eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: mánudagur, október 30, 2006 ::

Það er að koma að þessum tíma ársins... sjíss... Punkturpunkturpunkturpnukturpknutpurniptuckpunk

Á hvaða tímapunkti í lífinu byrjar maður að kalla mömmu sína móður sína og pabba sinn föður sinn?

Missa það? neinei

:: G-Sus 19:39 [+] ::
...
:: laugardagur, október 28, 2006 ::
Þvílíkt framtak hjá Stöð 2 að endursýna tvo Fóstbræðraþætti í einu á laugardagskvöldum. Loksins sér maður þetta aftur. Ég veit ég er að predika yfir kórnum, en þetta er besta íslenska sjónvarpsefni fyrr og síðar. Í hverjum þætti er allavega eitt klassískt atriði sem allir á okkar aldri geta ennþá vísað í í dag. Hvenær í aaaandskotanum kemur þetta út á DVD???
Jón Gnarr er eiginlega með allar bestu línurnar, eða allavega gerir hann línurnar sínar að þeim bestu. Hann var á toppnum á þessum tíma, án efa.

Nóg komið af Fóstbræðrahóli í bili.
Hættið svo að reyna að káfa á mér alltaf hreint. Þetta er orðið óþolandi.

:: G-Sus 20:40 [+] ::
...
:: föstudagur, október 27, 2006 ::
Ég er 25.5 ára í dag.
Það er soldið mikið.

:: G-Sus 22:30 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 25, 2006 ::
ÉG VAR AÐ MUNA AÐ ÉG ER MEÐ BLOGG!!! OLOLOLKEKEKEBUR
ÉG ÁKVAÐ ÞVÍ AÐ DETTA INN OG SKRIFA NOKKUR ORÐ Í HÁSTÖFUM ÞVÍ AÐ SKRIFA Í HÁSTÖFUM ER PIRRANDI EN ÞÁ HITTIR EINMITT VEL Á VONDAN ÞVÍ ÉG ER SVO PIRRANDI. JÁ, SVEI MÉR ÞÁ EF BLOGGI DAGSINS ER EKKI BARA HÉR MEÐ LOKIÐ.

:: G-Sus 15:43 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 18, 2006 ::
Kominn heim frá Spáni. Djöfull var þetta hresst ferðalag. Þrír dagar í röð... sjíss. Það eru alveg 5 ár síðan síðast.
Bara töff stöff í gangi. Gott veður, skemmtilegt fólk, 5 stjörnu hótel.... Fokk já.

Fórum í skoðunarferð til Toledo á sunnudeginum. Skemmtilegt að hafa komið þangað. Á einum veitingastaðnum var matseðill á ensku, eða tilraun til þess að hafa hann á ensku. Ég hélt maður sæi bara svona þýðingar í asíu, en greinilega ekki. Á matseðlinum mátti sjá rétti eins og "Mussels in Something" og "Squid in his own ink". Báðir mjög girnilegir og framandi. Greyin hafa bara slegið þessu inní babelfish og fengið þessar vondu útkomur.

Af japönskunni er það að frétta að hún gengur. Mid term exams í gangi núna í þessari viku og næstu. Ekkert upplestrarfrí hjá okkur eins og hjá ekki-tungumála kúrsunum. Þessi próf eru bara svona inn á milli.
Ég sé alveg hrikalega eftir því að hafa ekki byrjað á þessu fyrr. Hefði maður ekki verið svona tregur og byrjað á þessu fyrir 4 árum síðan, þá væri líf mitt öðruvísi í dag. Veit ekki hvort það sé slæmur eða góður hlutur en það væri allavega ekkert CCP inní myndinni og það myndi teljast slæmt.

Jæja, þá er ég fallinn í þá gryfju að skrifa í dagbókarformi. Fokkitt, ég er alveg hættur að fá einhverjar sniðugar hugmyndir að bloggi hvort eð er.

:: G-Sus 15:50 [+] ::
...
:: miðvikudagur, október 11, 2006 ::
Holl Húsráð #003

Þegar haldið er til útlanda og þá sérstaklega heitari landa heldur en Íslands, þá má ekki gleyma að minna fólk á kuldann á Íslandi. Í Madríd, til dæmis, er spáð heiðskíru veðri og 20 stiga hita næstu dagana. Bara svona láta ykkur vita.

Sayonara bitches! muahahaha

:: G-Sus 22:07 [+] ::
...
:: mánudagur, október 09, 2006 ::
Holl Húsráð #002

Á morgnana, sérstaklega, er hentugt fyrir karlmann að pissa sitjandi.

:: G-Sus 14:42 [+] ::
...
:: fimmtudagur, október 05, 2006 ::
Holl Húsráð #001

Ekki nota puttana til að strá svörtum pipar yfir mat ef þú ert að fara að bora í nefið fljótlega á eftir.

:: G-Sus 23:03 [+] ::
...
:: mánudagur, október 02, 2006 ::
Djaaa...

Kominn heim frá London. Fín ferð. Svo eru 10 dagar í Madrid og ég verð að segja eins og er að þessar komandi flugferðir heilla mig ekki neitt. Bæði hef ég þróað með mér flughræðslu nú á seinni árum, sem er samt ekki tengd neinum hryðjuverkaótta, og svo er líka alveg fokk leiðinlegt í flugvélum. Vel gert hjá mér þar samt að bæta við einni hræðslunni í safnið.
Eitthvað hafði ég ýmsar hugmyndir um Breta sem ég komst að að eru ekki réttar. Held ég hafi fengið þessar hugmyndir í sömu gryfju og ég fékk ranghugmyndirnar mínar um Japani. Ég hélt að flestir Bretar væru hvítir og ljótir. Úti sá ég ekki mikið af ljótu fólki (nema bara í spegli lol tbh kek) og svo voru nú eiginlega hvítir í minnihluta.

Í næsta bloggi ætla ég að leiðrétta ranghugmyndir ykkar um Japani. Ég sá ykkur öll ofan í þessari gryfju með mér og nú skal gerð bót þar á.

Vissuð þið að utanríkisráðherra Suður Kóreu heitir Banki Tungl? Hann heitir víst Ban Ki Moon en Banki Tungl er meira töff. Vissuð þið að eina orðið sem rímar við tungl er sungl?

Farinn að horfa á Dave Chapelle standup diskinn minn. Hann er fyndinn. Skemmtilegra að horfa á fyndinn mann heldur en að mongólítast og skrifa blogg.

:: G-Sus 23:41 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?