|
|
:: þriðjudagur, febrúar 28, 2006 ::
Bíddu, ég sá ykkur ekki á Gauknum?
Það er alveg óþolandi í tónlistarmyndböndum þegar einhver á að vera að hlaupa en það er greinilegt að hann/hún er bara að hlaupa á staðnum. Það mætti segja að það sé mest lélegt. Hvernig væri að splæsa í hlaupabretti eða þá að splæsa í dolly svo þeir geti hlaupið venjulega? Ætli kostnaðurinn við myndbandið myndi rjúka upp ef það væri gert? Hugsa ekki. Óþolandi pakk.
Annars bið ég ykkur bara vel að lifa.
:: G-Sus 15:30 [+] ::
...
:: föstudagur, febrúar 24, 2006 ::
Jæja, á morgun er dagurinn. Þið mætið á Gaukinn, er þaggi? Komið til mín um 9 og hlustum á nokkur vel valin Pharcyde lög, horfum jafnvel á nokkur myndbönd. Svo hendi ég ykkur út klukkan 11 og hitti ykkur aftur á Gauknum? Sounds like a plan?
Haldiði svo að karlpungurinn hafi ekki snoðað sig aftur bara! Ha! Long time no do. En nóg um mig, hvað um ykkur? Einhverjar hárbreytingar á leiðinni? Börn á leiðinni? Pray tell!
:: G-Sus 22:56 [+] ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 22, 2006 ::
Ég hef heyrt að það sé óhollt að borða eftir klukkan tíu á kvöldin. Hafið þið heyrt þetta líka? Eitthvað við þetta "hollráð" situr ekki rétt í mér og mér er spurn, skiptir engu máli hvenær maður vaknar? Hlýtur að gilda mismunandi fyrir mann sem vaknar klukkan átta um morguninn og fyrir mann sem vaknar klukkan tvö um daginn, ikke?
Fannst mér ég þurfa að benda á þetta. Takk.
:: G-Sus 17:29 [+] ::
...
:: þriðjudagur, febrúar 21, 2006 ::
Andskotans fokking blogger drasl. Bjó til nýja færslu og þá eyddist út seinasta færsla sem ég póstaði. Ég endurpóstaði henni en núna vantar kommentin við hana.
Jæja, víkjum aftur að þessu minnisleysi..
Ég þoli ykkur ekki.
:: G-Sus 17:33 [+] ::
...
Ef það er eitt sem ég vildi helst sleppa við um ævina, þá er það minnisleysi. Hræðilegt að muna ekki hvað maður gerði í gær, muna ekki hvað vinir manns og ættingjar heita og geta ekki einu sinni horft á kvikmyndir því maður man ekki hvað gerðist fyrr í myndinni. Örugglega það sem ég óttast mest, þar sem maður veit væntanlega ekkert af minnisleysinu sjálfur og getur því gert allan fjandann án þess að finnast það neitt skrítið en allir í kringum mann eru að eipsjitta á því hversu ruglaður maður er.
Hvað finnst ykkur annars um þetta skopmynda / múslima mál allt saman? Þetta er nú meira ruglið. Ég veit að fyrir nokkrum árum var sýndur South Park þáttur þar sem þeir gáfu Múhammeð hlutverk í þættinum og ekki minnist ég þess að allt hafi farið í háaloft þá. Mér finnst ekki rétt að bera þetta saman við helförina eins og sumir múslimar gera. Soldið djúp gjá á milli þess að teikna mynd og svo drepa 6 milljónir gyðinga. Og hvað er með þessar fánabrennslur... alveg stórundarlegur og frekar leiðingjarn ávani.
Ég segi bara, don't be hating on a playa, show some respect for those who deyja.... eða eitthvað.
:: G-Sus 17:31 [+] ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 15, 2006 ::
Ég get ekki ímyndað mér að verða gamall. Get ekki séð það fyrir mér. Maður hefur ófáum sinnum um ævina komið inná elliheimili og það er ein stofnun sem ég myndi ekki vilja lenda inná. Sultardropar úr nefinu, vasaklútur, spilað á 52 spil og fleira skemmtilegt. Ætli þetta verði nú ekki eitthvað breytt þegar við verðum gömul, en samt, svona frekar glatað yfir heildina. Minnisleysið... það hlýtur að vera verst. Ekki verst fyrir þann sem er með það auðvitað, því það er örugglega sjaldgæft að viðkomandi viti af minnisleysinu. Ef hann veit af því, þá gleymir hann að hann veit af því fljótt aftur. Huggun harmi gegn. Ekki sniðugt að muna ekki nöfn á manns nánustu, muna ekki hvað gerðist í gær, muna ekki hvernig á að enda setningu því maður man ekki hvað maður var að skrifa um. Minnisleysi, nei takk.
En finnst ykkur ekki merkilegt að þann 7. júlí 2001 var sýndur í bandarísku sjónvarpi einn þáttur af (bestu þáttaröð í heimi) South Park. Hann er merkilegur fyrir þær sakir að í honum er Jesú (ekki ég, hinn jesú) teiknaður með nokkrum félögum sínum. Þátturinn heitir "Super Best Friends" og þar er Jesú í slagtogi með vinum sínum að bjarga heiminum frá David Blaine. Vinir Jesú eru m.a. Búddha, Móses og... og... Múhammeð. Múhammeð gerir alls kyns kúnstir í þessum þætti og vinnur leiksigur. Skrítið að múslimasamfélagið sagði ekkert við þessu, ekki svo maður muni allavega. Þarna er spámaðurinn ekki bara teiknaður, heldur látinn leika eitthvað skrípahlutverk (sem er auðvitað óviðjafnanlega fyndið) og honum eru lögð orð í munn. Ég veit allavega ekki hvað er í gangi með þetta fólk sem er að býsnast yfir þessum teikningum. Þetta lyktar soldið af því að ef það hefði ekki verið fyrir þessar teikningar þá hefði bara eitthvað annað komið í staðinn sem hefði hrundið af stað þessum óeirðum. Ég myndi ekki kalla mig þjóðernissinnaðan en ef ég myndi sjá einhvern brenna íslenska fánann, þá myndi ég eflaust finna til einhverra áður ókannaðra kennda. Man eftir að hafa séð einu sinni mynd af því en þá voru einhverjir að misskilja og þeir héldu að íslenski fáninn væri breski fáninn. Þrátt fyrir það þá var það sjokkerandi.
Getum við ekki öll bara verið vinir? :* (þetta er kossabroskall fyrir ykkur fattlausu)
:: G-Sus 22:25 [+] ::
...
:: föstudagur, febrúar 10, 2006 ::
Tónlistarpælingar...
Það er einhver viðbjóður (meiri viðbjóður en vanalega) í spilun þessa dagana á Popptívi, eða hvað þetta heitir núna. Einhver asnaleg stelpa í náttfötum, eða svo gott sem, að syngja "Hellohellohelloetc....", alveg endalaust. Hvíthærð stúlka með svona Britney Spears / Christina Aguilera blendings útlit. Algjört helvítis drasl og fær mann til að hugsa af hverju maður er ekki sjálfur búinn að búa til einhvern hittara. Virðist ekki vera neitt erfitt ef réttu tólin og tækin eru fyrir hendi.
Ég er búinn að spá og spekúlera mikið í þessum tilvonandi Pharcyde tónleikum og svei mér þá ef ég er ekki að verða spenntari og spenntari. Ég er búinn að uppgötva það að Booty Brown og Imani eru barasta alveg jafn mikilvægir hlekkir og Fatlip og Slimkid Tre voru, eftir að hafa hlustað á Bizarre Ride II og Labcabincalifornia aftur og aftur og aftur. Fullt af textum eftir þá tvo sem maður getur 'sungið' með, eða eins mikið og ég man því mér er ómögulegt að muna texta. Semsagt, af gamla stöffinu þá verður gaman að heyra þá tvo bösta rímur. Vonandi að þeir taki ekkert mikið af þessu nýja því það efni sem þeir tveir hafa gefið út bara tveir saman er ekki að gera sig nógu vel. Vonast til að sjá ykkur öll á Gauknum 25. febrúar næstkomandi.
Var að horfa á gamlar upptökur úr "Yo! MTV Raps" þáttunum sem maður horfði á í denn. Hversu mikil snilld voru þessir þættir? Þetta skráði rappsöguna, svo gott sem ('svo gott sem' er nýtt stöff). Allavega, þá komst ég að því að ónýtasti maðurinn í þessari rappsögu hlýtur að vera enginn annar en... en... Who will it be!? Will it be contestant number one, Ol' Dirty Bastard? Will it be contestant number two, Flavor Flav? Or, will it be contestant number three, Fatlip? If you said, contestant number two, you are our lucky winner! And you have won nothing! Absolutely nothing at all!
Já, Flavor Flav er án efa sá súrasti. Fyrir utan það að ganga með klukku framan á sér (ættuð að kannast við hann núna ef þið voruð ekki búin að kveikja) þá er hann bara með eitthvað rugl... svo gott sem. Fáránleg sólgleraugu, fáránlegur klæðaburður og alveg fáránlega út úr heiminum alltaf. Það ætti að setja manninn í svona auglýsingar fyrir forvarnarstarf.. Kids, don't smoke crack or you will wind up like Flavor Flav!! Samt gaman að honum auðvitað. Alltaf gaman að skrítnu fólki. Það gerir lífið svo mun litríkara. Eins og ég. Svo gott sem.
IMPORTANT UPDATE: ó men ó men ó men... Var að fá fregnir af því að sá pródúser í hip hop heiminum, sem ég hef hvað mestar mætur á, sé dáinn. Í hip-hop-i þá er pródúser sá sem býr til taktana og undirspilið, svona til einföldunar. Jay Dee (J. Dilla) dó úr nýrnabilun því það liðu dagar þess á milli sem hann borðaði og það fokkaði honum víst upp. Hann var svo upptekinn við að búa til tónlist að hann gleymdi því að borða... Það er alveg ótrúlegt. Þessi maður er ábyrgur fyrir öllu því besta frá Slum Village, nokkrum góðum lögum með Pharcyde og svo var hann meðlimur hópsins (The Ummah) sem pródúseraði fyrir Tribe Called Quest í seinni tíð. Þetta er bara svona til að nefna dæmi. Endalaust mikið af góðum lögum sem hann hefur gert. Fokk men. Hvernig væri nú ef þessir bestu / áhugaverðustu í hip-hopinu hættu að deyja?
:: G-Sus 23:50 [+] ::
...
:: fimmtudagur, febrúar 09, 2006 ::
Blogger er drasl eða alveg þangað til ég kemst í nýja tölvu til að pósta þessu drasli. Drasl.
:: G-Sus 23:02 [+] ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 08, 2006 ::
Maaaaan aliiiive... Var að koma af Hostel. Ég er ekki mikið fyrir stjörnugjafir svo ég segi frekar að hún sé undir meðallagi. Hlutverk Eyþórs er nú meira ruglið. Ég fékk mikinn bjánahroll þegar hann kom við sögu, sem var sem betur fer ekki svo oft. Ég hló mikið þegar íslenski þýðandinn brilleraði og klúðraði sínum málum gjörsamlega, nema hann megi vera með einkahúmor í vinnunni. Eyþór sagði skýrt og greinilega: „This is my daughter, Sunneva“. Þýðandinn tók sér hins vegar skáldaleyfi og þýddi: „Þetta er Svanhildur, dóttir mín.“
Rétt upp hönd þeir sem tóku eftir villunni. Annaðhvort er þýðandinn fáviti eða hann er snillingur.
Svo var bíóið búið og ég stóð upp. Enginn sími? Nei, nú er einhver að djóka í mér. Fann ekki símann en vissi að ég var með hann þegar ég kom inn. Við tók korters leit og loksins fannst kjeppz! Ef ég hefði ekki fundið hann, þá hefði mínum gsm dögum verið formlega lokið. Að fara í gegnum 3 síma á einu ári er of mikið. Svo veit ég ekki hvort ég á að þora á Memoirs of a Geisha... Eins og flestir vita þá er Geisha japanskt fyrirbæri, en einhvernveginn fannst leikstjóranum hann þurfa að "casta" kínverskar leikkonur í aðalhlutverkin. Me no comprende, amigo.
Eníhúú.. Of course, my horse. Gusutafu
:: G-Sus 01:00 [+] ::
...
:: mánudagur, febrúar 06, 2006 ::
Við skulum hafa það á hreinu að Eurovision er drasl. Gott ef ekki eitt mesta drasl sem um getur. HINSVEGAR... Ef Silvía Nótt vinnur þetta, þá verður gaman að fylgjast með hvernig fólk tekur henni. Þetta er töff lag sem hún er með og núna þarf bara einhvern sniðugan til að enska textann svo útlendings geti skilið hversu frábær hún er. Auðvitað verður þetta alltaf einhver íslenskur einkahúmor að senda hana út en það er þó skárra að hafa textann á ensku þannig að restin af Evrópu geti fengið tækifæri til að taka þátt í gríninu. Eða kannski bara ekki, við nánari umhugsun? Það væri besta skemmtun ef aðeins 300 þúsund manns skildu hvað í andskotanum væri að gerast á sviðinu í Roxnifurr landi þar sem þessi keppni er haldin. Leiðinlegt að einhver gaur er að kæra þátttöku þeirra í þessari undankeppni. Er fólk ekki bara að kjósa það sem því þykir best eða vill helst sjá sem fulltrúa Íslands í aðalkeppninni? Hvaða máli skiptir það að laginu hafi verið lekið út á netið? Akkúrat engu, ef þú ert sjálfur með nógu grípandi lag. Nú veit ég ekki hvaða ÞRJÚ lög þessi gaur er með en ég býst fastlega við því að þau séu ekki nógu grípandi. Hættu þessi væli, kall, and suck it up!
Að því sögðu, þá hef ég ekkert meira að segja.
:: G-Sus 17:27 [+] ::
...
:: laugardagur, febrúar 04, 2006 ::
Já, Matt Stone og Trey Parker sanna enn og aftur snilli sína með 12. þætti 9. seríu af South Park. Vísindakirkjan er tekin í rassgatið, sem og Tom Cruise líka. Þið getið horft á þáttinn HÉR
:: G-Sus 15:02 [+] ::
...
|