið rétt ákvörðun að leyfa myndun Ísraels en vá, gaurinn er svei mér róttækur. Ég er svakalega ópólitískur maður en ég tel mig vita hvenær fólk hefur algjörlega misst það. Hversu öfgafullur getur einn maður orðið? Samt.. getur verið að þetta sé eitthvað svona "Lost in Translation" dæmi? Að "þurrka Ísrael af landakortinu" gæti náttulega táknað ekkert annað en að hann ætli að mæta með Heiðari snyrti og kellingunni og þurrka af þarna í Ísrael. Svona a la 'Allt í drasli'.
Ég veit ekki.. Ég tala ekki djurga djurga.
"My grandpa was a lesbian, that makes me a quarter-lesbian!" Cartman
:: G-Sus 11:39 [+] ::
...
:: fimmtudagur, október 27, 2005 ::
Er ekki kominn tími á að það gerist eitthvað?? Eldgos, jarðskjálfti, fellibylur, fuglaflensa, ný tegund af gosdrykk, EITTHVAÐ!?
Nenni ekki þessu normi lengur. Þarf að hrista þetta upp.
:: G-Sus 22:05 [+] ::
...
:: þriðjudagur, október 25, 2005 ::
Hvað segiði með þessa fuglaflensu? Núna er ég alls ekkert að stressa mig yfir henni. Á maður eitthvað að vera að því? Eru ekki líkurnar á að maður smitist og drepist hverfandi? Mér finnst nú allt í lagi að stjórnvöld geri varúðarráðstafanir og þannig og ég er nokkuð viss um að þessir tveir félagar fá ekki að stíga fæti inní landið.
Larry Bird (frá Boston) og Big Bird (frá Sesame Street)
 Larry Bird er þessi til vinstri.
:: G-Sus 23:30 [+] ::
...
:: sunnudagur, október 23, 2005 ::
Mér fannst þetta svo fyndið að ég bara varð að blogga og koma þessu frá mér.
Ég er að horfa á leik Everton og Chelsea og Everton komst yfir með vítaspyrnu. Vítið fór í slánna og inn. Þá heyrðist í öðrum lýsandanum (svona nokkurnveginn orðrétt): "Sláin inn eða stöngin inn! Algjörlega óverjandi! Það er búið að sanna það!"
Vona svo sannarlega að hann hafi verið að grínast, en ég hugsa einhvernveginn ekki.
:: G-Sus 15:56 [+] ::
...
:: þriðjudagur, október 18, 2005 ::
Eitthvað held ég að hann Gústaf Halldór sé búinn að missa það... Eða þá að hann hafi bara nógan tíma til að eyða í ekki neitt.

:: G-Sus 21:22 [+] ::
...
:: sunnudagur, október 16, 2005 ::
Svakalega er 'The Descent' hrikalega hrikaleg mynd! Þetta er hrikalegasta mynd sem ég hef séð í áraraðir. Farið á hana í bíó og skemmtið ykkur konunglega. Kennir ykkur líka að vera ekki að halda framhjá.
Heyrði þennan líka smellna brandara og langar mig að deila honum með ykkur. Hann er á útlensku svo það er kannski ekki úr vegi fyrir ykkur sem eruð ekki svo sleip í útlensku að hafa útlensk-íslenska orðabók við höndina:
Billy walked up to his father and asked him what the difference was between 'Theoretical' and 'Practical'. "Well Billy, in order for me to explain this to you, first go to your sister and ask her if she would be willing to give up her virginity for 1 million dollars." Billy ran up to his sister's room and asked her the question. He came back down to his father and said, "Yes, she would be willing to do that". "Alright," said the father, "now go to your mother and ask her if she would be willing to do it with the neighbour for 1 million dollars". Again, Billy ran up to his mother and asked her the question. He came back down and said to his father: "Yes, she would be willing to do that". The father then replied: "OK. Theoretically we are sitting on 2 million dollars. Practically.. we are living with a couple of whores."
Æ KARAMBA!!!
:: G-Sus 21:49 [+] ::
...
:: föstudagur, október 14, 2005 ::
Enn einn æsispennandi föstudagurinn í margbrotnu lífi G-sus að kveldi kominn. Hanastélið úr Tómri Krús rann ljúflega niður. Langt síðan maður sá þessa kviku mynd seinast. Hugljúf og endar vel. Eins og það á að vera... Allavega núna.
Vinna vinna vinna lyfta lyfta lyfta sofa sofa sofa borða borða borða
Gott ljóð? Vantar stuðla og höfuðstafi en ég er allavega að reyna.
Sjitt.. nærri búinn að gleyma...

:: G-Sus 22:26 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 12, 2005 ::
Þetta hip hop kvöld á Gauknum á seinasta föstudag var alveg einstaklega vel heppnað. Að sjá gaurana rappa lögin sem maður hefur verið að dilla sér við núna í nærri áratug. Eitthvað töff við það. Líka svakalegt hvernig þeir komu sér upp á svið. Fjórir gaurar alls og læddu sér einn og einn í einu uppá svið þegar röðin var komin að þeim. Að enda á Sound Bwoy Bureill var svooo flott. Eitthvað sem mun lifa í minningunni nokkuð lengi.
Svo er það með þessi símamál.. Sakna hans nú ekki mikið þannig en finnst ég samt alltaf vera að gleyma einhverju þegar ég er ekki með símann. Ætli það komi ekki að því á næstu dögum að maður láti undan samfélagslegum þrýstingi og fá sér eins og allavega nýtt simkort, fæ svo lánaðann síma hjá einhverjum í bili.
Á meðfylgjandi mynd má sjá símann sem ég er gæla við að kaupa mér. Held þetta sé einhver eldri gerð frá Nokia..

Búið í bili. Njótist vel og lengi.
:: G-Sus 22:42 [+] ::
...
:: sunnudagur, október 09, 2005 ::
Já þetta er alveg hreint ótrúlegt. Ég á ekki að geta átt GSM síma.
Góð fullyrðing hér að ofan og vík ég að henni á eftir. Í gær var fyrsti hittingur nýjasta karlaklúbbsins í Reykjavík. Stofnfundur var haldinn hjá B-Love og voru viðstaddir ásamt mér og B-Love þeir Bling Bling og Dauði. Fékk þessi klúbbur nafnið Karlaklúbbur Reykjavíkur. Gott nafn. Stórt nafn. Eftir sull hjá B þá var haldið á Kaffibarinn, þar sem við erum flottir. Drullutöff að hengja úlpuna á einn af snögunum sem er þarna inni. Think again mister. Við mættum þarna um 2 og fórum um 4. Þegar við erum að fara þá næ ég í úlpuna og viti menn! Enginn sími í úlpunni hans Gústa! Neinei, þetta hlýtur að vera einhver misskilningur, ég hlýt að hafa skilið hann eftir á barnum eða óvart misst hann úr vasanum þegar ég tók upp úlpuna. Neibb. Símanum mínum var fokking stolið. Í annað skipti á hálfu ári. Þegar ég uppgötvaði að síminn var horfinn, þá myndaðist svona óveðurský fyrir ofan hausinn á mér og gneistaði það eldglæringum í alla sem voru nálægt mér. Eitt grey á barnum fékk hressilega að kenna á pirringnum þar sem hann var mjög einfaldlega fyrir mér. Ég get vottað það að ég hef aldrei verið eins pirraður og ef EINHVER hefði vogað sér að bögga mig þá hefði viðkomandi fengið ókeypis far með sjúkrabíl beint uppá slysavarðstofu. Það var meira að segja smá sjúkur partur af mér sem hugsaði: fokk hvað ég vona að einhver hálfviti, sem á skilið að láta lemja sig, fari og böggi mig núna. Held það hafi verið sniðug ákvörðun að fara bara heim stuttu eftir þetta. Ef eitthvað hefði gerst, þá hefði ég svei mér séð eftir því í dag. Að láta skapið hlaupa svona með sig í gönur er alveg fáránlegt og leiðinlegt að geta ekki stjórnað því betur.
Eftir þetta hef ég ákveðið að taka mér smá GSM hlé. Ef þið viljið ná í mig, þá er það bara heimasíminn eða email.
:: G-Sus 20:58 [+] ::
...
:: föstudagur, október 07, 2005 ::
Smá undantekning á þeirri reglu að blogga eiginlega ekkert um daglegt líf þannig.
Kvöldið í kvöld er kvöld svarta mannsins. Stemningin er að byrja á októberfest í Háskólatjaldinu og fara svo um miðnætti yfir á Gaukinn þar sem það verða bríí-álaðir tónleikar. Áður bloggað um þá. Smif n Wessun, Buckshot og Sean Price verða án efa hressir mjög. Fróðlegt að sjá hversu mikið af fólki lætur sjá sig. Alveg glatað að vera á tónleikum með aðeins hálffullan Gaukinn.
Svo í gær var bandí "Showdown" í ÍR heimilinu. Framhald á móti byrjendum. Við erum að tala um 40 manns sem tóku þátt. Einn og hálfur tími af bandí. Sigur framhaldshópsins var einkar glæstur eða 21 mark skorað á meðan plebbarnir skoruðu aðeins 17. Alltaf gaman að vinna. Það er eitthvað óvenju skemmtilegt við bandí. Væri til í að stunda það meira. Þetta er eins og hokkí nema þú þarft ekki að læra á skauta.
Svo kemur ein mynd hérna af sexual harassment panda for your viewing pleasure:
 "Who lives in the east 'neath the willow tree? Sexual Harassment Panda. Who explains sexual harassment to you and me? Sexual Harassment Panda. "Don't say that! Don't touch there! Don't be nasty!" says the silly bear. He's come to tell you what's right and wrong. Sexual Harassment Panda."
:: G-Sus 12:17 [+] ::
...
:: þriðjudagur, október 04, 2005 ::
Babyshambles kemur ekki á Airwaves!
That makes me a saaaad panda.. Það merkir að ég mun ekki fá tækifæri til að grýta eggjum í asnalegasta mann í heimi. Pete Doherty er sannarlega asnalegur gaur. Ég þekki manninn ekki neitt en samt þoli ég hann ekki. Það er alveg magnað hvernig fólk, sem maður þekkir ekki punkt, getur vakið upp svona kenndir hjá manni.
Þetta langa langa blogg, sem blogger harðneitar að birta, er dottið uppfyrir. Nenni ekki að svekkja mig á þessu trekk í trekk í Star Trek. Í aðalatriðum fjallaði það um að einhver klessti á bílinn okkar, meðan enginn var í honum, og lét sig svo hverfa. Fólk er svo sannarlega fífl.
Svo eitt hérna alveg óskylt. Það er geðveikt gay (jaðrar við ghey) að borða pizzu þannig að þú lætur aðra pizzusneið ofaná og myndar samloku.
:: G-Sus 14:22 [+] ::
...
:: sunnudagur, október 02, 2005 ::
Yndislegt hvað sumt fólk getur verið mikið drasl. Kemur mér alltaf jafnmikið á óvart. Kemur smá saga hérna til að útskýra aðeins.. Í fyrradag fór ég í Smáralindina og fór á bílastæðið uppi þar sem ég ætlaði í Skífuna. Keyrði þarna í gegnum bílastæðið niðri til að komast í rampinn sem leiðir upp á efri hæðina. Keyrði soldið rösklega bara því ég vissi hvert ég var að fara, enginn Eiki samt tekinn á þetta. Í síðasta hólfinu, þegar maður sér rampinn fyrir framan sig, þá var bíll að fara úr stæði og þurfti að hætta við því ég var að keyra fram hjá. Ég hugsaði með mér "hey, ég á réttinn. Passaðu þig kall." Svo keyrði ég upp og tók þá eftir því að það var bíll fyrir aftan mig. Fannst það nú kannski ekkert skrítið enda mikið af fólki sem á þarna leið um. Nema hvað, þegar ég leita að stæði þá er hann á eftir mér. Ég finn svo stæði og hann stoppar fyrir aftan mig! Hvað er það? Ég steig út, reyndi að halda kúlinu og starði á gaurinn (sem var svona ónýt útgáfa af 50 ára gömlum manni). Hann starði á móti og ég sá að hann horfði á númeraplötuna hjá mér. Ekki þorað að stíga út greyið. Ég var ekki nógu klár að fatta að taka hans númer niður líka þegar ég fylgdist með honum keyra í burtu. Allavega, þá lýkur sögunni úr Smáralind. Svo kom ég heim og sagði mömmu hvað hafði gerst. Sagði henni að það gæti verið að einhver fáviti hafi verið að misskilja og haldið að ég væri að svína á sér. Sagði líka í gríni að næst þegar við færum út þá væri örugglega búið að eyðileggja bílinn okkar. Þá kemur högglínan.. Núna er hægra frambrettið á bílnum okkar í rúst. Vel beyglað og rispað. Er þetta svona svakaleg tilviljun að það hafi einhver annar hálfviti klesst á kyrrstæðan bílinn og ekið í burtu eða þá að þessi gaur hafi komist að því, út frá númerinu á bílnum, hver á hann og leikið sér að því að skemma bílinn í skjóli myrkurs? Núna veit ég ekki hvenær frambrettið beyglaðist svona en hvorki ég né mamma vorum í bílnum þegar þetta gerðist. Þetta var pottþétt ekki svona í fyrradag allavega. Mikið svaaakalega langar mig að vita hvernig þetta gerðist. Eitt er víst þó, svona dæld myndast ekki nema við ágætis högg svo þetta hefur ekki farið framhjá gerandanum, jafnvel þó þetta hafi verið óvart. Alveg einstakt að aka svo bara í burtu. Á stundum sem þessari þá væri maður ekkert á móti því að hitta viðkomandi í dimmu húsasundi og vera alveg óvart með kylfu réttlætisins í annarri hendinni. Svo eitt hérna alveg óskylt. Það er geðveikt gay (jaðrar við ghey) að borða pizzu þannig að þú lætur aðra pizzusneið ofaná og myndar samloku.
:: G-Sus 12:43 [+] ::
...
|