|
|
:: sunnudagur, ágúst 31, 2003 ::
Dagurinn í gær var nokkuð skemmtilegur verð ég að segja. Veit þó fyrir víst að ekki allir eru á sama máli um það..
Byrjaði í góðum fíling á morgunvakt í vinnunni og var þar til fjögur. Klukkan tvö þá datt internetsambandið til Evrópu niður og við vorum basically screwed. Frá tvö til fjögur gátum við ekki mikið gert og kynntist ég þá þessu skemmtilega vefsvæði: www.redhotpawn.com
Alveg hrikalega fyndið nafn á þessu :) Skákmenn með húmor? Hélt það væri ekki til..
Um sjöleytið fór ég svo til Brynjars og í pottinn. Það var alveg jevla fint. Uppúr tíu fórum svo ég og Daði og náðum í Arnþór á Champions og svo fórum við á Þjóðleikhúskjallarann. Þegar við komum þá voru alveg ótrúlega fáir en það bættist við hægt og sígandi þar til það varð ekki þverfótað fyrir MR-ingum. Ég, Arnþór og Daði fengum að raða saman playlista í tölvu sem var þarna á bak við. Við vorum með örugglega svona 50+ lög á playlistanum en eftir svona 10 lög þá komu sauðirnir Gullfoss og Geysir (Smullfoss og Feysir PUFF) og tóku yfir. Glataðir gaurar. En það gerðist margt skemmtilegt þarna á þessum stað. Maður hitti fólk sem maður hefur ekki hitt lengi og allskonar uppákomur og stöff. Ég verð að segja að ég hafði alveg sérstaklega gaman að einu atviki inná klósetti. Það var þannig að ég og Viðar Hundakex vorum á sama tíma að þvo á okkur hendurnar. Við hliðina á okkur stóð Svanur (spurningaliðs Svanur, ekki fuglinn) og uppað honum gekk einhver stór gaur (allavega stærri en ég). Ég fylgdist aðeins með þeim og heyrði eftirfarandi
Gaur: blessaður Svanur. Þú veist ekki hver ég er er það?
Svanur: (smástund að kveikja) ...Eyjólfur???
Eyjólfur: Já!
Svo gekk ég upp að svona handþurrkutæki sem var við hliðina á Svan. Þá tók ég eftir því að gaurinn Eyjólfur horfði eitthvað á mig og Viðar. Hann fór svo eitthvað að spyrja Viðar uppúr þurru hvort hann vissi hvað hann héti. Viðar neitaði því. Ég beið spenntur eins og feitur krakki í sælgætisbúð því ég vissi að hann myndi spyrja mig líka. Ég sagði: „Já... Eyjólfur, ekki satt?“ Það fékk svolítið á gaurinn og hann spurði hvernig ég vissi það. Ég útskýrði það og þá fór gaurinn rólega úr jakkanum og lagði hann á vaskinn. Svo gekk hann að mér og Viðari og kynnti sig á sérstakan hátt. Hann rétti fram höndina og í staðinn fyrir að heilsast með svona smá hristingi þá tók hann með báðum höndum um hendurnar á okkur og greinilega kreisti eins fast og hann gat. Algjör fæðingarhálfviti. Tek það fram að hann gerði alltaf það sama við mig og Viðar. Hann sló svo með lófanum í hliðina á hausinn á okkur. Svona einmitt sem maður gerir þegar maður hittir fólk í fyrsta sinn, right... Það er geðveikt ljótt að segja það en aftur beið ég spenntur eins og feitur krakki en nú eins og feitur krakki sem er á leiðinni í fitusog (svona aðeins öðruvísi spenna). Eyjó kallinn stillti sér upp óþægilega nálægt mér og fór að spyrja hvað ég gerði. Ég svaraði því en passaði mig á því að horfa alltaf beint í augun á gaurnum á meðan ég talaði við hann og rétti líka aðeins betur úr bakinu. Svo var hann búinn að fá svar við nokkrum spurningum og var byrjaður að mismæla sig alveg rosalega. Þá sagði hann eitthvað og fór svo í jakkann sinn aftur. Hversu ömurlega glataður getur einn maður verið? Ætlaði greinilega að leita sér að vandræðum en fann ömmu sína í staðinn. Gamla sálfræðin klikkar ekki. Hvað kennir þetta ykkur krakkar? Jú, EKKI MESSA VIÐ FÓLK MEÐ KAMB! Nei bara djók.
Já frekar leiðinleg saga þar sem ekkert gerðist og get ég glatt ykkur með því að hún er búinn núna.
Tvö önnur atriði standa uppúr. Fyrra: þegar ég, Arnþór, Eggert og Atli stóðum og vorum eitthvað að tala saman og Atli var eitthvað að fíla lagið sem var í gangi. Því miður man ég ekki hvaða lag var en Atli sparkaði löppinni á sér allt í einu upp þegar það kom svona hápunktur í laginu. Snilli snillingur! Ég minntist eitthvað á þetta við hann og hann bað mig um að blogga um þetta. Atli. this one´s for you :)
Seinna: Ég, Arnþór og Balur vorum að tala saman hjá barnum á efri hæðinni og þá gekk þessi þvílíki hnakkahópur framhjá okkur. Alltíeinu fórum við 3 að syngja eða kannski meira svona grín rappa með aðeins tveimur orðum. Orðin voru hnakki og já!. Lagið undir var "Wild Thing" og tókst þetta alveg einstaklega vel upp hjá okkur. Kannski verður þetta leikið eftir síðar. Við vorum jafvel að hugsa um að gefa þetta út. Hafði heyrt í ógeðslega gaurnum Lovegúru? Þetta var svona 1000 sinnum betra en sá viðbjóður.
Svo var haldið heim seint og um síðir og biðum við eftir Maríuhrút svo hún gæti verið samferða okkur heim. Maður verður að passa upp á stelpuna meðan Steini er í Danmörku. Svo er hún byrjuð í 5. bekk í MR. Nokkuð gott afrek hjá henni að koma úr MS og skella sér svo í MR. Líka nokkuð heppin þar sem hún er hálfu ári á undan í íslensku og svo þarf hún ekki að mæta í eðlisfræði því hún er búin með hana. MS bara harður?
Fram-FH í kvöld. Auðvitað mætir maður. Svo vinna í nótt.
Jæja þetta er lengsta blogg held ég bara sem ég hef skrifað.
:: G-Sus 15:52 [+] ::
...
:: föstudagur, ágúst 29, 2003 ::
Ég fattaði eitt geðveikt sniðugt til að downloada frá DC í gær. Fóstbræður men!
Ég var að horfa á annan þáttinn í fyrstu seríunni og þar eru 2 klassísk atriði fremst í flokki.
Mér finnst þessi atriði svo ógeeeðslega fyndin að ég verð að koma með dæmi þar sem örugglega allir eru búnir að steingleyma þessu.
Í fyrra atriðinu er Jón Gnarr aulalegur gaur og er í atvinnuviðtali hjá Benedikt Erlingssyni, eða þannig lítur það allavega út.
BE: "já við erum að leita að manni í þetta starf blehblehbleh þannig ef þú hefur einhverjar spurningar þá endilega hikaðu ekki við að spyrja"
JG: "Já... ja, ég var svona að velta... sko.... ehh, eða.... útlendingar....jah... tungumál?"
"Já. Ehh... Þú átt þá við.. hvaða tungumál þeir tala?"
"Eða.. Nei... sko, gestir... eehh eða þú sagðir sko... eða erlendir gestir"
"Jú, þetta eru aðallega erlendir gestir"
"Já, nei.. nú ertu nú eitthvað... að svona mis..."
Þetta atriði er í svona 5 mínútur og Jón Gnarr segir ekki neitt af viti allan tímann. Atriðið er náttulega klassík fyrir þær sakir að hann segir „núna ertu eitthvað að mis..“.
Svo hitt atriðið, Jón Gnarr og Hilmir Snær fara á kostum:
„Þjónn!“
„Ertu að tala við mig?“
„Já“
„Já, ég heiti ekki Brjánn“
„Ég.. sagði þjónn.“
„Já, ég er þjónn. Hvernig bragðast svo maturinn?“
„Hann er mjög bragðgóður“
„Ha?! Viðjóður? Af hverju ertu þá að borða hann?“
„Nei! Bragðgóður.“
„Margfróður? Ekkert sérstaklega. Af hverju spyrðu?“
„Ég var nú bara að hrósa matnum“
„Háðsglósur? Ég heyri engan hér með háðsglósur nema þig. Þú ert greinilega eitthvað óánægður með staðinn.“
Og svo heldur þetta áfram þangað til þeir eru farnir að misskilja hvorn annan.
Hefðu kannski átt að fá Arnþór með í þetta atriði.... He´s a natural!
Svo tókst mér að krækja mér í frí á sunnudaginn sem merkir aðeins eitt... Ríjúníon úr MR á Þjóðleikhúskjallaranum á Laugardag. Hmm...
:: G-Sus 16:10 [+] ::
...
:: fimmtudagur, ágúst 28, 2003 ::
Alveg hreint ótrúlegt. Ég ætla að fara út á trjágrein hér...
Í nótt þá tókum við okkur smá pásu og fórum e-ð að kjafta saman í vinnunni. Einn gaurinn þarna er víst með BA úr málvísindadeild Háskóla Íslands en ég hafði ekki hugmynd um að hann hefði þá gráðu, komst bara að því í nótt. Það var eins og einhver hefði slegið mig utanundir. Ég áttaði mig á því að málvísindi hljómar alveg virkilega skemmtilega og eins uppveðraður og ég er yfir þessari hugljómun minni núna þá er aldrei að vita nema maður nemi þetta á næsta ári. Hver veit? Allavega ekki ég, en það eru samt líkur á þessu og það er nóg í bili.
Áðan fékk ég símtal frá yfirþjálfara Fjölnis í TKD. Ótrúlegt en satt þá getur verið að þið hafið séð þennan gaur. Hann var nebbilega í brúðkaupsþættinum JÁÁ! fyrir stuttu síðan, gifti sig á einhverjum bát. Allavega... Þá er að fara í gang einhver auglýsingaherferð or sumphin varðandi TKD á Íslandi og verður notast við þessar 60 sek auglýsingar á Skjá Einum. Ég mun semsagt að öllum líkindum sýna fagurlega mótaða limi mína og taka nokkur spor í auglýsingunni. Það mun samt verða algjört maus þar sem maður er kominn alveg hrikalega úr æfingu ekki búinn að æfa neitt í 3 mánuði eða svo. Ég er nærri því orðinn eins og einhver fótboltagaur í stirðleika. Nei, nú lýg ég. Það er ekki hægt.
Hafið það gott í dag
:: G-Sus 15:47 [+] ::
...
:: miðvikudagur, ágúst 27, 2003 ::
Djöfull er Mars töff. Ekki verið í meiri nánd við okkur í 60000 ár. Það er alveg þokkalegur tími. Enda er búið að vera alveg óhemju töff að sjá næturhiminninn síðustu 2-3 vikur. Það sést alveg greinilega rauðleitur bjarmi af kallinum. Ágætis veður í dag svo kannski verður hann í fíling í kvöld.
Töff shiiii.
Ég er samt alveg gríðarhress þar sem ég vaknaði núna rúmlega fjögur. Já, næturvaktir smæturvaktir... Þannig góða veðrið fór svona nokkurnveginn framhjá mér.
Ég og Daði fórum í gær í Laugardalslaugina. Eða Laugardalspottana réttara sagt. Þar hittum við Tourette bræðurna Bjarna og Braga. Þeir eru kennarar í MR. Ótrúlega fyndið að hlusta á þá tvo tala... og "þegja". En hey, ég er líka fyndinn. Við erum fyndin. Þeir, þær, þau eru fyndin.
Ble
:: G-Sus 17:07 [+] ::
...
:: þriðjudagur, ágúst 26, 2003 ::
Finnið 5 villur

og þá fáiði milljón
:: G-Sus 16:19 [+] ::
...
:: mánudagur, ágúst 25, 2003 ::
Ég ætlaði bara að biðja ykkur um að hoppa upp í fokking rassgatið á ykkur.
Annað var það ekki í bili.
Tussur
:: G-Sus 19:57 [+] ::
...
Í gærkvöldi fór ég og leigði mér spólu. Tók Daredevil. Algjört rusl. Alveg einstaklega léleg mynd. Um það bil allt í myndinni er illa gert. Sérstaklega bardagaatriðin. Ég er ekki að ljúga þegar ég segi að gæti kóreógrafað þetta betur. Það er eitt atriði alveg sérstaklega lélegt og það er þegar Ben Afleck hittir í fyrsta skipti kellinguna með stóru brjóstin (fær ekki einu sinni það ríspekt að ég tjekki á því hvað hún heiti). Það er alveg á topp 5 yfir verstu bardagaatriði í mynd. Já og var ég búinn að minnast á það að myndin er rusl? Hún er það svo sannarlega. Hér má sjá teiknaða mynd sem lýsir þessum hroða alveg ágætlega

Þetta er hann Ben að reyna að segja okkur að hann sé í raun ekki óþokki, heldur sé hann mongó. Ég held við verðum nú að trúa honum eftir að hafa séð myndina...
Burtséð frá því hversu ömurleg myndin er þá er eitt sem missir ekki kúlið. Það er nafnagiftin á ofurhetjunum frá Marvel. Það er, „raunveruleg“ nöfn þeirra.
Spiderman er Peter Parker
Hulk er Bruce Banner
Daredevil er Matt Murdock
Töff þessir stuðlar í nöfnunum þeirra. Eykur svolítið kúlið finnst mér.
Nú hef ég séð eina mynd um hverja þessara ofurhetja og mér finnst þetta einmitt vera röðin á þeim hvað varðar skemmtanagildi: Spiderman, Hulk, Daredevil.
Spiderman er einfaldlega mest kúl.
Eitt svona out of the blue.... Af hverju heitir kúkur hjá kindum lambaspörð? Maður sér kannski svona kúkakúlur og þá segir einhver: „Hey! Lambaspörð!“ en það segir aldrei neinn að þetta sé kindakúkur. Af hverju? Eru það bara lömbin sem sjá um að kúka þá? Er ég kannski að missa mig í pælingunni?
Það minnir mig samt á alveg einstaklega skemmtilega og hárrétta setningu hjá honum KRS-ONE úr laginu A Friend:
„Word, fake people ain´t worth a turd...“
I´ll leave it on that note...
:: G-Sus 13:51 [+] ::
...
:: laugardagur, ágúst 23, 2003 ::
Gærkvöldið var mjög fínt. Byrjaði á því að vera leynigestur í kvöldmatnum hjá Brynjari og át ég helminginn af matnum hans. Svo bættust Daði og Arnþór í hópinn og við fórum í pottinn. Erling og Sigrún komu svo og djojnuðu okkur líka. Það var alveg drullufínt að vera í þessum potti og drekka kókómjólk.... í CM. Það gekk mest erfiðlega að koma okkur svo af stað en við vorum komir til Eggerts rétt fyrir miðnætti.
Hjá Eggerti var margt um manninn og frekar rólegt þegar við komum. Það var greinilega enginn að standa sig í að fikta í tölvunni sem spilaði lögin. Það bættist auðvitað úr því þegar Breiðholtsgengið mætti á svæðið. Stemningin náði hápunkti 1 þegar við fórum í "setjast" leikinn (mig minnir að ég hafi stungið upp á honum...). Alltaf klúðrar einhver einn þessu trikki og í þetta sinnið var það sauðurinn hann Tumi. Allavega var hann neðst í þvögunni á gólfinu. Skamm Tumi. Og þetta sem var að takast svo vel.. Hápunkti 2 var svo náð um 2-leytið. Ég var að tala við Sigrúnu eitthvað massann lengi og svo ákváðum við að setjast niður. Vorum inní eldhúsi sko. Alltíeinu finn ég eins og það keyri bíll á húsið. Svo rétt á eftir er eins og það keyri vörubíll á húsið. Ég og Sigrún fundum bæði fyrir þessu og ég spurði hana hvort þetta hafi ekki verið jarðskjálfti. Hún hélt það og um leið hringdi síminn hjá Martin þar sem þetta var staðfest. Merkilega var að enginn fann þetta annar í partíinu. Ég og Sigrún erum bara svona gríðarlega næm. Hell yeah. Kannski ekki erfitt að finna jarðskjálfta sem lýsir sér eins og trukkur að keyra á hús en hey, enginn annar var að gefa þessu neinn gaum. Mér finnst við töff. Eftir að þetta gerðist sagði ég við Martin að han hefði verið 5,4 á Richter og hefði átt upptök sín hjá Kleifarvatni. Martin veðjaði á 4,5 einhversstaðar (man ekki...) og Tumi (sem er alveg útúr kortinu í þessari sögu) giskaði á sexkommaeitthvað hjá Hengilssvæðinu. Ekki þarf að spyrja að því að ég er mannlegur jarðskjálftamælir. Stóri sem við fundum var rétt um 5 á Richter og átti upptök sín á Krýsuvíkusvæðinu. Kleifarvatn er á Krýsuvíkursvæðinu. Takk fyrir, takk fyrir. Þið megið snerta mig seinna.
Smá sönnun:
„Snarpur jarðskjálfti í Krísuvík í nótt
Jarðskjálfti, 5 á Richter, varð við Krísuvík, suður af Kleifarvatni í nótt. Hann fannst allt frá Snæfellsnesi austur í Flóa. Ekki mun hafa orðið teljandi tjón þótt allt hafi leikið á reiðiskjálfi víða Suðvestanlands....“
(Tekið af ruv.is og hér er öll fréttin. Þar má sjá hversu ógeeeðslega nálægt Kleifarvatni þetta er)
Eftir þessi læti þá var spurning hvort maður ætti að fara í bæinn eða heim. Ég hallaðist á heim. Þreytan sko, þreytan. Svo druslaðist maður niðrí bæ eins og einhver hóra. Sigrún var svo góð að keyra okkur. Hittum þar Eika og Brynjar og kíktum á Vegamót. Ekki má gleyma því að Steini hringdi í mig frá Danmörku á þessum tímapunkti. Hann og María voru sjálf á einhverjum skemmtistað þar sem þau þurftu að borga 2000 kell inn og þá var kampavín og áfengi innifalið. Nokkuð gott. Gaman að heyra í Steina og vonandi gengur honum glimrandi í skólanum þegar þar að kemur. You go girl! *snapsnapsnap*
Bærinn var alltílagi fyrir utan þetta trend hjá Vegamóta mönnum að taka myndir af ÖLLUM gestum staðarins. Við ekki undanskildir. Eiki fáviti greip í mig og hélt mér eitthvað asnalega þegar gaurinn tók mynd svo þetta verður eitthvað fokkings asnaleg mynd. Kannski ekki við öðru að búast. Bíð spenntur eftir helgi að sjá þetta ef þetta birtist þ.e.a.s. Svo bíður maður bara líka "spenntur" eftir myndunum sem Gerti tók.
Ég þakka svo Atla fyrir að vera Atli. You know whut I mean boiiiii!
Eitt að lokum í sambandi við þessa jarðskjálfta... Vitna í ruv.is aftur:
"Hann segir að ekki ósvipaður skjálfti hafi orðið við Krýsuvík 1973 og þá hafi enn öflugri eftirskjálfti komið um einum og hálfum sólarhring síðar. Ragnar segir ekkert hafa komið fram sem bendi til þess að eldgos sé að hefjast."
Þannig við megum alveg búst við meiri jarðskjálftum. Jíbbí!!! Loksins eitthvað annað að gerast en þetta vanalega hversdagslíf sem verður alveg einstaklega hversdagslegt eftir 22 ár. Vonandi springur allt draslið og eldgos og læti. Það verður gaman. Sérstaklega gaman að því hvernig við Breiðholtsbúar hér uppá hæðinni myndum hlæja að öllum þar sem við erum einhverjum 100 m yfir sjávarmáli. Allt fer á kaf nema við! MUAHAHAHAHAHAHA!
Kannski einhvern daginn...
:: G-Sus 15:12 [+] ::
...
:: fimmtudagur, ágúst 21, 2003 ::
Já maður er bara á leið á sinn fyrsta landsleik 6. september. Magnað. Nú er orðið uppselt á leikinn svo stemningin verður jafnvel gríðarleg á kantinum. Býst ekki við neinu öðru en að Ísland vinni þar sem ég vil ekki eyða pening í það að sjá Ísland tapa. Ég er að hugsa um að fara að hringja í Geira og segja honum hvernig uppstillingin á að vera.
Nú fer skólinn að byrja hjá ykkur krakkar mínir og endilega segið mér í kommentum hvenær þið byrjið. Ég er forvitinn að vita.
Á morgun er svo skrall hjá Eggerti. Eflaust eitthvað rugl og má jafnvel búast við að hnakkasumri verði slitið með því að BLASTA J.T. og Senorita mun heyrast no diggety, no doubt.
Annars tekur nú vinna við á þessum blíðviðrisdegi. Bless á meðan.
:: G-Sus 14:58 [+] ::
...
:: miðvikudagur, ágúst 20, 2003 ::

Þvílíkar ofsóknir! Nú er aftur byrjað að veiða Hrefnu! Hvers á hún eiginlega að gjalda?
:: G-Sus 14:28 [+] ::
...
:: þriðjudagur, ágúst 19, 2003 ::
Fyrir ykkur sem voruð að stilla inn tölvuskjáina ykkar þá eruð þið að lesa blogg Svartasauðs.
Já, góðir hálsar. Merkilegir hlutir búnir að gerast! Nei, ég er bara að ljúga. Ekkert búið að gerast.
Þið voruð alveg geðveikt spennt og hélduð að eitthvað merkilegt hefði gerst en þá varpaði ég fram þessari sprengju um að ég hefði verið að ljúga.
Við fengum mömmu-pabba(afa) í mat í kvöld. Hann bragðaðist ágætlega kallinn. Neeeeeeiiiii. Hann sagði að ég væri eins og indíáni. Mér finnst það fínt. Hver vill ekki vera eins og indíáni. Indíánar rappa (rappa í stað rokka? fattiði? ohh... skiptir ekki máli).
Ég vildi að það hefði verið ég sem hefði fundið þetta gufuskip sem sökk 1860ogeitthvað. Með einhvern massa gullfarm og stöff. Þá myndi ég kaupa mér bíl. Og hús. Og konu og barn. Og pizzu með 10 áleggstegundum. Já, 10 ÁLEGGSTEGUNDUM! Maður þarf að fæða konu og barn sjáiði til.
Samt örugglega geeeeikt erfitt að vera gaur sem fæðir aðrar manneskjur. Maður skyldi halda að karlar gætu ekki fætt. Seisei, allt er nú til....
Funky fresh as Pharcyde ya´ll.
:: G-Sus 19:24 [+] ::
...
:: mánudagur, ágúst 18, 2003 ::
AAAAAAAHAHAHAHAHA!!!
Kamburinn er orðinn meiri kambur!
In yo face, hair!
:: G-Sus 12:41 [+] ::
...
:: sunnudagur, ágúst 17, 2003 ::
Helgi leiðinda er að verða búin og ber að fagna því. Búinn að vera heima að chilla veikur og gríðarhress alveg. Fór samt út áðan og leigði Red Dragon. Var aldrei búinn að sjá hana svo ég lét loksins verða af því að leigja hana. Alveg mögnuð mynd. Ralph Fiennes er töff gaur. Og svo sést í rassinn á honum og tippalinginn bara svona upp úr þurru. Það var fyndið. Ég hló. Hvað er með það að heita Ralph Fiennes en heita samt Ray Fines? Ég man eftir því fyrir nokkrum árum þegar ég sagði alltaf "Ralf Fí-ennes" og þá hló systir mín að mér og sló mig utanundir. En allavega þá er ég kominn út fyrir efnið hér. Myndin er semsagt mjög sniðug og alltaf gaman að sjá fellow geðklofa meika það í bíómyndirnar. Ótrúlega skemmtileg tilviljun að tattúið á bakinu á skitzónum var hvorki meira né minna en hrútatattú... Tilviljun? Ég veit annars ekkert um það þar sem ég er eini sauðurinn í hópnum.
Svo í gærkvöldi horfði ég á Shallow Hal í ekki svo góðum félagsskap. Arnþór kom hingað til að horfa á Simpsons og Punk´d en svo horfði hann líka á Shallow Hal sem byrjaði stuttu eftir videosession-ið. Talking about overstaying your welcome! Nei Arnþór, ég er bara að djóka. Verð líka að taka það fram því annars myndirðu misskilja og hver vill það. Margt um merkileg mynd, Shallow Hal.. Hversu frábært væri það ef standardinn væri 200 kílóa kvenmaður? Lífið/frelsið væri yndislegt, ég myndi gera það sem ég vildi. Mikið myndi maður annars vera leiður á því til lengdar, að vera til? Nei nei hér. Ekki má bresta í söng þó maður sé einn heima. Já grunnhyggni Hal kemur sko með nokkra góða punkta. Það skemmir svo alls ekki fyrir að alveg rosalega falleg leikkona leikur í myndinni. Hún heitir Susan Ward og hér er mynd af henni:
Hún er dökkhærð. Hún er falleg. Gaman gaman. Hver er sammála mér? Rétt upp hönd?
Svo vill meirihluti að ég haldi ró minni í könnuninni og er ég enn að spekúlera í þessu. Ákveð það bara á morgun hvort ég láti laga kambinn eða hvort ég go for snoð. Þangað til annar tími rennur upp...
Später
:: G-Sus 19:08 [+] ::
...
:: laugardagur, ágúst 16, 2003 ::
Vá maður... Mikið einstaklega hlakkar mig til að sjá myndina The Last Samurai. Alveg einstakt hvernig menn gátu verið svona hliðhollir einhverjum eins og samúræjarnir voru. Ótrúlega falleg hugsun á bak við þetta allt. Forvitnir geta smellt á linkinn og lesið sér örlítið til um þetta og horft á sýnishorn úr myndinni.
Byrjun desember er tíminn.
Og svo í lok desember er 3. hluti Lortsins á dagskrá. Það verður gaman að sjá einnig.
Djöfull er ég skrítinn.
Það eru örugglega ekki margir sem neita þessari fullyrðingu. En málið er það núna að ég er búinn að fá leið á semi-kambinum mínum. Eftir 4 daga! Þessvegna er ég alvarlega að hugsa um að gerast snoðhaus á mánudaginn. Ha?
Auðvitað mun ég svo taka lokaákvörðun sjálfur en ekki taka mark á ykkur FEEBLE HUMANS! MUAHAHAHAHAHA!
:: G-Sus 13:36 [+] ::
...
:: föstudagur, ágúst 15, 2003 ::
Var að koma frá samkomu í sumarbústað Eggerts rétt fyrir utan Hafnarfjörð. Hápunktinum var náð þegar Eggert hringdi inn á Bylgjuna og bað um lagið Tiny Dancer með Elton John með kveðju til Hrútanna. Svo kom kveðjan og lagið. Snilld. Útvarpsmaðurinn vissi ekkert hvernig hann átti að koma þessari kveðju frá sér. Mjög fyndið. Svo var bara eitthvað spjallað og ég hélt snemma heim á leið þar sem slappleikinn er allsráðandi þessa stundina og svo er víst vinna í fyrramálið. Ég veit... ég er algjör kelling þegar kemur að heilsufari. En þegar það kemur að bremsufari þá er ég KÓÓÓÓNGUUURIIIINN!
Tók upp Simpsons og Punk´d. Er að fara að horfa á það shiii núna. Meistari J.T. (ya´ll) var víst í Punk´d og örugglega gaman að sjá hann tekinn í taðgatið.
Það liggur við að manni sé farið að hlakka til næstu helgar þar sem afmælisboð Eggerts bíður eftir manni. Djöfull er maður slakur.
Enginn one liner í dag gott fólk.
:: G-Sus 23:16 [+] ::
...
:: fimmtudagur, ágúst 14, 2003 ::
Ég var svona að spá, í kjölfar rosalega undarlegs drauma session, hvað draumar eru örugglega uppspretta margra dægrastyttinga. Bíómyndir og tölvuleikir þar kannski fremstir.
Draumar eru náttúrulega alveg frábær dægrastytting fyrir okkur mannfólkið en þegar mann dreymir sofandi fer ímyndunaraflið á fullt og maður er að sjá eitthvað fyrir sér sem manni gæti ekki nokkurntíma dottið í hug í vöku. Ég hugsa að það sé nokkuð pottþétt að margar bíómyndir séu byggðar á einhverjum draumórum sem höfundur hefur haft. Hvað þá með þessa ógeðslega steiktu tölvuleiki þar sem þú ert kannski mús á hlaupahjóli að bjarga frosk úr klóm ruslakalla... Ég meina, hver lætur sér detta þetta allt í hug!
uhh.... I think I just did.
Er aftur orðinn slakur heilsulega séð. Lakur! Og er að fara að þjálfa á eftir :-(
Svo verður maður bara að bragða á þessu Gígaviku tilboði Dominos held ég bara.
Jömmíjömmí I want pizza in my tummy!
:: G-Sus 17:37 [+] ::
...
Jájá hér! Mættur hér ekkisvoslakurákantinum! Með J-Lo í bílnum!
Var að koma frá Steina fyrir ekki svo löngu síðan. Kallinn að fara í nám til Danmerkur. Ég var samt hjá honum fyrr í dag þegar hún María heitkona hans klippti mig á allsérstakan hátt. Myndin sem ég teiknaði í síðasta bloggi af mér og Davíð lýsir því svona nokkurnveginn hvernig ég lít út. Þetta var bara gert þar sem ég var búinn að fá massa leið á hárinu mínu og vildi helst losna við allt. Farinn var meðalvegur.
Svo er ég að vinna um helgina svo það verður ekkert menningarnæturskrall. Leiðinlegt mjög.
Eru ekki annars bara allir hressir? Ég er gríðarhress mjög þessa stundina með það að vera að skrifa ekki neitt sérstakt þar sem það kemur ekkert sérstakt upp í hugann á mér nema að skrifa þessa línu aftur og aftur... og aftur.... og aftur.... fylliraftur. Ekki enn komið neitt.... Og ekki enn......... Tikk... tikk... tikk..... Nei það er ekkert að koma svo ég segi bara bless í bili.
---------- bless ------------
:: G-Sus 00:44 [+] ::
...
:: þriðjudagur, ágúst 12, 2003 ::


Takk
:: G-Sus 15:36 [+] ::
...
:: mánudagur, ágúst 11, 2003 ::
Það lítur út fyrir að maður komist á æfingu í kvöld. Æfingin byrjar kl 20 en ég tók eftir því að leikur Þraukara á móti ÍR-ingum byrjar klukkan 19. Það er því ekki úr vegi að mæta aðeins fyrr og sjá Sigrúnu lemja ÍR stúlkur í buff.
Atli átti svo ammali í gær. Til hamingju með það, kall. Loksins kominn í fullorðinna manna tölu.
Svo er Erling flottur kominn heim. Flottur.
Aftur á móti fer Steini svo út á fimmtudag til Danmerkur og kemur ekki heim fyrr en um jólin. Allir að yfirgefa this god forsaken island..
Fór í gær að sjá "Pirates of the Caribbean...". Alveg einstaklega skemmtileg mynd. I felt like a kid again..
Ævintýramynd eins og hún gerist best.
:: G-Sus 15:45 [+] ::
...
:: sunnudagur, ágúst 10, 2003 ::
Góðan dag hlustendur góðir. Klukkan er sex. Nú hefst blogg. Blogg skrifar Svartisauður.
Við ákváðum loks að fara fyrst til Jóhönnu í afmæli. Eftir það var farið til Helga þar sem mannmergð var mikil í annars litlu húsnæði. Þokkalegt var á báðum stöðum. Fór snemma heim þar sem slappleiki var enn að hrjá fagurmótaðan og vel skapaðan líkama minn. Keyrði samt Gaskút og frú +2 niðrí bæ. Hress sem aldrei fyrr.
Þegar ég kom heim fór ég að lesa Potterinn og fór ekki að sofa fyrr en seint. Vaknaði svo við sms frá Gaskút þar sem hann bauð fólki heim til að horfa á leik Arsenal - Manchester. Ég fór þangað en þurfti svo að fara þegar vítaspyrnukeppnin var hálfnuð svo ég veit ekki hvernig leikurinn fór. Jú! Fréttir segja að Manchester hafi unnið.
Fór frá Eika að heimsækja báða afana mína ásamt mömmu.
Nú er Daði alveg að fara að keppa við Skagamenn. Ef þeir tapa þá eru þeir í slæmum málum. En einhverjir þurfa víst að tapa þegar tvö lið keppa. Nema þegar það er jafntefli...
Verið hress
ekkert stress
fokkið ykkur
BLESS
:: G-Sus 18:09 [+] ::
...
:: laugardagur, ágúst 09, 2003 ::
"Guð grætur homma og lesbíur"
"Gay pride fær slæma útreið"
-fyrirsagnir úr Homophobe weekly
Já það rignir. Sveimérþáhvaðhannrignir. Ekkert golden shower samt! MUUAAAHAHAHAHA!!
Jizzes!
Simpson í gær var algjör snilld. Alveg einstaklega fyndinn þáttur. Byrjaði einmitt á gay pride gríni.
Í kvöld eru svo tvær feitar teitar (teiti er kvk. orð ekki satt?). Jóhanna (hans Eika) annarsvegar og svo Helgi Sk. Þorsteins hinsvegar. Nú vandast málið. Báðir gestgjafar óska eftir nærveru gesta sinna kl 21:00... Hmm. Ég held ég biðji góðvin minn hann H. Potter að redda mér útúr þessu. Fínn gaur hann Potter.
Í gærkvöldi fórum við svo nokkrir kútar til Atla. Það var fínt. Mættir voru Svartikútur, Buffkútur, Steiktikútur, Ungverskikútur og svo Sænskikútur. Það vantaði alveg aðalkútinn og það var hann Gaskútur. Nú megið þið giska hver Gaskútur er. Aðeins einn maður kemur til greina. Sendið lausnina í pósti til mín ásamt 1000 kr. Takk.
Ekki er ég alveg enn búinn að losna við óráðið en það vonandi rjátlar af mér á næstu dögum.
Lifið vanheil!
:: G-Sus 16:24 [+] ::
...
:: föstudagur, ágúst 08, 2003 ::
Ég var að horfa á bestu mynd í heimi fyrr í kvöld í sjónvarpinu en allt í einu dofnaði myndin meira og meira þangað til skjárinn varð svartur. Svo kom myndin aftur hægt og hægt þangað til mér fannst þetta ekki hægt. Þetta endurtók sig semsagt. Gamla trixið að slökkva og kveikja aftur (svona eins og í tölvum) virkaði ekki. Og þetta gerist einmitt þegar ég er að horfa á bestu mynd Í HEIMI! Þannig ég slökkti bara og tók eitt gott fró í staðinn.
Myndin var Battlefield Earth.
Svo fékk ég hringingu frá Gallup þar sem ég var vinsamlegast beðinn um að tala inn á eitthvað sjitt sem verður svo notað í að gera tölvur móttækilegar fyrir talaðri íslensku. Sniðugt. Þeir eru semsagt að safna öllum hljóðum sem við Íslendingar gefum frá okkur. Heitir eitthvað tungutækni.is or Hjal or sumphin. 10 heppnir verða svo dregnir út og þeir fá gefins síma. Ég get alveg tekið 5 mínútur í að reyna að vinna mér inn síma. Svo ég talaði með minni kynþokkafullu rödd sem aldrei fyrr í símtólið og er ég handviss um að ef ég verð ekki dreginn út þá fæ ég einhver sérstök aukaverðlaun fyrir almennan kynþokka. Pooooottþétt.
Ég er svo ömurlega tussulegur (yup you heard me) í þessum semi-veikindum að ég ákvað að kaupa mér nýjustu Harry Potter bókina í dag svo ég hefði eitthvað annað að gera en vera í tölvunni. Hún er um 800 bls. svo hún ætti að taka nokkra daga í lesningu.
Maður hefði lítið á móti því að vera á einhverri sólarströnd núna. Krít? ;-) Neinei bara einhverri strönd með sól og sjó og öllu því sem fylgir strönd. Damn hvað ég er ekki að nenna enn einum fökkings vetri hérna. DÆM!
Waddadadang, waddadadadang
Listen to my 9 mm go BANG
:: G-Sus 00:59 [+] ::
...
:: fimmtudagur, ágúst 07, 2003 ::
Vaknaði hálf fimm í morgun til að keyra Laufey út á flugvöll. Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu kom á sama tíma og við út á flugvöll. Það var gaman. Svo biðum við endalaust í röðinni hjá Iceland Express því það var aðeins eitt innritunarborð fyrir þá. Skettlegt. Við vissum alveg að Laufey þyrfti að borga yfirvigt en kommon! Hún þurfti að borga 14 þús. kell fyrir 28 kíló í yfirvigt. Damn, that shit it wack. Fullmikið kannski. Svo er bara spurning hvenær hún kemur heim aftur... Gæti verið í september en gæti allt eins verið um jólin.
Blahblah. Blehble.
Mikið er þetta gott fyrir gróðurinn.
:: G-Sus 15:16 [+] ::
...
:: miðvikudagur, ágúst 06, 2003 ::
Þetta átti semsagt að birtast í gærkvöldi en blogger er náttulega nokkuð glataður gaur:
Þetta er ömurlegt.. Ég er að verða veikur nokkuð pottþétt. Glatað shit.
Í fyrramálið fer systir mín til Danmerkur og ætlum við að keyra hana út á flugböll (já, flugböll) í fyrramálið. Ef ég á að segja eins og er þá er ég strax byrjaður að sakna hennar systur minnar. Það verður örugglega rosalega skrítið að hafa hana ekki hér heima. Eitthvað steikt að ég og mamma verðum bara hér tvö.
I´m so sad, I could cry
snöktsnökt
:: G-Sus 22:16 [+] ::
...
:: þriðjudagur, ágúst 05, 2003 ::
Sælar sælar
Maður er enn að ná sér eftir helgina bara. Alveg drulluþreyttur og steiktur.
Fór áðan í grill til bróður míns á Baldursgötunni. Massagott men. Það bregst ekki að þegar við borðum þarna þá koma alltaf geitungar til að halda okkur félagsskap. Djöfulli er mér illa við þessi kvikindi. Algjörlega ömurlega tilgangslaus dýr sem gera ekkert nema bögga mann. SAAAALAAAAKUR!
Enn og aftur hef ég ekkert að segja. Svo ég segi bara þetta:
BEWARE OF THE FUNKY CHICKEN
takk
:: G-Sus 21:52 [+] ::
...
Þá er helgin endanlega búin og endaði hún á mesta ruglinu hjá Arnþóri á sunnudagskvöldið.
Þetta var alveg ótrúlega skemmtileg helgi og jafnast alveg á við Eyjar um árið.
Núna tekur við vinna í 2 daga og svo smá frí aftur. Ekkert nema gott um það að segja.
Svo er systir mín að flytja út til Danmerkur eftir 2 daga í óákveðinn tíma þannig að við mæðginin verðum bara tvö eftir.
Nenni ekkert að skrifa svo ég hætti bara núna.
FIN
:: G-Sus 00:19 [+] ::
...
:: sunnudagur, ágúst 03, 2003 ::
Góðan dag gott fólk. Eruði ekki hress?! Ég er auðvitað gríðarhress eins og sönnum hnakka sæmir.
Þetta hefur nebbilega verið helgi hnakkanna.
Á föstudaginn fórum ég, Daði, Arnþór, Brynjar, Steini og María til hans Kristins og sátum þar að sumbli ásamt nokkrum öðrum. Það var frekar rólegt og var hlustað á ýmsa músík á meðan. "Gente di mare" er algjör hroði en þar sem Daði og Arnþór eru með fetish fyrir hroða þá var það spilað nokkrum sinnum og líka e-ð lag með Backstreet boys. Þið munið áðan að ég sagði að þetta hafi verið helgi hnakkanna. Keep it in mind. Eftir Kristinn (E.K.) þá fórum við niður í bæ. Ég hef aldrei verið mikill bæjarmaður en í réttu ástandi þá getur bærinn svosem verið alltílagi. Það gerðist nú kannski ekkert markvert þar nema að á Nelly´s var stór og mikil ljóshærð kona, meikuð og í gúddí fíling. Við nánari athugun sá maður að þríhöfðarnir voru óvenju stórir og við enn nánari athugun kom í ljós að þetta var karlmaður. Auvitað var svo endað á Nonna.
Í gær, nývaknaður og "gríðarhress", fór ég í sveitina með mömmu, Laufey og Eric frænda mínum. Eric var á bíl og bíllinn var 160 hestafla Alfa Romeo. Mér fannst það nú bara nokkuð töff. Pabbi og systir hans og fjölskyldan hennar voru fyrir í sveitinni. Frá Ási (sveitin) sér maður til Eyja. Ég heyrði í Atla og hann virtist vera að skemmta sér gríðarlega. Atli bara nokkuð jákvæður! Ótrúlegt! Borðtennisborðið okkar er enn í sveitinni og mun örugglega vera það um ókomna tíð þar sem verið er að breyta fjárhúsi í risastóra geymslu. Borðið mun svo eiga að standa þar. Það fer kannski svo að Hrútarnir mæti í borðtennismót í sveitinni í boði SS í nánustu framtíð. Hmm? Ég allavega opnaði nokkrar dósir af whoop ass í gær.
Við komum í bæinn aftur um 23 leytið og þá fóru nokkrir vel valdir einstaklingar til Eika og Jóhönnu hans Eika :)
Þar þróuðust mál eiginlega alveg eins og hjá Kristni. Vímuefnaneysla í vökvaformi og hlustað á silly tónlist. Senjorita lagið með Justin Timberlake (J.T. ya´ll!) var vinsælt. Hnakka hvað? Ég var í Captain Morgan í kókómjólk pakkanum og vaknaði alveg gríðarhress áðan. Þetta er algjör snilld að blanda þessu tvennu saman. Virðast heldur ekki vera nein teljanleg eftirköst. Svo var haldið í bæinn og fór ég í fyrsta sinn á Felix. Þeir sem þekkja til vita að það er svona lítið svið á staðnum og mjög hresst að dansa þar uppá. Við vorum þar í mismiklu rugli og ég held það sé alveg óhætt að segja að Arnþór hafi OWN-AÐ staðinn og tja.. jafnvel kvöldið þegar út í það er farið.
Í aðalatriðum þá hafa síðustu tveir dagar einkennst af almennum suddaskap og það er alltílagi 2 daga á ári held ég. Það veldur engum varanlegum skaða.
The boys say:
"I think there´s something heating up, can I leave with you?"
And the girls say:
"I don´t know what I´m thinking of, really leaving with yoooou!"
......J.T. alltaf flottur! djöfulsins djók samt...
Myndin hér fyrir neðan er myndrænt nafn á lagi sem mikið er haldið uppá á Nelly´s og er stuðlag nokkurra Hrúta. Þið verðið að finna út hvað lagið heitir.

Ef þið fattið þetta ekki þá getið þið hlustað á lagið hér og lagt saman 2 í n-ta + 2.
Djöfull væri ég til í bíó í kvöld. Hmm? Stemning?
:: G-Sus 13:32 [+] ::
...
:: föstudagur, ágúst 01, 2003 ::
Var á næturvakt í nótt.
Fer ekki aftur að vinna fyrr en á þriðjudag. Chill....
Alltaf gaman að sjá fallegan dag verða til. Það varð alltaf bjartara og bjartara inní herberginu og þegar maður gekk út kl hálf átta þá var snilldarveður.
Ekki gaman að fara að sofa þá...
Hvað skal gera í kvöld eiginlega? Eitt er nokkuð pott(!)þétt þó og það er pottur í Laugardalnum e-n tíma áður en dagurinn er liðinn.
aiiight
:: G-Sus 16:09 [+] ::
...
|