|
|
:: laugardagur, júlí 31, 2004 ::
Assgoti fannst mér Tyson bardaginn í nótt enda sorglega. Ótrúlegt en satt þá hélt ég með Tyson. Hef fram að þessu haldið með andstæðingnum, sama hver hann var, en núna loksins þegar ég held með honum þá tapar hann. Það sem fékk mig til að halda með honum var viðtalið sem var tekið við hann inn í búningsklefa fyrir bardagann. Hann meikaði fullkomið sens, var alveg extra rólegur og svo svoleiðis negldi hann í æfingapúða að maður myndi enda sem spílalamatur eftir eitt högg frá kallinum. Svo tapaði hann með tæknilegu rothöggi í 4. lotu og það fannst mér vera sorglegt. Þegar hann sat á gólfinu upp við kaðlana, horfði upp á dómarann og maður sá á svipnum á honum að hann var alveg búinn og ferillinn hans þá um leið. Held það sé nánast ógerningur fyrir bráðum 39 ára gamlan mann að vinna sig upp úr þessu. En þetta er Mike Tyson, svo maður veit nú ekki hvað gerist.
Góða helgi.
:: G-Sus 13:04 [+] ::
...
:: miðvikudagur, júlí 28, 2004 ::
Ef þið viljið hlæja aðeins og horfa um leið á sjúkar teiknimyndir smellið þá á eftirfarandi linka:
Þáttur 1
Þáttur 2
(og ef þetta virkar ekki þá getið þið heimsótt strangeland.com og náð í þetta þar)
Þetta eru semsagt tveir þættir (3-4 mín) í þáttaröðinni Princess og fjallar hún um hundinn Princess og ævintýri hennar. Aðeins tveir þættir voru gerðir. Fílíði South Park? Já? Nei?? Skiptir ekki máli. Þið verðið samt að sjá þetta. Ef það væri nú ekki nema bara fyrir byrjunarlagið í fyrri þættinum.
Og í öðrum fréttum. Var að koma af ókeypis sýningu á Good Bye, Lenin! með Brynjari og Bryndísi.
Til að fá ókeypis miða átti maður að segja "Ich liebe Hjartsláttur" í miðasölunni. Ekki mikið mál það. Svo var þetta hin fínastastasta mynd. PRINCESS PRINCESS!! Þýskan vandist vel og gaman að breyta aðeins út af vananum frá Hollywood enskunni.
Eitthvað fer svo minna fyrir þessari verslunarmannahelgi. Stefnir allt í að vera bara heima.
Fluffy bundle of love! PRINCESS! PRINCESS!!
:: G-Sus 23:08 [+] ::
...
:: mánudagur, júlí 26, 2004 ::
Já, ekki veit ég af hverju við fengum DV sent heim í dag... En mér brá soldið þegar ég leit á forsíðuna. Nafnið mitt var á forsíðunni. Ekki millinafnið en fornafn og eftirnafn í góðum fíling. Fyrirsögnin er eftirfarandi:
Nágrannastyrjöld á Kleppsvegi
HÓTAR AÐ SKJÓTA NÁGRANNA SINN
Allt er á suðupunkti í blokk á Kleppsvegi 72. Heiftúðugar nágrannaerjur hafa valdið því að þrjár fjölskyldur hafa flúið blokkina. Gústaf Gústafsson hefur vígbúist og er tilbúinn að ganga alla leið ef nágrannakona hans, Hilda Hafsteinsdóttir, lætur hann ekki í friði. Hann sakar hana um að hækka á ofnunum, loka gluggum og ota hnífum að fólki.
Jaahá sveimérþá! Ég hugsaði strax, "Nei, þeir geta ekki verið að tala um mig? Er búið að fótósjoppa mig? Er verið að reyna að skella skuldinni á mig!?!!" og svo leit ég á myndina af honum Gústafi og þá sá ég að hann var gamall, sköllóttur með gleraugu og í skyrtu. Þá fattaði ég að þeir hefðu ekkert á mig hvort eð er. Ég geng aldrei í skyrtu.
En hversu fokking geðsjúkur þarf maðurinn að vera??
Hún er að loka glugganum!! Skjótið helvítið!!!
Afhverju er svona heitt hérna inni? Var einhver kannski að hækka á ofnunum!?! Skjótið helvítið!!!
ÚFF maður! Mér er létt. Ég leit í símaskrána á netinu og hann heitir Gústav Gústavsson. Þá er mannorði mínu borgið enn um sinn.
:: G-Sus 18:42 [+] ::
...
:: sunnudagur, júlí 25, 2004 ::
Ohh Suzie Q, baby I love you, Suzie Q!
Hef haft litla lyst á að blogga undanfarið. Búinn að halda mínum stórskrítnu pælingum inní hausnum á mér og enga útrás fengið. Sleppi einni lausri núna.
Ég trúi ekki á örlög. Það gefur lífinu minni tilgang en vanalega að trúa á örlög. Ekki gott að hugsa til þess að maður ráði ekki yfir sínu eigin lífi, heldur sé allt skipulagt fyrirfram. Þetta merkir það að fyrir menn eins og mig þá skiptir mjög miklu máli hvort tímavélar verði einhvertíma að raunveruleika eða ekki. Ef svo ólíklega verður að einhverntíma verði til tímavélar þá verða þær bara að geta flutt menn inn í fortíðina og þá er örlagapælingum mínum borgið. Ef tímavélar gætu flutt fólk inn í framtíðina hinsvegar, þá merkir það aðeins eitt... BAM! Destiny right in your face.
En þessar tímavélapælingar er nú frekar langsóttar. Hver hefur t.d. ekki spáð í eftirfarandi uppákomu (eða einhverju álíka):
Jói býr til tímavél, hann ferðast að þeim stað þar sem tímavélin er enn í byggingu og eyðileggur hana í skjóli nætur. Hvað gerist þá eiginlega fyrir Jóa? Hvernig komst hann aftur í tímann til að eyðileggja tímavélina?
Svona tímapælingar af hvers konar tagi eru alveg mindboggling og maður fer alltaf í einhvern hring. Það er alveg hægt að hræra í þessum pælingum endalaust og vonandi að þær pælingar séu nóg fyrir hvern mann að láta af tímavélabyggingu ef tæknin einhverntíma verður fyrir hendi.
Svo eitt að lokum til að slútta þessu með meiri hugarangri.. Þetta gæti samt allt gengið ef það væru til mismunandi tímalínur. Það er, við værum að lifa á einni núna en ef við ferðuðumst aftur í tímann og breyttum einhverju þá myndi verða til önnur tímalína frá þeim punkti sem við breyttum. Svona eins og ein lína sem á þeim tímapunkti greinist í tvær.
Jæja, kvikmyndir farnar að smita mig, grunar mig sterklega.
The end.
:: G-Sus 12:25 [+] ::
...
:: þriðjudagur, júlí 20, 2004 ::
Vá mar. Ég var að horfa á veðurfréttirnar og mundi þá allt í einu eftir veðufréttunum á stöð 1 þegar maður var lítill. Þegar veðurfréttamaðurinn var með svona prik og myndavélin var á kassa sem snerist þannig það gátu verið 4 veðurkort það kvöldið... eða var þetta þríhyrningur?... Man ekki. Svo er eins og mig minni að veðurfréttamaðurinn hafi setið meðan hann sagði fréttirnar en það gæti líka verið arfaslakt minni mitt að blekkja mig.
Skittles.
:: G-Sus 19:31 [+] ::
...
Hrikalegt. Hrikalegt bak.
:: G-Sus 00:26 [+] ::
...
:: laugardagur, júlí 17, 2004 ::
Maður er úti í fótbolta flottur með sólgleraugu og ber að ofan (ekki blotna fólk, ekki blotna) og hvað gerist? Maður brennur á hausnum. Alveg hreint magnað. Svona er þetta víst ef klippingin heitir snoð. Það mætti segja að klukkutímarnir sem ég hef dvalið í sólinni (ALLRI sólinni) hér í sumar séu vel teljanlegir á fingrum annarrar handar svo kannski var bruni óhjákvæmilegur.
Í gær var haldið í grillpartý hjá Kleifarvegs-systkinunum. Það heppnaðist nokkuð vel. Það mætti líka segja að herramennirnir á þessari mynd séu bara OF flottir.
Hressleikinn er svo í fyrirrúmi þetta laugardagskvöld þar sem sjónvarpsáhorf kemur sterkt inn. Örverpið bara eitt heima þar sem móðirin ákvað að skreppa frá í vikutíma. Djöfull er það hresst að vera svona einn. Kemst að því að ég er alveg gríðarlega ósjálfbjarga og sé ég fram á 1944 rétti alla daga vikunnar.
Byrja svo aftur í vinnunni á mánudaginn eftir 5 vikna hlé. Það er alveg fokking langt hlé. Sé fram á algjör leiðindi í næstu viku þegar maður reynir að koma sér aftur inní starfið. Ég held virkilega að þessi leikur sé flóknasti leikur í heimi. Allavega flóknasti leikur sem ég hef nokkurntíma kynnst.
Stay flott and no tott.
:: G-Sus 22:05 [+] ::
...
:: föstudagur, júlí 16, 2004 ::
Sá á netinu könnun sem útleggst á íslensku: „Heimsins kynþokkafyllstu grænmetisætur“, eða World´s sexiest vegetarians. Andre úr OutKast var kosinn sem grænmetisæta í hverju? Jú, karlaflokki. Og svo var Alicia Silverstone kosin líka.
Skemmtilegt frá því að segja að allnokkrir rapparar komust inn á þennan lista (listann má sjá hér). Fyrir utan Andre voru það: Common, Ghostface Killah (!), Jeru the Damaja (tja..), KRS-One, Mos Def og Q-tip. Þeir voru víst fleiri en þessa þekki ég best og get alveg sagt með góðri samvisku án þess að virðast samkynhneigður að Ghostface Killah er vafasamur á þessum lista og Jeru er jafnvel tæpari. Jeru er ofursvalur gaur (hef tekið í hendina á honum!! ÚÚúúúúú!!!) en ekki alveg sexy material. Mjög töff mynd af Jeru sem Árni Torfason tók.
Hefði Brad Pitt verið grænmetisæta þá hefði hann rústað þessu. En nóg um það.
Hvað er ég að fara með þessu bloggi, spyrjið þið kannski?
How the hell should I know, segi ég, og geng út í sólsetrið.
:: G-Sus 14:00 [+] ::
...
:: fimmtudagur, júlí 15, 2004 ::
Fór í Hagkaup Smáralind í dag. Eins og flestir vita er búðin sú alls ekki búð af minna taginu. Ég var að leita að nokkrum hlutum og var alveg að eipsjitta á stærðinni á þessu kvikindi (geri það líka þegar ég fer á klósettið) en allavega, þá sá þarna einhver starfsmaður að ég var ekki að finna það sem ég þurfti. Var að leita að svona salsa sósum (sósu sósum?) og fann þær en var ekki hress með úrvalið. Gaurinn pikkaði tilfinningar mínar og þrár upp, svona eins og fær tónlistarmaður pikkar upp músík, og leiðbeindi mér hvar ég gæti fundið meira úrval. Þessi starfsmaður var af útlensku bergi brotinn, sem er alls ekki slæmt, en kemur sögunni við. Hann talaði við mig ensku en var ekki frá enskumælandi landi sjálfur. Hann sagði mér að fara út í enda og þar myndi ég finna fleiri tegundir af sósum. Eða með hans orðum: „Yes, you just go to the finish. All the way to the finish.“
Sögu lokið.
Svo var ég að koma af Spiderman 2. Alls ekki slæm mynd en ekki alveg að standa undir þessu lofi sem fært hefur verið á hana undanfarið.
Jæja, drullið á ykkur.. eða gerið bara það sem þið viljið mín vegna. Ekki er ég að fylgjast með ykkur.
Eða hvað? ÚÚÚÚÚ! Eða hvað?!!
:: G-Sus 01:22 [+] ::
...
:: þriðjudagur, júlí 13, 2004 ::
Scratching.. what is it?
Horfði í gærkvöld á myndina Something´s Gotta Give með Jóa Nikulásar og Díönu Kátínu í aðalhlutverkum. Snilldarmynd. Vissi ekki alveg við hverju ég átti að búast en hafði heyrt góða hluti og ekki varð ég fyrir vonbrigðum. Mæli með henni.
Sá seinustu 35 minúturnar hjá Víking-Fram. Ég held það sé best ég segi bara ekki neitt um það. Leikurinn endaði í jafntefli þó. Svartimaðurinn (já, í einu orði) hjá Víking var samt að gera góða hluti.
ENNÍHÚ! Þetta er of slakt. Blehblehblehblehbleh.
Dagdraumar eru bjargvættir dauðans. Tónlist líka. Úff, got a little too deep for you there, didn´t I?
:: G-Sus 22:11 [+] ::
...
:: sunnudagur, júlí 11, 2004 ::
Ég var að fá símhringingu frá Arnþóri. Hann spurði: „Er þetta rétt!?“ Ég hváði og spurði hvað hann væri eiginlega að tala um. „Er Brad Pitt dáinn? Var hann étinn af hákörlum?“ Þá mundi ég að í fréttum Stöðvar 2 var frétt um brimbrettakappann Brad Smith sem varð að hákarlasnakki rétt fyrir utan Perth í Ástralíu. En Arnþóri til varnaðar þá var þetta mamma hans sem var víst að misskilja. Það er allavega gott að vita hvaðan Arnþór fær þessi gen sín, sem hann er hvað þekktastur fyrir.
Svo var einhver að spyrja, er það Akureyri um Verslunarmannahelgina?
:: G-Sus 19:03 [+] ::
...
:: fimmtudagur, júlí 08, 2004 ::
Hárið. Það er góður möguleiki að maður skelli sér á Hárið í Austurbæ svona einhverntíma á næstu dögum. Virðist geta verið ágætis skemmtun. Myndin var allavega nokkuð góð. Svo eru Bensi og Svessi B. báðir í sýningunni. Gaman að sjá hvernig þeir standa sig. Og nokkuð merkilegt, ég og mamma vorum að ræða um þessa sýningu og hún sagðist eiga vinylplötuna með lögunum úr Hárinu. Hún tók hana fram og setti hana á fóninn. Svo leit hún á dagsetningu sem hún skrifaði aftan á umslagið (daginn sem hún keypti plötuna) og þá var það 8. júlí 1970. 1 á móti 365 þar á ferð. Fyrir 34 árum uppá dag var mamma, 25 ára, að versla sér þessa plötu. Það sem mér finnst merkilegast við þetta er ekki það að dagsetningin hittist á uppá dag, heldur það að mamma var einu sinni 25 ára. Isn´t dat weird...
Og já, Staur er besta sælgæti í heimi.
:: G-Sus 17:42 [+] ::
...
:: mánudagur, júlí 05, 2004 ::
Jamm, leikur að orðum heldur áfram.
Gísl og písl eru bæði íslendingar. Við erum það líka en á annan hátt þó. Íslendingar stunda svo flugvélar á Suðurskautinu.
Og svo svona smá umhugsunarefni: hvaða tungumál töluðu frumbyggjar Ameríku (Indíánar fyrir ykkur tregu)?
Ekki hef ég hugmynd um það og í augnablikinu man ég ekki eftir að hafa heyrt minnst á þetta. Ef einhver getur sagt mér svarið við þessu (Stebbi?) þá væri það vel þegið. Þetta er búið að vera að plaga mig undanfarið.
:: G-Sus 21:09 [+] ::
...
:: sunnudagur, júlí 04, 2004 ::
Núna er ég að fá sjónina aftur svona nokkurn veginn eftir nokkurt hlé og í tilefni af því ætla ég að koma með nokkra vel valda punkta.
.
..
og
...
Fleiri punktar munu svo fylgja í kjölfarið von bráðar.
Takk fyrir.
:: G-Sus 21:39 [+] ::
...
|