|
|
:: sunnudagur, febrúar 25, 2007 ::
Ég er hrikalega vondur í að taka stórar ákvarðanir. Ég er svo vondur í því að ef það væri boðið uppá námskeið í stórum ákvarðanatökum þá myndi ég kannski fara. Ég segi kannski því ég veit ekki hvort ég gæti ákveðið mig hvort ég ætti að fara eða ekki.
Ef það væru 30 tímar í sólarhringnum þá væri allt strax skárra. Við þurfum að hægja á snúningi jarðar einhvernveginn. Ég legg til að á einhverjum fyrirfram ákveðnum tíma þá sameinist allir jarðarbúar og fari í frí einhversstaðar nálægt miðbaug. Svo þegar fólk hefur komið sér vel fyrir þá fara allir út úr húsi og snúa sér í austurátt. Svo er bara að byrja að hlaupa á staðnum og spyrna fótunum vel ofan í jörðina. Hvernig hentar næsti laugardagur ykkur?
Æi, kannski skipta tímarnir í sólarhringum ekki neinu máli ef lífið lengist ekkert að sama skapi. Við gætum þurft að fresta þessu hlaupastússi... Ég læt ykkur vita með sms-i.
:: G-Sus 17:41 [+] ::
...
:: sunnudagur, febrúar 18, 2007 ::
J. Dilla, Premier, Pete Rock, J-Swift.
Hver sker sig úr? Það myndi vera J-Swift, krakkar mínir. Allt frábærir pródúserar, en einhvern veginn hefur J-Swift aldrei fengið þá athygli sem hann verðskuldar. Meira að segja J. Dilla hefur fengið meiri umfjöllun en hann. Ég hef lengi vitað um þennan mann þar sem hann var með puttana í gerð Bizarre Ride II með The Pharcyde. Ég komst að því núna bara nýlega að hann bjó til öll lögin á þeirri plötu, jafnvel þó svo hann sé ekki titlaður höfundur þeirra allra á skífunni sjálfri. Eftir að ég fattaði hann var viðriðinn Bizarre Ride þá fór ég að kynna mér hann betur, það eru nokkur ár síðan. Eiginlega öll lögin sem hann hefur gert eru drulluflott. Því miður hefur hann ekki getað búið til nógu mörg, en gæði eru betra en magn, býst ég við. Eins og lögin hans Dilla eru svöl þá eru lögin hans J-Swift svöl en því meira grúví. En af hverju hefur maðurinn ekki gert meira af lögum? Það er til sorglegt svar við þeirri spurningu. Hann varð milljónamæringur 21 árs og heimilislaus 31 árs. Smoking crack is bad, mmkay? Einhver vinkona hans fann hann undir tré þar sem hann "átti heima" og var að hreinsa krakkpípuna sína. Hún tók hann uppá sína arma og hefur verið að búa til heimildarmynd um kauða, sem ber nafnið "1 More Hit". Undirtitillinn er "Take one, or make one", sem er mjög viðeigandi. Þessi mynd kemur út núna um miðjan mars og ég ætla mér svo sannarlega að komast yfir hana á einhvern hátt. Svakalega sorgleg sóun á hæfileikum.
Jæja, þetta var nú fróðlegt, ekki satt!? Allir alveg með andlitið límt við skjáinn akkúrat núna. Gaman alltaf hvað það eru fáir sem deila áhuga mínum á hlutum ýmisskonar.
Núna er veikindaþunglyndið alveg að maxa sig út. Síðasti dagur æfingarhelgarinnar og ég hef ekki getað mætt á eina einustu æfingu. Ég hef hinsvegar verið að horfa á eitthvað stöff í tölvunni og þess á meðal kvikmyndina Babel. Ég veit ekki hvað mér á að finnast um þessa mynd. Mér fannst óþægilegt að horfa á hana og leið hálfilla allan tímann. Ætli mér lítist bara ekki heldur illa á hana frekar en vel. Hvað er svo með nafnið? Töff nafn, en af hverju Babel? Af því það eru töluð heil 5 tungumál í myndinni? Ég taldi allavega ekki fleiri og skil ekki alveg nafngiftina.
:: G-Sus 15:38 [+] ::
...
:: föstudagur, febrúar 16, 2007 ::
Pity blogg
Búinn að vera meira eða minna veikur núna í viku. Frábært stöff. Er að missa af æfingahelgi með honum góðvini okkar allra, honum GM Cho. GM stendur hérna fyrir GrandMaster, ekki GameMaster. Svo eru miðannarprófin í næstu viku og þeirri þarnæstu. Það er allt að gerast alveg. Búinn að kaupa miða í stúku á Incubus, þann 3. mars næstkomandi. Það merkir að ég þarf að ná mér í nýjustu plötuna þeirra og fara að kynna mér kallana. Eitthvað hugsa ég að það verði tekinn rúntur niður Minningarbraut þegar þeir spila 'Drive'.
Stærri stafir en vanalega í þetta skiptið. Ótrúleg þessi tækni.
:: G-Sus 20:10 [+] ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 14, 2007 ::
Nei, sorry, ég hef ekkert.
:: G-Sus 19:32 [+] ::
...
:: mánudagur, febrúar 05, 2007 ::
Núna tvisvar á skömmum tíma hef ég vaknað með lagið Kiss From a Rose með Seal í hausnum á mér. Hvaða djöfulsins rugl er það eiginlega??
:: G-Sus 18:47 [+] ::
...
:: föstudagur, febrúar 02, 2007 ::
Hversu skemmtilegt er þetta myndband: Penn & Teller: Bullshit ? Skemmtilegt! Það er hversu!
:: G-Sus 23:01 [+] ::
...
|