|
|
:: miðvikudagur, september 27, 2006 ::
London á morgun. Þá er bara eitt eftir af þrennunni og það er Róm. Ætli flugvélinni verði rænt? Ætli ég muni ferðast í strætisbombuvagni? Ætli ég verði tekinn í þjónustu hennar hátignar og lifi æsispennandi lífi það sem eftir er? Það verður fróðlegt að sjá hvað setur.
Finnst mjög miður að missa af myrkvun Reykjavíkur annað kvöld, ef af henni verður. Það væri gaman að sjá þennan aragrúa af stjörnum sem við erum að missa af á hverju kvöldi.
Ek vil út.
:: G-Sus 23:14 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 26, 2006 ::
Ég keyrði í dag á eftir jeppa með undarlegt einkanúmer. Hann var svolítinn spöl frá mér svo númerið var ekkert alveg skýrt. Ég hugsaði með mér að annaðhvort væri manneskjan alveg svakalega fyndin, svakalega hreinskilin eða svakalega heimsk. Ég hugsaði strax til South Park einhverra hluta vegna. Þegar ég kom nær sá ég að það var komma fyrir ofan A-ið svo þetta var ekkert svo sniðugt lengur. Einkanúmerið var FÁG.
Góð saga?
:: G-Sus 22:39 [+] ::
...
:: sunnudagur, september 24, 2006 ::
Ég er alveg hættur að nenna að blogga, imho. lol, tbh
:: G-Sus 15:17 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 19, 2006 ::
Ekkert merkilegt frá að segja. Er status kvó ekki bara góður hlutur?
Ég var samt að skoða 'Heilsufarsbókina' mína. Þurfti að skoða þetta aðeins af ástæðu og rak þá augun í skemmtilegar staðreyndir. Þetta er svona tjekköpp bók á stærð og þyngd manns á mismunandi skeiðum lífsins. Allir eiga svona bók (spjald) einhversstaðar oní skúffu eða geymslu. Skemmtileg staðreynd: Þegar ég átti 2 mánuði eftir uppá 15 ára afmælið mitt, þá var ég 53.5 kíló og 176.5 sentimetrar. Það er algjörlega R-Í-D-I-K-K-J-Ú-L-U-S! Í dag er ég 9 sentimetrum hærri en hef bætt á mig ca. 20 kílóum. Örlítið búinn að rétta af þetta mjög svo bjagaða hlutfall.
Allavega, fokkið ykkur, bíaddses.
Nei, þetta var ljótt af mér. Góða nótt, meina ég.
:: G-Sus 22:57 [+] ::
...
:: fimmtudagur, september 14, 2006 ::
Eru ekki allir í stuði?
:: G-Sus 23:46 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 12, 2006 ::
Getið þið giskað á hvað ég er með í eyrunum núna? Nei, hélt ekki. Rétt svar er "Hey Nineteen" með Steely Dan. Fokking töff lag.
Þar fauk hip hop ímyndin út um gluggann.
:: G-Sus 23:51 [+] ::
...
:: miðvikudagur, september 06, 2006 ::
Djöfull hata ég gjörninga. Það er eitt það kjánalegasta sem til er í heiminum. Sjáið til dæmis þennan gjörning: http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1222319 Þvílíkt listaverk!!! Það hefði verið eitthvað var í þennan gjörning ef Rúri hefði tekið einn fyrir liðið, klætt sig í kartöflupoka, fyllt hann af steinum og hoppað útí. Gjörningurinn hefði samt verið asnalegur.
:: G-Sus 15:41 [+] ::
...
:: mánudagur, september 04, 2006 ::
Blogg? Ekki tími fyrir blogg.
:: G-Sus 22:43 [+] ::
...
|