eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: miðvikudagur, mars 31, 2004 ::

Greyið hann Dauði alveg að drepast á Spáni. Heyrst hefur að löppin hafi verið tekin af við öxl en það er samt óstaðfest. Kallinn bara að flýja land og þegar maður flýr land hvert er þá betra að flýja en til Svíþjóðar... Lands IKEA. Vonandi að hann meiki þetta alveg og verði ekki drepinn í einhverju hryðjuverki strágúrrinn. Það eru harðlínumenn út um allt. Og af hörðum línumönnum til annarra línuvarða... Ég var núna áðan að upplifa leiðinlegustu 45 mínútur af minni ævi. Fyrri hálfleikur Íslands og Albaníu. Þvílíkt og annað eins ógeð. Ég kúgaðist af leiðindum. Frábært að geta ekki djakk sjitt ef Eiður er ekki með. Og ekki skánar að The Herminator er ekki með. OOOOO látið ekki svona, við getum ekki neitt án Eiðs og ef þið eruð ósammála þá lifiði í sjálfsblekkingu. Ef Ísland nær svo að vinna þennan leik þá ét ég hattinn minn.

Þið eruð ógeð, öll með tölu. There, I´ve said it.

:: G-Sus 19:07 [+] ::
...
:: þriðjudagur, mars 30, 2004 ::
Brenglunin verður nú ekki mikið meiri en þessi.
Að taka fró hefur öðlast nýja merkingu í meðförum þessa manns.

:: G-Sus 12:50 [+] ::
...
:: mánudagur, mars 29, 2004 ::
Smallville á eftir. Klassaþættir. Nema fyrir þessa helvítis belju sem hún Lana er. Einu sinni fannst mér hún bæta útlit þáttanna en núna finnst mér hún vera aumingi og eins og áður sagði, belja. Já það er erfitt að vera önugur út í sjónvarpskarakter en mér tekst það samt.

Og ekki batnar leitin hjá þessum aumu sálum sem eru útí hinum stóra heimi að reyna að finna sig, eða fitla við sig. Sá nebbilega að einn annar kom inn á þessa síðu eftir frekar áhugaverða leit. Nú veit ég að ef slegið er inn „Gay tricks“ á google.ca þá fæst mín síða. Og hvað er gay tricks eiginlega? Kunna hommar einhverjar kúnstir sem við kunnum ekki? Er kannski hægt að kenna hommum að sitja og liggja eins og hundum? Þeir kunna það nú mögulega fyrir en þá er kannski hægt að kenna þeim eitthvað erfiðara... eins og til dæmis FETCH THE BALLS BOY! NO, DON'T BITE THEM!

G-sus, out of business.

:: G-Sus 19:57 [+] ::
...
Það var einhver Fransmaður sem leitaði að „Snoop bitch“ og var vísað á síðuna mína! AAAAAAAHAHAHAHAHHAHAHA

:: G-Sus 13:07 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 28, 2004 ::
Velkomin á sólardagsbloggið. Sólin er þó eitthvað minni í dag á hlut snævarins.

Ekki er kvefið farið þó úr rúminu sé komið. Sei sei nei.

Stórleikur á eftir, Arsenal - Man. Utd. Fótboltaáhugamaðurinn ég ætlar að horfa á þennan leik. Christiano Ronaldo í lið Manchester er fyndinn gaur. Drullusnöggur og góður leikmaður en ætli þyngdin, eða léttleikinn réttara sagt, hái honum ekki pínulítið. Hann er ekki beinlínis fótboltabuff kappinn sá. Alltaf þegar ég sé hann stilla sér upp fyrir að taka aukaspyrnu þá kemur mér í hug eitt ákveðið dýr. Það má sjá hér að neðan. Á myndinni má sjá Ronaldo í forgrunni tilbúinn að spyrna en í bakgrunni er nakinn áhorfandi búinn að hlaupa inn á völlinn.






Lokaorð dagsins í dag:
Knowledge, wisdom and understanding brings long life and health,
think anything else and you playin´ yaself

- Jeru the Damaja


:: G-Sus 14:25 [+] ::
...
:: laugardagur, mars 27, 2004 ::
Ég er alveg gríðarhress um þessar mundir með frárennsli úr nefi og kallast það nefrennsli. Kvef bara held ég. Í hressleika mínum þá bauð ég í vídeó í gærkvöldi, eða DVD nánar tiltekið. Mættir voru: Arnþór. Við horfðum á The Last Temptation of Christ og var hún hreint út sagt mögnuð. Lengi að byrja en seinasti hálftíminn er nokkuð magnaður og gerir myndina að því meistaraverki sem hún er. Gerir líka það að verkum að myndin heitir það sem hún heitir. Maður verður bara að þrauka. Willem Dafoe er líka alveg fáránlega flottur leikari.
Það er nú varla hægt að segja að Arnþór hafi horft á myndina. Júdas, eins og ég kalla hann, fór bara að hlusta á tónlist eftir klukkutíma áhorf.

Svo er víst eitthvað innflutningspartý hjá henni fyrrum bekkjarsystur minni, henni Guðrúnu Ásu, í kvöld. Giska á að þetta verði MR partý og væri ég til í að fara en ætli maður verði ekki heimasitjandi vegna frárennslis eða stíflu í frárennsli. Virkilega slakt.

Bara til að vera fyrri til:
VEEEEEEEEEEEIIIIIIIIIIIIIIIIKUUUUUR!

:: G-Sus 14:32 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 26, 2004 ::
Ég játa það. Ég er með fóbíu. Kannski í fleirtölu en samt alveg sérstaklega fyrir einu fyrirbæri. Það fyrirbæri er hvirfilbyljir. Ekki rugla því saman við fellibylji. Ég er að tala um the whole kebang þarna sem er svona eins og trekt og virkar eins og ryksuga. Ég veit ekki hversu oft ég hef fengið martraðir yfir þessu.
Mér verður hugsað til þessa núna í svona sviptivindum og snöggum hitabreytingum. Ég segi ykkur það, ef þetta fyrirbæri mun einhverntíma sjást hér á Íslandi þá mun ég flytja til Grænlands eða Færeyja. Eða Danmerkur. Örugglega Danmerkur.
Þetta er án efa single most creepy sjitt sem ég get ímyndað mér.

sooooooooooooooooooooooog! Úpps! Ég hef verið ryksugaður upp í himinninn af einhverju náttúrulegu skrímsli!
viðbjóður...

:: G-Sus 17:42 [+] ::
...
Mikið rosalega er ég feginn að hafa ekki farið á þetta karlakvöld í gær. Við reyndum alveg að fara en röðin var kreisí og við nenntum ekki að bíða. Fórum frekar á Starsky & Hutch. Það var góð ákvörðun. Sá nebbilega myndir af þessu karlakvöldi á beygla.is og það er einmitt mjög góður staður til að hýsa þær myndir. Mjög lýsandi fyrir da biddses sem sýnilega voru eitthvað að skækjast þarna inni.

Myndin var nokkuð skemmtileg. Betri en hroðinn sem helvítis Melurinn bjó til. Ben Stiller getur verið svo viðbjóðslega fyndinn gaur og hann á nokkur vel valinn atriði í myndinni. Sérstaklega þegar hann er á kókaíni. Going down in history. Svo eru lögin í myndinni alveg hreint mögnuð. Þvílíkt tímabil sem þetta var. Hefði verið til að vera uppi á þessum tíma. Fyrir utan þetta fokking ABBA og BeeGees rusl. It´s musica negra that has my interest.

:: G-Sus 11:09 [+] ::
...
:: miðvikudagur, mars 24, 2004 ::
Ég, Arnie og Atli fórum í bíó í gærkvöld á The Passion of the Christ. Djísús kræst... ekki sjá hana. LAME as fökk! Leiðinlegur misskilningur er þó leiðréttur í myndinni og ekki seinna vænna. Alltaf hefur verið talað um Jesús og lærisveinana 12 en nú hefur annað komið á daginn. Sannleikurinn er sá að Jesús var offitusjúklingur og í raun voru þetta 12 LÆRISNEIÐAR sem hann tók með sér hvert sem hann fór. Gott að þetta skyldi vera leiðrétt núna 2000 árum síðar.
Allavega, þá er þessi mynd arfaslök. Svo verður pottþétt framhald. Jesus Christ, The Resurrection!
Mér fannst bókin betri.
...3 in 1...classic

Svo fór ég í morgun og keypti mér miða á Pixies og Kraftwerk. Þetta er að verða hið versta mál. Allt of mikið af tónleikum og maður getur varla sleppt því að fara. Kostnaðurinn er gríðarlegur.

Eiki var að tilkynna mér það að hann væri með miða á karlakvöld X-ins á Jóni Forseta annað kvöld. Whut the hell is that? Hann allavega bauð mér með þar sem ég er alveg gríðarlegur kall. Annar eins kall er vandfundinn. Þvílíkur kall að það jaðrar við móðgun við aðra sem telja sig kalla.

Svo verð ég að linka á hann Svenna Hnakkus. Þegar ég las þetta áðan þá fannst mér þetta vera einmitt svona grein sem á heima á batman eða humor or sumphin og viti menn, linkurinn er kominn á humor.is TJEKK ITT!
Ótrúlegt en satt þá á Brynjar örlítinn þátt í þessari grein Hnakkusar. Á tímabili sagði Brynjar mjög mikið JÁ! eins og hann væri þroskaheftur og svo byrjaði ég á því sama í vinnunni. Skemmtilegt hvernig þetta hefur undið upp á sig.

Kallinn kveður,
G-sus

:: G-Sus 16:41 [+] ::
...
:: þriðjudagur, mars 23, 2004 ::
Matur er fjárfesting sem skilar sér

:: G-Sus 20:42 [+] ::
...
:: mánudagur, mars 22, 2004 ::
Mikið assgoti var þetta fróðlegur og skemmtilegur þáttur í Ríkissjónvarpinu. Hann hét „Framtíðin er furðuleg“, 1. þáttur af þremur.
Gaman að sjá loksins framtíðarsýn fræðimanna um dýralíf á jörðinni í stað þess að sjá eilífar spekúleringar um da old days.
Fær mann til að hugsa... Ekki beinlínis happy thoughts en örvar allavega annars frekar hægvirka heilastarfsemi. Ekkert nema gott.

Svo er ég víst að fara að fá 120 feita í bónus um næstu mánaðarmót skv. fréttum í kvöld. Ekkert nema gott. Hookers for everyone kids! I say hookers for eeeeveryone!

:: G-Sus 23:53 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 21, 2004 ::
Why be a pussy if you can be a dick?

:: G-Sus 22:44 [+] ::
...
:: laugardagur, mars 20, 2004 ::
Hvað finnst ykkur um tímaferðalanginn John Titor? Prófið að lesa þetta og myndið ykkur skoðun á þessu.
Skemmtileg lesning.

:: G-Sus 18:44 [+] ::
...
Ég er að borða snúð!!!

:: G-Sus 11:30 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 19, 2004 ::
Skellti mér þarna í gær á Gaukinn. Eiki, my partner in crime, kom auðvitað líka. Raekwon var eins og við var að búast drullusvalur. Ekki nógu svalt samt hvað hann var stutt upp á sviði. Ekki nema 40 min eða svo. En hann opnaði settið á C.R.E.A.M. af Enter the 36 Chambers. Hólí mólí hvað það var töff.

Vissuð þið...?

...að rúm er múr afturábak
...að Dallas er sallad afturábak
...að ekki er ikke afturábak
...að ræða er æðar afturábak
...að kabárutfa er afturábak afturábak

Nei, hélt ekki.

:: G-Sus 19:17 [+] ::
...
:: miðvikudagur, mars 17, 2004 ::
Já nú fer að líða að því moðafokking biddsis end hós! Raekwon annað kvöld á Gauknum. Nothin but ICE CREAM

Svo er hér drulluskemmtilegur leikur þar sem maður lemur mörgæs og reynir að láta hausinn á henni fjúka sem lengst. Metið mitt er 1215 og ef einhver nær að bæta það þá fær sá hinn sami rassskellingu. Eða rass-kellingu. Hvort heldur sem er.

öppdeit: ég var að vinna miða á Raekwon á Popptíví! VÚHÚ! G-sus bara kominn á gestalista. Hvern hefði grunað..

:: G-Sus 18:02 [+] ::
...
:: þriðjudagur, mars 16, 2004 ::
News flash!

Hún systir mín hressa var að senda mér póst. Hún reiknaði það út að hryðjuverkin í Madrid eru 912 dögum á eftir World Trade Center atvikinu. Ef það hefði ekki verið þetta hlaupaár þá hefðu dagarnir verið 911! Spúkí?
Hvað er eiginlega með þetta 911 fetish??

:: G-Sus 21:30 [+] ::
...
Skemmtilegt frá því að segja að ég óvart sá myndband með Alicia (Aliciu ?) Keys í gær og töffarinn Mos Def leikur einmitt aðalgaurinn sem hún er að reyna að hözzla.

Líka skemmtilegt frá því að segja að ég, Steini og Arnþór fórum í sund um daginn og ég og Arnþór vorum nákvæmlega jafnþungir. Ain´t that funny? Huh? Bidds?

Jójójó sólin er að koma!

Hæ hó. Jibbí jei? Það er kominn seytjándi júní.

Fyrr var oft í Koti kátt. Krakkar léku saman!??

Heyrðu snöggvast Snati minn! Snjalli vinur kæri...

Fljúga hvítu fiðrildin, fyrir utan gluggann. Rasistar.

Jól4sv31|\|ar g4ng´um góIf m3ð gyllinæð í h3nd1.

Ha11ó kR4|<|<4R !!!

Bless bless

:: G-Sus 16:30 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 14, 2004 ::
Ef einhver fær lánaðan pening og fer svo í spilakassa og vinnur, hver á þá vinninginn?

:: G-Sus 23:52 [+] ::
...
:: laugardagur, mars 13, 2004 ::
Ég sá á batman.is að Hitchhiker´s Guide to the Galaxy verður að hluta tekinn upp hér á landi. Það er kannski ekki svo markvert en við nánari eftirgrennslan á imdb.com þá sá ég leikaravalið fyrir myndina. Enginn annar en Mos Def kallinn, rappari-slash-leikari, mun fara með hlutverk Ford Prefect. Ég sá ekki alveg svertingja fyrir mér þegar ég las bækurnar. En gott mál bara. Vonandi að hann komi til landsins. Það væri nasstí skítur.
Mos Def er slanguryrði fyrir ´most definitely´ bara svona til að mennta ykkur þau sem eruð ekki hip og kúl.

:: G-Sus 11:53 [+] ::
...
:: fimmtudagur, mars 11, 2004 ::
Ég held að málið sé fyrir vestrænar þjóðir að vera alltaf á tánum 11. hvers mánaðar.

:: G-Sus 22:20 [+] ::
...
:: miðvikudagur, mars 10, 2004 ::
Búinn að breyta smá bloggi þessu hér. Sigrúnartengill fékk að fjúka. Ekki lengur virk síða. Bílahrútur og Heiða fara bráðum sömu leið. Ferlega verður þá eitthvað tómlegt hjá mér.
Svo eru íslensku stafirnir greinilega að bliva svo fyrirsögnin breyttist til hins betra.

Mér tókst að klúðra æskuminningunni (15 ára) í síðasta bloggi. Það var víst: Hipp hopp hopposí og hey staying at it.
Eða það er allavega það sem okkur tókst að ráða út úr samtalinu.
Já, Sekkurinn var hress þá.

Letin er í hámarki þessa dagana. Ætli það sé veðrið?

:: G-Sus 21:02 [+] ::
...
:: þriðjudagur, mars 09, 2004 ::
Hæ hó hopposí og hey staying at it.
Eiki Bleiki bró.

Að vera svartur og heita Djemba Djemba er svipað og heita Úgga Búgga.
Að heita Butt er bara plain asnalegt.
Og að heita Fortune kann ekki góðri lukku að stýra.

Ég er að hugsa um að horfa á þennan leik bara.

:: G-Sus 19:48 [+] ::
...
:: mánudagur, mars 08, 2004 ::
From left to right: old man Oldman and the new guy... Newman.





Ekki alveg jafn beittur og sá fyrri en samt.

:: G-Sus 17:16 [+] ::
...
:: sunnudagur, mars 07, 2004 ::
Here you can see New Jersey..... and an old jersey.






:: G-Sus 00:31 [+] ::
...
:: laugardagur, mars 06, 2004 ::
Jó, pípol

Hugur minn varð fyrir svona stundar-skýrleika í nótt þegar ég fór að sofa. Kemur eiginlega bara fyrir þegar ég fer að sofa. Kannski ætti maður að sofa oftar.
Veit ekki af hverju ég fór að hugsa um þetta en ég áttaði mig á því að það er drulluerfitt að vera heiðinn (trúlaus) og ætla að gera það vel. Allar dagsetningar hjá okkur tengjast kristi og ef maður þarf t.d. að skrifa kennitöluna sína þá er maður kominn með tengingu við krist. Auðvitað er þetta ekki alveg beinlínis ný uppgötvun hjá mér en það var bara eins og ég hefði verið sleginn í höfuðið með þessari hugdettu. Af hverju ekki að miða við eitthvað annað? Hvað væri þá hægt að miða við? T.d. kannski síðustu ísöld? Þá væri árið núna sirka 10 þúsundogeitthvað. Óraunhæft en óneitanlega skemmtilegt. Það myndi líka gera einfaldara fyrir að samhæfa ártöl í heiminum ef út í það yrði farið. Samhæfing er nú samt kannski útúr kortinu þar sem múslimar eru alveg sér á báti í dagsetningum en nú er þessi punktur sem ég var að koma með eiginlega dottinn um sjálfan sig þar sem hann á eiginlega bara við um trúleysingja því allir trúaðir (sem eru meirihluti fólks) myndu setja sig upp á móti þessu. Glæsilegt Gústaf. 10 stig fyrir þetta.
Já, það er erfitt að vera heiðinn í guðhræddum heimi.

Svo ég bjargi mér fyrir horn þá kemur hér spurning dagsins:
Ef þið ropið og enginn heyrir í ykkur, segiði samt afsakið?

:: G-Sus 13:07 [+] ::
...
:: föstudagur, mars 05, 2004 ::
Get ekki annað en tjáð mig um þetta... Beljan hún Mya (sem söng Ghetto Superstar með Praz og ODB) er komin með lag sem heitir Falling. Moddafokking biddsið vælir yfir Runnin´ taktinn sem Pharcyde gerði. Hneyksli. If I hear it one more time I´ll yell RAPE.

:: G-Sus 14:38 [+] ::
...
:: fimmtudagur, mars 04, 2004 ::
Hressandi að fara enn einu sinni í borðtennis á fimmtudögum. News at eleven.

Tvíhöfðadótið á Popptíví var helvíti súrt. Ekkert sérstaklega fyndið. Svolítil vonbrigði.

Og svo kemur spurning dagsins.
Er nauðsynlegt að taka eitthvað með ásamt því sem maður lyftir eða æfir eitthvað af kappi? Með "taka eitthvað" á ég við prótein drykki, ripped fuel eða hvers konar stöff sem fólki finnst það þurfa að innbyrða. Virkar þetta dót eða á maður bara að taka þetta á viljastyrknum einum saman og nauðga vöðvunum á sér þangað til byrjar að blæða?
Hafið þið einhverja reynslu? Ég hef nebbilega alltaf verið eitthvað á móti þessu en kannski var það bara til að vera á móti þessu. Mér finnst allavega meira vit núna í þessum prótein drykkjum en mér fannst einu sinni. Veit ekki hvað breyttist.
Am - I - Getting - Through - To - You ???

:: G-Sus 23:27 [+] ::
...
:: miðvikudagur, mars 03, 2004 ::
Djöfull lofa teiknimyndir TV-íhöfða góðu. Þetta auglýsingabrot er svo fyndið. Mest fyndið þegar Bubba fígúran tjáir sig. Til hamingju.

Af hverju þarf alltaf allt (já, allt) sem er flott að vera fatlað, annaðhvort andlega eða líkamlega? Sumt er alveg geeeeeðveikt! Og svo er annað alveg þrooooskaaaaheeeeeft! Vanskapað jafnvel. Hvaðan kemur þetta? Viljum við ómeðvitað vera fötluð? Eða finnst okkur fatlaðir kúl?

Auðvitað tók Lorturinn Óskar frænda í taðgatið. Það var ekki við öðru að búast. En ferlega var sumt eitthvað misheppnað. Hvað var með Jim Carrey? Hló maður einu sinni að svona svipuðum töktum hjá honum eða sökkaði hann bara feitan þarna?

Ég hef oft og mörgu sinnum gert grín að þessu áður en það var einhver svo góður að búa til myndrænan brandara úr þessu gríni. HÉR

Esse, esseh.

:: G-Sus 17:58 [+] ::
...
:: mánudagur, mars 01, 2004 ::
Djöfulli er fúlt að hafa ekki fengið miða á KoRn. Dææææm sonn. Arnþór að klúðra þessu, hann nennti ekki að sofa niðrá Laugarvegi. Algjör letingi. Neinei, hefðum við bara verið sniðugir og keypt miða hjá Símanum á netinu. Gott að vera vitur eftirá. Hjálpar ekki neitt. Vonandi getum við reddað okkur miða e-n veginn samt. Helst vonar maður auðvitað að það verði aðrir tónleikar.

Ég veit ekki af hverju en ég held að Black Eyed Peas muni heimsækja okkur. Hef hvergi heyrt neitt um það heldur flaug mér þetta bara í hug. Gaman ef satt reynist. Ég myndi alveg fara á tónleika með þeim. B.E.P. eru algjörar tussur í dag en tjúttuðu og djömmuðu á fyrsta disknum sínum. Þá voru þeir lausir við þessa kellingu og voru bara hip gaurar. Hip hop gaurar.

Ekki veit ég enn hvaða mynd vann Óskarinn þar sem ég nennti ekki meira um hálf fjögur. LOTR voru samt að sópa að sér verðlaununum þegar ég hélt til hvílu svo ég giska á að Lorturinn hafi tekið þetta. Ótrúlegt en satt þá er klukkan að verða sex og ég hef ekki enn heyrt hver vann. Vonandi að það haldist fram yfir æfingu (ólíklegt) svo ég geti horft á samantektina í kvöld.

Þá er 4. málsgreinin bara orðin að veruleika. Hver hefði trúað þessu.

Á ekki að fara á Britney í Danmörku 9. maí? Nei. En ég fer út um páskana og það er ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að fökkings Tívolí með sinn nýja rússíbana opnar ekki fyrr en 16. apríl. Ég kem heim 12. apríl. Þegar ég fór út í september þá var nýbúið að loka Tivolí svo ég missti af því líka þá. Dæææææm.

Allavega. Það þýðir ekki að gráta Björn bónda heldur safna liði.
Bless á meðan krakkar,
G-sus

:: G-Sus 17:55 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?