eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: þriðjudagur, ágúst 31, 2004 ::

AAAAHAHAHAHAHA
Það fór einhver inn á síðuna mína eftir að hafa skrifað "Akureyri lesbíu myndir" á Google.
Mér finnst það vera sniðugt. Af hverju mín síða kom upp, veit ég ekki. Kannski það sé vegna þess að ég skrifaði einu sinni stóra grein um lesbíumyndir teknar á Akureyri. Held samt það sé ekki ástæðan.

:: G-Sus 16:57 [+] ::
...
:: mánudagur, ágúst 30, 2004 ::
Var að koma af The Village. Ég hef aðeins eitt að segja:
You can suck on my balls, Mr. M. Night Shyamalan!

Eina góða við hana er að manni kom á óvart hvernig plottið þróaðist. Ekki alveg það sem maður hélt eftir að hafa séð fylgivagnana. Slæm mynd samt engu að síður. LAME!

Helgin annars var alveg í góðu lagi. Vonandi verður annað tilefni til hittings bráðum. ANNA eftirspurninni og þannig.

Good night and remember to suck on my balls Mr. Shyamalan.

:: G-Sus 00:40 [+] ::
...
:: föstudagur, ágúst 27, 2004 ::
Rosalegt rothögg var þetta. Gaurinn liggur víst alvarlega slasaður á spítala núna og er í lífshættu. Hreyfingin á hausnum var frekar óhugguleg þegar þetta var sýnt hægt. Vonandi að hann þrauki þetta kallinn. Ekki nema 22 ára gamall, fæddur 1982.
Frétt hér

:: G-Sus 19:37 [+] ::
...
:: miðvikudagur, ágúst 25, 2004 ::
Sá einhver "Supersize Me" gaurinn í Kastljósi? Sá einhver framkvæmdarstjóra Macdonalds á Íslandi strax á eftir? Þetta var alveg magnað. Það var vandræðalegt að horfa á framkvæmdarstjórann halda því fram að herferð þeirra með McSalad og alla þessa hollustuherferð væri ekki tilkomin vegna myndarinnar. Hann er kannski fallinn í þá gryfju að trúa sinni eigin lýgi því hann var svo sannfærður greyið um að hann væri að segja satt. Þetta var bara tilviljun segir hann. Merkilegt nokk þá er þetta að gerast í hverju einasta landi sem myndin er sýnd í. Nokkrum vikum fyrir sýningu er byrjað að auglýsa hollustumatseðilinn. Líka einstaklega þægilegt fyrir framkvæmdarstjórann að næringarupplýsingabæklingarnir séu nýbúnir. Algjör tilviljun líka.

Stefnan tekin á að sjá þessa mynd sem fyrst.

:: G-Sus 19:59 [+] ::
...
:: þriðjudagur, ágúst 24, 2004 ::
Djöfull er ég töff og kúl að vera búinn að skipta um lit á blogger röndinni efst á síðunni.

Nýr tengill mættur á svæðið. Minn tengiliður í pólitík. Sammála flestu sem hann segir held ég um þau málefni.
Ég veit ekkert hvaða skoðun ég hef á pólitík svona "frá hjartanu". Vanalega er það þannig að ef ég heyri góð rök fyrir einhverju þá hugsa ég "já, því ekki bara?". Það er ég og stjórnmál í stórum dráttum. Einhvern veginn finnst mér eins og við getum ekki breytt neinu hvort eð er og þessvegna hef ég aldrei fylgst með þessu og nennt að koma mér inn í þetta. Það og góður skammtur af sinnuleysi auðvitað. Náttúrulega myndi ekkert gerast ef allir hugsuðu eins og ég. Sem betur fer fyrir mig þá eru einmitt mjög margir ekki eins og ég. Húrra fyrir því.

Hvaða hljóð er þetta? Heyrið þið þetta?

Svo fékk ég engin svör seinast... nú býst ég við svörum hrútalesbíurnar mínar. Hvernig er stemningin fyrir Danmörku um jólin?

:: G-Sus 23:40 [+] ::
...
:: mánudagur, ágúst 23, 2004 ::
Hólí krepp.
Fór á æfingu í kvöld. Loksins dreif ég mig. Búinn að taka mér gott hlé í tvo og hálfan mánuð sirka. Svo er spurning hvort maður endist í þessu einn vetur enn eða hvort maður eigi bara að fara að segja þetta gott.

Verð að segja ykkur aðeins frá honum TKD/vinnufélaga mínum honum Svenna, aka Hnakkusi, aka Faðir ykkar. Málið er að hann ældi víst blóði nú um helgina. Ekkert að gerast sérstakt, heldur bara ældi blóði. Ekki mjög normalt. Í stað þess að hafa einhverjar áhyggjur af þessu þá grínast hann með þetta á mjög svo svartan máta. Hann talar um að nú sé hann á síðasta snúningi og að nú sé allt að verða búið, mömmu hans til mikillar mæðu. Ekki lét hann það nægja heldur tók hann mynd af sér liggjandi með krosslagðar hendur ofan á brjóstkassanum og lokuð augu. Klassísk dauðastelling. Svo sendi hann myndina til mömmu sinnar í emaili. Þú ert ekki normal drengur! Fyndið mjög samt sem áður. Vonandi er þetta nú ekki alvarlegt. En ef svo færi að þú myndir deyja, PANT FÁ ÍBÚÐINA ÞÍNA!

Hvað segiði svo hrútalessurnar ykkar. Fjölmenna til Danmerkur um jólin?

:: G-Sus 22:01 [+] ::
...
:: föstudagur, ágúst 20, 2004 ::
Þetta er alveg ótrúlegt. Ekki nóg með að South Park séu fyndnustu teiknimyndir í heimi heldur eru þættirnir vitsmunalegir í ofanálag!

Var að horfa á þátt í 7. seríu sem heitir "All About Mormones" og fjallar um Mormóna og trúarkerfi þeirra. Ég reyni mitt ítrasta til að teljast umburðarlyndur maður. Þessi Mormónatrú er hinsvegar eitt mesta bull í heimi. Þeirra "Biblía" heitir einfaldlega Book of Mormons samin af manni sem hét Joseph Smith. Í stuttu máli þá átti honum að hafa vitrast engill og engillinn á að hafa sagt honum að finna töflur úr gulli þar sem orð guðs væri áletrað. Svo var honum sagt að nota þýðingarsteina til að þýða orð guðs yfir á ensku. Herra Smith sagðist svo hafa fundið töflurnar en viti menn, hann mátti ekki sýna neinum þær. Heppilegt. Svo þegar hann átti að þýða það sem stóð á þeim þá fékk hann mann til sín sem skrifaði niður það sem hann læsi svo af töflunum. Og viti menn, enn á ný, hann varð að hafa gulltöflurnar ofaní hatti og svo grúfði hann sig ofan í hattinn og las upp þýðinguna. Hinn gaurinn skrifaði þetta svo niður og úr varð Book of Mormons. Þvílíkt rugl.

Í þessum South Park þætti þá kom fram að skv. mormónatrú þá voru upprunalegir íbúar Ameríku í raun hvítir menn (í stað indíána þá) frá Jerúsalem og að kristur hafi heimsótt þá í Ameríku. Ekki nennti ég að leita á netinu að þessum "staðreyndum" mormónatrúar en e-s staðar hafa Matt Stone og Tray Parker fundið þetta. Ennþá meira rugl.

Ég nenni ekki að skrifa meira um þetta en endilega leitið að þessu á netinu fyrir nánari upplýsingar.

En samt ein pæling í lokin... Eru ekki góðar líkur á því að sá sem fólk nefnir Jesú hafi bara verið alveg eins og þessi Joseph Smith? Nema hvað að Jesú kom 1800 árum á undan honum en var bara heví snjall gaur sem hreif fólk með sér. Hvað ef þessi Joseph Smith gaur hefði komið á undan?! Væri þá mormóna trú eins og kristni trú er í dag og fólki fyndist ekkert eðlilegra en að aðhyllast orð og kenningar manns sem talaði uppúr hatti?
Djöfull fer trú í taugarnar á mér.

:: G-Sus 23:16 [+] ::
...
:: miðvikudagur, ágúst 18, 2004 ::
Djöfulsins tussur eru Ítalir í fótbolta. Detta við minnstu snertingu og eru bara fokking óheiðarlegir. Allavega, VIÐ sýndum þeim!!! MUAHAHAHAHA!

In yo face, Italy!!!

:: G-Sus 23:15 [+] ::
...
Var að horfa á liðakeppni kvenna í fimleikum á Ólympíuleikunum. Fimleikar eru alltaf skemmtilegir áhorfs. En frábært var að sjá þjálfara Rúmena (sem unnu gullið) lauma inn rassskellingu af og til. Alveg hreint magnað. Stelpurnar í svona sundbolaígildum og fá svo einn feitan smack bottom. Þær geta ekki annað en verið ánægðar með það. Samt enginn ánægðari en þjálfarinn.

Svo er landsleikur á morgun. Það verður eflaust stemning. Kannski maður heilsi uppá Guttorm félaga minn í húsdýragarðinum á undan. Hann er alltaf hress. Heyrði af því frá honum Stebba um daginn að ein konan hans hafi sleikt á honum rassgatið (þ.e. á Guttormi, ekki Stebba). Já, það er ekki tekið út með sældinni að vera stærsta naut á landinu. Allir vilja sleikja á manni rassinn.

Og hvaða rugl er þessi ´Blogger´ rönd að gera þarna efst? Ekki setti ég hana þangað og svo sé ég þetta drasl bara á minni síðu. Shit fokk og moðerfokker segi ég bara.

:: G-Sus 00:46 [+] ::
...
:: þriðjudagur, ágúst 17, 2004 ::
Hér er íslensk síða um frönsku útlendingahersveitina (http://www.hometown.aol.com/ffliceland )
Það er eitthvað við FÚ sem heillar mig. Nafnleysið til dæmis. Allir eru jafnir þegar þeir ganga í FÚ. Þetta er alls ekkert sældarlíf sem tekur við þó eftir að maður skráir sig. Herinn á þig í 5 ár ef þú gerir við þá samning. Þeir ráða algjörlega yfir þér. Ef þú flýrð og gerist liðhlaupi þá er eins gott að þeir finni þig ekki því þá bíður þín fangavist. Aginn er svo rosalegur að það eru einmitt nokkuð margir sem flýja og halda aftur til síns heima. Man eftir heimildarmynd sem var sýnd hérna fyrir nokkrum árum. Menn þurftu að raða sér fyrir framan herbergin sín hvenær sem yfirmönnunum þóknaðist að framkvæma skoðun. Ef þeir voru of seinir til þá var gengið á röðina og hver og einn kýldur í andlitið. Nokkuð hart. Svo man ég að þeir þurftu að hlaupa eins og fávitar á hverjum degi með nokkur kíló á bakinu. Það var í raun allt gert til að brjóta mennina niður andlega svo það væri auðveldar að móta þá frekar að reglum FÚ og byggja þá upp þannig. Ég held það sé nokkuð óhætt að segja að þeir sem ljúka 5 ára grunnherþjónustu FÚ megi teljast með hörðustu gaurum í heimi.
Ef ég væri örlítið harðari af mér (þekki mín takmörk) þá væri þetta ágætis kostur fyrir mann eins og mig. Eflaust margir sem samsvara sig þessu líferni. Vert að minnast á að menntun er innifalin í FÚ svo maður kemur ekki bara út sem einhver hernaðarvél þegar herskyldu er lokið. Ekki misskilja mig, ég er friðelskandi maður, en þessi hersveit er bara svo sérstök. Mér dytti t.d. aldrei til hugar að skrá mig í amerískan her.
Jæja, draumórar verða víst að nægja. Um sinn, allavega.

:: G-Sus 00:56 [+] ::
...
:: fimmtudagur, ágúst 12, 2004 ::
Uppáhaldssælgæti mitt er Staur. Ég fór að spá aðeins í nafninu og svo í lögun Staurs. Mín samsæriskenning er sú að framleiðendur Staurs hafi viljað láta hann heita Saur. Þeir hafi planað þetta allt í þaula, látið nammið líta út eins og einn vænn saur og svo bara kallað hlutinn það sem hann er. Svo hefur einhver jakkafatagaur sagt að Saur nafnið væri móðgandi og þá hafi þeir breytt nafninu í Staur en haldið að allir myndu samt að kveikja á tengingunni. Nema hvað enginn tengdi, fyrir utan mig núna. Pælingin hjá þeim hefur þá verið svipuð og hjá fólkinu með vörumerkið FCUK.

Og svo er alltaf til sú hlið á málinu að kannski það sé barasta ekkert "cover up" í gangi, heldur sé Staur kallaður Staur vegna þessa að hann er þráðbeinn, svona eins og staurar eru.

En ég kýs að halda mig við samsæriskenninguna.

:: G-Sus 21:52 [+] ::
...
:: þriðjudagur, ágúst 10, 2004 ::
It´s getting hot in here, so let´s take off all our clothes!

Er einhver að grennast í hitanum þessa dagana? Ég bið þó um einn dag í viðbót svo ég geti eitthvað verið út í sólinni. Ekki gaman að húka inni í tölvunni í svona hita. Hver sem sér um hitann, endilega látið hann vara á morgun líka. Takk.

Annars var ég að horfa á síðasta þátt af The Joe Schmoe Show. Þessi gaur var alveg ótrúlegur. Ég myndi segja að hann hafi komist alveg klakklaust frá þessu. Gerðin engin alvarleg heimskupör og var bara mjög mannlegur. Tók þessu líka alveg ágætlega að hann hafi verið í hálfgerðri "falinni myndavél".

Hvað gerðist svo eiginlega fyrir teljarann minn? Eru ég og Stebbi einu sem fengu teljarann sinn núllstilltan? Og minn sem átti ca. 100 manns eftir upp í 20 þús. Assgotinn.

Ekki komu margar hugmyndir um hvað ég ætti að taka mér fyrir hendur í vetur. Húsmæðraskólinn kveikir engin bál í mér. Ég var annars að spá í að gerast róni. Það væri töff. Eða fáviti. Taka einn vetur í það að vera fáviti. Það væri góð tilbreyting.

:: G-Sus 22:10 [+] ::
...
:: sunnudagur, ágúst 08, 2004 ::
Ég bara held ekki vatni yfir þessu, sorry. South Park er það fyndnasta í heimi. Family Guy í öðru sæti. Var að sjá 3 aðra þætti í nýju seríunni.
"Passion of the Jew" þar sem gert er grín að Passion of the Christ eftir Mel Gibson og Melurinn er sýndur sem algjör klikkhaus sem finnst ekkert betra en að láta pína sig. Cartman á góða innkomu sem arftaki Hitlers.
"A.W.E.S.O.M.-O". Cartmann er fastur allan þáttinn í hlutverki vélmennis og hann er fenginn til að búa til hugmyndir að kvikmyndum fyrir einhverja Hollywood stórlaxa. Hugmyndir hans innifela Adam Sandler í 90% tilvika.
"The Jeffersons". Þvílík ádeila á ríka svarta menn og Michael Jackson. Hann fær hrikalega útreið í þessum þætti. Og þá meina ég hrikalega fyndna útreið.

Næsta dót sem ég kaupi mér á DVD verða South Park seríur. Það er nokkuð pottþétt. Átta seríur komnar á jafnmörgum árum og ef eitthvað er þá eru þættirnir að verða fyndnari og fyndnari.

Afmæli og innflutningspartí hjá Helga "skrímsla" í gær. Flott íbúð hjá manninum og á frábærum stað í bænum. Engum sögum fer af partíinu þó. Þetta var allt saman of mikil steypa.

En hvað á ég að gera í vetur? Auðvitað vinnur maður eins og eitthvað fífl en hvað á ég að gera fyrir utan vinnutíma? Íþróttir, áhugamál? Hugmyndir einhver? Bannað að segja Taekwondo þar sem það er of mikið giveaway.
ogsásemsegirtaekwondoíkommentumfæróvæntaheimsóknfrámér

:: G-Sus 00:18 [+] ::
...
:: miðvikudagur, ágúst 04, 2004 ::
Sjitt mar. Hef ekki mætt á æfingu í ca. 2 mánuði og mér líður bara alveg ágætlega. Stórt spurningarmerki hvað maður gerir í vetur.

Horfði áðan á nýlegan South Park þátt þar sem þeir félagar gera grín að myndinni "You Got Served". Þátturinn heitir "You Just Got Fucked In The Ass". Mætti jafnvel segja að Matt Stone og Trey Parker séu meinfyndnustu og einnig einfaldlega fyndnustu menn í heimi? Já.

Love is all around me. It´s everywhere I gooooooo. Whores are nowhere near me. And I´m in need for a bloooooooooow!
Fallegt lag.

:: G-Sus 22:13 [+] ::
...
:: sunnudagur, ágúst 01, 2004 ::
Verslunarmannahelgi, Smerslunarmannahelgi. FOOJJJ.

Fór í gær í sveitina og það var nú bara ekki eins leiðinlegt og ég bjóst við. Fékk nebbilega að skjóta af haglabyssu bróður míns. Djöfull var ég flottur og djöfull fengu dósirnar að kenna á því maður! HA! Hleypti af 6 sinnum og í dag er ég með smá verki í öxlinni þó svo ég hafi haldið byssunni þétt uppvið öxlina. Með þessu er ég auðvitað alls ekki að ýja að því að ég sé aumingi, heldur er ekkert grín að halda á hlut sem brýtur hljóðmúrinn svona hressilega. Mjög sérstakt að hafa skotið af alvörubyssu. Fram að þessu hef ég nú bara prófað loftbyssur og túttubyssur... og kindabyssur... og vatnsbyssur. Og byssubyssur.

Svo í dag fór ég í Gokart með Eika og Jóhanna kom með. Jóhanna þorði ekki að prófa ef við Eiki vorum drulluflottir í samfestingum með hjálma og spændum upp malbikið. Mér leið eins og Schumacher. Eða kannski leið mér eins og minna þekktum ökuþór, Gusto de la Ritz. Yeah, that´s word.
Eiki sá svo náttulega ekkert nema malbikið spænast upp eftir mig þar sem minn hraðasti hringur var 20 sekúndubrotum hraðari en hraðasti hringur Eika. In yo face, bitch.

Vonandi að þið hafið ælt mikið á ykkur um helgina. Nema þið auðvitað sem voruð líka heima.
Ríspekkt.

:: G-Sus 20:03 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?