|
|
:: þriðjudagur, september 25, 2007 ::
Ætli það sé ekki best að enda þetta í 1130 bloggfærslum sléttum.
Sumsé... http://geelovejapan.blogspot.com
:: G-Sus 10:44 [+] ::
...
:: sunnudagur, september 16, 2007 ::
Þá er kominn tími til að skrappa Svartasauð. Finn ekki betri tíma til þess en núna.
Bið ykkur vel að lifa og bið að heilsa.
MSN-ið mitt er geelovejapan@hotmail.com
:: G-Sus 18:21 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 11, 2007 ::
"Það er alltaf dýrara að vera með seðla í höndunum"
Þetta fannst mér leiðinlegt að heyra þegar ég fór í bankann áðan til þess að kaupa mér Yen. Ég skoðaði gengið á netinu og sá að það var í ca 0.57 krónum. Fannst það frekar glatað þar sem ég hefði getað verið sniðugur fyrir svona 2 mánuðum síðan og keypt meðan það var í 0.50. Svo reiddi ég fram 100 kjepps og beið spenntur eftir að þessir framandi seðlar kæmu fljúgandi ofan í veskið mitt. HWHAT!? Gengið allt í einu mætt í rúmlega 0.59! Það var þá sem ég fékk að heyra setninguna hérna að ofan eftir að hafa hváð svona svakalega. Það sem stendur á netinu er eitthvað almennt gengi sem á við ef maður á gjaldeyrisreikning. Húrra fyrir flóknu kerfi!
Úr því svona gekk, þá er ég að hugsa um að ganga niður í banka með genginu mínu og lemja þetta gengi niður. Það getur ekki annað en gengið vel.
:: G-Sus 12:07 [+] ::
...
:: laugardagur, september 01, 2007 ::
Þetta er farið að vera svolítið pirrandi. Hvað er málið með að halda að ég sé útlendingur?
16 dagar svona tæplega..
:: G-Sus 23:25 [+] ::
...
|