eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: laugardagur, desember 31, 2005 ::

Ég er búinn að sjá það í blöðum undanfarið að fyrir að eignast fyrsta barn ársins 2006 þá verða veitt einhver verðlaun.
Ég var þessvegna að spá... Er einhver til í að eignast barn með mér rétt eftir miðnætti?

Svo var ég líka að spá í öðru. Ég sé á teljaranum mínum að sama IP addressan heimsækir síðuna mína svona í minnsta lagi 10 sinnum á dag. Er það ekki fullmikið? Er ekki kominn tími á að viðkomandi slaki örlítið á? Ég er ekkert að uppfæra síðuna mína oft á dag. Meira svona á u.þ.b. 2-3 daga fresti. Þetta er svei mér þá farið að fara soldið í taugarnar á mér.

Kung Fu myndir eru kúl. Tarantino er kúl. The RZA er kúl.

Gleðilegt fokking ár og takk fyrir það gamla.
Stay black, bitches.
PÍÍÍÍS!!

:: G-Sus 15:35 [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 29, 2005 ::

Ánægjulegt að vakna í morgun, lesa Moggann og sjá að Pharcyde eru á leið hingað til lands og halda tónleika á Gauk á Stöng 25. febrúar. Það sem hefði gert þetta enn ánægjulegra væri ef Fatlip (réttnefndur) og Slimkid Tre væru enn í hópnum. Það voru mínir "uppáhalds" í grúppunni og þeir eru ekki lengur með sem er frekar slæmt. Jæja, sjáum hvað setur, sjáum hvað Imani og Bootie Brown geta kokkað upp.

Annað ánægjulegt. Ánægjunni ætlar greinilega aldrei að linna. Ég fer og horfi á 3 kung fu myndir annað kvöld og aðra nótt. Fékk miðann hjá brósa, sem áttaði sig á því að hann myndi ekki nenna að sitja samfleitt í 6-7 tíma. Hlakka til þess. Maður heilsar náttulega upp á Tarantino og svo spurning hvort maður fái RZA augum borið líka, manninum sem ég get kennt um að ég hlusta á hip hop í dag, þó svo ég hlusti lítið á hans pródúseringar nú á dögum.

Verið nú góð börn og tjekkið á lögum með Pharcyde, eins og lögunum:
Passing me by
Otha Fish
Running
On the DL
Drop

Skellið ykkur svo á þessa tónleika með mér í febrúar. Þó svo að tveir mestu 'karakterarnir' séu ekki lengur með þá er vonandi að þeir taki gamla stöffið líka, stöffið sem þeir eru frægir fyrir.

:: G-Sus 18:06 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 27, 2005 ::

:: G-Sus 12:19 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 25, 2005 ::
Hvað erum við að segja þegar við segjum að eitthvað sé "fokdýrt"? Hvaðan kemur þetta fok inní dæmið?
Erum við ekki bara að segja að draslið sé fokk dýrt, en búin að fella það svona skemmtilega inní málið? Fokk í dulargervi.

Jólasagan í ár er af mér, jólabarninu honum G-sus. Hún hefst á því að ég er að keyra niðrí bæ á þorláksmessu og þá hringir mamma. Hún hljómar eitthvað áhyggjufull og ég ímynda mér strax hið versta. Nei, nei. sem betur fer ekkert slæmt þannig. Ég spurði hvað væri að og hún svaraði orðrétt:
"Tölvan þín sprakk".
Þarna varð ég auðvitað mjög hress með gang mála, ég meina, hver myndi ekki vera það? Ákvað að spyrja aðeins nánar útí hvernig það hafi borið að að tölvan mín hafi sprungið. Mamma sagði að það hefði heyrst hvellur og svo hafi stigið hvítur reykur uppúr tölvunni. Ég veit ekki hvert ég ætlaði. Jú, ég ætlaði að fara að labba á Laugaveginum og svo á næturvakt, en annað en það, þá vissi ég ekki hvert ég ætlaði. Þessa sögu bar ég svo á milli manna á Laugaveginum og allir hlógu að óförum mínum. Ég hló með, en í laumi skrifaði ég nöfn þeirra inní svörtu bókina mína yfir fólk sem mun deyja af "slysförum" fyrir þrítugt. Leiðinlegast þótti mér að hafa mögulega misst alla tónlistina mína sem ég hef stolið yfir árin. Ég er búinn að hafa mikið fyrir að stela þessari tónlist og mér fannst vont að missa allt erfiðið í svona fáránlegu atviki. Á þessu tímabili vissi ég ekkert hvað tjónið var mikið því ég komst ekkert ekkert heim fyrr en eftir næturvaktina. Svo leið nóttin og ég fór að hugsa um framtíðina. Núna þyrfti ég að kaupa mér nýja tölvu og þetta var eins góður tími og hver annar til þess. Vonandi væri samt hægt að bjarga harða diskinum.
Jæja, ég er kominn heim og ákveð að það sé bara eins gott að fara að sofa í stað þess að svekkja mig á tölvunni. Get alveg eins beðið með það þangað til ég vakna.
G-sus vaknar svo ferskur og fer fram í eldhús. Þar hittir hann mömmu sína sem hafði eftirfarandi að segja...:
"Þú veist að ég var bara að tala um skjáinn?".
HJÚKK-FOKKING-ITT!! Greinlegt að mamma skilgreinir tölvu á aðeins öðruvísi hátt en ég. Ég get ekki annað en verið feginn.
End of story, honkadory.

Svo er hérna spurning sem eflaust margir velta fyrir sér núna yfir jólatímann. Þið læknanemar getið örugglega svarað þessu.
Er hægt að hafa massað typpi? Eru einhverjir vöðvar þarna eða er þetta bara einhver haugur af vefjum og drizzezli?

Vonandi eigið þið gleðileg jól.

:: G-Sus 07:15 [+] ::
...
:: miðvikudagur, desember 21, 2005 ::
Mér þykir það alveg afskaplega miður að missa af Tarantino bíósýningunni. Heimskan í mér stoppaði mig í að fara. Ég náði miðum fyrir systur mína og bróður en klúðraði þessu svo fyrir sjálfan mig. Það sem gerir þetta svona sérstaklega slæmt er að núna berast fregnir þess að hann gæti verið með kung fu þema. Hversu slæmt er að missa af þessu???

Svo langar mig að koma einu á framfæri til dyggra lesenda minna, allir 5 verða að taka vel eftir núna.
Ekki segja "Hvað segirðu?", þegar þið heilsið fólki. Ég stend mig að þessu sjálfur og ég er að reyna að hætta. Þetta setning er svo mikið drasl. Örugglega ofnotaðasta setning á Íslandi. Þetta er líka svo yfirborðskennt. Maður býst ekki við neinu öðru svari heldur en "Allt það fína, en þú?". En ef aðilinn hefur það barasta alls ekkert fínt, hvað þá? Mér er svakalega illa við að ljúga að fólki og ég snappaði eiginlega um daginn á einn vinnufélaga minn sem spyr að þessu ALLTAF þegar maður kemur til vinnu. Ég sagði barasta ekkert fínt og fann enga þörf til að þykjast vera í góðu skapi. Mér tókst að skapa helvíti áhugavert andrúmsloft og það var eins og ég hefði kýlt hann í magann.

Spáið svo í eftirfarandi:
A: "Hvað segirðu?"
B: "Ekkert svo gott. Ég var að greinast með eistnakrabbamein."

Huggulegt að lenda í einhverju álíka. Líkurnar á að þetta gerist eru frekar litlar þar sem við erum alltaf að reyna að vera svo svakalega kurteis í stað þess að segja bara nákvæmlega það sem okkur finnst.

"Hvað er að frétta?" er strax orðið skárra þar sem maður er að spyrja frétta svona almennt, ekki endilega hvað sé að frétta af viðkomandi aðila. Vonandi náið þið punktinum sem ég var að reyna að koma á framfæri, ég er búinn að missa mig hérna í lokin.

Ég vildi að það væri alltaf sumar.

:: G-Sus 19:26 [+] ::
...
:: þriðjudagur, desember 20, 2005 ::
Vitiði hvað.. Ég held ég sé með að minnsta kosti 3 persónuleika. Svona fljótlega talið þá eru þeir allavega 3.
Það er ekki töff.

:: G-Sus 06:08 [+] ::
...
:: laugardagur, desember 17, 2005 ::
Var að horfa á kvikmynd sem heitir 'The Wood' í sjónvarpinu. Kom á óvart hvað hún var áhorfanleg. Myndin er um gaura frá Inglewood í Kaliforníu. Aðalástæða þess að ég er að blogga þetta er að mér þótti þýðingin á 'Inglewood' alveg mögnuð.
Inglewood var semsagt þýtt sem Ingelholt. Reynið að slá það út. Ingle breytt yfir í Ingel og Wood yfir í holt.

Góðan daginn! Ég á þá heima í Widehood eftir allt saman, eins og ég hef svo oft sagt áður!!
Til hamingju ég!

:: G-Sus 00:01 [+] ::
...
:: miðvikudagur, desember 14, 2005 ::
Já, kallinn bara deyddur... Sei, sei, sei. Slakt

En yfir í allt annað...
Curse you Gwen Stefani!!

Nú sá ég í dag alveg óvart myndband með Gwen Stefani. Ef eitthvað er verra en myndbandið, þá er það lagið sem hún var að gaula yfir myndbandinu. Hvað á það eiginlega að þýða að nota samplið úr "Between the Sheets" með Isley Brothers!? Veit hún ekki að hún getur ekki toppað "Big Poppa" með Notorious BIG? Mér finnst að ef bútur úr lagi hefur verið notaður eins vel og í Big Poppa, þá eigi enginn að geta notað hann aftur. Þessi vibbi með Gwen Stefani er algjör nauðgun því fyrir menn eins og mig táknar þessi lagstúfur ekkert nema lagið með Biggie.
Svo annað, úr því ég er að tala um myndbönd, af hverju sér maður ekki meira af breiki? Tók eftir því að í þessu slaka myndbandi þá var gerð tilraun til að breika (í samtals svona 3 sekúndur), en eitthvað skila 'múvin' sér seint til áhorfenda ef það er sýnd sekúnda af breiki og svo skipt yfir á pirrandi smettið á Gwen Stefani. Þarf að minna mann endalaust á það á hvern maður er að hlusta? Ætli það ekki...
Þess má geta að breik er alltaf kúl en því miður var ekki sýnt nógu mikið af því til að bæta upp fyrir þetta vonda myndband.

Það sem er svo VERST af þessu öllu er að ég mun örugglega fá þetta lag á heilann bara út af samplinu. Djöfuls drasl.

:: G-Sus 23:47 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 12, 2005 ::
Já, þetta er svakalega undarlegur heimur.
Það á að taka Stanley "Tookie" Williams af lífi í fyrramálið. Það er annar gauranna sem stofnaði Crips glæpagengið í byrjun áttunda áratugarins. Nema hvað, þessi gaur er búinn að sitja inní í einhver 25 ár, neitar enn ákærum sem á hann voru bornar, biður um náðun en Arnold Schwarzenegger gefur hana ekki. Það er fáránlegt að skrifa þessi orð. Arnold fokking Schwarzenegger hefur vald til að drepa fólk. Svei mér vel gert hjá þér, herra Tortímandi.

Mér er eiginlega alveg sama hvort maðurinn sé sekur af því að hafa myrt fjórar manneskjur. Það er alltaf sá möguleiki fyrir hendi að hann hafi ekki gert það og það er nóg fyrir mig. Það sem ég skil ekki er mögulegur ávinningur þess að deyða þessa lífveru.

Köllun "Tookie" í lífinu hefur undanfarin ár verið að reyna að koma krökkum í skilning um hættur þess sem fylgja því að vera meðlimur glæpagengis. Til þess að koma þessum skilaboðum áleiðis hefur hann skrifað nokkrar barnabækur og eru þær víst notaðar við kennslu í grunnskólum Bandaríkjanna. Hann hefur einnig skrifað afsökunarbeiðni þar sem hann biðst afsökunar á því að hafa stofnað Crips og hana má lesa hér. Og þennan mann á að drepa? Af hverju ekki að leyfa honum að dúsa inni og deyja svo einhverntíma í framtíðinni af náttúrulegum orsökum innan veggja fangelsisins? Leyfa honum að hjálpa öðrum meðan hann getur?

Það er víst lítinn botn hægt að fá í þetta með svona pælingum en einhvernveginn verður maður að fá útrás fyrir skammsýni og forheimsku í öðrum.
Mér skilst að það sé enn möguleiki á náðun. Held að það sé endurskoðað klukkutíma fyrir aftöku eða eitthvað þannig.
Ég allavega vona það besta.

:: G-Sus 23:50 [+] ::
...
:: sunnudagur, desember 11, 2005 ::
Hafði heyrt um fuglaskoðara? Það er frekar pervertískt. En hafiði heyrt um fuglateljara? Það er ekki pervertískt, það er geðveiki. Mér finnst kominn tími til að einhver segi þessu blessaða fólki að þessi kvikindi geta flogið og fært sig úr stað með miklum ágætum og líkurnar á því að tvítelja sama fuglinn eru því nokkrar. Einnig má benda á að það er ekki möguleiki að þetta fólk sé að telja alla fuglana af einhverri tegund þar sem landið er, tjah.. fokking stórt?
Já, það undrar mig alltaf hvað fólk getur haft áhugamál svona gerólík mínum eigin. Þetta er uppeldið. Þetta fólk er náttulega ekkert annað en illa upp alið.

Ekki lag dagsins, né aðra daga: Öll lögin spiluð á Sirkus sjónvarpsstöðinni.

Cillit BANG!

:: G-Sus 00:36 [+] ::
...
:: föstudagur, desember 09, 2005 ::
Ég er núna búinn að fara í 5-6 skipti til sjúkraþjálfara og finnst það ekki töff. Fyrir utan það að vera yngsti maðurinn á stofunni þá kostar þetta líka alveg en formue! Á meðan unga fólkið fer út á lífið og skemmtir sér þá er þetta aðalstaðurinn sem gamla fólkið hangir á. Gráhærðir karlar og gráhærðar kerlingar í massavís spandera öllum ellilífeyrinum í sjúkraþjálfun og hafa gaman af. Ég hlæ stundum og bendi á fólkið sem er kannski að gera æfingar með 0.5 kílóa lóð. Það verður ekki helmassað með þannig slefi, ónei.
Ef það er eitthvað meira ókúl en að fara til sjúkraþjálfara, þá er það sú staðreynd að sjúkraþjálfarinn er karlmaður og hann þarf að pota í mann meðan maður er á nærbuxunum. Það skal tekið fram að sá fyrsti til að koma með kynlífstengt komment fær hnífsstungu í augað, algjörlega sér að kostnaðarlausu.

Svo vil ég bara minna fólk á að eggjarauður eru í raun gular.

Cillit BANG!

:: G-Sus 00:21 [+] ::
...
:: mánudagur, desember 05, 2005 ::
Í nótt kunni ég á skíði. Ég skíðaði niður Kambana, sem höfðu breyst í skíðabrekku. Ég skíðaði með gömlum félaga mínum úr Ölduseli, ég veit ekki af hverju, ég finn enga ástæðu fyrir að hann var þarna. Ég var nú bara nokkuð góður, miðað við það að ég kunni ekki á skíði. Hann fór mun hraðar en ég og geystist fram af í einni beygjunni. Það var allt í lagi samt því hann átti 'aukalíf'. Væri það nú ekki lúxus.
Góð tilfinning að skíða í þykjustunni.

Svo einn ósmekklegur brandari hér. (Pfft, ekki eins og þið séuð eitthvað smekkfólk..)
Brandari byrjar
Fer vel saman að vera karlmaður með eftirnafnið Dickinson og misnota svo son þinn.
Brandari endar

Cillit BANG

:: G-Sus 21:06 [+] ::
...
:: föstudagur, desember 02, 2005 ::
Jæja, bara mín tilfinning þá..

En að öðru. Ég er ekki mikið fyrir að láta svona internet kannanir á bloggið mitt eða eitthvað í þá áttina. Þetta er nú samt meira fyrir ykkur svona persónulega svo það ætti ekki að skaða neinn.

Þessi vél er frekar sniðug og kom með frekar áhugaverðar niðurstöður í mínu tilviki. Sjáið hvort það sé eins hjá ykkur.
The CrushCalculator

:: G-Sus 12:36 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?