eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: þriðjudagur, mars 29, 2005 ::

Ég elska að dreyma. Örugglega það skemmtilegasta sem ég geri.
Í nótt voru lífshorfur litlar á jörðinni okkar knáu. Smástirni stefndi á okkur og var áætlað að það myndi krassa árið 2007 (eða 2009, man ekki hvort.) Gaman að sjá ef það rætist. Þá mun ég segja: „HAH! TOLD YOU SO!“, því það er ekkert betra en að vera besserwisser. Jú, kannski betra að dreyma og svo í öðru sæti er að vera besserwisser.
Allavega, dauðinn er á næsta leyti. Hann skrapp til Spánar í morgunn í æfingaferð og verður úti í viku.

Svo vil ég benda á að ef þið eruð að leita að gjöf til að gefa mér (ég veit þið eruð að leita og ef þið eruð ekki að leita þá ættuð þið að skammast ykkar. Tilefnið er nákvæmlega ekkert. Þarf tilefni til að gleðja G-sus? Getið kallað þetta sumargjöf ef þið viljið. Nei, nú verð ég að hætta að skrifa inní sviganum. Sviginn er orðinn stærri en það sem er fyrir utan hann í málsgreininni. Ég get ekki hætt! Ég verð að skrifa aðeins meira bara til að hafa hann örlítið lengri. Og bara smáááá lengur... komið. Fokking Tourette...) þá megiði gefa mér diskinn "Journey to Anywhere" með þríeykinu sem kallar sig Ugly Duckling. Megið samt ekki gefa mér hann öll í einu. Þið finnið útúr þessu. Kallið kannski á fund og talið frá hjartanu.
Takk takk.

:: G-Sus 19:40 [+] ::
...
:: mánudagur, mars 28, 2005 ::
Já, hann frændi kom ágætlega út úr þessu. Klapp fyrir honum. Meira næsta sunnudag. Ekki slæmt að eiga vínekru.. Sitjið spennt.
Komst að því líka með að horfa á þetta að ég með mína löngu fætur hefði mikið frekar átt að fara í ballet á yngri árum.

Stöð 2 fær mikið klapp á bakið fyrir dagskrána í kvöld. Sérstaklega einn þáttur sem sker sig þar úr á sjálfum páskadegi.
"Derren Brown: Messiah" var alveg magnaður. Að sýna svona þátt á einum trúarlegasta degi ársins er alveg hrikalega töff. Nokkuð góður middle finger þar á ferð.

Ég hef ekkert meir við ykkur að segja.

:: G-Sus 01:50 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 25, 2005 ::
Bara að segja ykkur að horfa á hann frænda minn, Helga Tómasson, í Sjálfstæðu Fólki á Páskadag.
Watch or I'll kill you.

:: G-Sus 18:48 [+] ::
...
:: miðvikudagur, mars 23, 2005 ::
Jæja Svenni, nú þarftu ekki að drepa mig. Fréttablaðið er búið að skúbba þessu.

Já, enginn annar en Snoop Dogg er á leiðinni til landsins! Hólí fokking sjitt segi ég nú bara. Svalasti maður í heimi leggur leið sína til Íslands. Shiiiiiii. Vonum bara að þetta klúðrist ekki einhvern veginn og að fólk muni svo fjölmenna á þessa tónleika. Ég myndi telja að hann ætti að geta fyllt Egilshöll. Allavega svona 15 þús manna venue. Áheyrendahópurinn á að vera það breiður.

Fjölmennum!
- Stjórnin

:: G-Sus 11:37 [+] ::
...
:: þriðjudagur, mars 22, 2005 ::
Skemmtileg grein í anda Hnakkusar í innsendum greinum Moggans í dag. Greinin er eftir Hákon nokkurn Sveinsson og heitir "Bobby Fischer - Í okkar nafni?". Hákon þessi er einnig þekktur sem bróðir hans Stebba og kærasti systur minnar. Tjekkið á'essu.

Annað skemmtilegt í Mogganum í dag er að Erling Jóhann Brynjólfsson nokkur, fékk 500.000 króna styrk fyrir að vera mellufær í eðlisfræði. Erling þessi er einnig þekktur fyrir að vera þroski (HAH!) og faðir hennar Brynhildar Ingu. Sigrún Helga Lund tók svo Erling að sér og sér um hann dags daglega.
Soldið í anda Beautiful Mind.

3. skemmtilega (en birtist ekki í Mogganum) er að ég fór á myndina Life Aquatic with Steve Zissou á sunnudaginn. Bill Murray getur ekki klikkað og það varð raunin. Fín mynd en alveg roooosalega steikt. Ég fíla ekki Sigur Rós eins og áður hefur komið fram en þeir eiga lag í myndinni undir tilfinningaþrungnasta atriðinu og lagið alveg smellpassar við.

4. skemmtilega (birtist ekki í Mogganum en mun örugglega birtast í DV) er að ég hef ákveðið að taka tölvuna mína út úr skápnum. Já, þið lásuð rétt. Tölvan mín er lessa. Ég hef vitað þetta lengi og nú loksins fann ég það í mér að sætta mig við þetta.

5. skemmtilega er ekki til. Eins og allir vita er bara hægt að hafa 4 skemmtileg í röð með góðum árangri.

:: G-Sus 11:54 [+] ::
...
:: laugardagur, mars 19, 2005 ::
10. sæti af tólf. Lélegt? Já.

Svekktur? Já
Drullufokkingpirraðurandskotinnhafiþað? Já
Holdsveikur? Nei, ekki enn. En ég virðist stefna á það.

:: G-Sus 20:13 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 18, 2005 ::
Fyrsti leikur minn í skvassmóti. Tapaði.
Svekktur? Já.
Fúll? Já.
Holdsveikur? Nei, aldeilis ekki. Allavega eitt sem ég get verið ánægður með.

:: G-Sus 20:16 [+] ::
...
:: fimmtudagur, mars 17, 2005 ::
Djöfull nenni ég þessu ekki lengur. Mig langar út.

:: G-Sus 20:12 [+] ::
...
:: mánudagur, mars 14, 2005 ::
Skemmtileg tilviljun... part 6

Já, alltaf gaman að uppgötva svona. Oft hef ég lent í því að ég heyri einhvern texta í rapplagi og pæli svo ekkert meira í því. Nokkrum dögum/vikum/mánuðum seinna rifjast svo textinn upp fyrir mér í samhengi við eitthvað sem ég les eða sé. Nýjasta dæmið sem ég uppgötvaði bara rétt áðan við áhorf á Family Guy er eftirfarandi texti úr laginu "Leonard I-V" (af plötunni Organix) með The Roots. Þetta viðlag hafði enga merkingu fyrir mér fyrir klukkutíma síðan en núna er það breytt:
„Why'd you ask me that question? (I don't know)
Where did Leonard Parts One to Five go?
Why'd you ask me that question? (I don't know)
Word/Uhh/Yeah/...
Where did Leonard Parts One to Five go..“

Svo þegar ég var að horfa á Family Guy, þá sagði Stewie eftirfarandi setningu:
„I like pudding and Ghost Dad was the best movie I've seen since Leonard part 6.“

Bara eins og köld tuska í andlitið.. Fór þá á IMDB og komst að því að myndin Leonard part 6 er einhver arfaslök mynd með Bill Cosby frá 1987 (sjá hér) og er einmitt einhver arfaslakasta mynd í heiminum. Hún er 34. versta mynd frá upphafi samkvæmt IMDB.

Skemmtilegar svona tengingar.
Now you've heard one of the stories of my life.

:: G-Sus 20:45 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 13, 2005 ::
Árshátíð Semen's var haldin hátíðleg í gær í Haukaheimilinu Ásvöllum. Ég mætti auðvitað og var gríðarhress ásamt Gísla Marteini og Sveppa, sem voru veislustjórar. Djöfull finnst mér alveg hrikalega slappt þegar menn geta ekki gert grín án þess að það sé klúrt grín. Dæmi: Gísli Marteinn, maðurinn með barnsandlitið. Sveppurinn svosem líka en það einhvernveginn sjokkeraði mann meira að heyra Gísla Martein vera með þannig grín. Kannski er það bara partur ef þessu, en allavega mér finnst það slakt. Hátíðin sjálf var nokkuð töff, umgjörðin frekar kúl bara. Maður hefði líka getað dáið brennivínsdauða auðveldlega ef maður hefði viljað og það allt í boði Símanns. Ég lét það nú vera en gott að vita af möguleikanum. Hebbi kom sem leynigestur og söng Hollywood (Hollywood var þemað) og Can't walk away. Ekki er hægt að halda árshátíð nema gera grín að Hebba, ha? Svo var haldið í bæinn og hitt Arnie Pie og Eikí beibí. Gaukurinn ekki að halda gott mót og svo var líka einhver fokking hálfviti með kaskeyti sem sló í öxlina á mér til að vera kúl í augum vinkonu sinnar. Ef þú ert að lesa, kaskeytismaður, þá ætla ég að finna þig og drepa þig, Fóstbræðra style.
Og svo fór ég heim. Gaman að segja svona bara bitts end píses. Er alveg óóógeðslega latur að skrifa löng blogg.

Það að mig er búið að dreyma Eddie Izzard núna tvisvar eftir uppistandið gerir mig ekkert að homma, er það? Hafði einhver djúpstæð áhrif á mig kallinn, kómísklega séð væntanlega.

:: G-Sus 14:00 [+] ::
...
:: fimmtudagur, mars 10, 2005 ::
AAAAHAHAHAHAHAHAA
HAHAAHAHAHA
HAHAHAHA
....HA

Nei, nei. Maður er bara enn að hlæja eftir Eddie Izzard. Mikið rosalega tókst manninum að vera fyndinn. Ég hef séð einhver þrjú uppi..stönd(?) með honum á video og svo þetta. Þetta núna var best, by far.
Hann var ekki í dragi núna. Bara í gallabuxum, bol og jakka. Og skóm auvitað. Annað hefði bara verið kjánalegt.

Held það sé alveg málið að tjekka á Eddie Izzard DVD, fjárfesta í þannig. Ég er nebbilega svo mikill fjárfestir.
Ekki var það meira. Bless.

:: G-Sus 00:00 [+] ::
...
:: miðvikudagur, mars 09, 2005 ::
Ég er búinn að vera að nauðga D'Angelo undanfarna daga. Nei, krakkar. Ekki þannig nauðga honum, hann er í Bandaríkjunum og ég hérna á Íslandi. Heldur er ég að tala um diskana hans tvo, Brown Sugar og Voodoo. Fyrri gefinn út '95 og hinn 2000. Er ekki þriðji kominn á tíma? Andskoti hvað þetta er nú töff músík. Mig langar í meir með þessum gaur.

D'Angelo, I know you are reading this. Please make a new album. You will make an album this year and then you can take a break until 2010. How about it? Thank you for reading, Mr. Angelo.
Your friend, G-sus

:: G-Sus 00:20 [+] ::
...
:: laugardagur, mars 05, 2005 ::
Hvar mun Bobby gista á Íslandi?
Jú, auðvitað í Fischersundi!
HA-HA-HO-HO-HE-HE-HÍ-HÍ

disclaimer: Sum ykkar hafa heyrt þennan brandara áður frá mér og það er bara ekki mér að kenna ef þið hlægið ekki núna.

:: G-Sus 15:39 [+] ::
...
Jæja, farinn að sofa aftur. Þetta er eitthvað sem maður stundar frekar grimmt, svipað og að borða.

:: G-Sus 00:50 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 04, 2005 ::
Bara að láta ykkur vita að ég er að fara að borða. Taka kvöldmatinn snemma í dag.
Verði mér að góðu.

:: G-Sus 16:59 [+] ::
...
:: fimmtudagur, mars 03, 2005 ::
Jæja, löngu komið framyfir háttatíma hins vinnandi manns. Ég er farinn að sofa.

:: G-Sus 00:50 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?