eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: mánudagur, maí 31, 2004 ::

"Feeling like a fool inside.
Feeling all the hurt you hide.
Thought you were my friend.
Seems it never ends."

Sjitt fokk og moðerfokker hvað það var mikið rokkað í gær. Deeeeeem sonn. Þetta var alveg hreint magnað og mun seint renna manni úr minni. Það sem situr mest í mér er lagið "Somebody, Someone" og eru þessar línur hérna að ofan búnar að glymja í hausnum á mér í allan morgunn. Þegar það gerist ómeðvitað þá veit maður að eitthvað small inní manni (gerist einmitt stundum með rappmútsík). Alveg wicked tónleikar. Því miður þá fíla ég Metallica ekki eins mikið og KoRn þannig þetta verður væntanlega ekki toppað í bráð. Maður fer nú á Metallica bara fyrir sögubækurnar.

Allavega, hoppið upp í rassgatið á ykkur og eigið góðan dag.

:: G-Sus 10:48 [+] ::
...
:: sunnudagur, maí 30, 2004 ::
Hugrún Harðardóttir í fyrsta... Bender í öðru.






Þetta var nú kannski svona soldið fyrirsjáanlegt grín.

:: G-Sus 00:59 [+] ::
...
:: laugardagur, maí 29, 2004 ::
Nú líkist ég frekar svörtum sauð. Gútti litli bara kominn með svart hár. Sososo. Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Annars bara frekar einmannalegt föstudagskvöld á enda komið.
Best að versla sér KoRn bol á morgun. Í réttum bol, í hnjábuxum með svart hár? Held það stefni í feitasta rokkið á sunnudaginn.

:: G-Sus 00:06 [+] ::
...
:: fimmtudagur, maí 27, 2004 ::
Ég á celeb frænda og hann sagði ansi skonda sögu áðan.
Þannig er mál með vexti að þessi frændi minn á íbúð hér í Reykjavík og hann er í heimsókn núna hér á landi. Eitthvað þurfti að dytta að gluggunum í íbúðinni og fékk hann einhvern Ólaf til að sjá um það. Það gekk allt vel bara og Ólafur hélt sína leið eftir að hafa skipt um rúður or sumphin.
Svo seinna þá hringir síminn og frændi minn svarar:
"Já"
"Sæll, Ólafur hér."
"Jáááá? Ólafur með gluggana?" (svona spyrjandi, eins og í hvað-í-andskotanum-viltu-gluggaviðgerðakall?)
"Nei, þetta er Ólafur?"
"Já, Ólafur með gluggana?" (frekar hvassur í röddu)
"Nei. Ólafur Ragnar."

Frekar fyndið. Skemmtileg tilviljun og örugglega frekar leiðinlegt að þurfa að útskýra misskilninginn.

Mikið hrikalega hlakka ég til að skella mér á KoRn tónleika á sunnudaginn. Þvílík stemning mun verða á svæðinu!

:: G-Sus 22:06 [+] ::
...
:: þriðjudagur, maí 25, 2004 ::
Um daginn kom B-Love með þá pælingu hvaða listamannanafn í hiphop geiranum væri flottast. Ekki komst ég að neinni niðurstöðu þá en núna held ég sé kominn með þetta. "Peanut Butter Wolf" er alveg drullutöff og ansi erfitt að toppa. Komið nú samt með hugmyndir. Og Hnakkus minn kær, "Fitte Cent" telst ekki með þó það sé alveg magnað.
En nú heyrast fréttir af því að Ice-T sé orðinn geðveikari en andskotinn og sé að reyna að koma David Hasslehoff á framfæri sem rappara. Listamannanafnið hans mun vera "Hassle the Hoff", I kid you fokking not. Hlakka ég mikið til að heyra útkomuna úr þessu soon to be disasteri.

Áðan dó hluti af mér. Ég fór á leik Fram-ÍA og ég myndi kjósa frekar að hlusta á Hassle the Hoff á repeat í heilan dag í staðinn fyrir að sjá þennan leik aftur. Ef "útaf" hefði verið með Fram í liði þá hefðu þeir sko unnið með yfirburðum.

Og til hamingju með daginn, Erling! 23 ára kallinn! Þetta gastu!
Ef ég held áfram með -lingur smækkunarendingarpælinguna þá heitir Erling nokkurn veginn "Lítið Er" og hægt er að túlka það þá á þann veg að í rauninni heiti hann "Var". Eða í áttina allavega.

Á morgun á svo Brynjar afmæli og farið verður á Pixies í Kaplakrika. Andskotans nafn.. ég hugsa alltaf um handakrika þegar ég segi þetta drasl.

:: G-Sus 22:56 [+] ::
...
:: mánudagur, maí 24, 2004 ::
Já mar! 50 Cent er að mæta til Íslands! AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAHAHAHAHAHA! Það eru ekki til nógu mörg A í heiminum til að hlæja að þessu.

Það sem 50 Cent er algjör tussa þá ætla ég núna hér eftir að kalla hann Fitte Cent.

Hversu fokking töff væri það ef Snoop Dogg kæmi til landsins? Af hverju gerist aldrei neitt þannig sniðugt?

:: G-Sus 10:45 [+] ::
...
:: laugardagur, maí 22, 2004 ::
Einhversstaðar þarna úti leynast Vettir. Þeir eru konungar allra hanska. Bara spurning um tíma hvenær þeir munu finnast.
Sbr. það eru til kettir og það eru til kettlingar.

Skamm, Gústi! Skamm!

:: G-Sus 19:39 [+] ::
...
Takið laugardagskvöldið 10. júlí frá og mætið á Kapital. Enginn annar en hiphop pródúserinn RJD2 mætir þá á svæðið og snýr skífum. Þið hafið pottþétt heyrt lag með honum ef þið hlustuðuð eitthvað á útvarpið á síðasta ári. Lagið hans Ghostwriter var mikið í spilun þá. Annars er hann með allskyns sniðugt efni og einfaldast er að líkja honum við DJ Shadow svo fólk átti sig á hvað það muni heyra. Þeir tveir eru í svipuðum pælingum.
If you´re a miss it, you will diss it.

Lög sem eru mjög áhugaverð eftir manninn af fyrstu skífunni hans "Dead Ringer" og fengin að láni frá Sandbox:
Ghostwriter
Cut out to Florida
Smoke and Mirrors
Final Frontier
The Chicken Bone Circuit
The Proxy
June

Hvað er ég að gera! Nærri allt eftir RJD2 er snilld svo listinn yrði frekar langur ef ég myndi halda áfram. Þetta er svona helst grípandi af 1. plötunni þ.e.

:: G-Sus 13:23 [+] ::
...
:: fimmtudagur, maí 20, 2004 ::
Andy Kaufmann bara mættur aftur? Yahoo segir það allavega hér. Hversu súrt grín er það að sviðsetja sinn eigin dauða og koma svo fram 20 árum síðar sprelllifandi? PH gildið þar á bæ er í kringum -8 held ég!!!
hee-hemm... Nördadjókar eru vanmetnir.

:: G-Sus 23:44 [+] ::
...
Var að koma af bandarísku hommaklámmyndinni ´Touching Jon Voight´. Neee-ei, var á myndinni ´Touching the Void´ sem fjallar um tvo klifurgaura sem lentu í þvílíkum hremmingum í Perú á 9. áratugnum einhverntíma. Þvílíkt sem þessir menn upplifðu. Held maður geti ekki gert sér grein fyrir því sama hvað maður reynir.
Erling, Sigrún "Bumba" og Arnie mættu einnig á þessa fínu mynd. Stórskemmtileg kúla sem Sigrún býr yfir. Hvað ætli leynist inní kúlunni, krakkar! Eitt stykki barn! Eða kannski tvö! Stutt í þetta... Erling bara að verða faðir. Faðir Erling. Sjitt mar! Og ég jafngamall að blogga um þetta eins og smástelpa. Einhvernveginn held ég að ég sé ekki jafngamall og Erling. Ríspekkt.

It´s getting hot in here! Let´s take of all our clothes!
Já, stelpan niðri bara hress með partí. Held örugglega hún sé að klára MR núna. Ekki laust við söknuð þegar maður hugsar um MR partíin hér "í gamla daga".
Af sem áður var.

Já, þið eruð svei mér hress.

:: G-Sus 00:46 [+] ::
...
:: þriðjudagur, maí 18, 2004 ::
Ég keypti mér heftibyssu í dag. Aftaná kassanum var teiknuð mynd af þriggja manna fjölskyldu og hundi og svo var svona rauður ó-ó kross yfir myndinni.
Ef ég má ekki skjóta heftum á konur og börn og gæludýr, hvað hef ég þá að gera við þessa heftibyssu!!!

:: G-Sus 21:10 [+] ::
...
Gleymdi því alveg að um helgina skrifaði ég undir stuðningsyfirlýsingu við Snorra Ásmundarson. Jájá ég veit. Þetta var nú bara í djóki og maður var andsetinn af intoxicated demons. Ég og Arnþór tókum undir þetta bara til að það verði eitthvað fútt í þessum forsetakosningum.

Enníhú.. Herbergið allt að komast á gott ról. It´s my crib we talking ´bout right durr! Gott víðáttubrjálæði sem ég fæ þarna inni núna. Durr!

Nú kemur spurningatími.
Þegar maður skiptir deginum í tímabil þá er svona helst talað um nótt, morgunn, dag og kvöld. Hvenær eru þessi tímabil í ykkar huga og þá alveg burtséð frá því hvort það sé vetur eða sumar? Er nótt frá miðnætti til hvað? Fimm? Eða til 4 og svo byrjar morgunninn? Tjáið ykkar upplifun á tímanum. I´m all eyes!

:: G-Sus 00:25 [+] ::
...
:: sunnudagur, maí 16, 2004 ::
Tja 19. sæti eða síðasta sæti.. it don´t matter. Það verður nú samt að segjast, hommanum til hróss, að hann var nú bara nokkuð flottur á sviðinu. Lögin á undan búin að vera einhver froða og rosa mikið að gerast en svo kom hann einn og var bara nokkuð kúl. En hver er að grínast með þetta atriði frá Úkraínu? Ég er enn að bíða eftir að einhver komi og segi að þetta hafi bara verið djók. Er einhver annar sem tók eftir því að hún kunni ekki að syngja (hvað þá dansa) og að hún söng á köflum svipað og Leoncie?

Svo var haldið í bæinn. Fullerí fallera. Gríðarmikil stemning þar á bæ. Fellt af felki. Ég og Arnie tókum því þann pólinn í hæðina eftir eitthvað rölt að rúnta bara frekar. Það reyndist heldur betur gróðvænlegt fyrir Arnþór þar sem hann græddi 3000 kall á svona 15 mínútum. Það kom einhver gaur á gluggann hjá okkur meðan við vorum að rúnta og spurði hvort við myndum ekki keyra hann upp á Njarðargötu ef hann borgaði 1000 kall. Að keyra hann tók svona 3 mínútur. Svo gleymdi hann símanum sínum. Hann hringdi og sagði að ef við myndum hitta hann og skila honum símanum þá myndi hann borga 2000 kall. Við gerðum það og kallinn stóð við orð sín. Nokkuð kúl. Hann var með feitt seðlabúnt sem hann valdi peninginn úr. Kannski bankaræningi og við hjálpuðum honum að flýja?

Arnþór splæsti svo mat fyrir eitthvað af gróðanum og við héldum heim. Fór samt ekki heim fyrr en ég var búinn að hlaupa eitthvað rúmlega 200 tröppur í Kópavoginum. Arnþór hleypur þetta víst stundum og ég spurði hann hvar þetta væri. Hann sýndi mér það og sagði mér að skella mér eina ferð. Hann beið svo eftir mér efst þegar ég loksins komst þangað alveg lafmóður en samt gríðarhress.
Skemmtilegur endir á þessu kvöldi. Hlaupa eitthvað massa. Sp. um að taka þetta upp eftir allar bæjarferðir?

Jæja, ég er farinn að horfa á Fram vinna Víking.
Take care.

:: G-Sus 18:28 [+] ::
...
:: laugardagur, maí 15, 2004 ::
Síðasta sæti segi ég og skrifa.

Annars stefnir kvöldið bara í eitthvað rugl og er það vel. Svo er bara að vakna ferskur og taka herbergið í gegn. Sjæse hvað það verður mikið mál. En for the greater good.

Æ fokkitt, Blogger eða Borða?
Borða.

:: G-Sus 18:18 [+] ::
...
:: fimmtudagur, maí 13, 2004 ::
Nei.. Hvað eru Beastie Boys eiginlega að gera?? Heyrði lagið „Check it Out“ í dag (hræðilega lame titill) og þvílíkt disaster! Tekkí taktur og svo eru þeir bara eitthvað að rugla yfir hann. Býst ekki við að lagið eigi eftir að skána við aðra hlustun. Vonandi að platan þeirra nýja To the 5 Boroughs sé betri. Ef ekki, þá er alveg spurning um að leggja mækana á hilluna og lifa bara á fornri frægð.

Lynndie England góð. Hún segir núna að þetta sé ekki henni að kenna, henni hafi verið skipað að gera þetta af yfirmönnum sínum. Hún hefur þá aldrei metið það sem svo að það að segja nei væri möguleiki í stöðunni, fekkin bidds... Og núna eru víst til myndbönd af henni í kynlífsathöfnum með föngunum. Vá maður, einfalt fyrir hvern sem er að fá hana uppí rúm. Bara spyrja og hún segir pottþétt ekki nei.
„Esse die Scheise.“
„Okallidokally!“

Pabbi gamli hrútur á afmæli í dag. Takk takk. Fór með honum og Baldri á Madonnu, veitingastaðinn við Rauðarárstíg. Góður matur og alles en það er ekki málið. Það var maður sem kom svona 10 mínútum áður en við fórum og hann var einn. Reffilegur gaur kannski svona um fertugt, ekki það einu sinni, í jakkafötum og já hann var semsagt einn. Pantaði sér mat, kveikti sér í sígarettu og horfði út í loftið. Og já, hann var einn. Hvað er það? Ef maður er einn, fer maður þá út að borða? Tja mar veit ekki sko...

:: G-Sus 22:22 [+] ::
...
:: miðvikudagur, maí 12, 2004 ::
Hvíta Rússland? Neee-ei. Hvíta Rusl-land.
Þvílík hörmung var atriðið frá þeim í Eurovision. Ég sá 3 lög og annaðhvort var þetta allt jafnasnalegt eða þá að ég var bara svona heppinn. Sá líka frá Ísrael og Danmörku. Þessi frá Ísrael var pottþétt geldingur. Svo kom hann Tómas okkar og sá og sigraði... ekki. En andskoti voru þessir skór hans töff. Línuskauta/götuskór með hjóli undir hælnum. Mig langar í þannig. Nema þá að ég hafi séð ofsjónir sem ég útiloka alls ekki.

Var í fríi í vinnunni í dag. Fríið fór í planlaggningu og stöff. Er að fara að umturna herberginu sort of. Svo fóru 1-2 tímar í að skrá niður allar plötur sem ég á inn í excel skjal. Var ekkert svakalegur fjöldi. Kom á óvart miðað við hvað þær líta út fyrir að vera margar. Gott að hafa yfirsýn yfir þetta samt á vísum stað. En fekk mí hvað það eru mikil verðmæti inn í þessu herbergi mínu. Og það er alveg spurning um að fara að fjárfesta í meira af drasli.

Sofið rótt.

:: G-Sus 23:00 [+] ::
...
Ekki ressged að gerast í dag. Vann til 4 kom heim. Ekki ressged að gera. Fór því og rassskellti Eika í borðtennis. Eftir það kom ég heim. Ekki ressged að gera. Tók spólu. The Dish. Fjallar um sjónvarpsútsendinguna frá tunglgöngunni og móttakarann í Ástralíu sem sá um það. Hljómar ekki spennandi en var engu að síður ágætis afþreying. Eftir það, ekki ressged að gera. Og hvað gerir maður þá?
Maður bloggar.

Sumir hafa svona "lag dagsins" í blogginu sínu. Stundum á vel við að innihalda þannig.
Lag dagsins: Star of the story með Heatwave

:: G-Sus 00:00 [+] ::
...
:: mánudagur, maí 10, 2004 ::
Ég kemst alltaf að því betur og betur, eftir því sem árin verða fleiri, að þó svo við séum að hlusta á sömu hljóðin þá þýðir það ekki endilega að við séum að heyra það sama.

:: G-Sus 16:42 [+] ::
...
:: sunnudagur, maí 09, 2004 ::
Músíkantinn, húmoristinn, heimspekingurinn, SNILLINGURINN...
... Sverrir Stormsker

Ég hef alltaf kunnað að meta þennan mann. Eina sem þátturinn um hann áðan gerði var að uppfæra hann í stöðuna ´Snillingur´ í mínum bókum. Var áður í ´Fyndinn músíkant´ hlutanum.

„Þórður“ „Sókrates“ „Búum til betri börn“ „Horfðu á björtu hliðarnar“ og „Andskotans“ eiga drjúgan þátt í að uppfæra manninn í snilling auðvitað.

Textinn við Horfðu á björtu hliðarnar er fyndinn mjög og má finna nokkur góð sannleikskorn í honum. Textann má finna hér.
Annars eru allir textarnir hans snilld held ég. Tvíræðni dauðans.

Ótrúlegt að hann sagði að hann hefði einhver ógrynni af óútgefnum lögum. Hann nefndi töluna 2000 en hver veit. Væri maður til í að komast í það safn eða hvað?

:: G-Sus 21:36 [+] ::
...
Djöfull var John Smith rosalegur! Pocahontas var ekki nema 11 ára!
FEKK!!!

:: G-Sus 00:29 [+] ::
...
:: föstudagur, maí 07, 2004 ::
Ef ég ætti að nefna ógeðslegustu og mest viðbjóðslegustu mannveru (ef mannveru má kalla) sem ég get hugsað mér akkúrat núna þá myndi ég nefna hana Lynndie England.
Hér má sjá hana í ham:



Djöfulsins dverga-trailortrash-breed er þessi viðbjóður.
FEKK!!!

:: G-Sus 19:06 [+] ::
...
:: fimmtudagur, maí 06, 2004 ::
Ég var að browsa hiphop plötusíðurnar hér til hliðar eins og ég geri svo oft á kvöldin og nú fann ég þennan þvílíka gullmola. Ef þið hafið ekki nú þegar RealPlayer installaðan þá er þetta alveg nógu góð ástæða til að smella honum inná tölvuna.
"Þetta" er semsagt lag sem heitir I'm Really Needing You með Olaf G & MC Sven. Eitthvert finnskt rappdúó og þetta er alveg massakúl, hvað þetta er fyndið þ.e.
Smellið á lagið til að hlusta á 50 sek brot úr því.
Yndislegur texti rappaður á ensku með finnskum hreim. Dæmi: „Twenties (?) in my Saab, kronas in my wallet, Olaf and Sven rapping, making plenty profit, with a complex mind and massive genitalia, the finnish rapping duo, keeping in your area. “

Ekki hef ég hugmynd um hvað Olaf og Sven eru að reyna að segja okkur með þessum texta en eitt er víst, þeir eru með massíva belli. Og það er nóg fyrir okkur að vita.

:: G-Sus 22:45 [+] ::
...
Þetta var flottasta show sem ég hef séð. Nuff said. Þeir Kraftwerk liðar eru bara svo úberkúl að það er ekkert lítið. 40ogeitthvað ára gamlir gaurar með smá elli bumbu og farið að sjá á andlitunum á þeim. Þeir tóku öll lögin sem maður þekkti og mikið meira. Voru alveg í 2 tíma að spila, ég eiginlega var að koma heim. Tónleikarnir skiptust í nokkra hluta í raun. Maður kom inn í salinn og þá var stórt hvítt tjald fyrir sviðinu. Svo dofna ljósin og tölvurödd segir eitthvað "...heute abend, KRAFTWERK" og þá kviknaði á rauðum ljósum bakvið tjaldið sem varpaði skuggum þeirra fjórra á tjaldið sjálft. Hólí kreppídi krepp hvað það var kúl. Tjaldið fór frá og þá birtust fjórir gaurar bakvið einhverja hljóðgervla og laptop tölvur klæddir í svört jakkaföt með svört bindi og í rauðum skyrtum. Það er semsagt hluti eitt af showinu og stóð alveg í klukkutíma örugglega. Svo var tjaldið dregið fyrir og opnaðist aftur stuttu seinna. Eina sem var breytt við Orkuverið var að nú blikkuðu bindin þeirra með rauðu ljósi. Þessi hluti tvö stóð í kannski hálftíma. Tjaldið dregið fyrir og var dregið fyrir í nokkrar mínútur. Fólk að spá og spekúlera hvort tónleikarnir væru nokkuð búnir en nei, við komumst að því að We are the Robots var ekki búið að koma svo það hlyti að vera meira eftir. Ljósin kviknuðu aftur á bak við tjaldið en nú var ekki skuggi Kraftwerk liða á tjaldinu heldur skuggi af vélmennum. Já, ég segi og skrifa: Vélmennum. Lagið „We are the Robots“ byrjaði og allt varð vitlaust. Vélmennin voru þó bara efri búkur líkamans, fæturnir voru tvær óhreyfanlegar stangir. En hversu svalt var þetta? Eftir það lag fór tjaldið fyrir aftur. Ég og Brynjar vissum hvað kæmi næst. Það kom ekkert annað til greina. Tjaldið fór frá og þá voru þeir í svörtum búningum með skærgulum neonröndum á (eins og svörtu rendurnar á Spiderman búningnum). Sömu búningar og á MTV hátíðinni. Kveikt var á ljósi sem lýsti upp rendurnar og svo var líka kveikt á fjólubláu neonljósi sem var beint að hausnum á þeim. Reynið að ímynda ykkur þetta: Fjórir menn í svörtum búningum, sem eru lýstir upp með skærgulum röndum, og svo með fjólublá höfuð. Hausarnir á þeim voru virkilega fjólubláir, I kid you not. Geimverur? Komast allavega fjári nálægt því. Í þessu dressi tóku þeir 2-3 lög og svo fóru þeir einn af öðrum af sviðinu. Endaði á gaurnum lengst til vinstri sem sagði blehbleh „Auf Wiedersehen“. And the show was over. Tveir tímar fljótir að líða.
Svo núna þegar þetta er skrifað þá eru 20 dagar í Pixies á sama stað. Það er gamanaðessu, HA!?



:: G-Sus 00:16 [+] ::
...
:: þriðjudagur, maí 04, 2004 ::
Ómægod hvað South Park þátturinn á PoppTíví var fyndinn. Timmy og Jimmy voru í aðalhlutverkum. Þeir töluðu eins og negrar og klæddu sig eins og Crips. Svo voru þeir í stríði við Bloods og lentu í drive by shooting og alles. Svo var þátturinn líka um að Christopher Reeve væri ekki lengur fatlaður þar sem hann drakk fóstur í gríð og erg og kom þannig stofnfrumum inn í líkamann á sér sem byggðu hann upp. Algjört rugl en alveg hrikalega fyndið.
En þetta Blood og Crips vesen er ekki mikið djók í alvörunni. Þetta eru semsagt aðalglæpagengin í bara öllum Bandaríkjunum held ég. Byrjuðu á Vesturströndinni en eru núna líka í New York. Þokkalegt rugl sem er á þessum mönnum. Þeir hafa allskonar siði og reglur og aðalmerkin þeirra eru að Crips ganga í bláu en Bloods í rauðu, svona glæpaklæðnaður. Alveg magnað brenglað. Svo eru þessi tvö gengi semsagt óvinir. Bloods hata Crips og Crips hata Bloods. Einn svalasti maður í heimi samt er í Crips eða hefur allavega tengst Crips á einhvern hátt þar sem hann er oftast klæddur í bláan klæðnað í myndböndum sínum. Það er enginn annar en Snoop Dogg sjálfur. Gaman að segja frá því. Svo eru fangelsin að fyllast af þessum gengjameðlimum auðvitað og þar heldur stríðið áfram. Alveg beeelað lið. Já og ekki má gleyma að Bloods nota ekki C þegar þeir skrifa og Crips nota ekki B sömuleiðis. Eins og dæmi úr einni greininni hér að neðan, Cigarette verður að Bigarette úr munni Bloods meðlims.

Do you wanna know more?
Fjallað um bæði gengi, samt meira um Bloods
Eitthvað aðeins um Crips
Fewking ítarleg umfjöllun um þetta issue

Hvernig væri að stofna svona gengi hér á Íslandi? Við megum ekki vera minni menn en Kaninn, ó nó sörrí!

:: G-Sus 22:21 [+] ::
...
:: mánudagur, maí 03, 2004 ::
Bí-ottses end hós

Ohh... ég var að gera svo mikið grín á smáauglýsingavef mbl.is en svo þarf maður auðvitað að vera skráður til að senda inn auglýsingu. Gat nú verið. Ekki lengur hægt að gera grín án þess að skrá sig einhversstaðar. Mikið sökk.

Styttist í Kraftwerk. Wir sind die Robots, dú-dur-um-dum. Ég bíð eftir gríðarlega líflegri sviðsframkomu af hálfu Kraftwerk manna. Eða ekki bara. Kallarnir eru samt með eitthvað bíírjálað ljósasjó býst ég við. Þeir voru nokkuð magnaðir á MTV awards, eina atriðið sem ég sá og það var nokkuð vel töff.

Please, sir/mam, try to insert yourself manually into your anus. Thank you.

:: G-Sus 23:25 [+] ::
...
:: sunnudagur, maí 02, 2004 ::
Ég er stoltur eigandi seríu 1 og 3 af bæði Futurama og Family Guy. Ég hefði ekki trúað því að þegar ég yrði 23 ára væri ég enn að horfa á teiknimyndir. 22 ára kannski, en ekki 23 ára. Þetta er bara of fokking fyndið. Futurama eru einhverjir vanmetnustu þættir sem gerðir hafa verið. Family Guy sér fram á bjartari tíma hinsvegar þar sem það er víst byrjað að framleiða þá aftur eftir soldið langt hlé. Þeir toppuðu víst einhverjar DVD sölutölur á síðasta ári og því var ákveðið að hefja framleiðslu aftur. Núna kem ég ekki einu gríni úr hausnum á mér sem ég heyrði í Family Guy. Það er sena í þætti, sem fjallar um reykingar, og allt liðið er komið á Bandaríkjaþing til að tala um skaðsemi reykinga. Þá segir einn þingmaðurinn: „Cigarettes killed my father... and raped my mother.“
Ég ætlaði að detta í gólfið af hlátri. Þá hefði ég sko ROFLað big willy style! Þetta er orðið það slæmt að þegar ég hugsa um þetta atriði og spila það aftur í hausnum á mér þá byrja ég að hlæja!!
AAAAAAAAAAAAAHAHAHAHHAHAHAHAHA

Allavega, ef þið hafið kynnst hvorugum teiknimyndaseríum þá mæli ég eindregið með þessu. Léttir lund og bætir og kætir.
Leitah sökkaz

:: G-Sus 22:11 [+] ::
...
Gaman að fá Morgunblaðið í dag klukkan 5 í gærdag. Morgunblað dagsins í dag sem varð að dagblaði dagsins í gær. Hljómar eins og bíómyndatitill.

Það var víst eitthvað hlegið að mér varðandi kreditkortakvittanir um helgina... Núna mun ég reka þann hlátur beint oní lungu aftur. Eins hrikalega heimskulegt og það er nú þá lætur 10-11 kreditkortanúmerið og gildistímann fylgja með á kvittuninni sem maður fær í hendur. Margir henda einmitt sömu kvittun strax í ruslið því þeir taka ekki eftir því að númerið er á henni. Einfalt fyrir hóbóanna eða hvern sem er að stinga hendinni ofan í ruslið, finna kvittun og panta sér pizzu. Jafnvel að versla sér eitthvað aðeins á netinu ef fílingurinn er fyrir hendi. So watch out!

Ég hef bara tekið eftir þessu hjá 10-11 en ef þið vitið um einhverjar aðrar gimpa verslanir sem gera það sama endilega skiljið eftir komment.

:: G-Sus 11:16 [+] ::
...
:: laugardagur, maí 01, 2004 ::
Já, gærkvöldið var um margt merkilegt.

Byrjaði á því að fara í grillveislu niðrí CCP og var þar í einhverja 2 tíma. Ekkert smá töff húsnæði sem þar hafa þarna, kallarnir. Fór svo heim og bauð Arnþóri, Eika, Daða og Steina í heimsókn. Sú heimsókn varð að hlýrabola/fráhnepptskyrta partíi. Daði tók myndir á símann sinn en vonandi hefur öllum myndum verið eytt. Ég, Eiki og Steini fórum svo á Afu Ra á Gauknum. Hann tók alla slagarana kallinn og var mjög töff að hlusta á það. Ekki alveg nógu mikið af fólki samt. Djöfull langar mig að sjá Jeru aftur. Það bara verður ekki toppað held ég. Eftir það lá leiðin á Palace, sem er btw alveg asnalegur staður, og þar hittum við Arnie igen. Stoppuðum á Felix í 10 mínútur og héldum svo á staðinn þar sem allt er beinlínis að gerast, Hressingarskálann. Þvílík snilld. Hljómsveitin Búðarbandið (að mig minnir) var að spila. Það band samanstendur af gaur á kassagítar (Frans), konu sem er fáránlega góð á bongótrommur og svo tsjellingunni sem sá einu sinni um Djúpu Laugina, dökkhærða húmoristakonan. Hún syngur. Þau tóku allskonar lög með allskonar hljómsveitum, frá Outkast til Gylfa Ægissonar. No joke. Og svo gerist snilldin. Hún segir að það sé celeb í húsinu en segir ekkert meira um það. Þá sér Arnþór einhvern gaur sem hann kannast við en hann man ekki hvaðan. Þessi "einhver gaur" var semsagt útlenskur gaur. Við vorum smástund tvístígandi hvernig við kæmumst að því hver þetta eiginlega væri en svo tók hetjan ég af skarið. Ég labbaði upp að kauða og sagði: „OY!“. Hann var alveg vel drukkinn og tók eiginlega ekki eftir mér þannig ég hallaði mér betur upp að honum og sagði hærra: „OY!!“. Djöfulsins bögg í mér. Þá tók hann eftir mér og ég spurði hvort hann væri í hljómsveit. Hann sagði já. Þá spurði ég hann hvort hann væri söngvari í hljómsveit. Hann sagði já. Þá spurði ég hann í hvaða hljómsveit hann væri. Hann hló að mér og spurði í hvaða hljómsveit ég héldi að hann væri. Ég sagði að það væri eiginlega vandamálið, við hefðum ekki hugmynd um það. Þá kom svona þögn og hann var að melta eitthvað svo sagði hann Primal Scream. Nökkuð töff, eih? Þannig ég tók bara í höndina á honum og sagði að það hefði verið gaman að hitta hann. Eftir þessa frábæru sögu þá er ekki lengur merkilegt að við potuðum í bakið á Friðriki Þór, sem var líka á staðnum, bara til að geta sagst hafa snert hann. HAHAHA! Við erum svo miklir plebbar. En þetta Friðrik thing var nú meira í gríni en ég játa fyllilega að ég er algjör plebbi að finnast það merkilegt að hafa tekið í höndina á söngvaranum í Primal Scream. Og það sem meira er... hverjir eru Primal Scream? Maður hefur margoft heyrt um þessa hljómsveit og pottþétt heyrt lög með þeim en ekki get ég nefnt eitt lag með kauðum. Einhver hjálp í ykkur? Þekkiði einhver lög með þeim?

:: G-Sus 15:09 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?