eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: þriðjudagur, júlí 26, 2005 ::

Skírnardagurinn minn í dag. Mikið trúmálavatn runnið til sjávar síðan 26. júlí 1981. Á alltaf eftir að segja mig úr þjóðkirkjunni samt... Leti, ekkert annað.

Benidorm klukkan 19:05 að staðartíma á morgun. Ef þetta verður ekki eitthvað rugl, þá má ég hundur heita. Allt tekið upp á vídjó auðvitað.
Vonum að flugvélin krassi. Ekki.

Bless á meðan.

:: G-Sus 21:31 [+] ::
...
:: laugardagur, júlí 23, 2005 ::
Las á netinu að það ætti að fara að búa til mynd um Notorious B.I.G. Gaman að sjá hver mun taka það hlutverk að sér. Enginn svona óbís leikari sem mér dettur í hug svo það getur verið að ég sæki um þetta hlutverk sjálfur þar sem ég smellpassa í hlutverkið. Svartur og feitur, that's me.

Svo er ég sjálfur að hugsa um að búa til mynd um rapptíkina Lil' Kim og kalla myndina "Notorious B.I.Itch."
Yrði fínasta skemmtan, án efa.

Gott veður. Friður út.

:: G-Sus 11:25 [+] ::
...
:: þriðjudagur, júlí 19, 2005 ::
Mikið assgoti var Snoop Dogg hress. Gaman að honum, hljóðkerfið var samt eitthvað brenglað. Skil bara ekki hvernig það er hægt að fokka því upp. Hafa allan daginn til að gera hljóðprufur. Töff þegar hann tók "What's my name?". Allt að verða brjálað og hoppaði maður eins og mongóli þegar við átti. Mæti auðvitað ef hann kemur einhverntíma aftur. Ekki spurningin.

Komið með hugmyndir að bloggi, takk. Komið með eitthvað málefni (má ekki vera eitthvað pólitískt þar sem ég get ekki tjáð mig um pólitík) og segið hvort ég á að vera með eða á móti. Sjáum hvernig gengur.

:: G-Sus 23:41 [+] ::
...
:: sunnudagur, júlí 17, 2005 ::
SNOOP DOOOOOOOOOOGG!!!

:: G-Sus 14:02 [+] ::
...
:: fimmtudagur, júlí 14, 2005 ::
Babyshambles..

Það er komin ný manneskja í líf mitt. Þessi manneskja eltir mig hvert sem ég fer og hef ég ekki getað sloppið undan henni núna í nokkra daga. Alltaf þegar ég sé hana hugsa ég slæmar hugsanir og ég vil ekki lifa við þetta lengur. ÞAÐ VERÐUR EINHVER AÐ STOPPA ÞENNAN FOKKING PETE DOHERTY! Það er ekki hægt að fletta blöðum án þess að sjá þetta drasl. Það er engum blöðum um það að fletta (ho-ho-ho).

Svo var ég að gefa blóð í 6. skipti í dag. Sex sinnum fjögurhundruðogfimmtíu gerir 2700 ml af blóði. Ég er semsagt búinn að fylla á helming af manneskju svona um það bil. Ég verð búinn að gera mitt þegar það er komið nóg blóð til að fylla á fullvaxta mann.

:: G-Sus 22:51 [+] ::
...
:: mánudagur, júlí 11, 2005 ::
The young white brother, back again.

París hressandi. Mona Lisa, Eiffel turninn, sigurboginn, Louvre, Notre Dame, Signa, Bastillutorgið og fleiri hressandi staðir heimsóttir.
Ferðalög eru ógeð. Þá meina ég aðallega flugvélar og tilheyrandi. Góð 3 tíma seinkun á vélinni heim og akkúrat ekkert að gera á flugvellinum úti. Glatað.

Kominn heim til að fokka í ykkur, grannur, alls ekki þykkur
Svaka svaka, hlakka til Snoop
ekkert um að vera, caught in a loop
Glatað, smatað. Ríma í síma í höfuðborg Perú, Lima.
Blessur lessur.

:: G-Sus 23:08 [+] ::
...
:: mánudagur, júlí 04, 2005 ::
Í SVONA tilvikum finnst mér að það ætti að taka upp opinberar dauðarefsingar. Svona dauðarefsing þar sem fólk má benda á fórnarlambið og hlæja dátt á meðan aftakan fer fram. Helst í bakgrunni þarf að vera gamall tannlaus kall sem hlær hæst af öllum, a la Austin Powers style.

París í fyrramálið. Rúta klukkan 04:30 út á FLE (úúúúú bara töffari!). Ferskleikinn mun eflaust ráða ríkum svo snemma að morgni, kannski ekki við öðru að búast þar sem ég er annálaður fyrir mikinn ferskleika, hvenær sem er dags.

Bless bless. Vona að flugvélin krassi ekki.

:: G-Sus 15:41 [+] ::
...
:: laugardagur, júlí 02, 2005 ::
Íslenskar þýðingar eru drasl. Þið hafið heyrt um Live Aid er það ekki? Hafiði þá heyrt um Átta Líf? Live Aid er að reyna að vera hip og kúl og skrifar nafnið sitt núna 'Live 8', því það hljómar jú eins í framburði. Svo koma einhverjir vitleysingar sem misskilja og halda tónleika í hljómskálagarði sem heita 'Átta Líf'. What tha directly the fuck is up with that? Þessi yfirskrift meikar ekki neitt sens... Hvað á að gera? Bjarga átta lífum??

„Níunda lífið sem bjargast er á eigin ábyrgð gott fólk, við tökum ekki ábyrgð á fleiri en 8 lífum!“

Nú þegar ég er búinn að venta, þá er gaman að segja frá því að í kvöld á Stöð 2 er myndin 'Shaolin Soccer'. Tjekkið á henni. Mikil snilld þar á ferð.

:: G-Sus 11:29 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?