|
|
:: sunnudagur, júní 27, 2004 ::
Fréttir: Samkynhneigður maður skotinn í íbúð í Breiðholti

:: G-Sus 00:30 [+] ::
...
:: föstudagur, júní 25, 2004 ::
Eruð þið búin að ákveða hvað skal kjósa á morgun? Ég vil meina að Ástþór meini vel og sé kannski bara allt í lagi eftir allt saman. Kannski "soldið" öfgakenndur á tíðum. Fær þó ekki mitt atkvæði kallinn. Þessi Baldur verður aldrei nokkurntíma forseti. Punktur. Hann Hnakkus skrifaði góða grein um manninn og bjó til nýtt slagorð fyrir hann. Þið getið kíkt á það hér. Frekar kómískt mjög. Ólafur er svo bara Ólafur. Og allir eiga það sameiginlegt að fá ekki atkvæði mitt. Gamla góða skila auðu bara. Alltaf sami gamli maður skoðanna hann ég!
Og meðan við erum að tala um kosningar, eruð þið búin að kjósa sumarstúlku Víkurfrétta?
:: G-Sus 21:22 [+] ::
...
:: fimmtudagur, júní 24, 2004 ::
Hell yeah, baby pah...
Enn einn hressandi dagur að lokum kominn. Vaknaði í morgun og sá að toppurinn á Esjunni var orðinn hvítur. Það var frábær sjón. Mér fannst afar skemmtilegt að sjá svo pósttilkynningu í póstkassanum okkar. Það merkir að það biðu plötur eftir mér uppá Höfða. Náði í þær auðvitað. Svo gaf ég blóð í dag. Þriðja skiptið. Alveg ár síðan ég gaf síðast. Alltaf gaman að sækja blóðbankann heim. Þar skildi ég eftir 450 ml af mínu A+ blóði og hélt svo leið mína. Heimsótti Gúdabry og foreldra hennar. Horfðum á leikinn saman, þ.e. ég og foreldrar Gúdabry. Hún er ekki nógu gömul til að horfa á sjónvarpið. Ekki nema tvítug í dag, 20 daga þ.e.a.s. Leikurinn var einn sá mest spennandi sem ég hef séð. Ricardo, markmaður Portúgal, varð hreinlega að verja eitt víti. Englendingarnir voru búnir að hlæja of mikið að honum. Pant svo vera Ricardo í dag.
Var dvölin á Sólvallagötunni einkar ánægjuleg og þakka ég ábúendum fyrir mig.
Einkar mikil framleiðni á þessum degi hjá mér miðað við undanfarna daga.
Svo í gærkvöld fór ég að sjá Harry Potter og fangann frá Azkaban. Fór með systur minni og móður þar sem enginn "vina" minna nennti á þessa mynd. En því miður þá fannst mér myndin alls ekki nógu góð. Bókin svona 5 sinnum betri. Mikill assgoti var það.
Vonandi fer veðrið batnandi. Ef svo fer, þá set ég stefnuna á Esjuna. Svona reyna að áorka einhverju áður en ég verð blindur.
Góðar stundir.
:: G-Sus 23:03 [+] ::
...
:: miðvikudagur, júní 23, 2004 ::
Assgotinn... Það er búið að fresta aðgerðinni um nokkra daga. Þannig ég verð ekki kona á morgun, heldur verð ég að bíða fram á mánudag. Leiserinn, sem á að sjá um að sneiða af mér typpið, gaf frá sér einhver undarleg hljóð svo það varð að panta tæknimann frá útlöndum. Ekki nógu gott þar sem ég er búinn að hafa fínan tíma til að safna upp stressi og nú fæ ég enn meiri tíma til þess. Krepp.
Hí á Ítali.
:: G-Sus 11:33 [+] ::
...
:: mánudagur, júní 21, 2004 ::

Var að horfa á Gummo. Hafði aldrei séð hana áður. Ekki get ég sagt um hvað hún er, því hún er ekki um neitt sérstakt. Á IMDB stendur orðrétt: „Plot Outline: Gummo is a sad tale about a town that never fully recovered from a giant tornado“. Það finnst mér ekki alveg rétt. Maður ímyndar sér frekar að myndin gæti gerst í hvaða suðurríkjaþorpi sem er. Fjallar bara um tvo redneck drengi sem labba um og gera hluti. Svo er líka hoppað úr einu yfir í annað svona inn á milli. Það sem er merkilegt við þessa mynd er hversu hriiiiikalega steikt hún er. Hún er tekin í sama stíl og KIDS og ekki skrýtið því sami gaur skrifar myndirnar auk þess sem hann skrifar Ken Park líka (svo þetta er samasem einn steiktur maður). Dæmi um steikilegheit: Það er redneck samkoma inn í eldhúsi og allir að drekka bjór, svo byrjar einn að glíma við stól, stóllinn verður undir auðvitað en eftir mikið þref og svo í credit listanum er gaurinn titlaður sem "Chair wrestler". Að auki má sjá svartan dverg sem virðist að öllum líkindum vera samkynhneigður. Geri aðrir betur. Ef þið hafið ekki séð Gummo, þá ráðlegg ég ykkur eindregið að kíkja á hana. Ykkur líður mun betur með ykkur sjálf á eftir og ykkar vandamál virðast vera biti af köku miðað við rauðhálsalífið in da sweet and sultry sounds of da US.
Hvað er svo málið með Samúel Örn? ´Mute´ takkinn kemur sé assgoti vel meðan á EM stendur.
:: G-Sus 23:44 [+] ::
...
:: sunnudagur, júní 20, 2004 ::
Fór í 3 útskriftarveislur í gær. Ætla alltaf að segja stúdentsveislur en næ að stoppa sjálfan mig í tíma. Byrjaði hjá Atla, fór svo til Daða og þaðan til Brynjars. Mjög gott kvöld í gær bara. Veðrið skapaði mjög góða stemningu.
Fékk þess fréttir í dag að hann Jóel, TKD-maður með meiru, hafi staðist 1. dan svart beltis próf hjá honum GM Cho út í Noregi. Velkominn í hópinn Jóel! Hann verður í Noregi út vikuna svo hann kemur örugglega ekki til með að sjá þessa hamingjuósk mína strax. SMS skilaði kveðjunni þó örugglega fyrr í dag. Æ, maður hugsar með hlýju til þessa árlegu æfingabúða í Norge... Hef samtals farið 4 sinnum og alltaf sérstök upplifun í hvert skipti. Mér fannst nokkuð sérstakt þegar ég var farinn að dreyma á norsku. Það er merki um að maður sé kominn nokkuð vel inn í málið. Ætli það fari svo að ég kíki einhvern tíma þangað aftur? Who beyonce knowls knows ...
:: G-Sus 21:42 [+] ::
...
:: föstudagur, júní 18, 2004 ::
Vá, maður. Þetta er 3. tilraun mín við blogg dagsins. Hinar tvær byrjanirnar hafa verið þurrkaðar út.
Það er margt sem maður tekur fyrir víst og sem sjálfsagða hluti í lífinu og eiginlega bara allt of margt sem fær þannig meðferð hjá manni. Hugsið ykkur hvernig líf ykkar myndi verða ef þið mynduð missa heyrnina alveg eða sjónina alveg. Hvað þá að missa útlim? Hræðilegt. Ekki til annað orð sem lýsir því betur.
Það er eitthvað orðatiltæki sem segir á þá leið að maður veit ekki hvað maður á, fyrr en maður hefur misst það. Þið þekkið það öll. En þetta er bara alveg sannleikur in it´s purest form.
Djöfull fer í taugarnar á mér að hafa svona takmarkaðan orðaforða í íslensku. Ætla ekki einu sinni að reyna að halda áfram með þetta blogg. Get - ekki - gert - mig - nógu - skiljanlegan ...
Can not compute! Can not compute! Can not compute! Can not compute!
:: G-Sus 22:28 [+] ::
...
:: miðvikudagur, júní 16, 2004 ::
Það fer þó aldrei svo að maður gefi henni Björk loksins séns? Hún er allavega að gefa út plötu bráðlega þar sem einungis verður notast við raddir. Og nú skarast það sem ég hef áhuga á við Björk. Raddgaldrakallinn Rahzel mun sjá um taktinn á plötunni, eða svo skildist mér. Það er nóg til að vekja áhuga minn allavega.
Svo mana ég ykkur til að dánlóda Everybody´s gotta learn sometimes með Beck. Það er alveg magnað kúl lag.
:: G-Sus 19:01 [+] ::
...
:: þriðjudagur, júní 15, 2004 ::
Jæja, "ein mest flippaðasta ákvörðun" verður víst ekki tekin. Málið var semsagt að fara til Benidorm á morgun og vera með Arnþóri seinni vikuna hans úti. Þetta er alveg möguleiki en alltof kostnaðarsamt til að vera að standa í þessu. Sérstaklega í ljósi þess hvaða upplýsingar augnlæknirinn lét mér í T í gær. Nú er bara málið að fara í leiseraðgerð á augum. Þarf að fara í tjekköpp fyrst og sjá hvort það sé möguleiki fyrir mín augu að fara í svona aðgerð. Hann sagði að ég væri með soldið stór ljósop. (Hvernig dirfist hann!) Svo það þarf einhverjar pælingar áður en maður lætur verða af þessu. Hell fokking jeh.
Svo er maður núna bara nýbyrjaður í sumarfríi. That´s a first. Veit ekkert hvað ég á að gera af mér. Á öðrum degi. Lofar góðu.
Daði, Atli, Brynjar og faðir Erling útskrifast næsta laugardag frá Háskólanum. Sjiiii. ELLISMELLIR!!! Þótt þið séuð svona gamlir þá ætla ég samt að óska ykkur til hamingju.
Til hamingju.
:: G-Sus 14:42 [+] ::
...
:: sunnudagur, júní 13, 2004 ::
Nú er ég með skemmd í einni tönn og ágætis verkur sem henni fylgir. Skemmdarverk af versta tagi síðan 9/11. Enda mun tannlæknirinn í fyrramálið reyna að redda þessu. Svo er einnig heimsókn til augnlæknis í fyrramálið. Best að fá bara fulla yfirhalningu á einum morgni. Vandamálið með augnlækna samt er að þeir eru allir fullir af skít. Ekkert að marka þá. Ég er mikið að spá í að fara til svona 3-4 augnlækna, fá niðurstöður þeirra allra og deila svo í þær með fjölda lækna. Það ætti að gefa mér allavega einhverja mynd af þessu augnveseni.
Skera þau bara af við háls.
Ég, Daði og Brynjar fórum svo í dag til Erlings, Sigrúnar og Gúdabry. Gúdabry er einmitt nafnið á litlu stelpunni þeirra sem varð 9 daga gömul í dag. Við allavega köllum stelpuna Gúdabry. Það er ekkert svo erfitt að fatta af hverju. Svo gáfum við henni Nike skó í stærð 16 or sumphin. Töff skór. "Áttu þessa í 43"
En enn og aftur til hamingju með barnið, krakkar. Hún er falleg litla prinsessan ykkar.
Mér fannst þetta gott á England. Þeir unnu okkur 6-1 og máttu alveg við eins og einu sjokki.
Bless bless.
:: G-Sus 22:23 [+] ::
...
Var að koma af myndinni Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Hrikalega mögnuð mynd alveg hreint. Get ekki lýst þessari mynd, þið bara verðið að sjá hana til að skija af hverju hún er svona mögnuð. Svo má geta þess að þið munuð fá lagið Everybody's Gotta Learn Sometimes á heilann þegar þið gangið út af myndinni. Magnað lag líka þar á ferð. Þið þekkið dansútgáfuna án efa en þessi útgáfa er í flutningi Beck. Töff lag.
Tjekkið svo á þessari heimasíðu: http://www.timemachinesound.com/timemachine.html
Þetta er heimasíða rappgrúppu sem kallar sig Time Machine. Var fyrst að frétta af þessari grúppu í gær og fékk link á þessa síðu. Opnið síðuna og þá spilast strax lag sem heitir Night Lights (spilast á netinu, þarf engann sérstakan player) og samplið í því er algjört lím á heilann. Þessir gaurar stíla soldið inná að vera með eldri hljóm í lögunum sínum, nafnið Time Machine er væntanlega tilvísun í þá stefnu.
Taktarnir brí-álaðir, rappið ok en ekkert of grípandi samt við svona fyrstu hlustanir. Tjekk át their shit, yo.
Þannig þið þurfið að gera tvo hluti, semsagt.
Fara á Eternal Sunshine of the Spotless Mind og svo opna heimasíðu Time Machine og hlusta á lög.
OK?
:: G-Sus 00:59 [+] ::
...
:: föstudagur, júní 11, 2004 ::
Á BEEEEENIDORM! Á BEEEEENIDORM! Á BEEEEENIDORM MEÐ FERÐASKRIFSTOFU REYKJAVÍKUR!
Muniði eftir þessu lagi? Hrikalegt lag.
En Arnþór er einmitt á Benidorm þessa stundina. Staddur á Gran Hotel Bali á Poniente ströndinni ásamt familíunni. Og nú ræðst það á næstu dögum hvort maður sé að fara að taka eina mest flippuðustu ákvörðun í lífinu til þessa.
Kemur í ljós.
:: G-Sus 11:03 [+] ::
...
:: þriðjudagur, júní 08, 2004 ::
Mikið finnst mér skelfilegt að eiga ekki garð þegar svona gott veður er úti. Fór í dag til Eika og við vorum eitthvað að fótboltast. Halda uppi, senda á milli og eitthvað. Hef ekki snert á fótbolta í nokkur ár. Ég er það einhverfur stundum að ég held að ég myndi njóta mín vel í að halda bolta á lofti allan daginn ef ég fengi tækifæri til þess. Náði meira að segja áðan að halda boltanum í jafnvægi á ristinni, lyfta boltanum upp, fótinn í kringum boltann og ná svo boltanum aftur í jafnvægi ofan á ristinni (sbr. Landsbankaauglýsingin). Ég er svo mikil hetja. Maður með mína þráhyggju hefði örugglega getað gert góða hluti í fótboltanum.
hefði hefði hefði ...
Fekkin hell hvað mig langar á nýjustu Harry Potter myndina. Hljómar eins og ég sé smákrakki, ég veit, en þessar bækur eru bara alveg ágætasta skemmtun og get ég ímyndað mér að þessi mynd sé hin fínasta afþreying. Einhver til í að sjá hana?
:: G-Sus 22:47 [+] ::
...
:: mánudagur, júní 07, 2004 ::
Til hamingju Erling og Sigrún! Stúlka var það heillin.
Já, Lingi og Sigrún eignuðust stelpu síðastliðinn föstudag. Hún var pöntuð af Amazon.com og var flutt hingað til lands með DHL. Neeeee-eeeeei! Storkurinn kom með hana í svona bleyju eins og storkar koma alltaf með börnin í. Neee-eeeei. Nú er ég að bulla. Hvernig koma aftur börnin?! Það er greinilegt hvað þið hafið verið að gera!
Ahhh... Fóstbræður, sælla minninga.
Nú er ég semsagt orðinn Gútti "frændi".
:: G-Sus 11:06 [+] ::
...
:: laugardagur, júní 05, 2004 ::
Skelfilegt. 6 fokking 1. Mér fannst samt best þegar Hörður slaki Magnússon kom með þann punkt að við erum ekki nema 300 þúsund manna þjóð en Englendingar um 60 milljónir or sumphin. Ef það á að beita þessari rökleysu alltaf þegar okkur gengur illa í einhverju er þá ekki bara best fyrir okkur að sitja heima í staðinn? Aumingjahátturinn er alger þegar fólk heldur að það þurfi að koma þessu að. Er þá ekki hægt að segja að sama skapi að þar sem Englendingar eru 200 sinnum fleiri en við að þá gildi okkar mark 200 sinnum meira? Við unnum England 200-6! HÚRRA! Beat that all you large nations of the world!
Lærdómur sem draga má af þessu bloggi:
Ef þú einhvern tíma stendur þig að því að réttlæta slæmt gengi Íslands í [nafn atburðar hér] með fámenni okkar Íslendinga, þá ertu tussa.
:: G-Sus 16:50 [+] ::
...
:: föstudagur, júní 04, 2004 ::
Ef maður ofnotar orð sem nú þegar eru viðurkennd, þá verða þau merkingarlaus með tímanum. Bandaríkjamenn hafa til að mynda alveg gjöreyðilaggt sögnina ´að elska´.
Ef maður ofnotar hinsvegar orð sem fáir hafa heyrt og eru kannski alveg ný af nálinni, þá oftar en ekki verða þau að tískufyrirbrigði. Sbr: ýkt, kúl, steiktur, magnað o.s.frv.
Er það ekki alveg magnað kúl hvað þetta er steikt?
:: G-Sus 17:03 [+] ::
...
:: fimmtudagur, júní 03, 2004 ::
And we now go live to our very own asian reporter, Trishia Takinawa.
Silly rabbit. Tricks are for kids.
Fokking fyndið.
Annað sem er fyndið, ef fuglar gengju í nærbuxum.
dsfahkslfjksaljfksajfdskfusdfsdlfæj.....SNAP!!!!!!11111ONEONEONEONE!!!111
:: G-Sus 23:48 [+] ::
...
:: miðvikudagur, júní 02, 2004 ::
Er "Nylon" endalok íslenskrar siðmenningar?
:: G-Sus 21:19 [+] ::
...
:: þriðjudagur, júní 01, 2004 ::
Það er komin ný tegund af raunveruleikaþætti. Held þeir gerist ekki mikið raunverulegri en þetta. Þátturinn er í anda Truman Show og heitir The Joe Schmo Show. Það er logið að gaur að hann sé að taka þátt í raunveruleikaþætti en í raun er enginn þáttur og það eru myndavélar á honum í staðinn 24/7. Hversu hrikalegt er það? Að lenda í svona? Auðvitað þarf maður að vera nett slakur til að taka þátt í svona raunveruleikaþætti, en að þú sért óafvitandi aðalnúmerið? Fokk sjitt og moðerfokker hvað snappið yrði mikið þegar maður kæmist að þessu. Dææææææm.
Mér finnst þetta illa gert allavega.
Ég nenni ekki meira.
:: G-Sus 21:01 [+] ::
...
|