eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: laugardagur, júní 30, 2007 ::

This Just In!
Eftirfarandi er tekið af mbl.is og einnig er hægt að sjá þetta í blaðinu sjálfu í dag:
"Justin Timberlake hefur opinberað áhuga sinn á að starfa með bresku poppsveitinni Coldplay. Söngvarinn sem gerðist svo frakkur að hrækja á aðdáendur sína fyrir stuttu virðist vera haldinn alvarlegri heilabilun því að um leið og hann lýsti yfir aðdáun sinni á Coldplay, líkti hann sveitinni við Bítlana."

Hverskonar fréttamennska er þetta eiginlega? Hver notar orðið heilabilun í svona frétt? Þokkalega sterkt til orða tekið. Hvað ætli blaðamaðurinn sé gamall? Ef ég á að giska, þá er blaðamaðurinn ekki meira en svona liðlega tvítugur og fílar ekki Mr. Timberlake. Hvernig veit hann hvaða svona poppstjörnur þurfa að þola? Getur ekki verið að það komi að tímapunkti þar sem sýður uppúr? Það er svo eflaust eitthvað meira á bakvið fréttina um að hann hafi hrækt á aðdáendur. Ekki beinlínis eitthvað sem maður gerir uppúr þurru.
Hann er aðdáandi Coldplay? Só fokking vott? Ef honum finnst þeir jafnast á við Bítlana, gott hjá honum. Þó svo að blaðamaður sé ekki sammála honum þá er óþarfi að nota orðið 'heilabilun' í þessu samhengi.

Justin, ég elska þig.

:: G-Sus 13:33 [+] ::
...
:: þriðjudagur, júní 26, 2007 ::
ÉG ER AÐ FOKKING FARA TIL FOKKING JAPAN!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
SUBARASHII DESU NE!!

Og svo ein upphrópun að lokum.... !

:: G-Sus 12:15 [+] ::
...
:: föstudagur, júní 22, 2007 ::
Josh Groban í þriðja veldi heilsar ykkur. Já, það gerðist aftur í gær og þá gerir það 3 skipti frá þremur ótengdum aðilum. Núna þarf ég bara að læra að syngja.

Tilveru minni sem miðbæjarrottu er hérmeð lokið. Þetta var frekar fljótt að líða en í senn alveg andskoti viðburðarríkir dagar. Ég veit ég er 26 ára gamall og ætti undir flestum kringumstæðum að teljast vera fullorðinn nú þegar, en undanfarnar vikur hafa verið þroskandi og ég held svei mér þá að ég hafi fullorðnast um einhver milliprósent.

Ég tók mig til og las soldið meðan ég var niðrá Bergþórugötu. Ég hef ekki lesið neitt að ráði í langan, langan tíma. Maður er svo helvíti tregur að maður fattar ekki fyrr en of seint að lestur bætir alveg svakalega orðaforðann og auðveldar allt tungutak til muna. Að ekki sé talað um að maður getur lært sitthvað um lífið og tilveruna við lesturinn.

Ég get staðið á eigin fótum ef ég þarf þess. Gott að vita til þess að maður fer ekki alveg fatlaður til Japans (nei, ekki enn komið á hreint...).

Tjekkið svo á þessu lagi með Paul Anka. Munið eftir þegar Raggi Bjarna tók Smells Like Teen Spirit hérna um árið? Sú hugmynd var stolin frá þessum gaur. Mikil snilld að heyra þetta lag í swing fíling:

:: G-Sus 21:57 [+] ::
...
:: mánudagur, júní 18, 2007 ::


Kominn heim frá London. Mér líkar London ágætlega. Gerðum margt sniðugt á mjög stuttum tíma. Heilsaði upp á leikarann Bill Nighy í Camden, festist í tímalúppu í Greenwich (gren-itch), labbaði í St. James' Park með hinum fuglunum, fór á klúbbinn 'Jazz Café' þar sem allar helstu hetjur rappsins hafa komið fram, gerði tilraun til inngöngu í Westminster Abbey, sem var svo því miður lokað, borðaði mikið af óhollum mat og drykk, keypti töff boli og töff jakka og svo eitthvað meira sem ég er að gleyma.
Mjög gott að taka þetta skrepp. Það þurfti eitthvað til að brjóta upp hversdagsleikann.

Þessar síðustu vikur hafa verið eitthvað skrítnar. Ég er farinn að hlakka alveg allsvakalega mikið til Japansreisunnar. Ef það verður svo ekkert af þessu, þá mun ég taka mér veikindafrí og gráta í nokkra daga. Vera soldið emo. Ég er búinn að uppgötva að ég get verið soldið emo þegar enginn sér til.

Friður.
Út.

:: G-Sus 20:36 [+] ::
...
:: sunnudagur, júní 10, 2007 ::


AAAAAAAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA

Ég fer aldrei á Faxe 10% fyllerí aftur.

AAAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAhahaha.....haha

:: G-Sus 19:06 [+] ::
...
:: sunnudagur, júní 03, 2007 ::

Djöös töffheit í þessu lagi. Mos Def og Talib Kweli forma saman Black Star. Pródúsað af J Dilla.

Josh Groban heilsar ykkur héðan úr 101 Reykjavík. Kötturinn segir hæ líka.

Ég get með sanni sagt að ég hati bjöllurnar í Hallgrímskirkju. Ef ég einhverntíma flyst niður í bæ, þá verður það ekki alveg svona nálægt þessum viðbjóði. Hvaða rugl er það að lemja þessar bjöllur í nærri því korter á sunnudagsmorgnum?? Ekki heldur neitt lag sem er verið að spila, bara eitthvað random sjitt sem gerir mann pirraðri með hverju slaginu. Ekkert sérstakt þynnkumeðal það.

Annars er ekki yfir neinu öðru að kvarta. Héðan er stutt í vinnuna og miðbærinn er fyrir utan dyrnar hjá manni. Það merkir að Sódóma er mjög nálægt líka en maður ætti að höndla þetta.

Ég held bara að kvöldið í gær hafa verið eitt það skemmtilegasta lengi.

Friður.
Út.

:: G-Sus 19:03 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?