|
|
:: þriðjudagur, september 30, 2003 ::
Danmörk 1 - Ísland 0
Þetta er staðan í hversu mikið hvort land fyrir sig rokkar. Og Danmörk er í eilífðarsókn.
Þegar ég kom þá biðu Baldur og Laufey eftir mér á flugvellinum og við fórum með farangurinn í íbúðina þar sem systir mín býr. Svo fórum við..... nei... þessu nenni ég ekki einn fjórði sko. Nenni ekki þessum dagbókarstíl.
Ég sá/skoðaði/fór á/fór í/heimsótti eftirfarandi:
Strikið, Konunglega bókasafnið, Konunglega leikhúsið, Sivalaturninn, Ráðhústorgið, Kongens Nytorv, Kongens Nyhavn, Hviids Vinstue, dýragarðinn, Þjóðminjasafnið, Glyptoteket, Christianiu, Tycho Brahe Planetarium, Magazin du Nord, Marmarakirkjuna, Amalienborg og svo náttulega kíkti maður inn í búðir og veitingastaði og tók strætó nokkuð oft. Mér finnst þetta bara nokkuð gott á 3 dögum.
Það kom mér alveg rosalega á óvart hvað Kaupmannahöfn er mikil stórborg. Á stundum minnti hún mig á Washington D.C. Ég bjóst ekki við því að húsin væru svona gömul og rosalega flott skreytt. Þessar súlur, á húsum eða fyrir framan hús, í svona grískum byggingarstíl gera alveg rosalega mikið fyrir augað. Blokkin sem ég gisti í var t.d. byggð 1917. Það er nokkuð magnetískt.
Fyndið líka að þurfa að passa sig svona rosalega í umferðinni. Þessir hjólastígar eru algjör dauðagildra. Maður var alltaf að gleyma sér. Og þvílíkt samgöngukerfi. Strætó á nokkurra mínútna fresti stundum. Óneitanlega góður ferðamáti við þær aðstæður.
Þið getið kíkt á valdar myndir úr ferð minni hér. Nenni ekki að skrifa meir.
:: G-Sus 18:06 [+] ::
...
:: mánudagur, september 29, 2003 ::
Eitt svona í framhjáhlaupi...
Ég sá úti nokkrar Sjö-Ellefu verslanir eða 7-Eleven eins og merkið er skrifað. Ég var að spá.... Það væri nokkuð nett að stofna hóruhús á Istedgade með nafninu 7-Elever og þemað væri þá auðvitað óþægar skólastúlkur.
Einhver sem býður sig fram í smá role-play?
:: G-Sus 20:04 [+] ::
...
ÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆM BEEEEEE-EEEEEEEKK!!!!!!
Ég er samt ekki eins hress og fyrstu orð mín í 3 daga gefa til kynna. Ég vil bara fara aftur til Danmerkur þar sem engin vinna og leiðindi bíða manns heldur bara leikur og gaman.
Danmörk er besta borg í heimi. Rokkar alveg hrikalega mikið. Gerði heilan helling og skrifa kannski um það á morgun. Svo smellti hún systir mín af nokkrum myndum og spurning um að láta þær fylgja með.
Haldiði svo ekki að kallinn hafi ekki bara skellt sér á einn Vestax PMC-06 mixer! Magnað jafnvel? Já, pottþétt magnað. Kostaði helming af því sem hann myndi kosta hér á Íslandinu ekki svo góða.
Sökkí sökkí? Fokkí fokkí?
Bleble
:: G-Sus 18:29 [+] ::
...
:: föstudagur, september 26, 2003 ::
Fokk jeh
Bitchez and hoes, hoes and tricks all you women with dicks watching gay porno flicks - This blog here is a shout to you
Þá eru 7 tímar í að flugvélin fari að hefjast á loft og 4 tímar þangað til ég vakna or sumphin. Magnifuckingfied
Aldrei að vita nema flugvélinni verði kannski rænt og henni flogið á Sivalaturninn. Eða kannski myndi stefnan verða sett á Strikið. Maður veit ekki.
Ómögulegt að reikna þessa hryðjuverkamenn út.
Maður er að sýna viðleitni í að reyna að flýja land en svo neyðist maður til að snúa aftur. Hvað er það?
Anyhoo, catch you all on a later note.
Tell me if you want something, you can just.... komm on.... beibeh!
:: G-Sus 00:18 [+] ::
...
:: fimmtudagur, september 25, 2003 ::
Fylkir - Strumparnir
Fylkismenn mæta Strumpum
Já Eiki minn. Ertu kominn í gírinn? The Smurfs´ big break around the corner.
:: G-Sus 13:20 [+] ::
...
Hey hoes
Arnie, B-Love og Dauði voru að fara frá mér. Við tókum House of 1000 corpses. Hún er skrifuð og leikstýrð af Rob Zombie, aðalmanninum í hljómsveitinni White Zombie. Þetta er kolklikkuð mynd og ef þið viljið vera vakin óhug og ónotakennd þá endilega leigið hana.
Þetta lag hér er alveg að fara með mig þessa dagana. Þetta lag get ég ekki fundið á Kazaa og því veit ég ekki hvernig ég get nálgast það. Það fer alveg ótrúlega í mig. Ég þoli ekki þegar mig langar í eitthvað en fæ það ekki. Ég verð alveg viðþolslaus. Ég er eins og smákrakki... Like the spoiled little brat I am.
Hugur minn er tómur sem tunna... sem ekkert er í.
:: G-Sus 00:54 [+] ::
...
:: miðvikudagur, september 24, 2003 ::
Good evening, ladies and gents.
:: G-Sus 19:57 [+] ::
...
Good afternoon
:: G-Sus 15:48 [+] ::
...
Top o´ the mornin´ to ya, folks
:: G-Sus 11:18 [+] ::
...
:: mánudagur, september 22, 2003 ::
Ég, Arnþór og Daði tókum myndina Adaptation í gærkvöld en gáfumst upp eftir svona 20 minútur. Horfðum frekar á eitthvað af Emmy verðlaununum. Svo núna áðan ákvað ég að þar sem ég hefði núll að gera þá myndi ég þrauka myndina í gegn. Þetta var svo bara snilldarmynd eftir allt saman. Ótrúlega flækjuleg og maður er allan tímann að reyna að fá botn í hana. Magnað hvernig höfundurinn skrifar sjálfan sig inn í handrit sem hann er að skrifa sjálfan sig inní! Yep, you heard me. Þið verðið að sjá þessa mynd til að skilja hvað ég er að meina samt.
Aldrei fæ ég að vera ég sjálfur... Fyrir skömmu síðan var mér líkt við hann Pollux Troy í Face Off og núna í gær líkti Arnþór mér við Nikulás Búr í Adaptation. Hvenær verður mér líkt við sjálfan mig eiginlega?
Jæja, síðasta æfingin í kvöld í heila viku. Þá er bara að reyna að bæta á sig í millitíðinni. Ég stefni á að verða feitahlunkur!
Þá verður mér kannski líkt við Notorious B.I.G. eða Chris Farley eða eitthvað.
:: G-Sus 16:30 [+] ::
...
Encore - Defined by the dollar
Nú bara verð ég að bæta honum Eika í tenglana mína. Hann er búinn að átta sig á því hvernig á að setja upp kommentakerfi og kominn með eitt stykki þannig. Punkta- og kommusetning vefst sko ekki fyrir honum Eika okkar. Hann einfaldlega sleppir algjörlega að spá í því. Eiki, þú ert snillingur men!
Eiki Laxness jafnvel.
Djöfull er kalt men! Hvað er það? Það var enginn vetur í fyrra en það virðist stefna í annað núna. DÆÆÆÆÆÆÆÆM!!!!
Já, gaman að ykkur.
:: G-Sus 12:24 [+] ::
...
:: sunnudagur, september 21, 2003 ::
Ég á til með að vísa ykkur inná bloggið hjá honum Hnakkusi vini mínum.
Hann tekur Björn Bjarnason in da shitter. Fær meira að segja svarpóst frá honum og allt. Mjög skemmtileg lesning.
Alltaf styttist í Danmörku. Því miður lokar Tívoli víst núna þessa helgi svo fallturninn verður víst að bíða betri tíma. Bévítans.. En það er örugglega hægt að gera nóg samt sem áður. Hlakka til. Bara þrauka 4 daga í viðbót...
Bíó í kvöld or sumphin???
:: G-Sus 18:57 [+] ::
...
:: laugardagur, september 20, 2003 ::
Framarar ná að halda sér í deildinni enn eitt árið. Alveg magnað.
Annað sem er magnað er að ég er með geðveikt smátt typpi.
Takk fyrir
:: G-Sus 22:39 [+] ::
...
Er það ekki alveg magnað að ef maður myndi heita Sigurjón þá mynda manni örugglega finnast slæmt að láta kalla sig Jón, hinsvegar ef maður heitir Jón þá myndi maður eflaust fagna því að vera kallaður Sigurjón. Er það ekki magnað?
Lexía: ekki heita Jón ef þú getur heitið Sigurjón
:: G-Sus 00:52 [+] ::
...
:: föstudagur, september 19, 2003 ::
Já, Eiki steik er byrjaður að blogga. Nýjasta bloggið hans er mjög fyndið. Tjekk itt
Eiki fær tengil þegar ég nenni að fara að fikta í tenglunum.
Líka fyndið hvernig hann kallar mig vin sinn í sínum tenglum (ég fæ borgað fyrir það) en svo fær Daði ekki þá nafnbót. Og ég sem hélt að hann væri á hærri launum en ég...
:: G-Sus 13:49 [+] ::
...
:: fimmtudagur, september 18, 2003 ::
Ef þið getið mögulega fundið mann sem er í brjálæðra skapi en ég þessa stundina þá gef ég ykkur milljón. Fokkings vaktaplanið mitt er skrifað í leturstærð 1 án djóks og það er alveg einstaklega einfalt að ruglast á vöktum. Ég á að vera að vinna annað kvöld og aðfaranótt laugardags en ekki núna.
Þetta merkir að ég missi af teitinni hans Svenna og líka af klúbbakvöldinu á NASA. Tvær flugur í einu höggi og allt bara.
DJÖFULLINNNNNNNNNNNNNN!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
fdjs ngsn ngalksrnjtpes ajm
:: G-Sus 23:33 [+] ::
...
Það er búið að redda kvöldinu. Atvinnumaðurinn sló í gegn. Vonandi heldur þetta áfram á sömu braut. Pulsan og Sigmundur Ernir voru snilld.
Alveg búinn eftir æfingu. Tókum svona hámarkstest á ýmsum æfingum innan viss tímaramma. Svo þegar þetta prógramm verður keyrt eins og síðasta vetur þá helmingar maður hámarkið og keyrir það þrisvar í gegn. Svo er tekinn tíminn á því og auðvitað á maður að bæta tímann í hvert sinn. Algjör dauði. En allt sem ekki drepur mann, styrkir mann víst. Sammála því?
But everynight I sleep to dream of you
And everyday I wake I think of you
I dooo! I doooooo!
Ég er að komast að því að Slum Village er alveg einstaklega skemmtilegt band. Með producer eins og Jay Dee þá er erfitt að klikka. Og Arnþór, Jermaine Dupri er skammstafaður J.D. þegar það er verið að vitna í hann svo Jay Dee og J.D. er ekki sami maðurinn. Aiiiiight
Næturfokkingvakt! Here I cum!
:: G-Sus 22:24 [+] ::
...
Atvinnumaðurinn vonandi hress í kvöld. I could use a good laugh. Fyndið að "laugh" er lesið "lef". Finnst ykkur það ekki óóógeeeðslega fyndið krakkar? Ha? Krakkar?
Alla þessa viku er ég búinn að vera að rugla fram og til baka með hvaða vikudagur sé. Þetta gera þessar bölvuðu næturvaktir manni. Mér finnst núna eins og það eigi að vera föstudagur í dag. Algjört böddl bara.
Það var víst busadagur hjá MR í dag. Ég var að spá í að halda mér vakandi í morgun og tjekka á þessu en svo nennti ég því ekki hálfur. Það hefði líka fokkað öllu upp þar sem ég er að fara á aðra næturvakt í nótt sem byrjar kl 23. Samt alltaf gaman að sjá busunum vera tossað upp í tolleringunni. Gaman að sjá þá sem krassa.
Töff línur úr Chief Rocka með LOTUG
"I got, too much soul, rhythm and blues
R&B ya see, all that's cool, but
hip-hop and rap yeah that's where my heart's at"
Vonandi eigið þig gott kvöld fyrir höndum.
:: G-Sus 16:36 [+] ::
...
:: miðvikudagur, september 17, 2003 ::
It´s da SV ya´ll! Maaagnified lag sem ég var að finna á netinu eftir nokkurra mánaða leit.
Já, Danmörk út 26. sept. og Danmörk heim 29. sept. Schnilldin ein.
Tók Phone Booth. Ætla að horfa á hana and then I´m a hit it for work. Aiiight
Stutt og skorinort. Klikkar ekki.
:: G-Sus 21:16 [+] ::
...
Ég var að panta mér far til Danmerkur, rétt í þessu.
:: G-Sus 16:14 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 16, 2003 ::
Ó men ó men ó men!
Næsti föstudagur verður heldur fjörlegur býst ég fastlega við. Fyrr í kvöld fékk ég boð um að mæta þá í innflutningspartý hjá honum Hnakkusi vini mínum. Svo var ég að tala við Brynjar og það er víst eitthvað klúbbakvöld á NASA á föstudagskvöldið. Þar munu mæta ekki ómerkari menn en Layo og Bushwacka. Ástæðan fyrir því að ég veit hverjir þetta eru er að þeir bjuggu til lagið Love Story sem spilað var ósjaldan í útvarpinu síðasta vetur og sumar. Þetta er alveg magnað lag og gaman að segja frá því að sampl úr því er frá henni Ninu Simone heitinni. Úr laginu hennar "Rags and old iron".
Ég, Brynjar og Eiki ætlum að skella okkur.
Og þá er spurningin... Hverjir ætla með?
:: G-Sus 21:22 [+] ::
...
Íslenskufræðingurinn ég var að spá... Hvernig finnst ykkur "vélindabakflæði" sem íslenska orðið yfir "feedback"? Mér finnst það flott og það er nóg. Annars... ekkert vera að svara þessari spurningu. Ég hlusta ekki á vélindabakflæðið í ykkur hvort eð er.
ó mæ god! ó mæ god! 30 dagar í Lords of the Underground og Killa Kela. Ert ÞÚ farinn að hita upp?
Frábær grein aftan á Mogganum í dag. „Risasveppur finnst í Sauraskógi“. Hvaða snarbilaði einstaklingur nefndi skóginn þessu nafni eiginlega? Maður hugsar um tré... Maður hugsar um saur... Nei.
Tók LOTR: The Two Towers í gær. Alveg crazy mynd. Þriðja myndin iz goin´ to B da bom YO! Alveg yndislegt hvernig hið góða og hið vonda er aðskilið. Maður veit alltaf nákvæmlega hver er vondur og hver góður. Það fer ekkert á milli mála. Og svo veit maður líka nákvæmlega hvar maður á að halda sig nema maður vilji lenda í veseni og vandræðum. Bara muna: ekki fara þangað þar sem það eru staðbundnar þrumur og eldingar og glóandi kvika flæðir út um allt. Og þá er maður hólpinn.
Búinn að tæma mitt sinni í þetta sinnið...
Svartisauður, maðurinn sem bendir á hið augljósa en enginn virðist samt taka eftir.
:: G-Sus 16:16 [+] ::
...
:: mánudagur, september 15, 2003 ::
Já djöfulli er maður nú hress.
Maður bara á æfingu og... obbosí! Nöglin á stóru tá bara að detta af! AFTUR!!!! En nú bara á hinum fætinum. Djöfulsins rugl. Nenni ekki hálfur að standa í þessu.
Svo er hún elsku besta systir mín að lesa bloggið mitt frá Danmörku. Hún er meira að segja að reyna að blogga sjálf stelpan. Vonandi kemst ég út til hennar bráðlega og get þá jafnvel kennt henni smá á þetta. Nota það bara sem afsökun til að komast út ;-)
Svíinn Atli benti mér á helvíti fyndna fyrirsögn í leiðara Morgunblaðsins í dag. It had his name written all over it! Það stendur hreinilega: Sænskt nei, og verður það að teljast mjög fyndið. Hrópum bravó fyrir því eins og ótrúlega asnalega konan á leik Vals og Fram sem hrópaði „Bravó markmaður! Bravó!“ þegar Valsmarkmaðurinn stóð sig vel. Djöfull langaði mig til að slá hana.
Næturvakt eftir klukkutíma... Please shoot me. Shoot me now.
Jæja. Þá er komið að leiðarlokum hjá okkur í dag. Hoppið vinsamlegast öll upp í rassgatið á ykkur.
Laufey, þú skilur hvað ég meina ;-)
:: G-Sus 23:00 [+] ::
...
Rétt í þessu var ég að raka mig.
:: G-Sus 13:55 [+] ::
...
:: sunnudagur, september 14, 2003 ::
Það er staðfest!
Ég var ekki alveg að kaupa e-mailinn sem ég fékk frá Þorsteini Guðmundssyni en tjekkið á þessum texta sem tekinn er af heimasíðu hans:
„Þessi heimasíða er eingöngu til einkanota en ekki til opinberrar birtingar.
Opinber birting telst t.d. að sýna hana út um rassgatið á sér í fjölförnum strætisvagni. Þeir sem ekki trúa mér eru svartir sauðir, blink, blink.“
Takk fyrir takk fyrir! Loksins fæ ég athygli frá celebum þjóðarinnar!
:: G-Sus 22:34 [+] ::
...
Fyndin innkoma hjá Atvinnumanninum þegar hann birtist í Djúpu Lauginni á föstudaginn. Reddaði hörmulegum þætti.
En ástæða þess að ég minnist svona uppúr þurru á atvinnumanninn Þorstein Guðmundsson er allsérstök...
Ég fékk tölvupóst frá kauða. Ekki grín. Held ég... Þá er þetta nokkuð vel gert grín ef svo er. Hmm...
Atvinnumaðurinn þakkaði mér fyrir að horfa á þáttinn og vildi koma því á framfæri að fyrsti þátturinnn hefði verið sendur út með fokkd opp hljóði [mín orð] og er ég ekki frá því að ég hafi tekið eftir því. Þannig maður má búast við betri gæðum næst, geri ég ráð fyrir.
Sniðugt move hjá atvinnumanninum þar sem blogg eru ódýr (ókeypis jafnvel) og góð auglýsing ;-)
So I´ll go all the way:
Atvinnumaðurinn - á Dagskrá Skjás Eins á fimmtudögum kl 21:30
Stattu þig feitahlunkur!
:: G-Sus 20:31 [+] ::
...
Býst ég ekki við neinu öðru en að allir hafi LOL-að og ROFL-að eftir að hafa lesið síðustu færslu um bílana. Nei? OK...
Mig dreymdi alveg mest skrítið. Ekki það langt síðan ég vaknaði sko. Ég, Arnþór og Steini og einhverjir 2 aðrir vorum á fótboltavellinum fyrir aftan blokkina í Teigaselinu þar sem ég ól mig ungan til 15 ára aldurs. Við vorum að spila 3 á 2 og einhvernveginn var þetta samt Valur - Fram leikurinn sem ég er að fara á á eftir... Í eitt skiptið fór boltinn útaf og þá náðum við ekki í hann heldur í stað þess að skipta um bolta..... þá notuðumst við við eyrnapinna. Já, gott fólk. Eyrnapinna. Einn góður Q-tip. Og það gekk bara helvíti vel að spila með hann. Smæð hans var ekkert til fyrirstöðu. Sambaeyrnapinni var svo spilaður eftir það. Og svo vaknaði ég.
Einn kunningi minn úr TKD var að hringja. Hann var að spyrja mig hvort ég hefði heimasímann hjá öðrum TKD gaur..... Ég bara spyr: Hvað ætti ég að vilja gera við heimasíma einhvers! Kemur mér að engum notum. Bara aukasímtæki á heimilinu og annar sími til að borga af...
Hafið þið heyrt um Lundahunda? Ekki ég. En svo sá ég grein um þá á vísindavef Háskólans. Ég hélt þetta væri svona föstudagsglens en það lítur ekki út fyrir það..
Lundahundar gjöriði svo vel!!!
Það má með sanni segja að gott veður komi manni í góðan húmor, að dönskum sið.
Takk
:: G-Sus 12:40 [+] ::
...
:: laugardagur, september 13, 2003 ::
Bleble
Seeeeef ég í draumahöll og daaaaaagana loooofa.
Ég held maður verði að sjá Dýrin í Hálsaskógi, á sviði, for old times sake. Þetta er alveg einstaklega skemmtilegt leikrit. Það verður að segjast.
Maður hefur oft heyrt litla bílakalla segja að þeir noti bíla til að komast frá A til B. Ég hef meira að segja sagt þetta. Í vinnunni áðan fórum við eitthvað að djóka með þetta og úr varð fínasti Fóstbræðrasketz.
Maður keyrir bíl frá stað merktum með stóru A-i og yfir á stað B merktum á svipaðan máta. Á stað B er allt fullt af bílum þar sem enginn hefur fyrir því að keyra frá B til A! Hafið þið einhvern taka þannig til orða? Að þeir ætli að keyra frá B til A? NEI. Hélt ekki. So stfu.
Þá er ég bara farinn að horfa á Truman Show. Frábær mynd.
Jump up your anuses, people!
:: G-Sus 20:49 [+] ::
...
:: föstudagur, september 12, 2003 ::
Jájá ég játa það. Auglýsingin var ekki alveg að meika það. Ég sást til dæmis ekki einu sinni í 5 sekúndur. Þessir gaurar eru alveg að klúðra þessu. Af hverju að sýna svona mikið af krökkunum? Algjör óþarfi. Fyrsta sem ég hugsaði eftir að auglýsingin kláraðist var: nei, þetta voru ekki 60 sekúndur... Þannig ég ætlaði að horfa aftur og tíma þetta en þá fattaði ég að ég gleymdi að láta á upptöku. Allt í rugli. DÆM!!! Vonandi verða þessar 20 sekúndna klippur betri.
Það kom meira að segja crowd til að horfa á þetta. Atli, Arnþór, Daði, Erling og Sigrún mættu galvösk og svo horfðum við á Djúpu Laugina. Það er versta sjónvarpsefni í heimi. Þar heyrast setningar eins og:
„Hehe! Á ekki að næla í gripinn!?“ (gripurinn er semsagt tsjellingin)
„Hehe! Það er hægt að setja í þetta!“ (enginn segir þetta beint en allir hugsa þetta)
„Hehe! Hehe! Hehe!“ (Perrahláturinn er ómissandi)
Ef ég ætti að velja á milli þess að horfa á Djúpu Laugina eða horfa á The Drew Carey Show þá myndi ég taka Drew Carey. Ekki spurning. Þetta finnst mér lýsa ömurlegheitunum best.
Ég hef meira að segja áður tekið kast á Djúpu Laugina og eins og maður segir gjarnan: Gott hraun er aldrei of oft kveðið.
Þá er það bara svefn og vakna galvaskur í vinnu kl 07:15 til 17:15. Steiktur tími, ég veit.
:: G-Sus 23:58 [+] ::
...
:: fimmtudagur, september 11, 2003 ::
Gunnhildur! Halló! Gunnhildur! Við höfum e-ð farist á mis! Halló!
Já atvinnumaðurinn var ágætur en kannski ekki alveg eins magnaður og maður bjóst við. Stalker dauðans þarna í endann.
Alveg frábært samt þegar hann setti Norah Jones á til að "make his move". Svo er náttulega orðið feitahlunkur orðið að klassík eftir þennan þátt. Vá! Orðið kom tvisvar fyrir í seinustu setningu. Magnað alveg.
Ég fékk staðfestingu á því að Steini kallinn les þetta blogg. Góður Steini! Þannig allir aðdáendur Steina geta gefið honum shout out í kommentum.
Djöfulli hlakka ég til eftir 35 daga. Já, 35 daga!!! Fokkings langur tími... Það er kvöldið sem Lords of the Underground troða upp á Gauknum eða þann 16. október. Og hólí fokking sjitt! Ekki nóg með að þeir séu að rokka feitan þetta kvöld heldur er líka annar gaur með þeim í för. Hann kallar sig Killa Kela og er bítboxer eða beatboxer jafnvel. Þeir sem hafa heyrt í Rahzel, the godfather of noize, vita við hverju á að búast. Þessi getur líka verið með takt og sungið yfir á meðan. Ótrúlega magnaður skítur. Ég trúi ekki öðru en ég nái að plata fleiri en Eika með mér á þetta. Þetta er of magnað.
Hér getið þið hlustað á hann dropping some shit on da M-I-C!!! HÉR
Það spilast beint í MP3 svo þið þurfið engann Realplayer.
I´m counting da dayz...
:: G-Sus 22:16 [+] ::
...
Mikið vona ég að þessar "Bílasölu BÓNANZA!" auglýsingar séu bara djók. Það er nákvæmlega eins stíll á þessu og maður hefur séð í bandarískum bíómyndum og þá örugglega eins og þessir notuðu bíla sölumenn gera þar í landi. Feitur gaur sem reynir að vera reffilegur, talar hratt og allt er skerandi í augun. Svo enda svona auglýsingar á því að símanúmer bílasölunnar flassar á skjánum. Í Bandaríkjunum þarf símanúmerið náttulega að innihalda svæðisnúmerið líka.... EN EKKI Á ÍSLANDI!!! Þetta er svo fáránlegt og alveg týpískur ég að missa mig yfir þessu. DAMN!!!!!!!
Örugglega skemmtilegur þáttur í kvöld á Skjá Einum, Atvinnumaðurinn heitir hann og fer snillingurinn Þorsteinn Guðmundsson með aðalhlutverk. Klikkar mjög líklega ekki ef miðað er við aldur og fyrri störf.
Ég sá smá af leik Þjóðverja og Skota í gær og dómarinn var alveg stórundarlegur. Þetta er eiginlega mest sleazy gaur sem ég hef séð. Einhver Svíi. Ekki að það sé neitt slæmt. Hárið á honum var alveg met.
Svo er Anna Lindh dáin. Frekar skuggalegt að vera ekki óhultur í verslunarmiðstöð. Ég veit ekki hvernig Íslendingar taka þessu almennt en ég held það sé við hæfi að votta þeim sem bera taugar til Svíþjóðar samúð sína.
T.R.O.Y.
Vonandi eigið þið öll góðan dag,
Bless
:: G-Sus 13:37 [+] ::
...
:: miðvikudagur, september 10, 2003 ::
Mo-mo-mo-mo-monkey!
Mo-mo-mo-mo-monkey!
Check it!
Það stefnir bara í að TKD auglýsingin verði sýnd e-n tíma milli 21 og 22 núna á föstudaginn. Já sei sei.
Gaman að sjá hvernig til tókst.
Fórum í Keiluhöllina núna áðan, ég, Daði, Brynjar og Eiki. Fórum bara í þythokkí þar sem það kostar fokkings 600 kall í keilu. Við spurðum hvort þetta væri standard verð og kallinn sagði að þetta væri svona því þetta væri "diskókeila". Vá... diskókeila... ég get bara alveg eins verið heima hjá mér. Sökker.
Maður þorir ekki lengur að tala við Erling þar sem það er svo mikið að gera hjá honum. Erling, ef þú ert að lesa þetta.... við elskum þig og viljum fá þig aftur. Komdu heim. Snati saknar þín.
Hringdu í okkur þegar þú vilt. Dyr okkar standa þér ávallt opnar.
Já bara búið held ég.
:: G-Sus 23:52 [+] ::
...
Hey vitiði hvað!?! Úr því ég var á netinu þá datt mér í hug að blogga kannski. Svo ég settist niður og vissi ekki hvað ég átti að skrifa um.
:: G-Sus 18:36 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 09, 2003 ::
Ef það væri eitthvað eitt sem ég gæti ráðið að ég væri án, þá væri það án efa grunnhyggni. Ekkert nema slæmur hlutur...
Myndi leysa ýmislegt.
Takk og ble
:: G-Sus 22:15 [+] ::
...
Djöfulsins fáviti er ég. Í gær stóð ég í þeirri meiningu að ég væri í fríi í dag. Veit ekki hvernig ég fékk þá flugu í höfuðið þar sem næsti frídagur er á fimmtudaginn. Svo klukkan tvö í nótt þegar ég fór að sofa þá ákvað ég að tjekka á vaktaplaninu bara svona upp á fönnið. Vinna kl átta.... Meidjor NÖRD!!!!
:: G-Sus 08:17 [+] ::
...
:: sunnudagur, september 07, 2003 ::
Vá hvað það er hressandi að taka 4 tíma í hangs eftir vinnu. Fór strax eftir vinnu upp í Fjölnishús til að taka þátt í þessari blessuðu auglýsingu. Mitt framlag var sirka 10 min af töku. Svo var ég líka látinn í það að halda á spýtum og vikursteinum (n.k. múrsteinar). Ég reyndi að segja fólki að ég hefði andlit fyrir útvarpið en það vildi enginn hlusta á mig :(
Ég verð því allavega eitthvað sýnilegur í þessar 60 sekúndur. Ég held á spýtu í flottasta atriðinu að mínu mati. Ég stóð upp á stól og svo tók hann Normandy kallinn eitt stykki heljarstökk og braut spýtuna. Það er mest töff!!! Þvílíkur crowd pleaser að það er ekki fyndið. Svo endar þetta á mest gay atriði í heiminum. Ég og Sigursteinn tökumst í hendur að TKD sið... Alveg flaaaaming gay. Okkur leið báðum ótrúlega asnalega því við þurftum að halda handabandinu meðan þeir voru að stilla ljósin og stöff. Tók örugglega svona 10 min að heilsast. That shiii is wack I tells ya!
Svo eitt til að gleðjast yfir. Lords of the Underground spila á Airwaves!!! Núna veit örugglega enginn ykkar hverjir þetta eru... GREY ÞIÐ!!! Ég mæti þó ég þurfi að skrópa í vinnuna. LOTU er alveg frábær hip-hop hljómsveit og á ég tvo af þremur diskum (held ég) sem þeir hafa gefið út. Nú veit ég því miður ekki hvenær tónleikarnir eru en ég hvet ykkur öll til að mæta og kynnast stemningunni sem myndast þó svo þið fílið ekki endilega tónlistina. Þeir sem fóru á Jeru mega búast við svipaðri stemningu og þá. No doubt.
Linka hér á vinsælasta lag þeirra kappa... Djöfull verður allt brjálað þegar þeir taka þetta...
Og þið þurfið Realplayer sem fyrr til að spila lagið
Í boði Sandbox...
CHIEF ROCKA
:: G-Sus 23:57 [+] ::
...
:: laugardagur, september 06, 2003 ::
Gott kvöld
Það var alveg þvílík stemning á leiknum áðan. Mjög skemmtilegt. Íslendingar óheppnir sem endranær. Hvað þýðir endranær?
Nenni ekki að skrifa meira um leikinn.
Var samt að klára að horfa á Fight Club. Horfði á helminginn síðustu nótt. Þessi mynd er ein af þeim betri sem ég hef nokkurn tíma séð. Skemmtanagildið er 10 af 10 mögulegum. Þvílíkt skemmtileg samtöl og einræður á tímum. Ótrúlega töff setningin: „The things you own, end up owning you“. Mikill sannleikur fólginn í þeim orðum að mér finnst. Það er beisikklí allt töff við þessa mynd.
Vinna frá 11-19 á morgun og svo er það auglýsingabransinn sem bíður eftir manni. Fer beint eftir vinnu upp í Fjölnishús. Djöfull nenni ég þessu ekki en óneitanlega verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út.
Ég er farinn að sofa. Já, alveg geðveikt hress.
:: G-Sus 21:41 [+] ::
...
:: föstudagur, september 05, 2003 ::
Vonandi losnaði maður við einhver úrþvætti eftir að hafa bloggað síðustu færslu.
Ég vildi ekki minnast á þær tvær skammstafanir sem mér finnst vera töff. Það eru FUBAR og SNAFU.
FUBAR = Fucked up beyond all recognition
SNAFU = Situation normal, all fucked up
Geðveikt gaman að segja að eitthvað sé FUBAR. Prófið það einhverntíma.
Leikur á morgun. Enginn Pablo.... Arnþór stórsvikari fór þó á Pablo. Belja.
Það er gaur að vinna með mér sem samkjaftar varla. Alveg bráðgáfaður og nokkuð góða spretti í gríninu. Hann komst að því alveg uppúr þurru að ég á mér tvífara. Hann hélt því fram að ég væri eins og gaurinn sem lék bróður Nicholas Cage í Face Off, Pollux Troy hét hann í myndinni. Þarna þroskahefti gaurinn. Hann hafði mynd af honum á netinu í þessu hlutverki og svo starfsmannamynd af mér til samanburðar. Mér finnst það jafn leiðinlegt og mér finnst það fyndið en hann hefur nokkuð til síns máls. Við erum skuggalega líkir. En svo sá ég mynd af leikaranum ekki í þessu hlutverki og þá er þetta bara einhver hnakki og bara ekkert líkur mér. Damn.
Bless á meðan.
Vonda nótt og dreymi ykkur illa.
:: G-Sus 22:23 [+] ::
...
:: fimmtudagur, september 04, 2003 ::
LOL
ROFL
ROFLMAO
IMHO
Þessar styttingar eru mikið notaðar á netinu. Maður sér þetta helst á svokölluðum korkum (eða forums) og svo auðvitað líka á Irc-inu. (Tek það fram að ég stunda ekki Irc). Eve er með svona forums þar sem fólk skrifar þetta í gríð og erg. Ógeðslegasta ógeðið af öllum styttingum er LOL! án efa. Þetta ógeðslega ógeðslega ógeðslega orð stendur fyrir Laughing Out Loud. Þetta fer mest af öllu í taugarnar á mér. Hreinræktaður viðbjóður. Ég tek virkilega minna mark á fólki sem notar þetta. Í alvöru. Þetta er líka mjög oft notað í kaldhæðni þegar afbrotamaðurinn (já, það er glæpur að nota þetta orð í mínum augum) skrifar þetta þegar hann er að hlæja að skrifum einhver annars. Af hverju ekki að skrifa bara hahaha eða hehehe? Ég vil ekki þurfa að sjá fyrir mér þroskaheftan einstakling reka upp hláturrokur fyrir framan tölvuna sína.
Það er til alveg ógrynni af þessum styttingum en þar sem ég er ekki fáviti þá kann ég bara þessar mest notuðu.
Og þá er að drulla yfir hinar þrjár:
ROFL = Rolling On the Floor Laughing
Hversu úrkynjaður þarf maður að vera til að skrifa svona lagað!? Og svo er þetta lýgi ofan á allt. Það er enginn sem skrifar á lyklaborð meðan hann er að veltast um af hlátri á gólfinu eins og einhver mongó.
ROFLMAO = Rolling On the Floor Laughing My Ass Off
Þarf að segja meir. Ekki nóg með að ömurlega afsökunin fyrir manneskju sé að veltast um á gólfinu þá er rassinn að detta af henni líka.
IMHO = In My Honest Opinion
Þetta er nú svosem allt í lagi en er ekki líka í lagi að skrifa bara orðin sem stafirnir standa fyrir? Það er alls ekki svo erfitt.
Ef þið hafið einhvertíma gerst sek um að nota þessar skammstafanir þá vil ég helst ekki að þið heimsækið síðuna mína oftar.
Já, ég hata svo sannarlega fólk.
Takk
:: G-Sus 23:11 [+] ::
...
:: miðvikudagur, september 03, 2003 ::
Wizip
Var að koma frá prufutöku á þessari auglýsingu. Fór upp í bévítans Fjölnishús til þess. Myndatökugaurinn var að taka upp svona prívjú og svo ætlar hann að spá í hvernig það á að stilla þessu upp og þannig. Vonandi verður þetta tekið upp sem fyrst svo þetta sé frá sem fyrst.
Það er spurning um þessa Pablo sýningu ennþá... En allavega leikur á laugardag. Maaaaagniiiiiifiiiiied.
Magnús Scheving og Jón Arnór að slá í gegn í hinum stóra heimi. Lazy Town og Dallas Mavericks bara! snilld
Ein pæling samt varðandi Latabæ... Nú er jafnvel líklegt að Magnús Scheving leiki Sportacus og Stefán Karl leiki Robbie Rotten... En svo leikur einhver smástelpa Sollu Stirðu??? Whut the hell is up with that? anyhoo...
Hversu ógeeeeðslega fyndið væri það ef það væri til bardagalistameistari sem héti Bator?
Hi, my name is Bator. Master Bator.
Já, eitthvað rýrt heilabúið á mér í dag.
:: G-Sus 19:45 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 02, 2003 ::
Critical ya´ll
Ég var að horfa á fyrsta þátt Fóstbræðra. Ótrúleg snilld þar á ferð. Ég mundi það ekki en opnunaratriði Fóstbræðra var: „Þú ert rekinn“ - „Hann sagði ég væri drekinn..“ atriðið. Klassík.
Önnur klassík í þættinum er „slaka...slaaaka.... og svo kyssa..“ atriðið og svo Pólverjinn sem sagði að krakkarnir sínir væru alltaf að (st)ríða sér. Eru þetta ekki 6 ára gamlir þættir or sumphin? Allavega hefur hann Sigurjón Kjartansson látið helvíti á sjá síðan þetta var tekið upp. Við getum jafnvel gengið svo langt að líkja honum við kókómjólkurfernu sem ekki er búið að drekka úr og svo kókómjólkurfernu sem búið er að drekka úr. Já.
Ótrúlegt hvað maður er lengi að kveikja... Núna er ég að hlusta á tvö lög sem eru bæði gefin út 1999 eða 2000 og 3 árum seinna er maður að fíla þessi lög. Það er kannski vegna þess að ég var í fyrsta sinn að heyra þau um daginn... En allavega, þá hefði maður átt að vera löngu búinn að uppgötva þessi lög.
Fann ekki linkinn á annað þeirra en hérna er snippet af hinu fyrir ykkur sem nennið og hafið áhuga á að hlusta: Zion I feat. Planet Asia - Critical
Hvað er með þessar sýningar á Pablo Francisco? Veit einhver hvenær aukasýningin er og hvað kostar?
True dat, nigguh
:: G-Sus 20:50 [+] ::
...
:: mánudagur, september 01, 2003 ::
Fram vann FH í gær. Drullumikil stemning á vellinum. Ég neita því ekki að ég er nú svolítið farinn að hlakka til næsta Laugardags.
Svo kom Daði inná völlinn í gær. Hann datt eins og einhver kelling. En þá var FH-ingur rekinn útaf svo það borgaði sig að vera kelling. Nei nei ég veit alveg hvernig þetta virkar. Maður á að detta í svona aðstæðum og svo veit ég ekki hvort hann hefði getað staðið í lappirnar þar sem FH-ingurinn var hreinlega að reyna við hann. Ég sá að Heiða var alveg brjáluð. „Ain´t no FH-ing be trying to take away my man!“, sagði hún. Eiki sagði það sama.
Annars er maður bara nývaknaður. Fyrir svona 2 tímum. Æfing í kvöld! Magnified. Þar sem maður er hættur starfi sínu sem fastur þjálfari þá getur maður kannski loksins mætt á einhverjar æfingar til tilbreytingar, þ.e.a.s. þegar maður er ekki að hommast í vinnunni. Alveg hreint ótrúlegt hvað maður hefur lengi ungan sig alið þarna niðurfrá... Byrjaði að æfa 13-14 ára, byrjaði svo að þjálfa sem aðstoðarþjálfari (í barnaflokk) þegar ég var 16 ára, hljóp svo af og til í skarðið sem þjálfari í fullorðinsflokkum árin þar á eftir og er svo búinn að vera að þjálfa framhalds/meistaraflokk, ásamt öðrum, frá 19 ára aldri að mig minnir. Damn, that shit is wack. Ég er búinn að eyða of miklum tíma í þetta! En svo er spurningin hvort maður hefði farið að gera eitthvað annað í staðinn ef TKD-ið hefði ekki verið til staðar. Kannski hefði ég farið í e-ð annað, sem verður að teljast nokkuð líklegt. Ekki hugmynd hvað samt. Eða þá að ég hefði ákveðið að gera ekki neitt og blásið út og verið 100 kíló í dag. Það hefði verið töff. Af hverju gerði ég það ekki!! NOOOOOOOOOO!!!
L8er
(vera svolítið 1337 á þessu... hahaha, pathetic...)
:: G-Sus 16:36 [+] ::
...
|