|
|
:: þriðjudagur, nóvember 30, 2004 ::
Maðurinn sem nappaði 9 ára stelpunni var sköllóttur með skegghýjung fyrir neðan munninn. Hver lítur þannig út á Íslandi? Jú, enginn annar en tónlistarmaðurinn KK. Og þar með er leitinni lokið.
:: G-Sus 19:39 [+] ::
...
:: mánudagur, nóvember 29, 2004 ::
Halló! Haaaallóóó!! Heyrir einhver í mér!
Slaka slaka ooooog.... kyssa.
Brjóstahaldarinn er í skápnum, vinstra megin!
Repisen trevis.
Talkúm kalkúnn.
Hann sagði ég væri drekinn.... Ég var drekinn í síðustu viku...
O.fl. gott.
Hvenær koma Fóstbræður eiginlega út á DVD? Hversu mikið myndi þetta seljast??
Svar: Mikið
:: G-Sus 23:22 [+] ::
...
:: laugardagur, nóvember 27, 2004 ::
Tvær ferskar útgáfur á "Móðir mín í kví, kví"
"Móðir mín í tví, tví
kvíddu ekki því, því
ég skal ljá þér duluna mína
svo þú getir falið þig
og enginn geti fundið þig og sagt "tví tví fyrir mömmu, einntveirogþrír!""
"Móðir mín í sóttkví,
kvíddu ekki því, því
ég skal ljá þér duluna mína
svo þú fáir ekki fuglaveikina
sem fólk er að panikka yfir."
:: G-Sus 01:42 [+] ::
...
:: mánudagur, nóvember 22, 2004 ::
Sá "Shaun of the Dead" og "Bad Santa" í gær/dag. Báðar helvíti fínar. Sérstaklega Bad Santa. Bjóst alls ekki við því að hún gæti verið skemmtileg, en viti menn. Billy Bob mjög góður og svo svarti dvergurinn líka. Sami svarti dvergur og lék í "Me, Myself and Irene". Köllum hann bara Svarta Dverg. Hann á ekki betra skilið. Enda er hann svartur OG dvergur. Svo er eitthvað við það að blóta á ensku undir réttum kringumstæðum. Það eitt getur verið mjög fyndið og mikið stílað uppá það í myndinni. Ágætlega vel heppnuð bara.
Tjekk it át, beibí.
Var að lesa soldið merkilegt nýlega (Ertu Viss?, Brynjar). Almenningur telur sig vera betri en meðalmaður. Merkilegt.
:: G-Sus 18:29 [+] ::
...
:: föstudagur, nóvember 19, 2004 ::
Ég flyt að heiman ef mamma lætur gyðingaljós út í glugga þetta árið. Ég tek ekki lengur þátt í þessum fávitaskap. Enöff is enöff! Ætli mamma láti þá ekki ljós út í glugga ef ég kem með þessa yfirlýsingu svo ég læt það bara vera að segja þetta upphátt.
Helvítis jóladrasl. Feginn er ég að vinna þetta af mér. Er því miður ekki að vinna nógu mikið á aðfangadag. Einungis frá 16-20.
Og svo er gleðin að vakna í vinnuna klukkan 10 að morgni nýársdags. Það ætti að stoppa einhverja vitleysu kvöldið áður. Drykkja er drasl eins og jólin.
Munið það svo krakkar: Það er svo fokking töff að finnst jólin vera hyski.
Öll erum við drasl.
:: G-Sus 01:13 [+] ::
...
:: miðvikudagur, nóvember 17, 2004 ::
Í gær á leiðinni í vinnuna þá var ég að hlusta á Tvíhöfða. Jón Gnarr var að lesa upp úr síðu af internetinu (býst ég fastlega við) og þessi síða fjallaði um hvernig átti að kynferðislega fullnægja.... wait..... wait for it.... höfrungum.
Ég hló held ég samfleitt í 10 mínútur á leið til vinnu.
Ég ætlaði svo að vera voða sniðugur og finna þessa síðu og linka á hana hér. Ekki fann ég hana en komst samt að því að það er til fullt af síðum sem fjalla um þetta efni. Og það sem meira er, ég komst líka að því að kynlíf með höfrungum er bannað í 49 af 50 fylkjum Bandaríkjanna.
Í hvaða ríki er það löglegt? Jú, auðvitað í Texas. Allt sjúka liðið kemur frá Texas.
:: G-Sus 14:48 [+] ::
...
:: þriðjudagur, nóvember 16, 2004 ::
TIMMAAAAAY!!!!
:: G-Sus 01:25 [+] ::
...
:: sunnudagur, nóvember 14, 2004 ::
ó-mæ-god
Ol´ Dirty Bastard dáinn. Daaaaamn homie!, er eina sem ég get sagt. Eins úber súr og þessi maður var þá þakka ég honum það að ég kynntist rappi fyrir svona 9 árum síðan og fór að kynna mér allt í kringum það. "Return to the 36 Chambers: The Dirty Version" er algjör klassík og mun lifa langt eftir daginn í dag (lesið: hans dag).
Því miður þá gerði hann ekki nógu góða hluti eftir fyrstu sólóplötuna sína og varð bara steiktari og steiktari eftir því sem árin liðu.
Gamli skítugi bastarðurinn allur... Shimmy shimmy ya, shimmy ya shimmy yay. Give me the mic so I can take it away..
Bless Gamli, þín verður minnst með upprifjun á RTT36C næstu daga.
EDIT: Skilaðu svo disknum mínum, Hnakkus!
:: G-Sus 19:55 [+] ::
...
:: fimmtudagur, nóvember 11, 2004 ::
Er ekki fyndið þegar tvær manneskjur hittast eftir langt hlé og eftirfarandi samtal á sér stað:
Manneskja 1 - "Langt síðan ég hef séð þig!"
Manneskja 2 - "Já, sömuleiðis!"
Undir þessum kringumstæðum þá ætti 3. aðili að stíga fram og stinga hníf í andlitið á manneskju 2. Svona samtal heyrði ég síðast í dag en ekki var ég með hníf á reiðum höndum (þær voru afar rólegar HA-HA-HA) svo ég lét vera að skipta mér af.
:: G-Sus 21:56 [+] ::
...
:: mánudagur, nóvember 08, 2004 ::
Ég hef alveg einstakt lag á að pirra mig yfir hlutum. Nýjasta nýtt er að pirra mig til dauða. Það eru þessar helvítis Dominos auglýsingar. Hvaðan í fííííííandanum koma Færeyjar inní jöfnuna? Af hverju er alltaf einhver kjánalegur maður að tala færeysku? What directly the fuck is up with that?
Djöfull þoli ég þetta ekki.
Og annað sem er að pirra mig og ég má alls ekki gleyma. Eftirfarandi fékk ég í tölvupósti áðan frá Iceland Express:
"Áríðandi tilkynning vegna niðurfellingu flugferðar - Vegna breytinga á vetraráætlun Iceland Express hefur flug það sem þú áttir bókað verið fellt niður. Okkur þykir þetta afar leitt, en bjóðum þér í staðinn að bóka flugsæti í annað flug samdægurs eða einhvern annan dag. Breytingin er þér algjörlega að kostnaðarlausu. Þú hefur val um að bóka ferðina sem næst upprunalegri áætlun, eða hvenær sem þér hentar í áætlunarflugi félagsins næstu mánuði."
Hóli fokking krepp! Þeir ætla að "bjóða" mér að bóka í annað flug! Helvítis helvítis fávitar. Djöfull eruði næs að bjóða mér þetta. Ef þið mynduð, tja.. kannski fella niður flugfargjaldið þá væri ég sáttur. Helvítis hyski. Svo ferst örugglega flugvélin. Alveg fokking pottþétt.
Ekki pís át. Pís fokking IN your asshole, bee-otches!
:: G-Sus 21:36 [+] ::
...
:: laugardagur, nóvember 06, 2004 ::
Djöfull var ég pirraður áðan þegar ég var að kaupa bensín. Lét það nú ekkert í ljós, en mér leið ekkert of vel með að versla við Esso. Auðvitað dældi ég sjálfur og keypti ekkert nema bensín en mér fannst einhver vera að nauðga mér í rassgatið á meðan. Mesti skandall í heimi ef það verður ekkert gert við þessa glæpamenn sem reyna ekki einu sinni að skammast sín fyrir það sem þeir gerðu. Og reyna að sleppa við að borga sektirnar á þeim forsendum að málið sé fyrnt! Hvað er það!
"Þú stalst frá mér fyrir svo löngu síðan að þú þarft ekkert að borga mér það lengur."
Annars að öðru máli tengdu glæpamönnum, þá er þetta nokkuð fyndið:
http://www.delanocollection.com/images/progress_hahaha.jpg
http://www.homle.com/aer/2004election_by_iq.png
:: G-Sus 18:11 [+] ::
...
:: fimmtudagur, nóvember 04, 2004 ::
Búskmaðurinn bara önnur 4 ár, svo er hann farinn. En hvernig í ósköpunum ætli þessi 4 ár verði? Eins og einhver kona sagði í sjónvarpinu, þá eru þetta árin sem forsetar móta arfleifð sína og hvernig þeirra verður minnst. Við megum semsagt búast við 3. heimssyrjöldinni núna í nánustu framtíð. Skemmtilegt það.
En annað, ég og Daði á leið í heimsókn til Linga og Sigrúnu (kannski heimsækjum við Brynhildi líka) í desember. Nánar tiltekið 9. til 13. desember. Hlakka til.
:: G-Sus 18:31 [+] ::
...
:: þriðjudagur, nóvember 02, 2004 ::
Eldgos smeldgos.
Alltaf eins. Ekkert merkilegt, þannig. Gosmökkur, eldingar, hlaup í Skeiðará. Merkilegt? Nei.
:: G-Sus 22:20 [+] ::
...
|