eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: föstudagur, febrúar 25, 2005 ::


:: G-Sus 13:15 [+] ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 23, 2005 ::
Kominn nýr trailer að Hitchhiker's Guide to the Galaxy. Sjáið hann hér.
Einn gaurinn úr The Office leikur Arthur Dent og svo náttulega Mos Def sem Ford Prefect. Get ekki lýst því hvað mér finnst það sniðugt val að láta Mos Def í þetta hlutverk. Veit að hann hefur verið að leika eitthvað á sviði svo það er bara ekki verið að skella "einhverjum rappara" í hlutverkið.
Töff trailer. Tjekk itt át.

:: G-Sus 12:13 [+] ::
...
:: sunnudagur, febrúar 20, 2005 ::
Eruði ekki að grínast! Ég var að ná miðum á Eddie Izzard! Múahahahaha!
Forsala á ekki að hefjast fyrr en í fyrramálið en ég gat samt keypt 4 miða á netinu.
Magnað.

:: G-Sus 22:19 [+] ::
...
:: föstudagur, febrúar 18, 2005 ::
Ég hef tekið upp á þeim ósið að niðurhala (dánlóda vottevah..) þáttum af DC. Nú er ég að horfa á þætti sem heita "Lost" og eru þeir víst að gera góða hluti í Kanalandi. Þættirnir fjalla um fólk sem lifir af flugslys og hvar lenda þau? Jú, auvitað svo heppin að lenda á eyðieyju. Eyjan er eitthvað spúkí og allskyns vesen sem fólkið lendir í. Þegar ég heyrði fyrst um Lost þá hugsaði ég "Mikið rosalaga hlýtur að vera leiðinlegt að horfa á þessa þætti." Svo er ég svo undarlegur að ég gaf þeim séns og dánlódaði flugmanninum (pælottnum, vottevah...) og fannst hann frekar slakur bara. Næsta sem ég gerði var að dánlóda þætti númer 2 í röðinni... strange, I know. Horfði á hann og hann var ekki eins slakur en samt soldið slakur. Svo horfði ég á þátt númer 3 og svo 4 o.s.frv. Komin uppí 13 af þeim 16 þáttum sem hafa verið sýndir. Afhverju er ég að horfa á þetta? Ég stend mig að því stundum að vera með eitthvað bjánaglott á mér af því ég er svo spenntur yfir því sem kemur næst(!). Það hlýtur að vera eitthvað svona jedi mind trick notað í byrjun þáttanna sem maður tekur ekki eftir og er þess valdandi að maður verður hooked.
Fyndnast finnst mér að aðalleikkonan er eins og ofvaxið barn. Með barnsandlit en samt í eitthvað of stórum líkama. Djöfull þoli ég hana ekki.

Ég er svo aaaasnaaaaleeeegur! (óþarfi að kommenta á það samt..)

:: G-Sus 12:07 [+] ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 16, 2005 ::
Allir sem voru í draumnum mínum í nótt, það verður reunion í kvöld heima hjá mér klukkan 8. Farið verður yfir atburði liðinnar nætur og skeggrætt um helstu atriði.
Bring your own snacks.

:: G-Sus 14:39 [+] ::
...
:: föstudagur, febrúar 11, 2005 ::
Sá Meet the Fockers um seinustu helgi. Bara að láta ykkur vita.
Líka að láta ykkur vita að hún var ekkert nema meðalmynd. Alls ekki eins góð og ég bjóst við. Ég hélt ég gæti ekki fengið nóg af Ben Stiller... I guess I was wrong.

Til hamingju með daginn, Daði. Árin orðin 24, bara eins og í þáttunum.

:: G-Sus 16:41 [+] ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 09, 2005 ::
Leiðinlegt að geta ekki kúkað án þess að pissa, finnst ykkur ekki?

Ég er orðinn svo hás, mar. Fólk er búið að gefa mér þvílíkt auga í allan dag og ég hreinlega skil ekki hvers vegna. Er ekki annars öskurdagurinn í dag?

Takk takk. Þið hafið mitt leyfi til að reyna að draga þessa síðu yfir í 'Recycle Bin' á tölvunni ykkar.

:: G-Sus 19:19 [+] ::
...
:: föstudagur, febrúar 04, 2005 ::
Líf einkaþjálfarans

Einn!
Tveir!
Þrír!
Koma SVO!
Fjórir!
Fimm!
Sex!
Tvær í viðbót!
Sjöööö!
Ein enn!!!
ÁTTA!! Flott!

Djöfull hata ég að hlusta á einkaþjálfara.

:: G-Sus 22:03 [+] ::
...
:: fimmtudagur, febrúar 03, 2005 ::
Mugison

Mugison þetta og Mugison hitt...
Who the fuck is this MUGISON character!!

Er þetta ekki bara einhver væll?

:: G-Sus 04:19 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?