eXTReMe Tracker Einræður Svartasauðs

:: Einræður Svartasauðs ::

G-sus... KRÆST!
:: Velkomin á hina frábæru síðu: Einræður Svartasauðs! :: Hér! | Sendid SS línu... ::
Fýrar og fljóð
:: Sænskihrútur [>]
Le Buff [>]
Ungverski hrútur[>]
Stebbi G.[>]
Egill sauður[>]
Tumi.is [>]
Hnakkus [>]
Jóel [>]
TKD Hulda [>]
Hip Hop shiii
UGHH[>]
Sandbox[>]
Hiphopsite[>]
Taekwondo shiii
Taekwondo Ísland[>]
TKD-deild ÍR[>]
[Annað shiii]
B.T. Verktakar[>]
EVE-Online [>]
Mogginn[>]
Hvar.is[>]
Húmor[>]
b2[>]
3 skammtar af sandi + 1 af sementi
nóvember 2002desember 2002janúar 2003febrúar 2003mars 2003apríl 2003maí 2003júní 2003júlí 2003ágúst 2003september 2003október 2003nóvember 2003desember 2003janúar 2004febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006nóvember 2006desember 2006janúar 2007febrúar 2007mars 2007apríl 2007maí 2007júní 2007júlí 2007ágúst 2007september 2007>

:: þriðjudagur, september 25, 2007 ::

Ætli það sé ekki best að enda þetta í 1130 bloggfærslum sléttum.

Sumsé... http://geelovejapan.blogspot.com

:: G-Sus 10:44 [+] ::
...
:: sunnudagur, september 16, 2007 ::
Þá er kominn tími til að skrappa Svartasauð. Finn ekki betri tíma til þess en núna.

Bið ykkur vel að lifa og bið að heilsa.

MSN-ið mitt er geelovejapan@hotmail.com

:: G-Sus 18:21 [+] ::
...
:: þriðjudagur, september 11, 2007 ::
"Það er alltaf dýrara að vera með seðla í höndunum"

Þetta fannst mér leiðinlegt að heyra þegar ég fór í bankann áðan til þess að kaupa mér Yen. Ég skoðaði gengið á netinu og sá að það var í ca 0.57 krónum. Fannst það frekar glatað þar sem ég hefði getað verið sniðugur fyrir svona 2 mánuðum síðan og keypt meðan það var í 0.50. Svo reiddi ég fram 100 kjepps og beið spenntur eftir að þessir framandi seðlar kæmu fljúgandi ofan í veskið mitt. HWHAT!? Gengið allt í einu mætt í rúmlega 0.59! Það var þá sem ég fékk að heyra setninguna hérna að ofan eftir að hafa hváð svona svakalega. Það sem stendur á netinu er eitthvað almennt gengi sem á við ef maður á gjaldeyrisreikning. Húrra fyrir flóknu kerfi!

Úr því svona gekk, þá er ég að hugsa um að ganga niður í banka með genginu mínu og lemja þetta gengi niður.
Það getur ekki annað en gengið vel.

:: G-Sus 12:07 [+] ::
...
:: laugardagur, september 01, 2007 ::
Þetta er farið að vera svolítið pirrandi. Hvað er málið með að halda að ég sé útlendingur?

16 dagar svona tæplega..

:: G-Sus 23:25 [+] ::
...
:: sunnudagur, ágúst 26, 2007 ::
Núna er ég á góðri leið með að missa hárið, eða allavega fá góðan skalla, og finnst mér það mjög miður. Stress á víst að auka hárlos og ég get alveg tekið undir það, þó svo ég viti ekki hvort það sé vísindalega sannað eður ei. Það er líka svo merkilegt að þegar maður heldur að maður sé að fara að missa hárið þá er það ekki beinlínis neitt afslöppunarefni, heldur þvert á móti þá getur maður ekki annað en stressað sig yfir því. Ekki hægt að vinna þetta helvíti.

Mikið hefði verið gaman ef þeir hefðu getað frestað HM í frjálsum um svona 1 mánuð. Þá hefði ég getað tjekkað á þessu. Osaka er steinsnar frá Kyoto. Borgirnar eru eiginlega samvaxnar. Þó svo að frjálsar séu ekki beinlínis mitt topp áhugamál þá er alltaf gaman að fylgjast með íþróttamönnum í heimsklassa.

22 dagar

:: G-Sus 13:39 [+] ::
...
:: mánudagur, ágúst 20, 2007 ::
Tók eftir því að hópur útlendinga hvaðanæva að úr heiminum var farinn að skoða síðuna mína. Þeir voru líka alltaf að skoða það sama. Slógu 'Susan Ward' inní einhverja leitarvél og fundu mynd af henni á blogginu mínu frá því 17. ágúst 2003. Ekki séns ég nenni að hafa einhverja illa lyktandi nörda, sem eru að reyna að rúnka sér yfir fröken Ward, heimsækjandi bloggið mitt.
Svo ég fjarlægði myndina.

Hí á þá.

:: G-Sus 22:40 [+] ::
...
:: laugardagur, ágúst 18, 2007 ::

:: G-Sus 17:44 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?