eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: fimmtudagur, ágúst 31, 2006 ::

Dagur hugsana í dag. Mikið búinn að vera að spá. Margt framundan og ýmislegt sem á undan hefur gengið. Ég er alveg ekki að nenna að blogga akkúrat núna en einhvern
veginn verð ég að tjá mig. Mér allavega finnst ég verða þess, veit ekki hvort það sé lífsnauðsynlegt þó. Það er ekki ýkja skemmtilegt að skoða "tilfinningablogg",
þannig endilega færið músina efst til hægri í glugganum og ýtið á "X" ef ykkur langar.

Þið sem ekki ýttuð á X-ið, hafið klút tiltækan svo þið getið þerrað skjáinn því þetta er ekkert nema væl sem vellur uppúr mér.

Hvar á ég að byrja? Það er svo margt sem þýtur í gegnum huga mér þessa dagana. Til dæmis, hvernig veit maður hvort ákvarðanir manns séu réttar? Hugur manns er svo
fljótur að taka breytingum að þegar eitthvað hljómar vel eða lítur vel út, þá kannski nokkrum mánuðum eða árum seinna er það skyndilega ekkert eins fýsilegt. Það
er hægt að heimfæra þetta uppá svo margt.. Skólagöngu, sambönd, vinnu og þar fram eftir götunum. Er til eitthvað betra en það sem maður hefur í höndunum hverju
sinni? Á maður að leita að því eða á bara að sætta sig við sitt hlutskipti? Mér hefur alltaf farið betur að fylgja skipunum heldur en að vera sá sem gefur þær.
Hvernig fúnkera ég í samfélaginu? Illa. Það þarf einhver að segja mér hvað ég á að gera, annars tekur það mig mörg ár að átta mig á því sjálfur. Tilfinningin er sú
að ég sé fastur í einhverju limbói og veit ekki alveg hvort ég er fullorðinn eða ennþá bara 12 ára. Að ímynda sér að ef ég lifi eðlilegu lífi og dey kannski um 75
ára aldurinn, þá er ég búinn með einn þriðja nú þegar. Hvað hef ég gert? Ekki rassgat. Get ég einhverntíma orðið frægur? Fyrir hvað þá? Vil ég verða frægur?Lífið
er drulluflókið og inniheldur alltof mikið af spurningum sem hafa engin svör. Ég er pirraður því ég hef ekki vanist því ennþá og vil ekki hafa það þannig.

Á þessum tímapunkti sýnið þið mér annaðhvort skilning eða segið við sjálf ykkur, gaurinn þarf örugglega sálfræðiaðstoð... sem leiðir mig að næsta punkti.

Sál-fræðingur... Merkilegt orð. Af hverju ekki 'manneskjufræðingur' eða 'persónuleikalæknir'? Ef við segjum "sál" þá erum við að gera sjálfkrafa ráð fyrir því að
guð sé til. Það er ekkert sem segir að við höfum sál. Við höfum þróaðan heila miðað við aðrar lífverur á jörðinni og þessi heili gerir okkur kleift að hugsa
abstrakt. Þessi hugsun leyfir okkur að búa til hluti í huganum sem eru ekki til í alvörunni. Það er enginn andi inní okkur sem fýkur burt þegar við gefum upp
öndina. Þetta er svipað og trúa á jólasveininn og ég trúi ekki á jólasveininn. Það þarf að gefa mér aðeins meiri sannanir heldur en "af því bara". Þannig rök
virkuðu vel þegar maður var lítill en núna er ég ekkert lítill lengur. Þegar þetta er búið þá er þetta búið, eins mikið og það hryggir mig að segja það. Hvað ég
vildi óska að það væri eitthvað meira. Það myndi ekki gera mig eins leiðan yfir því að sama hvað maður gerir, þá þegar allt kemur til alls, þá skiptir það engu
máli. Það eru kannski svona hugsanir sem kveikja á 'On' takkanum á fjöldamorðingjum en hafið engar áhyggjur, G-sus bjargar, hann drepur ekki.

Svona í framhaldi af þessu, hvernig fara jarðarfarir trúleysingja fram? Ég fékk tækifæri til að hugsa aðeins út í þetta í dag. Eru til einhver hús þar sem
jarðarfarir fara fram, annars staðar en í kirkjum? Það væri auðvitað enginn prestur á staðnum, nema presturinn myndi samþykkja það að sjá um athöfnina en sleppa
öllum tilvísunum í guð og biblíuna. Ætli einhver fengist til þess.. Ef ekki, þá hugsa ég að hehemm.. sálfræðingar væru best hæfir í að sjá um svona athöfn án þess
að hafa nokkuð fyrir mér í því nema bara tilfinninguna.

Ég gæti haldið áfram að týna til endalausa þanka mína ef ég vildi, en það er komið nóg í bili.

Núna sjáið þið dæmi um breyskleika, er ég rita eftirfarandi orð:
Hvíl í friði, Siggi minn.

:: G-Sus 23:56 [+] ::
...
:: sunnudagur, ágúst 27, 2006 ::
Blogg í 3 pörtum. Þökkum Blogger fyrir tillitssemina.
Tónlistarblogg

Fólk sem þekkir mig, eða hefur lesið bloggið mitt að einhverju ráði, vita að ég hef sterkar skoðanir á músík. Þessvegna pirrar það mig óstjórnlega ef það sem mér finnst vera góð músík er höfð að háði og spotti, eða svo gott sem. Það eru núna auglýsingar frá Griffli í sjónvarpinu þar sem þeir eru að auglýsa einhver tilboð á skóla/skrifstofuvörum og eitthvað drasli drasldrasl. Undir þessum hroða, sem þessar auglýsingar eru, þá gengur lagið "Sleep Walk" eftir bræðurna Santo og Johnny Farina. Ef þið hafið séð myndina La Bamba þá hafið þið heyrt þetta lag. Einstaklega fallegt og svakalega angurvært gítarspil í þessu stutta lagi. Hver er svo vitlaus að setja þett lag við jafnömurlega auglýsingu? Hverjum dettur í hug að setja þetta lag við auglýsingu yfirleitt? Djöfulsins hyski. Það munar ekki miklu að ég reyni að grafa upp hver á réttinn á þessu lagi og hafi samband við það fólk. Mig grunar svo sterklega að Griffill sé að nota þetta lag í leyfisleysi. Ég hef ekki hugmynd um það, en mér finnst gaman að hugsa það og pirrast út í það.

:: G-Sus 01:19 [+] ::
...
Yfir í aðra tónlist og ekki eins mikinn pirring..
Dúóið OutKast var að búa til kvikmynd/söngvamynd sem heitir Idlewild. Hún kemur út núna bráðlega í Bandaríkjunum. Tónlistin í myndinni er komin út og ykkar einlægur var ekki lengi að stela henni af netinu... YOINK! Það eru 25 lög eftir þá félaga á þessum hljóðteinum Idlewild og alls ekki öll jafngóð, því miður. Fimm af þessum 25 eru svona 'skit' þannig með tilliti til þess eru einungis 20 alvöru lög á hljóðteinunum. Flest lögin eru alveg í sama stíl og "Speakerboxxx/The Love Below" og þá meira í The Love Below áttina. Það tekur góðan tíma að venjast flestum þessum lögum og það er vanalega merki þess að lögin munu ekki sitja lengi í manni eftir að maður hefur tekið þau í sátt. Eftir að hafa lesið mér aðeins til á netinu þá verður þessi mynd örugglega ekkert meistaraverk. Auðvitað mun maður sjá hana en það verður að vera í bíó. Fínt að vera búinn að kynnast öllum lögunum fyrst og sjá hvernig þau eru svo útfærð í myndinni.

:: G-Sus 01:18 [+] ::
...
Ég ætla að fara út á útlim hérna og spá fyrir hvaða lög munu komast í almenna spilun. Þar sem ég hlusta ekki á útvarp þá veit ég ekki hvort það sé eitthvað af þessu farið að heyrast hérna á Íslandi en ég veit þó að eitt lag hefur verið gefið út sem smáskífa nú þegar, skv. því sem ég las á netinu. Svo veit maður ekki hvar væri hægt að heyra þetta á Íslandi ef út í það er farið.. Ekki spilar X-ið eða X-FM þetta, aðeins of hægt og of mikið rapp fyrir þá. FM-957 er náttulega alveg út úr kortinu en ætli þar sé ekki besti sjensinn. Ég vildi að ég ætti mína eigin útvarpsstöð, mætti spila hvað sem ég vildi og ekki hugsa um stefgjöld. Miklu skemmtilegra að lifa í draumaheimi heldur en þessum alvöru. Hérna eru lögin, í þeirri röð sem þau birtast á disknum. Ég ætla svo að reyna að muna að tjekka á þessu eftir svona 2 mánuði eða svo og sjá hvernig spáin gekk:
Mighty "O" (smáskífan.. mjög grípandi lag, það lag sem ég tók mest eftir við fyrstu hlustun)
N2U (Lesið 'In to You' fyrir ykkur sem falla ekki inní cool kids hópinn)
Hollywood Divorce
In your Dreams
PJ & Rooster (fekkin kettsí tjún, Andre fær að njóta sín)
Greatest Show on Earth (Macy Gray ekki dauð úr öllum æðum enn. Mein, þetta er einn töff taktur. Varla útvarpsspilun samt..)

Takk í bili. Blogg í 3 pörtum er lokið. Sjáumst á Idlewild.

:: G-Sus 01:13 [+] ::
...
:: miðvikudagur, ágúst 23, 2006 ::
Frá tímasóun yfir í tímaferðalög... http://www.cybersalt.org/cleanlaugh/images/02/signtimejob.htm

Gaman að svona rugli. Maður ósjálfrátt fer að hugsa hversu gaman það væri að geta ferðast um tímann.

Enda þetta örblogg á orðum O.C.:
"We're born to live, a life to die, life's so damn short and I wonder why."
G-sus 'fílar sig smá undir veðrinu' þessa dagana.

:: G-Sus 22:49 [+] ::
...
:: mánudagur, ágúst 21, 2006 ::
Tímasóun

er alveg svakalega einstaklingsbundin. Það sem einum finnst vera rosalega merkilegt finnst öðrum vera þvílík tímasóun.
Svo breytast tímarnir líka svo hratt að eitthvað sem manni fannst merkilegt fyrir 10-15 árum síðan er alveg hrikalega glatað í dag og sárt að sjá á eftir þeim tíma sem fór í þetta 'eitthvað'. Merkilegt nokk, þá er mín reynsla sú að sjónvarpið sé mesti tímaþjófur í heimi. Eitt dæmi hérna sem ég vildi að ég hefði betur sleppt að horfa á í barnæsku minni og óskað þess að ég hefði verið nógu snjall til að nýta tímann í eitthvað annað: Ég gerist sekur um að hafa horft á Roseanne... Sjitt, dem og moðerfokker hvað ég sé eftir því núna. Einhver belja sem á óskiljanlegan hátt lék í sjónvarpsþáttum um sjálfa sig þar sem dósahláturinn var sko alls ekki skorinn við nögl. Ég er hreinlega ekki viss um hvort þessi þáttur hafi yfirhöfuð haft eitthvað plott?? Það var allavega ekki nógu merkilegt til að muna eftir því. Djöfull fer Roseanne í taugarnar á mér. Ég var að heyra að hvalaveiðar væru jafnvel að hefjast aftur. Jess! Möguleiki á að Roseanne finni stóran skutul í brjóstkassanum á sér einhvern daginn í nálægri framtíð.

Nú á dögum er maður sem betur fer örlítið meira gagnrýnni á það efni sem boðið er uppá. Ég horfi eiginlega ekki á sjónvarpið, ekki nema Supernova draslið núna út af Magna. Ef það er eitthvað sem ég vill horfa á, þá kaupi ég mér DVD á Amazon og horfi á það þegar ég vil og hef tíma en ekki þegar það er á dagskrá í sjónvarpinu.

Endilega kommentið á eitthvað sem þið vilduð að þið gætuð sleppt úr barnæsku ykkar. Forvitinn að sjá hvort einhverjir aðrir hafi jafnmikinn ímugust á Roseanne og ég.

:: G-Sus 18:00 [+] ::
...
:: föstudagur, ágúst 18, 2006 ::


I was there, dude!! Þetta var líka alveg drullu töff.

:: G-Sus 12:00 [+] ::
...
:: fimmtudagur, ágúst 17, 2006 ::
Hversu fyndið er þetta? Ógeðslega, það er hversu. Búinn að horfa á þetta 5 sinnum og hlæ alltaf jafn mikið.
Tjekk itt

:: G-Sus 09:54 [+] ::
...
:: mánudagur, ágúst 14, 2006 ::
Drullutöff. Drullu drullu töff.
Hjá Símanum þá er árshátíðin haldin í Haukaheimilinu eða uppí Egilshöll.
Hjá CCP, þá er í ár farið til Madrid. Drullu fekking töff. Förum um miðjan október, frá fimmtudegi til sunnudags. Þetta merkir að ég er að fara í 5. sinn til Spánar, ef ég tel Mallorka með Spáni. Spánn er þar með að jafna Noreg í fysta sætinu. Alveg hreint ótrúlegt. Spennan er yfirþyrmandi. Akkúrat núna er staðan svona eftir 25 umferðir:
Noregur x5
Spánn x4
Danmörk x4
Bandaríkin x2
Finnland x1
Frakkland x1

Frakkland vermir neðsta sætið einungis vegna þess að r er á eftir i í stafrófinu. Svo er aldrei að vita nema England bætist þarna við í endann september. Útlönd eru töff, Ísland er ótöff. Búinn að fá leið á þessari eyju fyrir margt löngu síðan. Það eru u.þ.b. 3 mánuðir á ári sem Ísland er þolanlegt, hina 9 mánuðina er maður að bíða eftir þessum þremur. Rinse and repeat.

Set Later með Greg Kinnear á þetta.

:: G-Sus 21:51 [+] ::
...
:: föstudagur, ágúst 11, 2006 ::


Ég bara varð að linka á þetta. Lil Jon vs. Lil Jon. Þetta er hreinlega ekki hægt, þetta er of fyndið. Ég get ennþá hlegið að þessu og hef samt séð þetta ekki sjaldnar en 10 sinnum.
"Sometimes, when I'm alone... I sit on my hand, wait 'til it gets numb and masturbate. They call that a Stranger. Have you ever given yourself a Stranger?"
"HOOWHAT"
"A stranger"
"Yeah, yeah, I do"
"HOOKAY!!!"

Ég þoli ekki fólk sem þarf að endurtaka brandarana því það heldur að brandarinn verði fyndnari við það, en ég geri það samt sjálfur. Semsagt, ég þoli ekki sjálfan mig.

:: G-Sus 00:20 [+] ::
...
:: þriðjudagur, ágúst 08, 2006 ::
HÉRNA má sjá 100 vinsælustu leitarorðin á leit.is í seinustu viku.
Er fólk virkilega svona vitlaust? Er ég svona vitlaus? Ég allavega skil ekki af hverju fólk fer inná leit.is og leitar svo að leit.is
Ég gerði það nú að gamni mínu og gerði einmitt þetta, sló inn leit.is í leit.is leitarvélina. Getiði hvað kom sem fyrsta niðurstaða!? Jú, LEIT PUNKTUR FOKKING IS!

Ég fatta þetti ekki. Þetta leitarorð er líka alveg í langefsta sæti. Mikið af fólki sem tikkar ekki í takt við mig greinilega. Gæti líka verið að það sé hópur af fólki vísvitandi að brengla niðurstöðurnar. Ekki það að þetta sé eitthvað merkilegt og að þetta hafi bein áhrif á líf okkar en núna nenni ég ekki að eyða þessu bloggi út þar sem þá væri ég að eyða út 10 mínútum af lífi mínu.
Fokk itt. Sjáumst síðar.

:: G-Sus 16:39 [+] ::
...
:: sunnudagur, ágúst 06, 2006 ::
Verslunarmannahelgin er svei mér spennandi.

Ég keypti mér myndir af Amazon núna fyrir nokkru og hef verið að horfa á þær núna undanfarna daga. Merkilegt að ég var ekki búinn að fatta að feiti, ógeðslegi skinn heddinn í 'American History X' er bróðir hans Earl í 'My Name is Earl'. Mér tókst að horfa á heila seríu af My Name is Earl án þess að fatta það. Ekki nóg með það, heldur er hann sami gaurinn og var með flösuvandamálið í myndinni 'Evolution'. Ég get stundum verið soldið seinn að kveikja. Þráðurinn aðeins of langur býst ég við.
Svo horfði ég á Memento í fyrsta skipti í gær með henni móður minni. Spennandi verslunarmannahelgi, einhver? Allavega, þessi mynd er alveg þrusufín. Ekki gaman að missa minnið og muna ekki meira en svona eina mínútu aftur í tímann og það sem meira er Ekki gaman að missa minnið og muna ekki meira en svona eina mínútu aftur í tímann og það sem meira er Ekki gaman að missa minnið og muna ekki meira en svona eina mínútu aftur í tímann og það sem meira er Ekki gaman að missa minnið og muna ekki meira en svona eina mínútu aftur í tímann og það sem meira er... und so wiedere

Það er erfiðara að stíga 'þetta' upp um hnút en mig grunaði.

:: G-Sus 19:03 [+] ::
...
:: fimmtudagur, ágúst 03, 2006 ::
Það er einfaldlega ekki töff að vera eitthvað að veikjast núna...

Allavega, þá var ég að skoða bloggið mitt frá 2002 af sérstöku tilefni. Vá, hvað ritstíllinn hefur nú breyst. Ekki laust við að maður sýni örlítið meiri þroska, nú tæpum 4 árum síðar. Hver hefði nú trúað því? Ekki ég, það er hver. Maður er bara orðinn gamall, ekkert flóknara en það. Svo ef ég held þessu bloggstússi áfram, þá eftir nokkur ár á ég eftir að lesa þetta og hlæja að því þegar mér fannst ég vera orðinn gamall, einungis 25 ára að aldri.
Hæ, Gústaf í framtíðinni! Ekki vera leiður þótt þú sért orðinn svona gamall.

Svo er planið að fara norður á land um helgina. Veit ekki hvort ég komist vegna þess að ég er algjör væluskjóða og allt bendir til þess að ég sé að veikjast/kvefast eða eitthvað þannig. Þvílíkur væll...

Verð að setja leiter á þetta. Verið róleg um helgina.

:: G-Sus 17:10 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?